Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 31
✝ Sigríður Ingi-björg Aradóttir fæddist í Stóra- Langadal á Skóg- arströnd 16. okt. 1917. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 4. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Ari Stefánsson, f. 1872, d. 1957 og Kristín Guðmundsdóttir, f. 1874, d. 1944. Systkini Sigríðar voru: Salbjörg Kristín, f. 1900, d. 1978, Sig- urður Tryggvi, f. 1904, d. 2007, Jóhanna Stefanía, f. 1906, d. 2003, Guðmundur, f. 1908, d. 1908, Guðný Ingunn, f. 1910, d. 2004, Guðrún Áslaug, f. 1913, d. 1995 og Björg, f. 1915, d. 2005. Sigríður giftist 11. okt. 1941 Jóni Árna Kristinssyni, f. 29.10. 1914 í Hafnarfirði, d. 17.10. 1984. Foreldrar hans voru Krist- inn Friðrik Brandsson, f. 1888, d. 1968, og Ingibjörg Guðrún Árnadóttir, f. 1887, d. 1949. Börn Sigríðar og Jóns Árna eru: 1) Kristín Ingunn, f. 1943, maki Baldur Sveinsson, f. 1942, börn þeirra eru, a) Sveinn, f. 1962, maki Ma Cheung, f. 1966; sonur Sveins er Baldur Benja- mín, f. 1996, móðir hans er fyrr- verandi sambýliskona Sveins, Sigríður Bára Traustadóttir, f. 1956, b) Árni Jón, f. 1968, synir hans eru Hlöðver Kristinn, f. 1991, móðir hans er Sólrún Hlöðversdóttir, f. 1962, Óskar Ingimar, f. 1997, móðir hans er Margrét Lísa Óskarsdóttir, f. 1976, c) Sigríður Björk, f. 1980, unnusti Zak Shu- kor, f. 1970, d) fóstursonur Óskar Ingimar Árnason. 2) Kristinn Friðrik, f. 1944, maki Edda Jóhannsdóttir, f. 1947, börn þeirra eru: a) Guðrún Björk, f. 1966, dótt- ir hennar er Edda Hilmarsdóttir, f. 1986, faðir hennar er Hilmar Þór Hilmarsson, f. 1960, b) Jóhann Ólafur, f. 1976, sambýliskona Jó- hanna Garðarsdóttir, f. 1977, sonur þeirra er Kristinn Kári, f. 2008. 3) Ingibergur Gunnar, f. 1944, maki Júlía Magnúsdóttir, f. 1946, börn þeirra eru: a) Magnús, f. 1966, maki Halldóra Magnúsdóttir, f. 1968, börn þeirra eru Jakob Daníel, f. 1988, Júlía, f. 1990, Lilja Líf, f. 1995, Enok, f. 1997, b) Þráinn, f. 1973, börn hans eru Thelma, f. 1991, móðir hennar er Rósa Björk Jónsdóttir, f. 1967, Benjamín, f. 1995, móðir hans er Rósmarý Ósk Óskarsdóttir, f. 1968, c) Elvar f. 1978, maki Sigríður Margrét Jónsdóttir, f. 1980, syn- ir þeirra eru Benedikt Efraím, f. 1999, Ingibergur Alex, f. 2002. 4) Lilja Björk, f. 1959, maki Lár- us Þór Jónsson, f. 1960, börn þeirra eru: a) Jón Kristinn, f. 1986, b) Ólafur Már, f. 1989, c) Sigríður María, f. 1992. Sigríður og Jón Árni bjuggu allan sinn búskap í Hafnarfirði. Sigríður verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Amma Silla. Þegar ég hugsa til baka þá sé ég fyrir mér brosmilt andlit þitt, hlýlegt og glaðlegt. Þú tókst mér alltaf opnum örmum og varst alltaf tilbúin að gefa mér tíma og sinna mér. Ekki fór nú lítið fyrir mér og uppátækin ýmiss konar en alltaf sýndir þú mér skilning og þolinmæði. Við áttum oft gott spjall saman og fann ég mig ávallt sem jafningja og góðan vin í þinni návist. Við ræddum um Drottin og tilgang lífsins. Það er mér ógleymanlegt þegar við áttum saman einlæga bænastund og við játuðum saman trú okkar á Drottin. Þú varst alltaf tilbúin til að gefa af þér og veita þeim sem voru þér næst athygli þína, varst ávallt uppörvandi og hvetjandi. Það var alveg ljóst að þú elskaðir góðan félagskap. Ég mun alltaf muna eftir gestrisni þinni, hvernig þú tókst á móti fólki og hvernig þú kvaddir og ég vitna í orð þín: „Ó hvað er gaman að sjá ykkur.