Morgunblaðið - 23.04.2008, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
!
" # !
% &
%
"'
(
!
)
(
&
*
"
+
$
,
$
**
$"
#,
! $
%
"-
. ,
)
,/0.1+230,+4)25 678 9:;; ,
/0.<+230,=>?;+@/3A2="2+
B
CD=E,.F0
?G
??
?6
- kemur þér við
Sérblað um ferðalög
fylgir blaðinu í dag
Vilja lög um
frístundaheimilin
Mistök við
þjóðlendukröfur
Afi og amma í
golfi allt árið
Afganistan sem
ferðamannaland
Huggy dæmir í
breska Top Model
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
„ÞAÐ hefur hreinlega verið mok-
fiskirí hér í vetur – beggja vegna
Snæfellsnessins og reyndar um all-
an sjó. Menn eru alls staðar að fá
þorsk þótt þeir séu að reyna að forð-
ast hann,“ segir aflakóngurinn Pét-
ur Pétursson á Bárði SH.
Þeir félagar voru þá að draga
fyrstu lögn eftir hrygningarstoppið.
„Aflabrögðin eru sæmileg miðað við
að maður leggur svolítið blint í þetta
eftir stopp. Ætli við séum ekki með
um fimm tonn. Bátarnir hérna á
Breiðafirðinum eru með alveg upp í
ágætis veiði í dag. Þeir hafa líka
verið að fiska vel í dragnótina
hérna.
Ég færði sumt af netunum aðeins
til, en hélt öðrum á sama stað. Nú er
stærsti straumur, sem gerir mönn-
um nokkuð erfitt fyrir. Fiskurinn er
frekar blandaður. Hann verður
bandaðri á þessum tíma eftir hrygn-
inguna.“
Getum veitt 200 tonn
í viðbót
Veiðin er búin að vera ágæt í vet-
ur. Frá áramótum til 1. apríl er afl-
inn orðinn 515 tonn. Hvert er afla-
verðmætið orðið?
„Það vantar ekki, þetta hefur ver-
ið mokveiði. Ég hef ekki lagt afla-
verðmætið saman, en það er orðið
ágætt. Við seljum fiskinn ýmist í
föstum viðskiptum eða á markaði.
Verðið hefur verið þokkalegt og það
er ágætis þénusta af þessu. Reynd-
ar lækkaði verðið á mörkuðunum
aðeins þegar veiðin var sem mest.
Menn höfðu varla undan að vinna
fiskinn. Það voru öll hús í landi full.“
Hafið þið nógan kvóta?
„Kvótastaðan er svona þokkaleg.
Við getum líklega veitt svona 200
tonn af þorski í viðbót. Við erum
með ágætan kvóta, en höfum engu
að síður þurft að leigja mikið til okk-
ar. Ég reikna með að við verðum á
þorskanetum framundir sjó-
mannadag. Svo er það spurningin
hvað tekur við, hvort við stoppum
eitthvað eða förum eitthvað á skötu-
sel. Ég reikna frekar með því að við
stoppum eitthvað. Það hefur verið
sótt stíft í vetur og veður oft leið-
inlegt.“
Njörvaðir niður
vegna kvótaskorts
Hvað veldur þessari miklu veiði?
Er meira af fiski á ferðinni nú en áð-
ur?
„Ég held að það sé miklu meira af
fiski á ferðinni en þeir hjá Hafró
halda fram. Ég get ekki betur séð.
Það mikið af stórum fiski, en líka
blandaður fiskur og smærri fiskur,
sem bendir til eðlilegrar nýliðunar.
Maður heyrir að það sé víða mikið
af fiski, en það eru bara svo fáir sem
beita sér eingöngu á þorsk. Öll línu-
skipin eru að eltast við ýsu. Eins og
gert er út núna er ekkert að marka
viðmiðanir eins og afla á sóknarein-
ingu. Stóru netabátarnir eru varla
nema á hálfum afköstum og reyna
fyrir sér með kolanet og ufsanet til
að forðast þorskinn. Þeir gætu ann-
ars verið að mokveiða þorsk. Stóru
netabátarnir væru ábyggilega með
1.000 til 1.500 tonna vertíð ef þeir
gætu beitt sér almennilega, sótt af
fullum þunga. Menn eru alveg
njörvaðir niður vegna kvótaskorts.
Fyrir vikið gefur sóknin ekki rétta
mynd af ástandinu á þorskstofn-
inum. Menn eru svo uppteknir af því
að ná öðrum tegundum.
Vonandi verður þorskkvótinn
aukinn. Það virðist allavega vera
nóg af nýjum árgöngum að koma
inn. Mikið af smáfiski á ferðinni og
mikið um skyndilokanir af þeim sök-
um í vetur,“ segir Pétur Pétursson.
Það er ágætis
þénusta af þessu
Morgunblaðið/Alfons
Aflaklær Áhöfnin á Bárði, Magnús Gunnlaugsson, Ingi Pálsson og Pétur Pétursson skipstjóri. Reyndar hefur
Pétur, sonur Péturs skipstjóra, verið um borð í vetur en var ekki þegar myndin var tekin.
Netabáturinn
Bárður SH frá
Arnarstapa held-
ur áfram að moka
þeim gula upp
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Arnarstapi Fiskurinn er vænn hjá þeim félögum. Hér landar Pétur yngri.
Í HNOTSKURN
»Sóknin gefur ekki réttamynd af ástandinu á þorsk-
stofninum. Menn eru svo upp-
teknir af því að ná öðrum teg-
undum og forðast þorskinn.
»Stóru netabátarnir væruábyggilega með 1.000 til
1.500 tonna vertíð ef þeir gætu
beitt sér almennilega, sótt af full-
um þunga. Menn eru alveg njörv-
aðir niður vegna kvótaskorts.
»Ég held að það sé miklumeira af fiski á ferðinni en
þeir hjá Hafró halda fram. Ég
get ekki betur séð. Það mikið af
stórum fiski, en líka blandaður
fiskur og smærri fiskur, sem
bendir til eðlilegrar nýliðunar.