Morgunblaðið - 18.04.2008, Blaðsíða 42
… einstaklingur í ein-
um fínasta háskóla í
heimi þarfnast peninga til að
geta gengið í allra fínasta
háskóla í heimi … 45
»
reykjavíkreykjavík
MYNDBAND við lagið „This is My Life“, framlag Ís-
lendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, var
frumsýnt á vef símafyrirtækisins Nova í gær og er vægt
til orða tekið að mikill fjöldi Íslendinga hafi horft á það í
tölvum sínum. Samkvæmt grófri talningu Nova voru
heimsóknir á vefinn, þ.e. umfram það sem telst venjulegt
á fimmtudegi, um 28.000. Sú talning fékkst frá Nova-
mönnum um tíuleytið í gærkvöldi.
Myndbandið er í óvenjulegri kantinum miðað við önn-
ur íslensk Eurovision-myndbönd, hefst á því að Euro-
vision-aðdáandi mikill stillir upp myndavél og kynnir
áhorfendum að nú hefjist besta Eurovision-myndband
allra tíma. Sá sem leikur hinn æsta aðdáanda er flug-
þjónninn Draupnir Rúnar Draupnisson, vinur Friðriks
Ómars, annars flytjenda lagsins. Má með sanni segja að
Draupnir sýni stórleik og afar líflega og skemmtilega
sviðsframkomu í myndbandinu.
Bloggarar jákvæðir
Fréttin af því að myndbandið væri hægt að sjá á vef
Nova rauk nokkuð hratt upp í fyrsta sæti yfir mest lesnu
fréttirnar á mbl.is og stóð ekki á bloggurum að tjá sig um
myndbandið. Töldu sumir að stjarna væri fædd, þ.e.
Draupnir, aðrir sögðu myndbandið fáránlegt og nið-
urdrepandi en þó voru flestir jákvæðir af þeim sem
blogguðu, aldrei þessu vant.
Draupnir virðist hafa stolið senunni af þeim Friðriki
Ómari og Regínu Ósk en þau munu hins vegar eiga sen-
una í Belgrad í maí, þegar forkeppni Eurovision fer
fram.
28.000 áhorfendur
Þetta er lífið! Draupnir fer hamförum í myndbandi Eurobandsins.
Kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Óskar Jónasson
mun að öllum lík-
indum gera kvik-
mynd eftir
Stormi, sögu Ein-
ars Kárasonar.
Þeir Óskar og
Einar skrifuðu
handrit að mynd-
inni fyrir um það
bil tveimur árum
en síðan þá hefur
Óskar haft nóg að gera, er um þess-
ar mundir að ljúka við gerð kvik-
myndarinnar Reykjavík-Rotter-
dam. Nú er hins vegar stefnt að því
að setja allt í gang, og ef allt geng-
ur að óskum munu tökur hefjast í
haust.
Auk Reykjavík-Rotterdam á Ósk-
ar tvær kvikmyndir að baki, Perlur
og svín og hina ógleymanlegu Só-
dómu Reykjavík.
Óskar kvikmyndar
Storm Einars
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er besta djasshljómsveit sem ég hef
verið í og mig langar eiginlega að segja að
þetta sé besta hljómsveit sem ég hef verið í,“
segir Óskar Guðjónsson saxófónleikari um
hljómsveitina ADHD 800 sem hann hefur
stofnað ásamt þeim Magnúsi Trygvasyni Elí-
assen trommuleikara, Davíð Þór Jónssyni
hljómborðs- og bassaleikara og bróður sínum,
Ómari Guðjónssyni gítarleikara. Kvartettinn,
sem er aðeins þriggja mánaða gamall, heldur
sína fyrstu tónleika í Fríkirkjunni í kvöld.
„Upphaflega var það blúshátíðin á Höfn í
Hornafirði sem hafði samband við mig og vildi
fá eitthvað nýtt. Ég lagði höfuðið í bleyti, en
ég var búinn að velta því lengi fyrir mér að
setja saman svona hóp og mig langaði að
flytja frumsamda músík með þessum mönn-
um,“ segir Óskar um fæðingu sveitarinnar.
„Þegar maður setur saman hljómsveit í mín-
um huga getur maður ekki leyft sér að velja
saman hljóðfæri heldur verður maður að velja
einstaklinga sem virka saman, og vera sveigj-
anlegur varðandi hvaða hljóðfæri þú endar
með,“ útskýrir Óskar fyrir blaðamanni. En
verða ekki að vera bassi, gítar og trommur í
öllum hljómsveitum? „Nei, nei, aldrei gítar og
aldrei bassi, og ekkert alltaf trommur,“ segir
Óskar og hlær.
