Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Skömm að lýsingu MÉR varð ekki um sel kvöldið 14. apríl þegar ég hlustaði á lýsingu frá körfuboltaleik Snæfells og Grinda- víkur. Sá sem lýsti leiknum á Stöð 2 lagði þar nánast í einelti erlendan leikmann Grindavíkur, sem stóð sig vel í leiknum. Hann kallaði leik- manninn „hlunkinn“ í hvert skipti sem hann fékk boltann. Ég spyr; hvurslags smekkleysi er þetta að gera grín að leikmanni vegna holdafars hans (sem mér sýndist alls ekkert hlunkslegra en lýsandinn sjálfur)? Bóta er þörf hjá Stöð 2 ef þetta er það sem koma skal. Árni Heiðar Grímsson Stefnumót MIG langar að þakka fyrir afar skemmtilegan þátt fyrir hönd nokk- urra vinkvenna. Þátturinn var í út- varpinu 10. mars sl. og höfðum við allar svo gaman af honum. Þar var þáttastjórnandinn Svanhildur Jak- obsdóttir í þættinum Stefnumót en þar tók hún viðtal við Sigríði Hann- esdóttur leikkonu. Þær rifjuðu upp gamla tíma þegar Sigríður var að byrja ferilinn sinn og Svanhildur skilaði þessu svo meiriháttar vel. Mig langaði bara að benda á hvað þetta var afburðagóður þáttur og það væri gaman að fá hann end- urtekinn. Saumaklúbburinn minn hefur mikið dálæti á þessum þáttum. Saumaklúbbskona Tiltekt fyrir alla MIG langaði að koma á framfæri þeim skilaboðum, að við berum öll ábyrgð á umhverfi okkar. Við ættum að taka saman höndum og vera dug- leg að tína upp eftir okkur ruslið. Málfríður Kristjánsdóttir Mannaveiðar SJÓNVARPSÞÁTTURINN Mannaveiðar er mjög góður, en mér finnst þættirnir vera gjöreyðilagðir í flutningi. Því í ósköpunum voru ekki fengnir alvöru leikarar í hlutverkin í þessum annars fína þætti? Margrét Ásgeirsdóttir GOLF er talið vera frá Skotlandi og hefur verið spilað í að minnsta kosti 500 ár á Bretlandseyjum. Þessi mikla nákvæmnisíþrótt hefur þó verið leik- in í margar aldir en ekki alltaf eins og við þekkjum hana í dag. Morgunblaðið/Frikki Golfari í góðu færi Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand BJÖRG, VERTU ALVEG KYRR... KANNSKI SÉR SKRÍMSLIÐ ÞIG EKKI O.K., TRAUSTI TRAUSTI? TRAUSTI?!? AAAH! BJÖRG MÍN... TRAUSTI ER KOMINN LANG- LEIÐINA TIL HONG KONG EN FRÁBÆRT ÞAU ERU SAMT EKKI ALGÓÐ SNJÓKORNIN ERU SVO FALLEG... ÞAU SVÍFA RÓLEGA TIL JARÐAR OG ÞEKJA TRÉN OG GRASIÐ... EN SÁ DAGUR! ÞAÐ VERÐUR ALLT SVO HLJÓTT ÞEGAR ÞÚ ERT EKKI HEIMA ÞAÐ VERÐUR SKO HÁVAÐI NÚNA, FÉLAGI! EINS OG ALLAR UNGAR KONUR ÞÁ BEIÐ ÉG EFTIR ÞVÍ AÐ HITTA FALLEGAN, UNGAN MANN... EKKI KENNA MÉR UM... ÞÚ HEFÐIR ALVEG GETAÐ BEÐIÐ LENGUR GRÍMUR, HELDUR ÞÚ AÐ VIÐ SÉUM ORÐNIR OF MIKLIR AUMINGJAR? HVAÐ ÁTTU VIÐ? SVONA SEM DÝR... VIÐ MUNDUM EKKI ENDAST Í EINN DAG ÚTI Í NÁTTÚRUNNI TALAÐU FYRIR SJÁLFAN ÞIG! ÉG ER ENNÞÁ ÓTAMIÐ VILLIDÝR! HVERNIG HÆKKA ÉG KRAFTINN Í ÞESSU LOPPU- NUDDTÆKI ÞÚ SNÝRÐ TAKK- ANUM KANNSKI HEFUR ADDA RÉTT FYRIR SÉR. KANNSKI VINN ÉG ALLT OF MIKIÐ ÉG ÆTTI AÐ EYÐA MEIRI TÍMA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI. ÉG ÆTTI AÐ FARA SNEMMA HEIM Í KVÖLD HÆ, ADDA! ÉG GET KOMIÐ HEIM Í KVÖLDMAT Á EFTIR ERTU AÐ GRÍNAST? KLUKKAN ER TÍU! VIÐ ERUM LÖNGU BÚIN AÐ BORÐA! MORGUN Í NEW YORK... „MIG DREYMDI AÐ JONAH JAMESON HEFÐI HRINGT OG SAGST VERA ÁSTFANGINN“ MIKIÐ DREYMDI MIG SKRÍTINN DRAUM Í NÓTT! UM HVAÐ VAR HANN? SÆLL, RÓBERT VEISTU HVAÐ, RÓBERT MINN? ÞAÐ VAR EKKI DRAUMUR dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is SIGLINGASTOFNUN STEFNUMÓTUN Í SAMGÖNGUM Samgönguráð efnir til sjötta fundar í fundaröð sinni um stefnu- mótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Samgöngur og byggðaþróun Ferðavenjur sumarið 2007 - Bjarni Reynarsson, skipulags- fræðingur, ráðgjafi hjá Land-ráði sf. Fjárhagsstaða hafna/vandi landsbyggðarinnar - Sveinn Agn- arsson, hagfræðingur, Hagfræðistofnun HÍ Flug og byggðaþróun - Pétur Maack, flugmálastjóri Búferlaflutningar og samgöngubætur á Íslandi 1986-2006 - Vífill Karlsson, hagfræðingur, dósent við Háskólann á Bifröst Staðsetning íbúðarhúsnæðis og tengsl við verð á Stór-höf- uðborgarsvæðinu - Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, forstöðu- maður greiningardeildar Kaupþings Umræður og fyrirspurnir Fundarstjóri er Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl 2008 kl. 14:30 - 17:00 á Hótel Sögu Reykjavík í salnum Harvard II. Fundurinn verður jafn- framt sýndur á Veraldarvefnum á slóðinni: www.straumur.hotels- aga.is - að því búnu er valið: Samgönguráð. Aðgangur er ókeypis. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á net- fangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 17. apríl 2008. Samgönguráð Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin Samgönguráðuneytið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.