Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 49 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is BÓKAKAUPSTEFNAN í London, sem hófst á mánudag og lauk í gær, er með helstu bókasýningum heims og hefur farið mjög stækk- andi á undanförnum árum. Á stefnunni kynna útgefendur vænt- anlegar bækur og samið er um út- gáfur á bókum um allan heim. Ís- lenskir bókaútgefendur hafa nýtt sér hátíðina til að kynna bækur og eins að leita að bókum sem væn- legt er að gefa út á Íslandi. Sú nýbreytni er á hátíðinni að þessu sinni að þekktum kokkum víða að er boðið því að verð- launahátíðin alþjóðlega Gourmand World Cookbook Award er með sérstaka kynningu á starfi sínu á hátíðinni og bauð sérstaklega tólf meistarakokkum víða að að vera með sérstaka kynningu á bókum sem þeir hafa gefið út og eins færni þeirra í eldhúsinu. Völundur Snær Völundarson var einn þeirra sem var boðið að vera með og á mánudaginn kynnti hann bók sína og eldaði fyrir gesti og gangandi í eldhúsi sem komið var fyrir á sýn- ingunni. Stækkar við sig Völundur Snær er kunnur fyrir störf sín við matreiðslu í gegnum árin, fyrir sjónvarpsþætti á Skjá einum, Borðleggjandi með Völla Snæ, og eins fyrir bókina Delicious Iceland sem kom út sumarið 2006. Sú bók, sem var átta ár í smíðum, fékk sérstök heiðursverðlaun á Go- urmand World Cookbook Award- hátíðinni sem haldin var í Kína fyrir ári og í framhaldi af því var Völundi Snæ boðið að vera með kynningu á London Book Fair, en auk þess að kynna verðlaunabók- ina sjálfa kynnti hann nýja útgáfu hennar í minna broti, einskonar vasaútgáfu af bókinni. Kokkarnir á London Book Fair fengu allir knappan tíma til að kynna sig, um þrjú korter hver, en á þeim tíma snaraði Völundur fram fylltum bökuðum tómötum, ofnbökuðum baguette-sneiðum með osti, sólþurrkuðum tómötum, lárperum og þistilhjörtum, kampa- vínssoðnum og krydduðum kræk- lingi og ofnbökuðum kóríander- legnum þorski með mangó, ananas og sítrusávaxtasalsa. Völundur hefur búið á Bahamaeyjum und- anfarin ár, rekur þar eitt veitinga- hús og er að byggja annað, og lýsti því í kynningunni að hann hefði viljað flétta saman íslenskt sjávarfang og hráefni úr Kar- íbahafi. Eldað fyrir bókabéusa Matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson á meðal tólf meistarakokka á bókastefnunni í London sem lauk í gær Morgunblaðið/Árni Matthíasson Kokkað Völundur Snær Völundarson matreiðir á bókakaupstefnunni í Lundúnum. Völundur hefur búið á Bahamaeyjum undanfarin ár. „DON’T Worry Be Happy“ söng Bobby McFerrin fyrir einum 20 ár- um, þau fleygu orð segja allt sem segja þarf um inntakið í heimild- armyndinni Lifandi ljósberum. Myndavélin eltir handritshöfundinn, Sean Mulvihil, frá einum heimspek- ingnum og fræðimanninum til ann- ars í leit að leiðinni til að höndla hamingjuna í lífsins ólgusjó. Mikið fjallað um sjálfhverfa íhugun austur- lenskra munka frá Tíbet og víðar, trúarskoðanir rabbína, lausnir ísl- ams, kaþólikka, kristinna manna, baptista, svo eitthvað sé talið. Rætt við höfunda metsölubóka á borð við The Power of Now, The Rythm of Life, sem allar fjalla um sjálfshjálp í leit að lukkunni og innra friði. „Ljósberarnir“ hafa forvitnilegan boðskap fram að færa og er myndin áhugaverðust þeim sem leita svara og eru að reyna að fá einhvern botn í lífsgátuna. Hvort sem árangur hegð- unar á lífsleiðinni er tengdur frammistöðu okkar á fyrri til- veruskeiðum eða afstöðu stjarn- anna … þá eru flestir spekingarnir