Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÓLAFUR Þ. Stephensen, ritstjóri 24 stunda, hefur verið ráðinn rit- stjóri Morgunblaðsins og aðalrit- stjóri Árvakurs hf. frá og með 2. júní nk. Auk Morgunblaðsins gefur Árvakur út 24 stundir og mbl.is. Sama dag lætur Styrmir Gunnars- son af starfi ritstjóra Morgunblaðs- ins fyrir aldurs sakir. Styrmir Gunnarsson hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá 1972, en hann kom fyrst til starfa á Morgun- blaðinu sem blaðamaður 2. júní 1965. Gunnhildur Arna Gunnars- dóttir hefur verið ráðin ritstjóri 24 stunda frá 2. júní, en hún hefur ver- ið fréttastjóri blaðsins frá haustinu 2006. Ætlar að skerpa á sérstöðu Morgunblaðsins „Morgunblaðið, 24 stundir og mbl.is eru með umfangsmestu upp- lýsingamiðlum á landinu og ná í hverri viku til nær allrar þjóðarinn- ar. Hér starfa á annað hundrað blaðamenn og ljósmyndarar fyrir þrjá fjölmiðla. Markmið okkar með því að skipa einn aðalritstjóra út- gáfunnar er að nýta þessa þekkingu betur í gegnum alla miðla félagsins og bæta þannig enn þjónustu við lesendur og netnotendur,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri Árvak- urs. „Félagið hefur einsett sér að byggja á traustum grunni fjölþætt- ari og enn sterkari miðlun frétta, upplýsinga og afþreyingar. Nýir ritstjórar, sem nú koma til leiks, munu leiða þá vinnu,“ segir Einar. „Það er markmið okkar að í miðl- um Árvakurs fái lesendur áreiðan- legri og dýpri umfjöllun en völ er á annars staðar í íslenskum fjölmiðl- um og jafnframt skemmtilega skrif- að efni og fjölbreyttar skoðanir,“ segir Ólafur Þ. Stephensen, rit- stjóri. „Breytingar munu eiga sér stað í skrefum á næstu mánuðum. Við ætlum að skerpa á sérstöðu Morgunblaðsins sem virtasta dag- blaðs á Íslandi og langöflugasta áskriftarblaðsins. Við munum auka samstarf Morgunblaðsins og 24 stunda við mbl.is og jafnframt auka samstarf á milli blaðanna í t.d. íþróttafréttum og viðskiptafréttum. Hins vegar verður líka áfram heil- brigð samkeppni á milli blaðanna um fréttir, sem kemur lesendum til góða,“ segir Ólafur. Tveir nýir stjórnarmenn „Ég hlakka til að taka við rit- stjórastarfi á 24 stundum. Við ein- setjum okkur að skrifa á hverjum degi skemmtilegt og spennandi blað, besta fríblaðið á markaðnum“, segir Gunnhildur Arna Gunnars- dóttir, nýráðinn ritstjóri 24 stunda. Aðalfundur Árvakurs verður haldinn 28. apríl næstkomandi. Fyrir liggur að nokkrar breytingar verða á stjórn. Meðal annars verð- ur þar lagt til að Þór Sigfússon, sem kemur nýr inn í stjórnina, verði stjórnarformaður Árvakurs og Stefán P. Eggertsson verði varaformaður. Aðrir í aðalstjórn verði Kristinn Björnsson, Skúli Val- berg Ólafsson og Ásdís Halla Bragadóttir, sem einnig kemur ný inn í stjórn,“ segir í fréttatilkynn- ingu frá Árvakri. Ólafur Þ. Stephensen ráðinn nýr ritstjóri Morgunblaðsins Morgunblaðið/Frikki Árvakur Styrmir Gunnarsson, Einar Sigurðsson, Ólafur Þ. Stephensen og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir eftir að tilkynnt var um breytta tilhögun. SKRAUTLEGAR fígúrur bar fyrir augu borgarbúa í gær þegar út- skriftarnemar framhaldsskólanna dimitteruðu. Með því móti gera nemarnir sér glaðan dag áður en annríki próflesturs tekur við næstu daga og vikur. Venjan er sú að hver bekkur klæðir sig í eins búninga. Í mörgum tilvikum getur það reynst snúið að velja hinn fullkomna búning, en öðr- um reynist það hins vegar létt verk að velja. Athygli vekur að margir hópar kjósa að klæðast stórum og efnismiklum búningum. Sennilega er það gáfulegt val á þessum tíma árs þegar allra veðra er von þrátt fyrir að svo eigi að heita að veturinn sé nú að baki. Þannig hefur væntanlega ekki væst um þessar glaðbeittu mörgæsir á ferð sinni um bæinn í gær í vel bólstruðum búningunum. Vonandi hafa nemendurnir jafn- góða ástæðu til að kætast að aflokn- um prófum nú á vormánuðum. Morgunblaðið/hag Það er mikið fjör að vera mörgæs Útskriftarnemar framhaldsskólanna dimitteruðu í borginni HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl- mann á fimmtugsaldri til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir kynferðis- brot gegn sex stúlkum – þar af þrem- ur frænkum sínum. Stúlkurnar voru á aldrinum 4-13 ára þegar brotin voru framin. Var honum jafnframt gert að greiða fórnarlömbum sínum miskabætur, samtals 3,5 milljónir króna. