Morgunblaðið - 17.04.2008, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARIÐ ár hefur Björk
Guðmundsdóttir verið á ferð um
heiminn til að kynna breiðskífuna
Volta, byrjaði eiginlegt tónleikahald
í Laugardalshöllinni 9. apríl 2007
eftir smá upphitun á Nasa 1. apríl.
Tónleikarnir í Höllinni voru í raun
einskonar generalprufa, skemmti-
legir sem slíkir, en enn vantaði
nokkuð upp á að hljómsveitin næði
vel saman og að lögin af Volta
gengju fyllilega upp.
Á tónleikum í Bilbao í Baskalandi
þremur mánuðum síðar gekk allt
mun betur, sveitin smollin saman
og lögin slípast til og því mátti bú-
ast við því að enn betur myndi tak-
ast upp þegar Björk sneri aftur til
Bretlands í vikunni að leika á fern-
um tónleikum í Hammersmith
Apollo-tónleikahöllinni í vesturenda
Lundúna.
Áhugi fyrir tónleikunum var gríð-
arlegur, enda Volta almennt vel
tekið og fjögur ár liðin frá síðustu
tónleikum Bjarkar í Bretlandi. Það
kom því ekki á óvart að það seldist
upp á alla Hammersmith-tónleikana
á mettíma og fengu færri en vildu.
Tónleikarnir fóru rólega af stað,
blásaradecettinn marseraði inn á
sviðið skrautlegur mjög og spilaði
„Brennið þið vitar“, en síðar var
gefið í með „Earth Intruders“ en
höfuðbúnaður Bjarkar var óneit-
anlega framandlegur, mikill dúska-
hjálmur og sást varla framan í
hana. Að því loknu komu gamlir
kunningjar af Homogenic, „Hun-
ter“ og „Unravel“ og svo tvö lög
með gestaflytjendum, „Hope“, þar
sem Toumani Diabate spilaði undir
á koru, og „Dull Flame of Desire“
með þeim stórkostlega söngvara
Antony Hegarty en á milli kom
reyndar „The Pleasure Is All
Mine“.
Flutningur hennar og Antonys á
„Dull Flame of Desire“ var einn af
hápunktum tónleikanna, reyndar
líkt og það lag er eitt það eft-
irminnilegasta af Volta, en næsta
lag þar á eftir, „Jóga“, var enn
betra og „Vertebrae By Vertebrae“,
sem kom þar næst, stóð því lítt að
baki. Alla jafna voru lögin sem hún
flutti á tónleikunum úrval frá ferl-
inum, lög sem sum eru klassík og
önnur sem verða það kannski síðar
meir, en öll afskaplega vel samin og
frábærlega flutt.
Þegar „Pluto“ hljómaði svo í lok-
in gengu áheyrendur síðan af göfl-
unum, fólkið á svölunum stóð á fæt-
ur og æpti og öskraði en niðri í sal
var aðalfjörið; tónleikahöllin breytt-
ist í fimm þúsund manna dansstað á
einni nóttu. Fólkið vildi meira og
eftir langt uppklapp meðan hljóð-
menn leituðu að hljóðnemanum sem
Björk kastaði út í loftið í algleym-
isstemningu, fékk það líka meira
því blásaradecettinn sneri aftur
með Björk og flutti magnaða útgáfu
af akkerislaginu. Það var að hálfu
sungið á íslensku og að hálfu á
ensku, en þegar Björk söng á ensku
„this is my home“ var hún ekki síst
að vísa til þess að hér var hún á
heimavelli að syngja fyrir sína nán-
ustu, fólkið sem féll fyrir Debut og
hefur fylgt henni síðan.
Loka-lokalag tónleikanna var svo
slagarinn umdeildi „Declare Indep-
endence„/„Lýsið yfir sjálfstæði“,
lagið sem vakti svo mikla gremju
kínverskra yfirvalda en vakti gríð-
arlega hrifningu í Hammersmith,
enda er það ekki síður hvatning til
þess að vera maður sjálfur en
hvatning til þjóða og þjóðarbrota að
standa á eigin fótum. Um leið og
fyrstu tónarnir byrjuðu tóku áheyr-
endur enn hressilegar við sér, enda
keyrslan yfirgengileg. Frábær end-
ir á mögnuðum tónleikum og gott ef
þetta eru ekki bestu tónleikar sem
ég hef séð með Björk, þó úr ýmsum
sé að velja.
Aldrei betri Björk
TÓNLIST
Tónleikar
Hammersmith Apollo, London. Mánudag-
inn 14. apríl, 2008.
Björk bbbbb
Ljósmynd/Árni Matthíasson
Í Hammersmith Apollo „[Þ]egar Björk söng á ensku „this is my home“ var hún ekki síst að vísa til þess að hér var
hún á heimavelli að syngja fyrir sína nánustu, fólkið sem féll fyrir Debut og hefur fylgt henni síðan.“
Árni Matthíasson
SÝND Í SMÁRABÍÓI
l
ATH:
Á UNDAN MYNDINNI
VERÐUR FRUMSÝNT
FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ
(TRAILER)
ÚR ICE AGE 3!
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
eeeee
-S.M.E., Mannlíf
eeee
- S.S. , X-ið FM 9.77
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Háskólabíói
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
J E S S I C A A L B A
Vantage point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Shutter kl. 10:30 B.i. 16 ára
Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6
- L.I.B.
TOPP5.is/FBL.
eee
SÝND Í BORGARBÍÓI
SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
- Empire
eeeeeeee
- E.E, D.V.- ÓHT, Rás 2
eee
- L.I.B.
Topp5.is/FBL
eeee
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
MÖGNUÐ MYND BYGGÐ
Á SÖNNUM ATBURÐUM
UM HÓP NEMENDA SEM
SÉRHÆFÐU SIG Í AÐ
LÆRA OG TELJA Í SPILIÐ
21 MEÐ ÞAÐ MARKMIÐ
AÐ HREINSA SPILAVÍTIN
Í VEGAS!
Superhero Movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Vantage Point kl. 8 B.i. 16 ára
The Orphanage kl. 6 B.i. 16 ára
The Eye kl. 10 B.i. 16 ára
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eee
- S.V., MBL
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
21 kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Superhero movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Doomsday kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
The other Boleyn girl kl. 5:30 B.i. 10 ára
The Kite Runner kl. 10 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára
eee
- S.V., MBL
21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 B.i. 12 ára
21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 LÚXUS
Superhero movie kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Definately maby kl. 5:30 - 8
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
EMILIO Diaz, faðir bandarísku
leikkonunnar Cameron Diaz, lést á
þriðjudaginn, aðeins 58 ára að
aldri. Banamein hans var lungna-
bólga. Skyndilegt fráfall Diaz mun
vera fjölskyldu hans gríðarlegt
áfall enda mun hann hafa verið við
hestaheilsu og í góðu formi fram til
þessa.
Cameron fékk fréttirnar þar sem
hún var við tökur á kvikmyndinni
My Sister’s Keeper, en tökum á
myndinni hefur nú verið frestað um
óákveðinn tíma.
Þau feðgin munu hafa verið mjög
náin og sem dæmi má nefna að
Emilio kom fram í smáhlutverki í
kvikmyndinni There’s Something
About Mary árið 1998.
Reuters
Áfall Cameron Diaz er í sárum.
Missti
föður sinn