Morgunblaðið - 18.04.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„FUNDURINN var mjög gagn-
legur. Ásamt því að ræða tvíhliða-
mál fórum við einnig yfir ýmis al-
þjóðleg málefni,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra eftir fund
sinn með Stephen Harper, forsætis-
ráðherra Kanada, í Ottawa í gær.
Auk fundarins við Harper ræddi
ráðherrann við kanadíska fjölmiðla
og hitti stuttlega Íslendinga búsetta
í Ottawa.
Eitt helsta viðfangsefni fundar
forsætisráðherranna var varn-
armálin. „Við höfum lagt áherslu á
að ljúka við gerð samkomulags við
Kanadamenn um samstarf á sviði
öryggis- og varnarmála,“ sagði
Geir sem býst við að hægt verði
skrifa undir samkomulagið á allra
næstu mánuðum. Samkomulagið er
efnislega sambærilegt við það sem
gert hefur verið við Dani og Norð-
menn um sama efni og er liður í
áframhaldandi viðleitni stjórnvalda
til að efla öryggissamstarf á frið-
artímum við grannríki innan Atl-
antshafsbandalagsins (NATÓ).
Einnig var til umræðu á fund-
inum framkvæmd fríversl-
unarsamnings EFTA við Kanada.
„Sá samningur er reyndar kominn
lengra í þinginu hjá okkur en þeim.
En [Harper] gerir ekki ráð fyrir að
langt um líði þar til samningurinn
verði staðfestur, þó svo að einhver
andstaða sé um hann á kanadíska
þinginu.“
Eftir fundinn ræddi ráðherrann
við fjölmiðla, m.a. viðskiptasjón-
varpsstöðina BNN. Sagði Geir
spurningar fjölmiðla aðallega hafa
snúist um efnahagsmálin þó að
einnig hefði verið vikið að sam-
skiptum landanna.
Rætt um
öryggis- og
varnarmál
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞESSI úrskurður gengur mun
lengra en ég hefði átt von á. Fyrir
fram höfðum við gert ráð fyrir að
sá hlutur sem við áttum fyrir í HS
og keyptur var fyrir ári mundi
standa,“ segir Hjörleifur Kvaran,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
(OR), en Samkeppniseftirlitið
komst í gær að þeirri niðurstöðu
að OR væri óheimilt að eiga meira
en 3% eignarhlut í Hitaveitu Suð-
urnesja (HS) og skal OR gera
breytingar á eignarhaldi sínu í HS
fyrir 1. október nk.
Að sögn Hjörleifs hafa forsvars-
menn OR ekki ákveðið hvernig
bregðast skuli við ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins. Tekur hann
fram að búið hafi verið að skipu-
leggja stjórnarfund OR í dag og
segist gera ráð fyrir að málið
verði rætt þar. Bendir hann á að
hlutaðeigandi aðilar hafi heimildir
til að bera ákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins undir áfrýjunarnefnd
samkeppnismála auk þess sem
dómstólaleiðin sé fær kjósi menn
hana. Aðspurður segir hann engan
kaupanda að eignarhlut OR í HS í
spilunum eins og sé. Spurður
hvort einhver takmörk séu sett á
það hverjum OR megi selja hlut
sinn svarar Hjörleifur því neit-
andi.
Í ljósi ákvörðunar Samkeppnis-
eftirlitsins er sala Hafnarfjarðar-
bæjar á ríflega 15% hlut sínum í
HS til OR í uppnámi, en samn-
ingsaðilar eru ósammála um hvort
OR beri að kaupa hlut Hafnar-
fjarðar í HS og síðan selja hann
aftur eða hvort ekkert verði af
sölu hlutarins í ljósi ákvörðunar
eftirlitsins.
Að mati Hjörleifs má ljóst vera
að ekki getur orðið af kaupunum
og bendir hann máli sínu til stuðn-
ings á að í hluthafasamkomulagi
frá 11. júlí 2007 hafi verið tiltekið
að kæmu fram takmarkanir af
hálfu samkeppnisyfirvalda myndu
aðilar samkomulagsins leita leiða
varðandi eignarhald á HS, s.s. að
fá nýja eignaraðila að félaginu.
Greiði OR ekki fyrir hlutinn
gæti málið endað fyrir dómi
Þessu er Stefán Geir Þórisson,
hrl. og lögmaður Hafnarfjarðar-
bæjar í málefnum HS, ósammála.
„OR þarf að greiða fyrir hlutinn í
HS sem um var samið. Síðan er
það bara þeirra vandamál að losa
sig við þennan hlut,“ segir Stefán.
Bendir hann á að hluturinn, sem
nemur rúmum 7,6 milljörðum
króna, hafi gjaldfallið 10. mars sl.
og hafi því þegar safnað um 200
milljónum króna í dráttarvöxtum.
Að sögn Stefáns var í samningi
samningsaðila frá 2. júlí 2007,
þess efnis að Hafnarfjarðarbær
gæti tekið ákvörðun um að selja
hlut sinn í HS til OR innan sex
mánaða, ekki neinn fyrirvari af
hálfu OR um samþykki samkeppn-
isyfirvalda. Spurður hvað gerist
sitji OR fast við sinn keip segist
Stefán munu ráðleggja Hafn-
arfjarðarbæ að stefna OR til
greiðslu þessarar fjárhæðar.
