Morgunblaðið - 18.04.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÉG á flogaveika dóttur og fannst
mér bera skylda til að vekja athygli
almennings á þessum alvarlega
sjúkdómi, koma flogaveikinni úr
skugganum,“ segir Sigrún Erlends-
dóttir sem næstkomandi mánudag
mun, ásamt 34 hlaupafélögum sín-
um, hlaupa maraþon í Boston í
Bandaríkjunum til styrktar floga-
veikum börnum og Landssambandi
áhugafólks um flogaveiki, LAUF.
Boston-maraþonið er eitt það
stærsta í heiminum og í ár taka um
25 þúsund hlauparar þátt í því. Þetta
er í 112. sinn sem hlaupið fer fram.
„Ég komst að því þegar dóttir mín
greindist með flogaveiki árið 2005,
þá fjögurra ára gömul, að það vantar
tilfinnanlega fræðslu og umræðu í
þjóðfélaginu um stöðu flogaveikra,
ekki síst flogaveikra barna, tak-
markaða þátttöku þeirra í félagslífi,
ferðalögum og íþróttum.“
Fékk um fimmtíu
flogaköst á sólarhring
Dóttir Sigrúnar svarar vel lyfja-
gjöf í dag eftir brösuglega byrjun.
„Fyrst eftir að hún greindist tókst
að stilla lyfin mjög vel,“ segir Sig-
rún. „En fljótlega hættu lyfin að
virka og í fimm mánuði fékk hún um
50 flogaköst á sólarhring.“ Var þá
ákveðið að koma dótturinni í skurð-
aðgerð til Bandaríkjanna, en úr því
varð ekki. „En þá byrjuðu lyfin að
virka svo það kom aldrei til að við
færum út.“
Sigrún er nú að safna áheitum frá
fyrirtækjum vegna maraþonsins til
áhugaverðra verkefna sem eru á
döfinni hjá LAUF. „Til að þessi
verkefni geti orðið að veruleika þarf
fjármagn,“ segir Sigrún. Hún hvetur
öll fyrirtæki og einstaklinga til að
leggja sitt af mörkum til söfnunar-
innar.
Meðal verkefna er útgáfa fræðslu-
myndar á geisladiski sem sýnd verð-
ur í sjónvarpi sem og skólum um allt
land. Hún sýnir viðtöl við flogaveika
einstaklinga og myndir af raunveru-
legum flogum þeirra við ýmsar að-
stæður.
Þá er unnið að undirbúningi fyr-
irlestraraðar fyrir alla grunn- og
framhaldsskóla landsins. Verkefnið
mun taka þrjú til fjögur ár og er
hugmyndin að fá hjúkrunarfræðing
til að sjá um fyrirlestrana. Einnig
verður fljótlega dreift plast-
armbandi til flogaveikra til að auka
öryggi þeirra í sundi.
Kennitala LAUF er 610884-0679
og reikningsnúmer 1150-26-8237.
Vilja varpa ljósi á flogaveiki
Morgunblaðið/Golli
Sprett úr spori Hlaupahópurinn kennir sig við Laugar og hefur æft stíft í vetur fyrir maraþonið í Boston.
35 Íslendingar hlaupa til styrktar flogaveikum börnum í Boston-maraþoni
Styðja við fræðslu-
verkefni LAUF
Á HVERJU ári greinast milli 40 og
50 börn með flogaveiki á Íslandi
eða nærri eitt á viku.
Ólafur Thorarensen, barnalækn-
ir á Barnaspítala Hringsins, segir
að í um 70% tilvika sé hægt að með-
höndla flogaveiki hjá börnum með
einu lyfi og ná góðum árangri svo
sjúkdómurinn hafi ekki áhrif á dag-
legt líf þeirra. Þriðjungur
barnanna er ekki svo heppinn og
þarf fleiri lyf og svarar oft lyfjagjöf
illa. Sami fjöldi barna glímir sam-
kvæmt nýjum rannsóknum við
námsörðugleika og hegðunar-
vandamál vegna sjúkdómsins. Í
sumum tilvikum er sjúkdómurinn
það illvígur að meðhöndla þarf
hann með skurðaðgerð eða sér-
stöku fituríku mataræði.
Flogaveiki stafar af óeðlilegri
rafvirkni taugafrumna á yfirborði
heilans. Stundum á þessi truflun sér
stað í báðum heilahvelum og getur
fólk þá tapað meðvitund. En floga-
veiki hefur ýmis andlit og í öðrum
tilvikum dettur viðkomandi t.d. að-
eins út í skamman tíma. Lyfjagjöf
geta fylgt aukaverkanir á borð við
jafnvægis- og sjóntruflanir og
syfju. Sjúkdómurinn og lyfin geta
haft þau áhrif, sérstaklega á ung-
linga, að þeir eiga erfitt uppdráttar
félagslega. „Enda fylgir sjúkdómn-
um enn skömm og fordómar í sam-
félaginu, því miður,“ segir Ólafur.