“ Það var einlægt og það kom beint frá hjartanu. Það var ávallt til nóg með kaffinu, það var í raun alltaf veisla hjá Ömmu Sillu. Þær voru ófáar stund- irnar sem við áttum í eldhúsinu heima á Öldugötu 33, þú bakaðir pönnukökur og við spjölluðum sam- an. Þú varst alltaf jákvæð og uppörv- andi. Þú sást bara það jákvæða og talaðir um það jákvæða í fari fólks. Þú hvattir mig áfram í því sem ég tók mér fyrir hendur og það var al- veg ljóst að það var einlæg ósk þín að mér mætti ganga sem best í líf- inu. Amma, þitt jákvæða viðhorf og umburðalyndi er mér afar dýrmætt og hafði það gríðarleg áhrif á líf mitt. Ég hef tekið þig til fyrirmynd- ar og ávallt lagt mig fram við gera slíkt hið sama. Þegar ég kveð þig þá er ég þér af- ar þakklátur fyrir hversu gefandi þú varst, uppörvandi og hvetjandi. Glaðlegt andlit þitt, lífsgleði þín og góða skapið verður ávallt fast í huga mér. Amma Silla, takk fyrir góðar minningar, takk fyrir allt, þú varst mér góður vinir, þú varst frábær amma. Magnús Gunnarsson. Fögrum kafla er lokið í tilvist góðrar sálar. Kaflinn er fagur því hér var vel lifað og margur fjársjóð- urinn skilinn eftir í formi góðra minninga í sinni þeirra er eftir lifa. Hér kom saman mýktin og þraut- seigjan, glaðværðin og gæskan, á þann hátt að öllum þótti gott til að Sigríður Ingibjörg Aradóttir þekkja. Lífshlaup hennar var sjálf- sagt einkennandi fyrir þá kynslóð sem fæddist snemma á síðustu öld, það er að fæðast í torfbæ og alast upp við leik að legg og skel og flytja svo á mölina, hitta sinn lífsförunaut og með honum sjá börn, barnabörn og barnabarnabörn vaxa úr grasi. Þetta er saga íslensku þjóðarinnar í hnotskurn: vegferðin frá örbirgð til allsnægta á tæpri öld. Það er erfitt fyrir okkur, sem yngri erum, að gera sér í hugarlund þær miklu breytingar og þá miklu atburði sem þessi kynslóð hefur upplifað. Í heimssögulegu samhengi fæddist hún inn í heimsstyrjöldina fyrri, upplifði heimskreppuna miklu um fermingu og hóf barneignir um miðja heimsstyrjöldina síðari. Barnabörnin komu svo í kalda stríð- inu og fyrsta barnabarnabarnið rétt fyrir lok þess. Þótt lífsbaráttan hafi á stundum verið erfið var það þó ekki á henni að sjá. Hún kunni ekki þá leiðu list að kvarta, hvorki yfir aðstæðum né öðrum. Hún var ætíð góð heim að sækja og eigum við barnabörnin margar góðar minningar á heimili ömmu og afa að Öldugötu 33 í Hafn- arfirði. Við rifjum gjarnan upp hversu gott það var að sitja í eldhús- inu og fylgjast með pönnuköku- bakstri ömmu af áhuga og sporð- renna hverri pönnukökunni af fætur annarri, rjúkandi heitri beint af pönnunni. Blómagarður hennar var ætíð til mikillar fyrirmyndar, en hún rækt- aði ekki aðeins blóm í bókstaflegum skilningi, því allir fengu blóm í hjarta sem henni kynntust. Gagnvart mér var hún ekki aðeins hjartahlý amma, heldur líka leik- félagi. Hún kunni nefnilega þá list að tefla, og það þótti tíu ára strák ekki amalegt. Oft var þó taflmennskan trufluð af símhringingu, því ekki var hún amma vinafá. Þannig fóru margar skákirnar í bið á meðan sím- töl við vini og vandamenn fóru fram. Nú þegar horft er um öxl er mér efst í huga þakklæti fyrir allar góðu stundirnar, alla hlýjuna og kærleik- ann og ekki síst fyrir að hafa kynnst hennar óbilandi þrautseigju og létt- leika, sem hvetur til dáða þegar lífs- ins þorra þarf að þreyja. Viðskilnaðurinn er tímabundinn, eða svo segir mér hugur og hjarta, og hlakka má til endurfundanna þegar þar að kemur. Minning hennar lifir í hjörtum okkar og ber okkur ljós og yl um ókomin ár. Sveinn Baldursson. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 31 “Takk fyrir alla hjálpina, Magga mín.