Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is HINN 9. apríl síðastliðinn var sendur út um kvöld þátturinn Kiljan. Þætt- inum er stýrt af þeim ágæta manni Agli Helgasyni, og ferst honum starf- ið yfirleitt prýðisvel úr hendi. En í áð- urnefndum þætti urðu honum á leið mistök. Í umræðum um bókina Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson sagði Egill meðal annars: „… unglingar eru náttúrlega mjög vitlausir almennt.“ Undirrituð verður að játa, að henni féllust hendur yfir þessum orðum sem Egill leyfir sér að senda inn á heimili allra landsmanna. Lýsa þau ekki einungis kæruleysi og barna- skap, heldur eru einnig særandi og meiðandi fyrir stóran, virkan og full- gildan hugsandi hóp samfélagsins. Máli þessu til glöggvunar má setja aðra þjóðfélagshópa inn í setningu Egils, í stað „unglinga“: Kennarar eru náttúrlega mjög vit- lausir almennt. Aldraðir eru náttúrlega mjög vit- lausir almennt. Fimmtugir eru náttúrlega mjög vitlausir almennt. Bankastjórar eru náttúrlega mjög vitlausir almennt. Mæður eru náttúrlega mjög vit- lausar almennt. Skýrt sést á þessum dæmum, að orð Egils eiga engan rétt á sér, og fer undirrituð hér með formlega fram á að Egill biðjist opinberlega afsökunar á orðum sínum. Sú leiðinlega þróun hefur orðið í samfélaginu, að nær eingöngu er fjallað um unglinga á neikvæðan hátt. Þeir spreyja á veggi, eru latir, hirðu- lausir. Þeir í stuttu máli eyðileggja, brjóta og bramla það sem þeir kom- ast með krumlurnar í. Síðan stynjum við, tautum: „Og þetta á að erfa land- ið.“ Sjaldan er fjallað um unglinga sem heilbrigt, ungt fólk er ber ekki aðeins hag sinn fyrir brjósti, heldur landa sinna einnig, og sýnir það jafnt í vilja sem verki. Svo virðist sem veiðileyfi hafi verið gefið út á unglinga, og fólk áttar sig því kannski ekki alltaf á þunga þeirra orða er það lætur falla um þennan hóp fólks, grínast jafnvel með alvarlegustu málefni. Slíkt á ekki að líðast í sjón- varpi. GUÐRÚN INGIBJÖRG ÞORGEIRSDÓTTIR, nemandi í níunda bekk við Hagaskóla. Eru unglingar vitlausir? Frá Guðrúnu Ingibjörgu Þorgeirsdóttur EITT er það sem vakið hefur undrun eftir að Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna kvað upp úr- skurð sinn um fiskveiðistjórn- unarkerfið (kvótakerfið). Ekki rekur okkur í samtökunum minni til að bæjar- og eða sveitarstjórnir á Ís- landi hafi skorað á stjórnvöld að bregðast við og virða álit Mannrétt- indanefndar Sameinuðu þjóðanna. Er bæjar- og sveitarstjórnum lands- ins slétt sama um að úrskurður af þessu tagi sé felldur á íslenska ríkið? Er engin ástæða fyrir stjórnir bæj- ar- og sveitarfélaga þessa lands að bregðast við og skora á stjórnvöld að virða mannréttindi þegna sinna? Við verðum að spyrja, eru stjórnir bæjar- og sveitarfélaga að styðja áframhaldandi mannréttindabrot með þögn sinni? Ef bæjar- og sveit- arstjórnir svara þessu neitandi og segjast ekki styðja mannréttinda- brot, væri þá ekki í lófa lagið fyrir þessar stjórnir að stíga það heilla- spor að skora á stjórnvöld op- inberlega að virða úrskurð nefnd- arinnar og bregðast við hið fyrsta? Það er engu líkara en sofa eigi Þyrnirósarsvefninum góða þangað til nákvæmlega öll starfsemi í bæj- um landsins deyr út og hvað