Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 33
✝ Daníel Árnasonfæddist á
Blönduósi 16. mars
1948. Hann lést á
heimili sínu, Hátúni
12, Sjálfsbjarg-
arhúsinu, 12. apríl.
Foreldrar hans eru
Heiðbjört Lilja Hall-
dórsdóttir, hús-
móðir og verka-
kona, f. 23.8. 1918,
og Árni Davíð Daní-
elsson, bóndi, f.
16.5. 1911, d. 28.6.
1970. Bræður hans
eru 1) Halldór H., bifreiðastjóri, f.
23.12. 1949, kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur, forstöðumanni, f.
1.11. 1950. 2) Bragi tækjastjóri, f.
26.12. 1950, kvæntur Svandísi
Torfadóttur, starfsstúlku, f. 29.9.
1951. Uppeldissystir Daníels er
Sólveig Guðmundsdóttir, hús-
freyja, f. 26. 3. 1939, gift Óskari
Jónssyni bónda, f. 21.7. 1935.
Daníel kvæntist hinn 28. 3.
1970 Guðrúnu Þorbjörgu Svans-
dóttur skrifstofustjóra, f. 3.10.
1950. Hún lést 17.1. 2000. For-
eldrar hennar voru Álfhildur
Kristjánsdóttir, f. 19.10. 1916, d.
8.2. 2005, og Sigursteinn Þórð-
arson, f. 28.11. 1903, d. 14.5. 1989.
Þau slitu samvistum. Seinni mað-
ur Álfhildar, Svanur Ingi Krist-
jánsson, f. 9.2. 1922,
d. 22.11. 2005, gekk
Guðrúnu í föðurstað
frá unga aldri.
Synir Daníels og
Guðrúnar eru: 1)
Árni Svanur guð-
fræðingur, f. 15.4.
1973, kvæntur Guð-
rúnu Harðardóttur
sagnfræðingi, f. 5.3.
1966. Dætur þeirra
eru Guðrún María,
f. 12. 4. 2002, og El-
ísabet, f. 8. 8. 2006.
2) Davíð Már meist-
aranemi í verkfræði, f. 19.6. 1979,
kvæntur Tinnu Maríu Emils-
dóttur græðara, f. 11.12. 1980.
Daníel ólst upp í Eyjarkoti í
Vindhælishreppi, A-Húnavatns-
sýslu. Hann lauk búfræðiprófi frá
bændaskólanum á Hvanneyri árið
1967. Hann starfaði lengst af við
sölumennsku og fasteignasölu.
Hann var félagi í Oddfellowregl-
unni, stúku nr. 11, Þorgeir. Á
annan áratug glímdi hann við
MS-sjúkdóminn og markaði sú
glíma lífsgöngu hans. Frá árinu
2003 bjó hann á Sjálfsbjarg-
arheimilinu og naut þar góðrar
umönnunar.
Daníel verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
Hólmi. Sólríkur og fagur dagur.
Þíður vindur strauk vangann. Angan
af sumri í lofti. Leikið við lækjar-
sprænu, í fjarska heyrðist fossniður.
Sögur af langafa og uppvaxtarárum
pabba. Hólmasögur, Eyjarkotssög-
ur. Sögurnar voru reyndar ótal
margar og miklu fleiri! Bílasögur,
prakkarasögur frá Hvanneyri og úr
sveitinni, sögur úr tilhugalífinu,
húsasögur, sögur úr vinnunni, sögur
af landinu og sögur af ljóðum og vís-
um. Pabbi var sögumaður.
Ég man eftir „Súkkunni“ sem
honum þótti svo skemmtilegur
ferðabíll. „Hún er lítil, en þessi bíll
kemst allt. Allt!“ Svo brosti hann. Til
að undirstrika þetta var tekinn svo-
lítill krókur á leiðinni yfir Kjöl. Hald-
ið áleiðis upp að Hagavatni. Á vegi
fjölskyldunnar varð brekka. Brött.
„Ef þú ætlar upp þessa brekku fer
ég út úr bílnum,“ sagði mamma. Hún
stóð við það. En pabbi reyndi sig og
bílinn við brekkuna. Hann fór ekki
alla leið upp. Var skynsamari en svo
að ana út í einhverja vitleysu. Þekkti
bílinn og þekkti landið. En vildi samt
prófa. Hafði gaman af að sjá hvað
hann kæmist. Áfram var haldið eftir
Kjalvegi. Foreldrarnir miðluðu dá-
læti á ferðalögum og útiveru til son-
anna. Íslandsást. Drógu velkt kort
upp úr brúnu kortaboxi sem bjó í
bílnum. Sýndu hvar við vorum og
sögðu frá. Pabbi var ferðamaður.
