Morgunblaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 41
Krossgáta
Lárétt | 1 alveg ber, 8
lund, 9 blóðsugum, 10
elska, 11 fantarnir, 13
híma, 15 stöðvun, 18
grískur bókstafur, 21 ílát,
22 sjúga, 23 smámynt, 24
málsvari.
Lóðrétt | 2 kút, 3 jurtin, 4
eldstæði, 5 slæmur, 6 bí-
lífi, 7 litla, 12 greinir, 14
snák, 15 pest, 16 koma í
veg fyrir, 17 geðs, 18
djarfa, 19 hlífðu, 20 siga.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 andóf, 4 sænsk, 7 akkur, 8 orður, 9 nár, 11 læða,
13 biti, 14 stóra, 15 fork, 17 klám, 20 sag, 22 ráðum, 23
eldur, 24 innan, 25 afurð.
Lóðrétt: 1 apall, 2 díkið, 3 forn, 4 slor, 5 niðji, 6 kargi, 10
ámóta, 12 ask, 13 bak, 15 ferli, 16 ræðan, 18 lyddu, 19
múruð, 20 smán, 21 geta.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Skarpskyggni þín í viðskiptum er
kannski ekki tilkomin vegna menntunar.
En hún er mikil og mun framfleyta þér.
Þú þekkir verðmæti – og heldur í bita fyr-
ir sjálfan þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sambönd breytast. Sum verða
sterkari, önnur veikari. Vinur sem þú
varst ekki viss um, reynist traustsins
verður. Sterk ást breytist í væntumþykju.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú getur verið að gera það ná-
kvæmlega sama og allir aðrir en það lítur
ekki þannig út. Einstakleiki þinn lífgar
upp á andrúmsloftið. Njóttu þín.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ástarskýlið þitt er dásamlegt at-
hvarf þar sem þú trúir bara því besta um
fólk, jafnvel þótt það geri mistök. Þú sýnir
fólki trygglyndi á ótrúlega marga vegu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Oft er auðveldast að læra að elska
sjálfan sig með því að elska aðra. En ein-
mitt núna er þessu öfugt farið. Hugsaðu
vel um sjálfan þig og ástin á öðrum
blómstrar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það þarf ekki alltaf bardaga til að
knýja fram breytingar. Þær róttækustu
geta gerst smám saman og yfir langt
tímabil. Á það ekki við um eitt af sam-
böndum þínum?
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ert að biðja fólk um álit á frammi-
stöðu þinni. Allir hrósa þér nema einn eða
tveir. Taktu gagnrýninni vel, þú veist að
þú lærir af henni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Stjörnurnar giska á að þú
munir eiga í vandræðum með yfirvald í
dag. Alveg sama hversu vel að sér ráð-
gjafar þínir eru, þú virðist alltaf hafa betri
hugmyndir.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú gefur endalaust af þér í
sambandi, meira en góðu hófi gegnir.
Meira en er raunsætt, heilbrigt eða skyn-
samlegt. Reyndu að gefa á annan hátt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Verkið sem bíður þín er auð-
veldara en það virðist vera. Gott er að
fylgja fyrstu tilfinningunni – og það
skjótt. Árangurinn verður slakari ef þú
tekur of mikinn tíma í verkið.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einhver stendur í vegi fyrir
þér. Þetta er ekki óvinur heldur vinur
sem vill skerpa á hæfileikum þínum og fá
þig til að hugsa stærra. Ekki keyra hann
niður, beygðu framhjá.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hópar geta verið ógnandi, ekki
fyrir þig, ekki í dag. Þú sérð hóp sem
tækifæri til að stjórna gleði annarra.
Hópurinn sem þú hittir bíður eftir að fá
að dá þig.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 d6 6. Be3 Be7 7. g4 Rc6 8. g5
Rd7 9. h4 a6 10. Hg1 Rxd4 11. Dxd4
Re5 12. Be2 O–O 13. h5 Rc6 14. Dd2 g6
15. O–O–O b5 16. f4 b4 17. Ra4 Da5 18.
b3 Hb8 19. Bd3 He8 20. Dh2 Bf8 21.
Hh1 Bg7 22. hxg6 hxg6 23. Bc4 Dc7
Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands-
móts skákfélaga sem fór fram haustið
2007. Snorri G. Bergsson (2340) hafði
hvítt gegn Arnaldi Loftssyni (2100).
24. Hxd6! Re7 svartur hefði tapað
drottningunni eftir 24… Dxd6 25.
Dh7+ Kf8 26. Bc5. 25. Bd4! hvítur hót-
ar nú máti á h8. Framhaldið varð:
25…Bxd4 26. Hxd4 Kf8 27. Dh6+ og
svartur gafst upp enda mát í næsta
leik.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Vongóður.
Norður
♠1084
♥Á
♦K9842
♣ÁG32
Vestur Austur
♠DG ♠653
♥9 ♥KDG10
♦ÁD1076 ♦G3
♣D10976 ♣K854
Suður
♠ÁK972
♥8765432
♦5
♣--
Suður spilar 4♥ dobluð.
Flestum keppendum Íslandsmótsins
þóttu spil vesturs nógu góð til að opna
á einum tígli og af því mótaðist fram-
haldið: Austur svaraði á hjarta og
„stal“ litnum frá suðri, sem hallaði sér
þá að spaðanum. Sem var í góðu lagi,
því 4♠ vinnast í reynd. En á einu borði
þagði austur yfir hjartalitnum af kerf-
isástæðum – sagði eitt grand tígulopn-
uninni. Suður ákvað þá að veðja á sjö-
litinn, þótt veikur væri, og stökk í 4♥.
