Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Dísus kræst, Haarde minn, megum bara ekki skreppa orðið í smá þotuskutl án þess að „strákarnir okkar“ rústi pleisinu í brjáluðum skulda partýum. Er komin einhver allsherjar útrás-ar- eyðsluglýja í augu kjörinna borgarfulltrúa og embættismanna borgarinnar. Fyrst lýsir Kjartan Magnússon, stjórnarformaður REI, því yfir, eins og ekkert sé, að ekki sé ætlunin að REI hætti meiru en þrjú hundruð milljónum króna í út- rásarkannanir í fjarlægum heims- hlutum.     Svo kemurSvanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menn- ingar- og ferða- málasviðs Reykjavík- urborgar, fram í Morgunútvarpi Rásar 2 í gær- morgun og lýsir för sinni við fjórða mann til kvikmyndahöf- uðborgar Bandaríkjanna Holly- wood.     Þar upplýsti Svanhildur aðReykjavík hefði nú í fyrsta skipti ákveðið að taka þátt í kaup- stefnu í Hollywood þar sem fulltrú- ar borga, svæða og landa reyndu að laða „hina stóru“ í kvikmyndaiðn- aðinum til síns svæðis með gylliboð- um um eigið ágæti.     Eru ekki kjörnir fulltrúar borg-arinnar og embættismenn á þeirra vegum að fara fullfrjálslega með sjóði borgarbúa?     Hvaða þörf kallaði á fimm mannasendinefnd til Hollywood, til þess reyna að laða „hina stóru“ til þess að koma til Reykjavíkur til að búa til kvikmyndir?     Hvað kostar þátttaka Reykjavík-ur í svona kaupstefnu í háborg kvikmyndanna og hverju skilar hún í tekjum til borgarinnar?     Hver var árangurinn af förinni? STAKSTEINAR Svanhildur Konráðsdóttir Bruðl og ferðagleði                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                                12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (            !"           # " ! # " !       $# #$ :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?    % %   %     % % %    %                            *$BC                           !    "  #  $ %   # *! $$ B *! & '  (!  ' !   "  ! ) * <2 <! <2 <! <2 & "!( #$ +  #, -.$ #/   D $                   *  E B  E" 2  !&# &#  '   #  %#  '     (        !&  )%%*    !  "    # $        &*%      <7  E    !&# &#  '   #  %#  '     (        !&  )%%*    !  "    # $        &*%      01$$  22 #$ !)3   ) +  #, Sigríður S. MacEachern | 16. apríl Paul Watson í klandri í Kanada Síðastliðna daga hafa Paul Watson og hans félagar verið ofarlega á baugi í fjölmiðlum hér á austurströnd Kan- ada og hafa sennilega engan tíma til að sinna þessum viðburði. Það hefur vakið undrun mína að lítið eða ekkert hefur verið minnst á þessa atburði í íslenskum fjölmiðlum það ég hef séð. Paul Watson er Íslendingum kunn- ugur eftir herför hans í hvalveiðiskipin forðum. Kanadíska strandgæslan, að skipun sjávarútvegsmálaráðherra, ... Meira: classigga.blog.is Salvör | 16. apríl Kerfisbundin kvenna- kúgun sem byrjar á barnamisþyrmingum Stelpunni Nujood Ali í Jemen var í vikunni bjargað úr ánauð og miskunnsamur dómari veitti henni skilnað frá eiginmanni sínum. Hún var 8 ára seld af föður sínum í hjónaband til 30 ára manns og neydd til að flytjast til hans og nauðg- að og misþyrmt mánuðum saman áð- ur en henni var bjargað. Nujood kemur úr bágstaddri fjölskyldu, faðir hennar er betlari og þjáist af geðsjúkdóm. ... Nujood er ekki eina stelpan í heiminum sem býr við svona skelfileg- ar aðstæður, aðstæður þar sem hún er hneppt í ánauð á barnsaldri og ætl- að að vera kynlífsþræll og heim- ilisþræll manns sem hefur keypt hana af föður hennar. Það eru tugmilljónir telpna viðs vegar um heiminn í svona stöðu, lesið líka sögurnar af Rakiya og Maimuna og Chaya og Zulai og Helena og Rohini og Aisha og Adjaratou og Fa- toumata og Halima og Mariana og Takia og Shahnaz og Rebeca og Nur- jahan og Bijli og. Shein svo aðeins séu sett andlit á örfáar af þeim stúlkum sem sviptar eru bernskunni og