Um 50 börn greinast á ári
ÓSKAR Bergsson, borgarráðs-
fulltrúi Framsóknarflokksins, hef-
ur óskað eftir því að viljayfirlýsing-
arnar sem undirritaðar voru í
Djíbútí, Jemen og Eþíópíu verði
lagðar fram á næsta fundi borg-
arráðs. Í frétt frá honum segir að
þetta sé gert vegna misvísandi um-
mæla borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins um innihald þeirra
samninga sem stjórnarformaður
REI undirritaði ytra. Er m.a. spurt
hvort einhverjir fyrirvarar voru um
aðkomu annarra aðila en REI.
Borgarráð sjái
viljayfirlýsingar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur sýknað karlmann af kröfu um að
viðurkennt yrði að hann væri bóta-
skyldur vegna slyss sem varð í golfi,
en golfkúla sem maðurinn sló á golf-
velli Kjalar í Mosfellsbæ lenti í
hægra auga annars manns. Sá sem
varð fyrir kúlunni missti nánast
sjónina á auganu.
Slysið varð í nóvember 2002. Sá
sem fyrir kúlunni varð var að spila
golf og gekk að vetrarflöt á þriðju
braut vallarins þegar hinn maðurinn
sló upphafshögg af fjórða teig, en
þessar brautir liggja að hluta til
samsíða. Um 60-80 metrar voru á
milli mannanna.
Höggið mistókst og kúlan tók
sveig yfir til vinstri og lenti í hægra
auga mannsins. Rifa kom á augað við
höggið og augntóftarbein brotnaði.
Sá sem sló kúluna sagðist hafa vit-
að af hinum manninum áður en
höggið reið af en talið að hann og fé-
lagar hans væru það langt í burtu að
óhætt væri að slá.
Dómurinn, sem var fjölskipaður,
taldi að ekki væri hægt að meta kylf-
ingnum það til sakar að hafa slegið
höggið, sem hefði misheppnast hrap-
allega. Til bótaábyrgðar gæti ekki
stofnast á þeim grunni.
Vísaði dómurinn einnig m.a. í regl-
ur um golf í ritinu Golf með skyn-
semi eykur ánægjuna, sem Golfsam-
band Íslands hefur gefið út, þar á
meðal þá reglu, að þeir sem lengra
séu komnir í leiknum, þ.e. séu að
leika braut með hærra númeri, eigi
forgangsrétt.
Sýknaður af bóta-
kröfu vegna mis-
heppnaðs golfhöggs
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Dragtir frá FRANK EDEN
Ljósar og dökkar
VORJAKKAR
3 litir
Verð 8.500 kr.
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
KRINGLUKAST 20-40 % AFSLÁTTUR
Kringlunni • Simi 568 1822
www.polarnopyret.is
M
bl
9
42
37
7
Opið virka daga kl. 10-18,
lau. kl. 11-16
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433
Flott föt
á konur á öllum aldri
Eftir Andra Karl
andrik@mbl.is
BORGARFULLTRÚAR meirihluta
F-lista og Sjálfstæðisflokks virðast
ekki á eitt sammála þegar kemur að
Reykjavík Energy Invest (REI),
dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur.
Á borgarstjórnarfundi sl. fimmtudag
sagði Kjartan Magnússon, stjórnar-
formaður REI og Orkuveitunnar, að
til greina kæmi að fá fjárfesta inn í
REI sem yrði þá að hlutafélagi. Þessu
hafnaði Ólafur F. Magnússon borg-
arstjóri hins vegar alfarið í Kastljósi
RÚV í gærkvöldi.
„Ég get lofað borgarbúum því að á
meðan við eigum REI verði það í
100% eigu almennings,“ sagði borg-
arstjóri m.a. í Kastljósi og gat ekki
tekið undir orð Kjartans. „Nei, það
get ég ekki. Vegna þess að það segir
klárlega í niðurstöðum stýrihópsins
um REI og Orkuveituna að REI skuli
vera 100% í eigu almennings.“ Ólafur
sagðist ennfremur telja misskilning á
bak við orð Kjartans sem hann þyrfti
að skýra betur. „[En] ég get ekki tek-
ið undir neitt annað en það sem stýri-
hópurinn gaf út og þessi meirihluti er
sammála stýrihópnum.“
Ósamstiga í
REI-málum
Kjartan
Magnússon
Ólafur F.
Magnússon