“ Kærar kveðjur sendum við öllum sem sakna þín. Þínir vinir í 3.HG, Setbergsskóla. Elskuleg vinkona okkar Margrét Finnbogadóttir er látin. Hún kvaddi svo skyndilega og allt of fljótt. Eftir stöndum við agndofa og harmi slegin. Laugardaginn 5. apríl áttum við yndislega stund með þeim hjónum Möggu og Gylfa. Við borðuðum saman og fórum í Þjóðleikhúsið. Hvern hefði órað fyrir að það væri okkar síðasta samveru- stund. Vinátta okkar Margrétar hófst í Barnaskóla Hafnarfjarðar fyrir rúm- um fimmtíu árum og aldrei hefur skuggi fallið þar á. Við áttum samleið alla tíð við Magga, sem litlar stúlkur, ungar konur, mömmur og ömmur. Og eftir að leiðir okkar Lofts og þeirra Möggu og Gylfa lágu saman styrktust þessi bönd en auk þess voru þau Loft- ur og Magga vinir og samstarfsmenn til margra ára. Hún Magga var svo kát og skemmtileg kona. Hún var hrein og bein og kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Hún var mikil fé- lagsvera, tók þátt í stjórnun margra félaga og snerti hjörtu margra bæði í leik og starfi. Hún var hógvær og tranaði sér hvergi fram en kom þó svo mörgum góðum verkum í fram- kvæmd. Magga vann í Setbergsskóla í tæp 18 ár. Hún var einstaklega góður starfsmaður og átti ást og virðingu samstarfsmanna sinna. Hún sinnti starfi sínu af alúð og nærgætni og þeir voru margir nemendurnir sem nutu leiðsagnar hennar og aðstoðar. Á kveðjustund er margs að minn- ast. Minnisstæð er ferðin okkar með Möggu og Gylfa til Hollands, heim- sókn þeirra hjóna og drengjanna til Kaupmannahafnar þegar við vorum þar við nám. Ferðirnar vestur í Bol- ungarvík, borðhald í miðnætursól í Skálavíkinni og allar stundirnar sem við Magga sátum yfir kaffibolla og töluðum um heima og geima. Uppá- haldsumræðuefnið var auðvitað börn- in okkar og svo seinna barnabörnin sem voru Möggu ákaflega hjartfólgin. Við hjónin sendum vini okkar Gylfa, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ástvinum Margrétar innilegar samúðarkveðjur um leið og við kveðjum Margréti vinkonu okkar og þökk- um henni áratugalanga vináttu og tryggð. Erla og Loftur. Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Skjótt skipast veður í lofti. Kær vinkona, Margrét Finnboga- dóttir, er horfin úr hópnum. Okkur langar í örfáum orðum að þakka henni áratugalanga samfylgd. Fyrir aðeins örfáum dögum sátum við saman hressar og kátar sauma- klúbbssystur og lögðum framtíðar- plön. Ekki óraði okkur þá fyrir ótíma- bæru fráfalli hennar Möggu okkar og að þetta yrði okkar síðasta samveru- stund með henni. Minningar rúmlega þrjátíu ára vin- áttu streyma fram. Fyrstu árin vor- um við ungar og hressar konur upp- teknar af hannyrðum og myndarskap en fljótt voru prjónarnir lagðir til hlið- ar og við tóku önnur áhugasvið. Við sinntum menningunni meira, fórum í leikhús, óperu og tónleika, ræddum bókmenntir og listir. Ýmislegt var spjallað og brallað. Nokkrar utan- landsferðir voru farnar á aðventu og var einmitt ein slík fyrirhuguð á þessu ári. Síðasta ferð okkar saumaklúbbs- systra saman var frábær ferð til Kaupmannahafnar síðla árs 2006. Sú ferð var í senn vel heppnuð, skemmti- leg og ógleymanleg og verður okkur vinkonunum án efa dýrmæt í safn minninganna. Við ótímabært fráfall Möggu okkar verður okkur hugsað til hversu brot- hætt lífið er og hversu mikilsvert það er að eiga samleið með góðu fólki á lífsins leið. Elsku Gylfi og fjölskyldan öll. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum þess að góður Guð og birta vorsins veiti ykkur styrk í sorginni. Hvíl í friði kæra vinkona. Ingibjörg, Kristín, Inga, Erna og Þorbjörg. Margt má kaupa fyrir fé, bæði gott og illt. En öll heimsins auðæfi hrökkva ekki til að kaupa þér vin eða bæta þér missi vinar. (G. D. Prentice.) Þessi orð eiga vel við í dag þegar við kveðjum Margreti Finnbogadótt- ur, góða vinkonu til margra ára. Öll heimsins auðæfi duga ekki til að fá hana til okkar aftur. Það eru liðin tæp 40 ár sem vinátta okkar hefur varað. Fyrsta skiptið sem ég sá Möggu var vestur á Ísafirði, þá var hún ung hús- mæðraskólamær og ég var að vinna í kaupfélaginu. Þangað komu þessar föngulegu meyjar til að versla. Fyrir vestan eru örlög hennar