sannfærðir um að vald yfir andanum kemur aðeins með trú, kærleika og að geta fyrirgefið öðrum og ekki síð- ur sjálfum sér. Jákvæðni er eitt af grundvall- aratriðunum og mætti í því sam- bandi benda fréttamönnum á að það finnast líka jákvæðar fréttir en þær virðast ekki par vinsælar um þessar mundir. Ég vil því sérstaklega hvetja fréttastjóra sjónvarpsstöðv- anna til að missa nú ekki af Lifandi ljósberum! Hamingjan er best af ölllu … KVIKMYND Regnboginnm: Bíódagar Græna ljóssins Heimildarmynd. Leikstjóri: Larry Kurn- arsky. Handrit og leiðsögn: Sean A. Mulvihill. 90 mín. Bandaríkin 2007. Living Luminaries – Lifandi ljósberar bbbnn Sæbjörn Valdimarsson VANTAGE POINT kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára STÓRA PLANIÐ kl. 8 B.i. 10 ára THE EYE kl. 10:10 B.i. 16 ára VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL ,,Þessi glimrandi stemmning sem skapast á tjaldinu er betri en ég hef upplifað á tónlei- kum hérlendis." SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á SELFOSSI STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10D B.i. 10 ára DIGITAL SHINE A LIGHT kl. 5:30D - 8D- 10:30D LEYFÐ DIGITAL FOOL'S GOLD kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára JUNO kl. 6 B.i. 7 ára SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 LEYFÐ LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 LEYFÐ SHUTTER kl. 10:10 B.i. 16 ára eeeee Rás 2 eeee - 24 Stundir eeee - V.J.V. Topp5.is/FBL eeee - S.U.S. X-ið 97.7 SÝND Í KRINGLUNNI 21 kl. 8 - 10 B.i. 12 ára FOOL'S GOLD kl. 8 B.i. 7 ára STÓRA PLANIÐ kl. 10 B.i. 10 ára SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK / KRINGLUNNI / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI Á SELFOSSI J E S S I C A A L B A SÝND Í KEFLAVÍK eeee EMPIRE eeee NEWSDAY eeee OK! - G.H.J POPPLAND eeee "Shine a Light skal njóta í bíó, þar sem að hljóðrásin nýtur sín í botn! Dúndur upplifun fyrir sanna Stones-menn." BÍÓTAL KVIKMYNDIR.IS óbreytt miðaverð á midi.is BRESKA leikkonan Emma Watson fékk hvorki meira né minna en 10,5 milljónir punda, um 1,5 milljarða ís- lenskra króna, í afmælisgjöf þegar hún varð 18 ára á þriðjudaginn. Watson, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Hermione Granger í myndunum um Harry Potter, varð fjárráða þegar hún varð 18 ára, og fékk því aðgang að því fé sem hún hefur unnið sér inn. Hún segist ætla að leggja peningana inn á banka, og fara svo á námskeið um hvernig sé best að höndla slíka fjár- muni. Reuters Auðug Emma Watson þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum. Stór afmælisgjöf Tónleikar Karlakór Rangæinga heldur tónleika í Fella- og hólakirkju fimmtudagskvöldið 17 apríl kl. 20.30 Fjölbreytt dagskrá. Miðasala við innganginn. BANDARÍSKI leikarinn Tobey Maguire og eiginkona hans Jenni- fer Meyer eiga von á sínu öðru barni í október. Stutt er stórra högga á milli hjá þeim hjónum því fyrir eiga þau hina 17 mánaða gömlu dóttur Ruby. „Þau eru afskaplega ham- ingjusöm. Þar sem þau eiga litla stelpu fyrir langar þau mikið til þess að eignast dreng, þótt þau myndu auðvitað fagna annarri dóttur líka,“ sagði vinur hjónanna í viðtali við tímaritið In Touch Weekly. Maguire er 32 ára en Meyer er 31 árs. Þau gengu í það heilaga í september. Maguire er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem kóngulóarmaðurinn. Annað á leiðinni Reuters Hamingjusöm Meyer og Maguire.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.