Mikil virkni
Nafn sveitarinnar vekur óneitanlega at-
hygli, en eins og margir eflaust vita er ADHD
læknisfræðileg skammstöfun fyrir það sem á
íslensku kallast athyglisbrestur, ofvirkni og
hvatvísi. „Það er oft ferlega fyndið að vera að
leita að nöfnum á svona hljómsveit,“ segir
Óskar. „Það er ansi mikil virkni hjá okkur
Davíð og hann stakk upp á þessu nafni. Ég
held að tónlistin hafi hjálpað okkur öllum og
líklega fleirum. Það er voðalega þægilegt að
geta bara tekið upp hljóðfæri og fengið útrás
á því, án þess að nokkur maður þurfi að skilja
þig eða hlusta á þig yfirleitt. Tónlist hefur svo
mikinn mátt og það býr mikið í henni. Margir
nota hana til dæmis á hverjum degi til þess að
keyra sig í gang, róa sig niður og allt þar á
milli.“
Aðspurður segir Óskar að langsótt kenning
blaðamanns sé röng, að nafnið sé vísun í nafn
upptökumannins góðkunna Adda 800.
Hvað tónlistina sjálfa varðar segir Óskar
hana koma víða að.
„Við erum þrír sem semjum, ég, Ómar og
Davíð, og ætli tónlistin sé ekki eins fjölbreytt
og við. Þannig að fólk fær sitt lítið af hverju.
Þetta er músík sem inniheldur spuna en við
höfum auðvitað fengið eitthvað að láni héðan
og þaðan, meðal annars úr poppi, rokki, fönki,
frídjassi og fleiru. Þarna er sem sagt eitt og
annað sem er afgreitt ofan í eitt pilluglas,“
segir hann og bætir því við að töluverðar lík-
ur séu á plötu frá sveitinni áður en langt um
líður. „Við erum komnir með nóg efni á plötu,
en ég myndi reyndar vilja hafa tvöfalt eða
þrefalt í viðbót áður en við ráðumst í það
verkefni.“
Tónlist og peningar
Tónleikarnir í Fríkirkjunni í kvöld hefjast
kl. 22 og miðaverð er 1.500 krónur, en 750
fyrir námsmenn. Nokkur umræðu hefur skap-
ast um það undanfarið hvort ókeypis eigi að
vera á tónleika, og sem dæmi má nefna reglur
sem settar hafa verið í Kaffi Hljómalind þar
sem aðeins má rukka aðganseyri í sérstökum
undantekningartilfellum.
„Stundum spilar maður frítt og stundum
ekki. Það má alveg ala fólk upp í því að tónlist
er ekki alltaf ókeypis. Það kostar þúsundkall í
bíó, þrjú þúsund að fá sér pizzu, en svo á að
vera frítt á alla tónleika!“ segir Óskar ákveð-
inn. „Ég vil frekar fá færri á tónleika, og þá
fólk sem að borga sig inn og vill hlusta. Þá er
það líka tilbúið til að hlusta á meðan maður er
að spila,“segir Óskar og bætir því við að menn
verði seint ríkir af tónleikahaldi sem þessu.
„Ég held til dæmis að Björk væri ekki á
þeim stað sem hún er nema af því að hún get-
ur leyft sér að gera það sem hún vill. Hún get-
ur leyft sér að safna saman áhugaverðustu
tónlistarmönnum heims, haft þá í hljóðveri í
mánuð og leikið sér. Þannig að peningar geta
leitt margt gott af sér og maður má ekkert
vera hræddur við þá - þeir eru ekkert slæm-
ir.“
Rítalín-rokk og ról
Súpergrúppan ADHD 800 heldur sína fyrstu tónleika í Fríkirkjunni í kvöld
ADHD 800 Ómar, Magnús, Óskar og Davíð. Óskar segir mikla virkni í sveitinni, og hún þurfi því útrás.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Leikritið Li-
lya í leikstjórn
Jóns Gunnars
Þórðarsonar
var frumsýnt
nú á þriðjudag-
inn í Contact-
leikhús- inu í
Manchester á Englandi. Verkið
er byggt á kvikmynd Lukasar
Moodysson Lilya 4 Ever en sú
mynd fjallar um unga rússneska
stúlku sem er nörruð til Svíþjóð-
ar þar sem hún er neydd til að
stunda vændi. Contact-leikhúsið í
Manchester er rekið af háskól-
anum þar í bæ en áhersla er lögð
á leiksýningar fyrir ungt fólk.
Sex enskir leikarar fara með
hlutverk í sýningunni en tónlistin
mun vera eftir KK.
Jón Gunnar Þórðarson hefur á
undanförnum árum verið að
sækja í sig veðrið sem leikstjóri
og starfrækir leikfélagið Silf-
urtunglið sem sett hefur upp sýn-
ingar hér á landi með reglulegu
millibili, nú síðast Fool for Love.
Jón Gunnar var aðstoðarleikstjóri
fyrir uppsetningu Vesturports á
Kommúnunni. Hann er bróðir
Magnúsar Geirs Þórðarsonar, ný-
ráðins borgarleikhússtjóra.
Jón Gunnar Þórðarson
leikstýrir í Manchester