þá? Á þá að hringja grenjandi til stjórn- valda betlandi ölmusu sér til handa, þeirra sömu stjórnvalda og drápu niður sjávarþorpin með mannrétt- indabrotum? Við bara spyrjum, hvað er orðið að í þessu landi, er öllum sama hvernig er verið að fara með landsbyggðina? Nógu mörg eru vandamálin sem er verið að glíma við á höfuðborg- arsvæðinu í dag þótt við bætum ekki landsbyggðinni við, þegar allir flýja þangað eftir að búið verður að drepa allt niður út á landsbyggðinni. Það er nú einu sinn hrár veruleik- inn að við lifum ekki á góðum vegum, góðu netsambandi og málandi hver fyrir annan einu saman. Ekki plöntum við álverum í hverju sveit- arfélagi. Það þarf að framleiða eitt- hvað líka, það þarf engan hagfræð- ing til að segja okkur það. Leyfið okkur að gera það sem við gerðum, það er að veiða fisk þannig urðu þessir bæir til. Það er hér með skorað á bæjar- og sveitarstjórnir að láta í sér heyra, annað er þeim varla til sóma. HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON, formaður Framtíðar FSSS. Áskorun á bæjar- og sveitarstjórnir Frá Hallgrími Guðmundssyni NÚ á þessum tímum þegar menn óttast að verðbólgan sé á uppleið, þá heyrist meira talað um að spara. Hér eru nokkrar hugmyndir, – og þótt hér sé að vísu ekki verið að benda á neinar stórkostlegar sparn- aðarleiðir, þá safnast þegar saman kemur, – eða þannig var það í „gamla daga“. Það fyrsta er að slökkva bílljósin í dagsbirtu. Það sparar bensín að hafa ljósin ekki kveikt og jafnframt spar- ar það rafala, perur og rafgeyma. Á meira en 300 milljónum bíla í Bandaríkjunum eru ekki notuð ljós á daginn. Annað er að nota einungis eina númersplötu á hvern bíl, og hafa hana aftan á bílnum. Þá er eitt enn og það er að hætta með öllu skoð- unum á bílum. Með því mætti spara töluvert. Milljónir bíla í Bandaríkj- unum eru aðeins með eina plötu og virðist gefast vel, og milljónir bíla eru ennfremur aldrei skoðaðir og það virðist ekki heldur skapa nein vandamál. Enn ein sparnaðarleið er, að leggja niður víkingasveit lögregl- unnar. Hún er, að mínu mati, óþörf. Að sjálfsögðu er margt annað sem hægt er að gera til sparnaðar, og margt sem ég tel mjög aðkallandi að endurskoða og lækka, svo sem styrk- veitingar til listamanna og leikhúsa. Þá tel ég alveg sjálfsagt að fólk, það er allur almenningur, kynni sér fjárlögin og útgjöld ríkisins, enda finnst mér trúlegt að ýmsir geti þekkt mjög vel til í einhverjum hluta fjárlaganna. Í framhaldi af því þá er – að mínu mati – eðlilegt að sömu menn bendi á hvar megi spara í hinum opinbera rekstri, svo sem í utanríkisþjónust- inni, í ferðalögum embættismanna, í rekstri og fækkun sendiráða og mörgu fleiru, – en ég læt þetta duga í bili. Við sjáum svo til hvað gert verður (ef eitthvað!) til þess að spara pen- inga sem teknir eru upp úr skattvasa almennings. TRYGGVI HELGASON, Holtagötu 3, Akureyri. Hugmyndir til þess að spara peninga Frá Tryggva Helgasyni Víðistaðakirkju fimmtudaginn 17. apríl kl. 20 Langholtskirkju laugardaginn 19. apríl kl. 16 Stjórnandi Árni Harðarson Miðasala við innganginn Einsöngur: Davíð Ólafsson Þorsteinn Guðnason Píanó: Steinunn Birna Ragnarsdóttir Valgerður Andrésdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.