„Þetta er ekkert líf,“ sagði hann
stundarhátt. Sjúkdómurinn tók sinn
toll. Smátt og smátt dró af honum.
Fyrst um sinn dugði stafurinn til að
komast leiðar sinnar. Síðar þurfti
stól. Á endanum algjöra aðstoð.
Hana fékk hann. Alltaf hélt hann þó
reisninni, var raunsær – vissi að
hverju stefndi. Gerði vilja sinn skýr-
an. Oftar en einu sinni héldum við að
komið væri að kveðjustund, en það
var töggur í honum og hann reif sig
upp. Stundum læddist að manni sá
grunur að kannski myndi hann ekki
deyja. Pabbi var glímumaður.
Lítil hnáta kvaddi afa sinn rétt
fyrir jól. Smellti rembingskossi á
kinn. Hann hafði verið svolítið dauf-
ur í dálkinn, en lifnaði nú allur við.
Bros færðist yfir andlitið. Augun
ljómuðu. Kannski var þetta besta
jólagjöfin sem mátti hugsa sér! Afa-
stelpur í heimsókn gátu reyndar iðu-
lega kallað fram bros, einkum þegar
glaðvært heyrðist kallað á gangin-
um: „Afi, afi, afi …“ Sama hnáta
kvaddi hann aftur fyrir skemmstu.
Afi dormaði í stólnum og hún sagði
stundarhátt og benti: „Afi, lúlla!“
Pabbi var afi.
„Líður tíminn ekki öðruvísi á
himnum?“ spurði hann eitt kvöldið.
Þannig tjáði hann ástina til eigin-
konu sinnar, mömmu. Til sálufélag-
ans sem kvaddi alltof snemma. Und-
anskilin og óorðuð var þráin eftir að
fá að sjá hana aftur. Hún hafði jú átt
lykilinn að hjarta hans, allt frá ör-
lagaríkum degi fyrir langa löngu
þegar strákur að norðan og stelpa að
sunnan hittust og felldu hugi saman.
Þau voru hvors annars. Pabbi var
hennar maður.
„Líður tíminn ekki öðruvísi á
himnum?“ Þannig tjáði hann líka
upprisuvonina. Nú hefur hann kvatt,
á vordögum, í birtu páskasólar.
Hann háði sína glímu við tilgang og
efa og erfiðleika af ýmsum toga. En í
skammdegismyrkri lífsins átti hann
fullvissuna um lífið eilífa og uppris-
utrúna. Það missti hann ekki, hvað
sem á gekk. Pabbi var trúmaður.
Hans er sárt saknað. Mömmu líka.
Nú fá þau loks að hvíla hlið við hlið.
Saman á ný. Guð blessi minningu
þeirra beggja.
Árni Svanur Daníelsson.
Í dag, þegar aðeins er vika til sum-
arkomu, er borinn til grafar góður
drengur og félagi, Daníel Árnason
sölumaður. Hann lést eftir erfið og
langvarandi veikindi 12. apríl sl., þá
nýorðinn sextugur. Það er ekki hár
aldur, en eftir allar þær líkamlegu og
andlegu þjáningar sem hann hafði
orðið að þola þau átján ár síðan hann
greindist með sjúkdóminn, varð
dauðinn honum líkn.
Það var vissulega dapurlegra en
orð fá lýst að verða vitni að þeirri
hröðu, líkamlegu hrörnun sem sjúk-
dómurinn olli, en undir lokin var
hreyfigeta Daníels orðin mjög lítil og
hann var algerlega bundinn við rúm
sitt eða hjólastól. Hann þurfti fulla
þjónustu. Hins vegar hélt Daníel
andlegu atgervi sínu óskertu og
hugsun hans var skýr allt til hins síð-
asta. Hann var skarpgreindur, afar
minnugur á menn og málefni og
fylgdist ótrúlega vel með því sem
fram fór í þjóðfélaginu. Og hann lá
ekki á skoðunum sínum, þótt hann
ætti á stundum erfitt með að tjá sig á
síðustu árum.
Daníel kunni ógrynni af sögum og
ljóðum, sem hann hafði gaman af að
fara með. Oftar en ekki gekk maður
á braut í góðu skapi og með bros á
vör að lokinni heimsókn til hans.