framtíð- armöguleikum og lokaðar inn á heim- ilum ofurseldar valdi karlmanna sem hafa samið um ævilanga notkun á þeim sem vinnuþrælum, kynlífs- þrælum og útungunarvélum fyrir börn sín. Allt er þetta gert í krafti hefð- arinnar og viðtekinna venja í samfélag- inu og sums staðar í heiminum er mjög erfitt fyrir foreldra að vernda dæt- ur sínar svo þær geti aflað sér mennt- unar og gifti sig eldri.... Viðhorf karl- manna sem kaupa stúlkubörn eru kannski svipuð og fyrrverandi eig- inmanns barnsins Nujood en hann tel- ur sig í heilögum rétti og neitar að sleppa stúlkunni og viðurkenna skiln- aðinn ... ... Eiginmaðurinn fyrrverandi er í varðhaldi að mér skilst vegna þess að hann er talinn vera hættulegur öryggi Nujood en samkvæmt lögum Jemen telst hann ekki hafa framið neinn glæp. Það er útbreiddur siður í Jemen að gifta stelpur á barnsaldri eins og víðar í heiminum. ... Bætt menntun kvenna og mann- réttindi fyrir stúlkubörn eru brýn verk- efni í heiminum í dag, ekki bara vegna þeirra miklu þjáninga ... Meira: salvor.blog.is Ómar R. Valdimarsson | 16. apríl SKO hækkar verð- skrána um 50% … Fékk í dag bréf frá net- fyrirtækinu SKO þar sem mér var tilkynnt að frá og með næstu mán- aðamótum myndi net- tenging mín hækka um 50% í verði. Undanfarin misseri hef ég verið 512 Kb/s ten- inginu og borgað fyrir hana 1.990 kr. á mánuði. Hækkunin er gerð undir því falska yfirskini að vera hugsuð sem „bætt þjónusta fyrir viðskiptavini SKO.“ … Meira: omarr.blog.is Björgvin Guðmundsson | 16. apríl Við viljum engin skólagjöld Katrín Júlíusdóttir, þing- maður Samfylking- arinnar, ítrekaði á Al- þingi í dag þá stefnu flokksins, sem mörkuð var á landsfundi í fyrra, að öllum eigi að standa til boða gjaldfrjáls menntun frá og með leikskóla til og með háskóla- .Engin skólagjöld eigi að vera í al- mennu framhalds-og grunnnámi Sig- urður Kári Kristinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að ... Meira: gudmundsson.blog.is VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BLOG.IS HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem grunaður er um að hafa tekið þátt í hrottalegri árás á íbúa í húsi við Keilufell í Reykjavík um páskana, sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi til 5. maí. Fram kem- ur í greinargerð lögreglu að einn brotaþola hafi sagst hafa setið í sófa inni í stofu íbúðarinnar þegar hann hafi séð hvar maðurinn stóð í dyrun- um og hélt á exi. Hafi hann komið fyrstur til mannanna þar sem þeir sátu í sófanum og slegið til manns þar sem hann lá sofandi. Í framburði annars brotaþola kom fram að maðurinn hefði reynt að berja hann í höfuðið en hann hefðináð að bera hendurnar fyrir sig. Brotaþol- inn hlaut opið beinbrot á vinstri hendi í árásinni og brotnaði einnig á þeirri hægri. Þriðji brotaþolinn sagðist hafa séð manninn inni í íbúðinni þar sem hann hélt á exi. Brotaþoli hefði svo snúið sér við og þá verið sleginn í höfuðið. Hlaust af því opið sár á höfði sem þurfti að sauma með 12 sporum. Lögregla segir að símagögn beri með sér að maðurinn hafi verið í stöð- ugu símasambandi við aðra sakborn- inga í málinu, fyrir og eftir árásina. Vitni hafi greint frá því að hann hafi fyrstur gengið inn í íbúðina og lýs- ingar þeirra þyki bera með sér að hann sé höfuðpaur í málinu. Þá beri framburðir brotaþola með sér að maðurinn hafi gengið harkalega fram. Situr áfram í gæslu vegna árásarinnar HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjaness um að erlendur karlmaður sitji áfram- haldandi gæsluvarðhaldi til 2. maí vegna gruns um aðild að innflutningi á umtalsverðu magni af amfetamíni frá Stokkhólmi. Maðurinn er einnig grunaður um að hafa brotið end- urkomubann sem hann var úrskurð- aður í árið 2003. Gæsluvarð- hald staðfest

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.