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í 2 1/2 árs fangelsi. Við ákvörðun refsingarinnar leit Hæstiréttur til þess að maðurinn er sekur um mörg brot gegn börnum og unglingum, og voru sum þeirra mjög alvarleg. Brot hans tóku yfir langt tímabil og í mörgum tilvikum nýtti hann sér trúnað og traust stúlkn- anna. Greiddi fé fyrir greiða Málið var höfðað með tveimur ákærum. Annars vegar fyrir brot gegn fjórum ungum stúlkum, fædd- um 1992, á árunum 2004 til 2006, og hins vegar vegna brota sem framin voru á árunum 1988 til 1994 gegn tveimur stúlkum fæddum 1984 og 1987. Greiddi hann sumum þeirra pening fyrir kynferðislega greiða. Maðurinn neitaði að mestu sök en við rannsókn málsins var m.a. hler- aður sími hans, og kom í ljós að hann átti í símasamskiptum við stúlkurnar fjórar sem um getur í fyrri ákæru. Hann var sakfelldur fyrir misjafn- lega gróf kynferðisbrot, sum þeirra trúnaðarbrot sem beindust að stúlk- um sem honum var beint og óbeint treyst fyrir. Sumar stúlknanna hefðu og verið á viðkvæmu þroskastigi þegar brotin áttu sér stað. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manninum kemur fram að brotin hafi haft mikil áhrif á stúlkurnar, m.a. á félagslega aðlögun sumra. Maðurinn sem fæddur er í ágúst 1966 hefur ekki áður sætt refsingu. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir og Mark- ús Sigurbjörnsson. Sigríður Elsa Kjartansdóttir sak- sóknari hjá ríkissaksóknara flutti málið af hálfu ákæruvaldsins og Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði manninn fyrir Hæstarétti. Dómur þyngdur yfir kynferðis- brotamanni Braut gegn sex barnungum stúlkum ÍSLENSK-ameríska fyrirtækið Carbon Recycling International, CRI, hefur samið við verkfræðistof- una Mannvit um að hanna og reisa verksmiðju á Reykjanesi, sem mun framleiða metanól úr koltvísýrings- útblæstri frá jarðvarmavirkjun, til blöndunar við bensín í bíla og önnur farartæki. Samkvæmt upplýsingum frá CRI er fjármögnun verksmiðjunnar á lokastigi, en lánveitendur verða bæði bandarískir og íslenskir bankar. Kostnaður við fyrsta áfanga er áætl- aður um einn milljarður króna en áform eru um að tuttugufalda af- kastagetu verksmiðjunnar. Viðræð- ur eru einnig á lokastigi við Hita- veitu Suðurnesja um orkuöflun og staðsetningu. | Viðskipti Mannvit hannar metanólverksmiðju ALLSHERJARNEFND Alþingis mun halda sérstakan fund til að afla upplýsinga um hvað raunverulega gerðist á Suður- landsvegi við Rauðavatn í gær- dag, þegar til átaka kom milli lögreglu og mót- mælenda. Þing- menn stjórnar- andstöðunnar fóru fram á fundinn. Birgir Ármannsson, formaður Allsherjarnefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að fundurinn yrði haldinn eins fljótt og auðið væri. Hann reiknar með að kallaðir verði til lögreglustjóri höf- uðborgarsvæðisins og talsmaður bíl- stjóra. „En það er mikilvægt að hafa í huga að allsherjarnefnd hefur ekk- ert rannsóknarvald í málum af þessu tagi, hvorki rannsóknar- né úrskurð- arvald. Okkar hlutverk er fyrst og fremst að fjalla um lög og reglur sem gilda á þessu sviði en ekki að setjast í dómarasæti um einstök atvik.“ „Setjast ekki í dóm- arasæti“ Birgir Ármannsson Allsherjarnefnd fund- ar um átökin í gær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.