Sjúklingurinn varð gefandinn, gest-
urinn þiggjandi. Þrátt fyrir allt sem
yfir hann hafði dunið hélt Daníel í
kímnina, og það skipti miklu máli.
Kona Daníels var Guðrún Svans-
dóttir og eignuðust þau tvo syni,
Árna Svan, guðfræðing, og Davíð
Má, verkfræðinema. Guðrún lést ár-
ið 2000 eftir tiltölulega stutta en erf-
iða sjúkdómslegu, aðeins 49 ára að
aldri. Það var fjölskyldunni mikið
áfall. Árið 2003 var svo komið að
Daníel gat ekki lengur búið einn og
flutti hann þá í hús Sjálfsbjargar að
Hátúni 12. Þar naut hann frábærrar
umönnunar, þolgæðis og hlýju
starfsfólksins til síðustu stundar.
Daníel gekk í Oddfellowstúkuna
Þorgeir nr. 11 árið 1990 og var félagi
í henni alla tíð. Hann undi sér vel í
þeim félagsskap og meðan heilsan
frekast leyfði sótti hann þar fundi og
starfaði af áhuga og dugnaði að
mannúðarmálum Reglunnar. Fyrir
það eru honum færðar þakkir og fyr-
ir hönd okkar Þorgeirsbræðra þakka
ég samfylgd góðs félaga og vinar –
við kveðjum hann með söknuði.
Aðstandendum Daníels vottum við
dýpstu samúð.
Ingvi Þorsteinsson.
Það er með gleði í hug og hjarta
sem ég kveð gamlan vin minn Daníel
Árnason. Því eins og Daníel sagði
sjálfur við mig í vetur er ég hitti
hann í hjólastólnum sínum – eða
hvíslaði réttara sagt því líkamlegt
þrek var komið niður á það stig – að
hann væri nú orðinn alveg ónýtur og
ekkert eftir annað en að flytja til
hennar Guðrúnar sinnar. En Guðrún
Svansdóttir var konan hans sem lést
einnig langt fyrir aldur fram aðeins
49 ára árið 2000.
Daníel náði því að verða sextugur í
síðasta mánuði svo hvorugt þeirra
átti langt líf hér í þessum heimi. Síð-
asti áratugurinn var Daníel ákaflega
erfiður vegna lömunarinnar sem
lagði líkama hans að lokum að velli.
En andinn var að sönnu reiðubúinn
en líkaminn var hættur að svara og
vildi sofna svefninum langa. Og það
er þess vegna líka í dag sem við
heilsum honum Daníel í nýja líkam-
anum sínum í Sumarlandinu. Og þar
komum við einmitt að kjarna máls-
ins.
Vinátta tókst með okkur Daníel
upp úr 1970 sem aldrei hélaði þó sí-
fellt fleiri víkur væru á milli okkar
vinanna. Og þegar pílatusarganga
mín og okkar félaganna í dulrænum
málum hófst um 1972 þá var það
Daníel Árnason vinur minn sem
benti mér skynsamlega á að ég
mætti alls ekki láta hjá líða að kynna
mér hvað nýalssinnar hefðu fram að
færa með miðilsrannsóknum sínum
og kenningum dr. Helga Pjeturss.
Og það gerði alveg gæfumuninn, því
dulræna þokan grúfði yfir öllum sál-
arrannsóknarfélögum landsins á
þeim tíma og nánast ekkert um
skipulagða leit að svörum að handan
eða bara yfir höfuð nokkur alvöru
leit sem enn er eitt helsta einkenni
flestra eða allra þessara félaga í dag.
Það var undir handarjaðri nýals-
sinna sem við félagarnir lærðum að
ekkert yfirnáttúrulegt væri til – ekki
einu sinni bústaður látinna eða guð-
anna – allt væri þetta einhvers stað-
ar í náttúrufræðinni eins og dr. Helgi
sagði svo fallega í bókum sínum. Að-
eins væri eftir að finna því stað og
hvar hverju væri skipað niður í nátt-
úrulögmálunum sem þar giltu en við
dauðlegu mennirnir vissum nánast
ekkert um.