Austur trúði vart heppni sinni og do-
blaði auðvitað.
Útspilið var spaðadrottning. Sagn-
hafi tók slaginn, spilaði hjarta á ás og
henti tígli í laufásinn. Hann hitti síðan
á að fella spaðagosann og vann sitt spil
– gaf bara þrjá slagi á tromp.
„Ég var vongóður,“ var það eina sem
austur lét hafa eftir sér.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1Miklar samgönguframkvæmdir hafa verið kynntar fyr-ir íbúum Hlíða- og Háaleitishverfis. Hver er formaður
íbúasamtakanna?
2 Ragna Árnadóttir hefur verið sett ráðuneytisstjóridóms- og kirkjumálaráðuneytis í leyfi núverandi ráðu-
neytisstjóra. Hver er hann?
3Mikil sýning var opnuð í Laugardalshöll í gær. Hvaðaheiti ber hún?
4 Formaður stjórnar Glitnis er harðorður um starfsloka-samning við fyrrverandi yfirmann bankans í Noregi.
Hver er stjórnarformaðurinn?
Svör við spurn-
ingum gærdagsins:
1. Hver er arkitektinn
að nýrri sundlaug á
Hofsósi? Svar: Sig-
ríður Sigþórsdóttir. 2.
Indriði Indriðason
varð 100 ára í gær.
Fyrir hvað er hann
þekktastur? Svar:
Ættfræði. 3. Smekk-
leysa lokar plötu-
verslun sinni. Hver er
framkvæmdastjóri
Smekkleysu? Svar: Ásmundur Jónsson. 4. Leikið verður til
hreinna úrslita í Íslandsmótinu í blaki karla. Hvaða lið mætast?
Svar: Stjarnan og Þróttur Reykjavík.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
EVA Haraldsdóttir hefur opnað
málverkasýningu í húsgagnaversl-
uninni Valhúsgögn, Ármúla 8.
Þetta er önnur einkasýning Evu
sem að þessu sinni sýnir 50 olíu-
málverk.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
verslunarinnar.
Nú um helgina er opið bæði á
laugardag og sunnudag.
List Eitt verka Evu.
Eva sýnir í
Valhúsgögnum
STJÓRN Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga hélt fund 3. apríl sl. þar sem
ástand efnahagsmála var mjög til
umræðu. Á fundinum var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
„Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirð-
inga gagnrýnir harðlega þá bylgju
hækkana sem launþegar hafa þurft
að taka á sig að undanförnu. Spyrna
þarf við ört hækkandi eldsneytis-
og matarverði ásamt þeim gríðar-
legu hækkunum á öðrum nauðsynj-
um sem dynja á landsmönnum. Það
er með öllu óásættanlegt að fyrsti
kostur skuli vera að hækka vöru-
verð og þjónustu til neytenda,
mættu aðrir taka þá til fyrirmyndar
sem ekki bregða á þessi óyndisráð.
Þá eru þau vinnubrögð birgja og
heildsala að lauma breytingum á
vaxta- og gengismun inn í boðaða
hækkun vöruverðs fordæmd harka-
lega. Ef fram fer sem horfir þá
verður verðbólguhraðinn næstu
misseri orðinn slíkur að ekki verður
við ráðið, og nýumsamdar kjara-
bætur launþega hverfa með öllu ef
ekki verður brugðist strax við vand-
anum.
Launþegar gerðu miklar vænt-
ingar vegna þeirra kjarabóta sem
nýjum kjarasamningi var ætlað að
færa þeim. Þær kjarabætur skerð-
ast meir og meir með hverjum deg-
inum sem líður, við óbreytt ástand
verður ekki unað. Samstaða laun-
þega, með verkalýðshreyfinguna í
fararbroddi, gerir þá skýlausu
kröfu að endurskoðun vegna fram-
lengingar kjarasamninga hefjist
strax. Reynt verði að vinna að hald-
bærum langtímalausnum á þeim
vanda sem steðjar að launþegum,
atvinnurekendum og íslensku efna-
hagslífi. Þar verða allir að leggjast
á eitt um að sá árangur náist að
verðbólgu og vöxtum verði komið í
viðunandi horf þannig að umsamdar
kjarabætur skili sér til heimilanna í
landinu.“
Endurskoðun kjara-
samninga hefjist strax
VORHÁTÍÐ verður haldin á Lauga-
landi í Holtum í Rangávallasýslu í
kvöld kl. 20.30 og rennur öll inn-
koma á hátíðinni óskipt til Jóns
Ólafssonar á Kirkjulæk sem á við
erfið veikindi að stríða.
Glæsileg efnisskrá verður í boði
og munu koma fram á hátíðinni
Kirkjukór Breiðabólstaðarpresta-
kalls, sönghópurinn Góðir grannar,
Sigurður Sigurðarson kvæðamað-
ur, sönghópurinn Öðlingar, söngv-
ararnir Gísli Stefánsson og Marí-
anna Másdóttir, sönghópurinn
Víkingarnir af Suðurnesjum, Fé-
lagar úr Samkór Rangæinga munu
flytja gamanmál, þ.á m. Sjöfn Guð-
mundsdóttir gleðigjafi, Kvennakór-
inn Ljósbrá, Bjarni Harðarson
gleðigjafi og Karlakór Rangæinga.
Opnaður hefur verið reikningur til
styrktar Jóni í Kaupþingi banka,
0308-13-111001 kt. 660592-3189.
Vorhátíð til
styrktar Jóni
á Kirkjulæk