ráðin, hún hittir hann Gylfa sinn. En það er ekki fyrr en við flytjumst í Hafnarfjörð að okkar vinskapur hefst. Það eina sem við áttum sameiginlegt þá var að mennirnir okkar voru úr Bolungar- vík. Við vorum frumbyggjar í Norð- urbænum, þau á Laufvangi, við á Suð- urvangi. Nokkrum árum síðar færum við okkur aðeins um set, þau á Sæv- ang, við á Vesturvang. Við fylgdumst nokkurn veginn að í barneignum. Í mörg ár var það föst regla hjá okkur að fara saman í útilegur á sumrin og út að borða á fyrsta vetrardag. Seinna breyttist það í sumabústaðaferðir að vori og hausti. Í upphafi vorum við með 4 elstu börnin okkar sem síðar átti eftir að fjölga í 7, en svo fækkaði smám saman í hópnum þangað til við „gömlu“ vorum bara eftir. Í nokkur skipti buðum við elstu barnabörnun- um okkar með. Fjórir strákar á líkum aldri. Við vorum ekki farin að taka litlu stelpurnar okkar með. Búið var að ákveða næstu ferð á Snæfellsnes í byrjun maí. Sameiginlegt áhugamál okkar Möggu var prjónaskapur, flíkurnar sem hún töfraði fram voru margar hverjar listaverk. Þær voru margar og góðar stund- irnar sem við áttum með Möggu og Gylfa í gegnum árin. Eftir lifir ljúf og góð minning. Ekki má gleyma að nefna Systrafélag Víðistaðasóknar, þar starfaði hún af miklum krafti og var formaður þess um tíma. Við í Systrafélaginu höfum mist mikið. En mestur er missirinn hjá honum Gylfa okkar, strákunum þeirra, tengda- dætrum og barnabörnum. Megi al- góður guð vernda þau og styrkja á þessum erfiðu tímum. Við þökkum fyrir að hafa átt Margreti Finnboga- dóttur að vini í öll þessi ár. Blessuð sé minning hennar. Guðmunda Veturliðadóttir og Þórir Sturla Kristjánsson. Það voru sorgarfréttir sem mér voru færðar á miðvikudagsmorgun- inn, þegar mér var tilkynnt að Mar- grét Finnbogadóttir væri látin. Ég trúði varla að ég væri að heyra rétt. Magga var stuðningurinn minn öll mín grunnskólaár í Setbergsskóla, hún var mín hægri hönd og án hennar hefðu ár mín í grunnskóla verið mun fátæklegri. Þess má geta að hún var einnig stuðningurinn hans Hössa sem er kærastinn minn í dag enda vorum við saman í bekk og naut hann því einnig góðs af kynnum sínum af henni. Hún var ekki bara stuðning- urinn minn heldur þótti henni alltaf svo vænt um mig og mér um hana og það er eitthvað sem ég hef alltaf met- ið mikils. Þótt leiðir okkar skildi sendum við alltaf hvor annarri jóla- kort og það var ekki að ástæðulausu að ég bauð henni í útskriftina mína og var búin að ákveða að ef við Hössi myndum gifta okkur yrði henni pott- þétt boðið. Ég á endalaust af falleg- um og góðum minningum sem ég mun geyma í hjarta mínu. Ég bið góðan guð að styrkja fjöl- skyldu hennar og vini á þessum erfiðu tímum. Hössi sendir kæra kveðju. Hvíl í friði. Aðalbjörg Gunnarsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ANNA STEFÁNSDÓTTIR frá Mel á Eskifirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað fimmtudaginn 3. apríl. Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 19. apríl kl. 14.00. Hjálmveig María Jónsdóttir, Rafn Helgason, Arnfinnur Gísli Jónsson, Dagný Sigurðardóttir, Elín Hrönn Jónsdóttir, Guðlaugur Bragi Gíslason, Þorsteinn Snorri Jónsson, Kristbjörg María Helgadóttir, Haukur Líndal Jónsson, Jóhanna Kristín Rafnsdóttir, Guðrún Helga Jónsdóttir, Hannes Sigmarsson, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. ✝ Elskuleg móðir okkar og amma, BJÖRG PÁLSDÓTTIR frá Ísafirði, Fornhaga 21, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 14. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 22. apríl kl. 15.00. Kristjana Helgadóttir, Helga Björg Helgadóttir, Kolbrún Björg Þorsteinsdóttir, Hildur Inga Þorsteinsdóttir, Helgi Már Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.