Ef ekki hefði komið til þessi nýi
grundvallarskilningur sem Daníel
benti okkur á hefðu örlög okkar sem
og félags okkar, Sálarrannsóknar-
félags Reykjavíkur, orðið þau sömu
og flestra eða allra annarra sálar-
rannsóknarfélaga í veröldinni: Að
leitinni væri meira og minna hætt og
allur skilningur okkar hefði fest í
huliðsþokunni miklu er umlykur
nánast alla hreyfinguna hér á landi
sem annars staðar. Þar festist því
leitin í hugtakinu „okkur er ekki ætl-
að að vita það“ sem er nánast bana-
biti hreyfingarinnar. – Fyrir þessa
og margar aðrar góðar ábendingar
Daníels vinar míns og vináttu hans
og Guðrúnar skal hér þakkað að leið-
arlokum í þessum kafla. Gangi þér
vel á sjúkrahúsinu í Sumarlandinu
kæri vinur og mundu að orðstír eða
vinátta deyr aldrei.
Magnús H. Skarphéðinsson,
formaður Sálarannsóknarfélags
Reykjavíkur.
Fallinn er frá heiðursmaðurinn
Daníel Árnason en hann var einn af
stofnendum Félags fasteignasala og
sat í fyrstu stjórn félagsins. Daníel
lagði á sig mikið og óeigingjarnt
starf fyrir 25 árum við stofnun fé-
lagsins en hann taldi mikilvægt að
fasteignasalar stofnuðu félag þannig
að þeir stæðu þéttar saman og ynnu
af fagmennsku og vandvirkni við
fasteignasölu auk þess að gera stöðu
viðskiptavina fasteignasala tryggari.
Daníel sinnti auk stjórnarstarfa
margháttuðum trúnaðarstörfum
gegnum árin fyrir hönd félagsins
sem öll voru unnin af miklum heið-
arleika og nákvæmni eins og hann
var þekktur fyrir í störfum sínum
sem fasteignasali.
Að leiðarlokum viljum við þakka
Daníel öll hans góðu verk í okkar
þágu. Vottum við fjölskyldu hans
okkar dýpstu samúð.
Stjórn Félags fasteignasala.
Daníel Árnason
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR ÞORGILS STEFÁNSSON
fyrrverandi olíubílstjóri,
Garðabraut 37,
Akranesi,
lést laugardaginn 12. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn
18. apríl kl. 15.00.
Sigrún Gunnarsdóttir,
Ingibjörg E. Óskarsdóttir,
Stefán G. Óskarsson, Berglind Þórsteinsdóttir,
Sólrún H. Óskarsdóttir, Jakob R. Garðarsson,
Ásgerður M. Óskarsdóttir, Eymundur S. Einarsson,
Ásdís V. Óskarsdóttir, Guðmundur Þorvaldsson
og afabörn.
✝
Bróðir okkar,
SIGURÐUR BJÖRNSSON,
Kvískerjum,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
fimmtudaginn 10. apríl, verður jarðsunginn frá
Hofskirkju í Öræfum laugardaginn 19. apríl
kl. 14.00.
Helgi Björnsson,
Hálfdán Björnsson.
✝
Okkar ástkæri,
EIRÍKUR ÁSGEIR ÞORLEIFSSON,
Borgarheiði 17v,
Hveragerði,
andaðist á Landspítalanum 14. apríl.
Útför fer fram 19. apríl kl. 14.00 frá Kotstrandar-
kirkju.
Jónína Margrét Egilsdóttir,
Erling Eiríksson, Kristín Gísladóttir,
Ásgeir Stefán Ásgeirsson, Harpa Lind Björnsdóttir,
Svala Ásgeirsdóttir, Smári Björn Stefánsson
og barnabörn.
✝
Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLFRÍÐUR KRISTRÚN BENEDIKTSDÓTTIR,
Glitvöllum 36,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
11. apríl.
Útför fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn
21. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á kvennadeild Landspítalans við Hringbraut, deild 21A.
Aðalheiður Franklínsdóttir,
Heiðrún, Fjóla, Sigríður, Kristrún og Benedikt Jónsbörn,
tengdabörn og ömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HAFDÍS HANNA MOLDOFF,
Klapparhlíð 28,
Mosfellsbæ,
andaðist mánudaginn 14. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
María Ragnarsdóttir, Óskar Árni Hilmarsson,
Guðbjörg Rósa Ragnarsdóttir,Gunnar George Gray,
Sigurður Páll Ragnarsson,
Jóhanna Ragnarsdóttir, Ólafur Steinbergsson,
Lárus Kristinn Ragnarsson, Björg Ragnarsdóttir,
ömmubörn og langömmubarn.