Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 29 Í BYRJUN mars fór ráðuneytis- stjóri utanríkisráðuneytisins til Ír- ans. Lengi vel var á huldu hverra erinda ráðuneytisstjórinn hefði ver- ið að gegna í Íran og lengi vel var látið í veðri vaka að megintilgangur ferðarinnar hefði verið að liðka fyr- ir viðskiptum ákveðinna íslenskra fyrirtækja við Íran. Nú er komið í ljós að svo var ekki. Utanríkisráðherra var spurð um það á Alþingi í síðustu viku hvaða erindi ráðuneytisstjóri hennar hefði átt til Teheran. Þegar umbúðunum hafði verið svipt af svari utanríkis- ráðherra kom í ljós að ráðuneytis- stjórinn hafði farið til að reyna að fá fylgi Írana við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðherra gat þess í því sambandi að við værum í kosninga- baráttu og reyndum að afla okkur fylgis sem flestra þjóða. Sem sagt sama hvaðan gott kemur. Einum þingmanni varð þá á orði: Hvað næst? Ef til vill Norður-Kórea. Þar með liggur það fyrir að utan- ríkisráðherra telur eðlilegt að hafa samband við og afla stuðnings þeirrar ríkisstjórnar sem hefur átt í hörðustu deilum við helstu vina- og bandalagsþjóðir okkar. Íranar búa við klerkastjórn öfgafullra Sjía- múslimaklerka. Engir fá að bjóða sig fram við kosningar nema þeir sem eru þóknanlegir klerkunum. Þeir sem játa önnur trúarbrögð en múhameðstrú eru ofsóttir og iðu- lega líflátnir. Unglingar eru hengd- ir opinberlega vegna þess að þeir eru sakaðir um að vera samkyn- hneigðir svo nokkur atriði séu nefnd. Herstjórn Bandaríkjanna í Írak heldur því fram að byltingarverðir úr Íranska byltingarvarðliðinu þjálfi og berjist með hryðjuverka- mönnum í Írak sem leitast við að drepa sem flesta bandaríska her- menn. Alþjóðasamfélagið hefur gert athugasemdir við kjarnorku- tilraunir Írana. Þeir sem sinna mannréttindamálum vita að stjórn Írans er ein sú versta í heiminum. Þrátt fyrir það sendir utanrík- isráðherra ráðuneytisstjóra sinn til að freista þess að afla fylgis Írana við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Ég hef reynt að fylgjast með kosningabaráttunni til Örygg- isráðsins og mér hefur satt að segja blöskrað sá kostnaður sem lagt hef- ur verið í. Sendiráð eru stofnuð þar sem engin þörf er fyrir sendiráð Ís- lands. Ráðstefnur eru haldnar í ýmsum heimshlutum undir ýmiss konar yfirvarpi en hafa það að meg- in-markmiði að koma á framfæri óskum um stuðning við framboð Ís- lands til Öryggisráðsins. Utanríkis- ráðherra er á ferð og flugi og sækist sem harðast eftir stuðningi einræð- isstjórna í Afríku auk þess sérstaka kærleiksfaðmlags sem reynt er að koma á við Írani. Mér er nær að halda að kosninga- barátta utanríkisráðherra sé ómarkviss og hætt sé við að við höf- um glatað stuðningi margra helstu vina- og bandalagsþjóða okkar í NATO vegna þeirrar áherslu sem við höfum lagt á að ná stuðningi þjóða eins og t.d. Írans. Við vitum að Norðurlöndin styðja framboð Ís- lands en ég er hræddur um að það séu engar aðrar hefðbundnar vina- þjóðir Íslands sem muni styðja framboðið. Mér er ekki kunnugt um að Bretland, Þýskaland, Frakkland, Spánn, Ítalía, Írland, Holland eða Belgía muni styðja framboð Ís- lands. Hvernig stendur á því? Hafa verið gerð meiri háttar mistök í kosningabaráttunni? Sé svo, hverj- um er þá um að kenna? Meiri hluti íslensku þjóðarinnar hefur samkvæmt ítrekuðum skoð- anakönnunum verið andvígur því að við leituðum eftir kjöri til Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. Samt sem