Morgunblaðið - 23.04.2008, Side 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 19
verk Ólafs eru.
„Hvert verkefni er
áhætta af því að það
sem gildir er ekki
hægt að prófa fyrir
fram. Það er hægt að
fara í gegnum allt í
tölvunni, en í raun-
veruleikanum er allt
alltaf öðruvísi og það
er heldur ekki hægt
að segja fyrir um það
hvernig áhorfendur
munu bregðast við,“
segir hann. „Ég er
sem sagt maður sem
jafnvel ofursel mig til-
viljuninni. Það átti
sérstaklega við um
„Veðurverkefnið“ í Tate Modern-
safninu, meðal annars vegna þess
að það var svo stórt.“
x x x
Sólin í Tate-safninu dró að mik-inn mannfjölda og oft lá fólk
tímunum saman á gólfinu og
drakk í sig andrúmsloftið í saln-
um. Ólafur segir að þessi viðbrögð
hafi komið sér verulega á óvart.
Þegar hann er spurður hvar sólin
sé nú niðurkomin segist hann
geyma hana í kjallaranum hjá sér
og í raun geti hver sem er keypt
hana, en ekki megi gleyma því að
hvert verk skiptir um karakter um
leið og það er sett upp á nýjum
stað.
Ólafur segir að það sé misskiln-
ingur að list sé algjörlega sjálf-
stæð og hægt sé að skynja hana
óháð stað og menningu. Umhverfi
bíls skipti meira að segja máli,
hvað þá listaverka.
x x x
Væri Mona Lísa þá önnur héngihún annars staðar en í Lo-
uvre,“ er hann þá spurður. „Já,
merking Monu Lísu nær langt út
fyrir það að einhver hafi sett liti á
striga, hún markast líka af grein-
ingu á myndinni sem staðið hefur
yfir svo öldum skiptir. Mona Lísa
á sér sína sögu, Louvre á sér einn-
ig sögu. Það hvernig við skynjum
eitthvað veltur á mörgu.“
ListamaðurinnÓlafur Elíasson
kemur víða við um
þessar mundir og
ætti því ekki að koma
á óvart að nú skuli
hann skjóta upp koll-
inum hjá Víkverja.
x x x
Eins og sagt hefurverið frá í Morg-
unblaðinu birtist
rækilegt viðtal við
Ólaf í nýjasta tölu-
blaði vikuritsins Der
Spiegel. Þar er meðal
annars rætt um það
hversu staðbundin
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Sigrún Haraldsdóttir vaknareldsnemma á hverjum morgni
til að hlusta á fuglasönginn. Svo
gengur hún um móann í
Norðlingaholtinu, tínir rusl og
semur vorvísu, enda tilefni til:
Í móanum úti er kallað og kyrjað og
kveðið með þrumandi gný.
Nú lyfti ég brúnum því lífið er byrjað
og lóan er komin á ný.
Hallmundur Kristinsson greip
þetta á lofti:
Er kalið blóm með kærleiksvott
kemur undan snjónum
margt hún Sigrún getur gott
gert þarna útí mónum.
Sigmundi Benediktssyni þótti
gaman að heyra lífið og fegurðina
hrífa fólk upp úr
hversdagsleikanum:
Leysir snjóa, grösin gróa,
geislar þróa lífsins mál.
Kvað í móa listfeng lóa
lögin frjó af ást í sál.
Kristján Gaukur Kristjánsson
yrkir úr útlegð og þar er ekki vor:
Hausta tekur, laufin safna litum,
leggur kul frá suðurskautinu.
Í Tasmaníu áður en við vitum
af sér varpa lauftré skrautinu.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af lóum
og vori
NÝ bók um lýtaaðgerðir ætluð börn-
um er á leið á bandarískan markað.
Bókin, sem nefnist My Beautiful
Mom, á að útskýra „hvað kom fyrir
mömmu“ að því er fram kemur á
fréttavef Berlingske tidende.
Höfundurinn, bandaríski lýtalækn-
irinn Michael Salzhauser, segir oft
erfitt fyrir börn að takast á við breyt-
ingarnar eftir að mamma hefur feng-
ið nýtt nef eða ný brjóst. Í bókinni er
sögð myndasaga af mömmu, sem þarf
að útskýra fyrir dóttur sinni að hún
ætli að láta breyta á sér nefinu og
strekkja á maganum. Í lok bók-
arinnar má einnig sjá að mamman
hefur fengið stærri brjóst, án þess að
það sé útskýrt í textanum en Salzhau-
ser vill að foreldrar ráði hvort þeir út-
skýri það fyrir börnunum. Hann telur
að bókin geti hjálpað móðurinni, þeg-
ar hún er að ná sér eftir aðgerðina,
því það komi illa við mörg börn þegar
mamma getur ekki leikið við þau.
„Þau vita að eitthvað er í gangi og sjá
umbúðirnar og fara því að velta því
fyrir sér hvað sé eiginlega að
mömmu,“ segir hann.
Þrátt fyrir að aðrir lýtalæknar
styðji Salzhauser í bókaskrifunum fer
því fjarri að allir séu jafn hrifnir. Sál-
fræðingar segja hana t.a.m. geta
stuðlað að því að börn verði of upp-
tekin af eigin útliti. Í bókinni er kafli
þar sem dóttirin spyr mömmuna
hvers vegna hún ætli að fara í aðgerð.
„Þú ert fallegasta mamman í heim-
inum,“ segir hún. Mamman útskýrir
þá að hún passi ekki lengur í fötin sín
því hún hafi tapað línunum, sennilega
þegar hún var ólétt.
Öruggur markaður er talinn vera
fyrir bókina í Bandaríkjunum en á
síðasta ári fengu 348 þúsund þarlend-
ar konur sér stærri brjóst og 148 þús-
und fóru í fitusog á maganum.
Fallega sílí-
konmamma
Brjóstastækkun Ætli slík bók
hefði verið góð lesning fyrir börn
Pamelu Anderson?
G L E Ð I L E G T
S U M A R
Í BORGARTÚNI 26
Við fögnum sumri í nýjum húsakynnum
okkar að Borgartúni 26 og hlökkum
til vinnu okkar þar með
viðskiptavinum og samstarfsfólki.
LEX • Borgartúni 26 • 105 Reykjavík • Sími 590 2600
B r é f a s í m i 5 9 0 2 6 0 6 • l e x @ l e x . i s • w w w . l e x . i s
L
E
X
Jónas A. Aðalsteinsson hrl
Þórunn Guðmundsdóttir hrl
Erla S. Árnadóttir hrl
Helgi Jóhannesson hrl
Karl Axelsson hrl
Ólafur Haraldsson hrl
Lilja Jónasdóttir hrl
Kristín Edwald hrl
Ragnheiður M. Ólafsdóttir hrl
Heimir Örn Herbertsson hrl
Eiríkur Elís Þorláksson hdl
Garðar G. Gíslason hdl
Eva Margrét Ævarsdóttir hdl
Arnar Þór Stefánsson hdl
Dýrleif Kristjánsdóttir hdl
Katrín Jónasdóttir framkv.stj