Forstjóri OR undrast ákvörðun
Samkeppniseftirlits vegna HS
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Lögmaður Hafn-
arfjarðar segir OR
þurfa að greiða
fyrir hlutinn í HS
!
" #
$
$
!
„EINA niðurstaða fundarsins var
sú að menn voru sammála um að
stefna að skammtímasamningi,“
sagði Örnólfur Jónsson, formaður
samninganefndar Félags íslenskra
atvinnuflugmanna (FÍA), eftir
samningafund með Icelandair hjá
ríkissáttarsemjara. Þrátt fyrir stíf
fundahöld að undanförnu, m.a. frá
morgni til kvölds í gær, ber enn
mikið á milli, að sögn Örnólfs. „Og
í sjálfu sér er ekki tilefni til ann-
ars fundar í bili en sáttasemjari
hefur boðað til fundar 5. maí nk.“
Á fundi Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, sem haldinn var
fyrir rúmri viku, var lagt til að
hafinn yrði undirbúningur að boð-
un verkfalls. Formaður félagsins
taldi að verkfallið gæti þá í fyrsta
lagi skollið á um næstu mánaða-
mót. Örnólfur segir hins vegar að
samþykkt hafi verið að fresta
verkfallsboðun um óákveðinn tíma
eða þar til útséð er um hvort hægt
er að ná fram stuttum samningi.
„Það felst hins vegar engin yfirlýs-
ing í því og við útlokum alls ekki
verkfall.“ Spurður hvaða ákvæði
helst sé karpað um segir Örnólfur
þau öll snúa að kjarabótum til
handa flugmönnum, þar skilji
samningsaðila helst að.
Stefnt verð-
ur að stutt-
um samningi
Næsti fundur FÍA og
Icelandair 5. maí nk.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÞETTA er nákvæmlega það sem við vildum
alls ekki,“ segir Erla Björk Birgisdóttir, trún-
aðarmaður skurðhjúkrunarfræðinga á Land-
spítalanum í Fossvogi, um þau tíðindi að yf-
irmenn á svæfinga-, gjörgæslu og
skurðstofusviði LSH hafi boðað hjúkrunar-
fræðingana 98, sem sagt hafa upp störfum frá
1. maí, í einstaklingsviðtöl frá og með morg-
undeginum. „En það sem okkur þykir verst er
að þau ótrúlegu skilaboð hafa borist að trún-
aðarmönnum er neitað um að vera viðstaddir
viðtölin. Þetta finnst okkur mjög lágkúrulegt.
Okkur finnst þetta líkjast einhverjum rúss-
neskum stjórnunarháttum. Með öllu þessu
ferli er svo svívirðilega að okkur og okkar
starfi vegið að við erum hreinlega krossbit yf-
ir því að yfirmenn okkar skuli hafa þetta í
sér.“
Hrófla við fyrirkomulagi
sem hefur gengið mjög vel
Skýringarnar sem trúnaðarmennirnir hafa
fengið eru að sögn Erlu „tengsl okkar við Fé-
lag íslenskra hjúkrunarfræðinga“. Erla segir
þau rök duga skammt, félagið hafi ekkert
komið að málum enda snúist deilan um breytt
vinnufyrirkomulag en ekki kjarabaráttu. „Það
er verið að hrófla við fyrirkomulagi sem hefur
gengið mjög vel, breytingin felst í því að það á
að borga okkur minna fyrir að vinna meira.
Þetta er svo einfalt.“
Munum hlusta á tilboð
yfirmanna með opnum huga
Spurð hvort hjúkrunarfræðingar muni
mæta til viðtalanna segir Erla þá verða að
mæta þar sem þau séu boðuð á vinnutíma.
„En hjúkrunarfræðingar hér í Fossvogi
hafa rætt málin og ætla ekki að skrifa undir
neitt í þessum viðtölum. Þetta kom af stað
nokkurri óróabylgju í okkar hópi en við erum
harðákveðnar í því að koma fram sem hópur
þó að við höfum sagt upp sem einstaklingar.
Við munum hlusta á tilboð yfirmanna með
opnum huga en það verður ekki samið við einn
og einn og það verður engin launaleynd. Það
er nákvæmlega sú leið sem myndi sundra
hópnum. Okkar sterkasta vopn er samstaðan
og við ætlum að halda henni áfram.“
„Líkist rússneskum stjórnunarháttum“
FJÖLMENNI var á stofnfundi hags-
munasamtaka atvinnubílstjóra sem
haldinn var á Höfðakaffi í gær-
kvöldi. Talið er að um áttatíu
manns hafi komið að og tekið þátt í
umræðum um kröfur og aðgerðir
bílstjóra á næstunni.
Á fundinum var m.a. rætt um að
fundur bílstjóra með fulltrúum fjár-
málaráðherra í vikunni hefði lítið
gert til að lægja öldur innan stétt-
arinnar og þolinmæðin væri því á
þrotum.
Fjölmenni
á stofnfundi
♦♦♦
ENGAN sakaði þegar eldur kom
upp í vélarrúmi togarans Rex, sem
liggur við bryggju í Hafnarfirði, á
tólfta tímanum í gærkvöldi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins voru
þrír menn um borð í skipinu þeg-
ar eldurinn kom upp og tilkynnt
var um hann, en þeim tókst að
komast klakklaust frá borði.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
sem var í ljósavél í vélarrúmi. Í
framhaldi var vélarrýmið reyk-
ræst. Ekki er vitað um eldsupptök
að svo stöddu.
Eldur í
vélarrúmi