Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 17.04.2008, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UNDANFARIÐ ár hefur Björk Guðmundsdóttir verið á ferð um heiminn til að kynna breiðskífuna Volta, byrjaði eiginlegt tónleikahald í Laugardalshöllinni 9. apríl 2007 eftir smá upphitun á Nasa 1. apríl. Tónleikarnir í Höllinni voru í raun einskonar generalprufa, skemmti- legir sem slíkir, en enn vantaði nokkuð upp á að hljómsveitin næði vel saman og að lögin af Volta gengju fyllilega upp. Á tónleikum í Bilbao í Baskalandi þremur mánuðum síðar gekk allt mun betur, sveitin smollin saman og lögin slípast til og því mátti bú- ast við því að enn betur myndi tak- ast upp þegar Björk sneri aftur til Bretlands í vikunni að leika á fern- um tónleikum í Hammersmith Apollo-tónleikahöllinni í vesturenda Lundúna. Áhugi fyrir tónleikunum var gríð- arlegur, enda Volta almennt vel tekið og fjögur ár liðin frá síðustu tónleikum Bjarkar í Bretlandi. Það kom því ekki á óvart að það seldist upp á alla Hammersmith-tónleikana á mettíma og fengu færri en vildu. Tónleikarnir fóru rólega af stað, blásaradecettinn marseraði inn á sviðið skrautlegur mjög og spilaði „Brennið þið vitar“, en síðar var gefið í með „Earth Intruders“ en höfuðbúnaður Bjarkar var óneit- anlega framandlegur, mikill dúska- hjálmur og sást varla framan í hana. Að því loknu komu gamlir kunningjar af Homogenic, „Hun- ter“ og „Unravel“ og svo tvö lög með gestaflytjendum, „Hope“, þar sem Toumani Diabate spilaði undir á koru, og „Dull Flame of Desire“ með þeim stórkostlega söngvara Antony Hegarty en á milli kom reyndar „The Pleasure Is All Mine“. Flutningur hennar og Antonys á „Dull Flame of Desire“ var einn af hápunktum tónleikanna, reyndar líkt og það lag er eitt það eft- irminnilegasta af Volta, en næsta lag þar á eftir, „Jóga“, var enn betra og „Vertebrae By Vertebrae“, sem kom þar næst, stóð því lítt að baki. Alla jafna voru lögin sem hún flutti á tónleikunum úrval frá ferl- inum, lög sem sum eru klassík og önnur sem verða það kannski síðar meir, en öll afskaplega vel samin og frábærlega flutt. Þegar „Pluto“ hljómaði svo í lok- in gengu áheyrendur síðan af göfl- unum, fólkið á svölunum stóð á fæt- ur og æpti og öskraði en niðri í sal var aðalfjörið; tónleikahöllin breytt- ist í fimm þúsund manna dansstað á einni nóttu. Fólkið vildi meira og eftir langt uppklapp meðan hljóð- menn leituðu að hljóðnemanum sem Björk kastaði út í loftið í algleym- isstemningu, fékk það líka meira því blásaradecettinn sneri aftur með Björk og flutti magnaða útgáfu af akkerislaginu. Það var að hálfu sungið á íslensku og að hálfu á ensku, en þegar Björk söng á ensku „this is my home“ var hún ekki síst að vísa til þess að hér var hún á heimavelli að syngja fyrir sína nán- ustu, fólkið sem féll fyrir Debut og hefur fylgt henni síðan. Loka-lokalag tónleikanna var svo slagarinn umdeildi „Declare Indep- endence„/„Lýsið yfir sjálfstæði“, lagið sem vakti svo mikla gremju kínverskra yfirvalda en vakti gríð- arlega hrifningu í Hammersmith, enda er það ekki síður hvatning til þess að vera maður sjálfur en hvatning til þjóða og þjóðarbrota að standa á eigin fótum. Um leið og fyrstu tónarnir byrjuðu tóku áheyr- endur enn hressilegar við sér, enda keyrslan yfirgengileg. Frábær end- ir á mögnuðum tónleikum og gott ef þetta eru ekki bestu tónleikar sem ég hef séð með Björk, þó úr ýmsum sé að velja. Aldrei betri Björk TÓNLIST Tónleikar Hammersmith Apollo, London. Mánudag- inn 14. apríl, 2008. Björk bbbbb Ljósmynd/Árni Matthíasson Í Hammersmith Apollo „[Þ]egar Björk söng á ensku „this is my home“ var hún ekki síst að vísa til þess að hér var hún á heimavelli að syngja fyrir sína nánustu, fólkið sem féll fyrir Debut og hefur fylgt henni síðan.“ Árni Matthíasson SÝND Í SMÁRABÍÓI l ATH: Á UNDAN MYNDINNI VERÐUR FRUMSÝNT FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ (TRAILER) ÚR ICE AGE 3! SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI eeeee -S.M.E., Mannlíf eeee - S.S. , X-ið FM 9.77 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Háskólabíói Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI J E S S I C A A L B A Vantage point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Shutter kl. 10:30 B.i. 16 ára Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6 - L.I.B. TOPP5.is/FBL. eee SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI - Empire eeeeeeee - E.E, D.V.- ÓHT, Rás 2 eee - L.I.B. Topp5.is/FBL eeee SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI MÖGNUÐ MYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM UM HÓP NEMENDA SEM SÉRHÆFÐU SIG Í AÐ LÆRA OG TELJA Í SPILIÐ 21 MEÐ ÞAÐ MARKMIÐ AÐ HREINSA SPILAVÍTIN Í VEGAS! Superhero Movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Vantage Point kl. 8 B.i. 16 ára The Orphanage kl. 6 B.i. 16 ára The Eye kl. 10 B.i. 16 ára SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI eee - S.V., MBL TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 21 kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Superhero movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Doomsday kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára The other Boleyn girl kl. 5:30 B.i. 10 ára The Kite Runner kl. 10 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára eee - S.V., MBL 21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 B.i. 12 ára 21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 LÚXUS Superhero movie kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Definately maby kl. 5:30 - 8 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! EMILIO Diaz, faðir bandarísku leikkonunnar Cameron Diaz, lést á þriðjudaginn, aðeins 58 ára að aldri. Banamein hans var lungna- bólga. Skyndilegt fráfall Diaz mun vera fjölskyldu hans gríðarlegt áfall enda mun hann hafa verið við hestaheilsu og í góðu formi fram til þessa. Cameron fékk fréttirnar þar sem hún var við tökur á kvikmyndinni My Sister’s Keeper, en tökum á myndinni hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Þau feðgin munu hafa verið mjög náin og sem dæmi má nefna að Emilio kom fram í smáhlutverki í kvikmyndinni There’s Something About Mary árið 1998. Reuters Áfall Cameron Diaz er í sárum. Missti föður sinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.