áður hefur verið anað áfram. Kosningabaráttan hófst í ráðherra- tíð Halldórs Ásgrímssonar og hver ráðherrann á fætur öðr- um tók við kyndlinum úr höndum fyrirrenn- ara síns og skeytti engu um afstöðu þjóðarinnar til málsins. Þegar Ingi- björg Sólrún Gísladótt- ir varð utanrík- isráðherra var settur aukinn kraftur í kosn- ingabaráttuna. Þjóðin var aldrei spurð og engu skeytt um afstöðu hennar til málsins. En vegna afstöðu þjóð- arinnar var hafið heimatrúboð og háskólar landsins fengnir til að boða til málþinga þar sem einhliða var rekinn sá áróður að það væri nauðsyn- legt og gott fyrir Ís- land að eiga fulltrúa í Öryggisráði Sam- einuð þjóðanna. En til hvers? Hvað ætlum við að gera í Öryggisráðinu? Ef við náum kjöri þá gerum við það með atkvæðum helstu ein- ræðisstjórna heims- ins. Ætlum við síðan að vera sérstakir mál- svarar lýðræðis og mannréttinda? Hefði ekki verið betra að halda uppi harðri baráttu fyrir frelsi og mann- réttindum hvar sem er í heiminum en láta Öryggisráðið lönd og leið? Mér er nær að halda að það hefði verið hlustað með mun meiri athygli á rödd Íslands hefðum við einbeitt okkur að því að vera trúir hug- sjónum lýðræðis og mannréttinda. Þess í stað sækjumst við eftir te- boðum og stuðningi frá Teheran og sambærilegum valdhöfum. Ríkis- stjórna sem meina fólkinu um al- menn mannréttindi og virða jafnvel ekki þau mikilvægustu og nauðsyn- legustu mannréttindi sem eru rétt- urinn til lífs. Til hvers er eiginlega barist? Hvað er markmiðið með því að eign- ast fulltrúa í Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna? Mér er það satt að segja hulin ráðgáta eftir að hafa kynnt mér kosningabaráttu utanríkisráðherra. Teboð í Teheran Jón Magnússon skrifar um framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna »Mér er nær að halda að kosningabarátta utanríkisráðherra sé ómarkviss og hætt sé við að Ísland hafi glatað stuðningi margra vina- þjóða okkar. Jón Magnússon Höfundur er þingmaður. www.bifröst.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 3 11 6 ÓBREYTT SKÓLAGJÖLD ÞRIÐJA ÁRIÐ Í RÖÐ háskólinn á bifröst VIÐSKIPTADEILD • BS í viðskiptafræði • BS in Business Administration • MS í alþjóðlegri banka- og fjármálastarfsemi • MS í alþjóðaviðskiptum • MS í stjórnun heilbrigðisþjónustu • BA í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS) • MA í menningarstjórnun • MA í Evrópufræðum FÉLAGSVÍSINDADEILD • BS í viðskiptalögfræði • ML í lögfræði • MA í skattarétti LAGADEILD • Staðnám • Fjarnám FRUMGREINADEILD Brynjar Þór Þorsteinsson Viðskiptafræðingur frá viðskiptadeild Til að framkvæma þarf að kunna. Í BS námi í viðskiptafræði eru öll helstu svið stjórnunar, rekstrar og viðskipta kennd. Námið er alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Lögð er áhersla á hópstarf og verkefnavinnu í nánum tengslum við fyrirtæki og stofnanir. Fjölbreytt viðfangsefni og virkt samstarf nemenda og kennara tryggja nemendum fyrsta flokks undirbúning fyrir ábyrgðarstöður í íslensku atvinnulífi. Við deildina kenna innlendir og erlendir sérfræðingar úr atvinnulífinu, öflugt menntafólk og rannsakendur sem miðla nemendum af víðtækri reynslu sinni, menntun og þekkingu. Af þeim sem sækja um fyrir 1. maí eiga 5 bestu umsækjendur í hverri námsleið kost á veglegum námsstyrkjum í formi 50% afsláttar af skólagjöldum fyrstu annar. Allar nánari upplýsingar á bifröst.is. BS nám í viðskiptafræði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.