Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 23
Gylfi Þórhallsson varð skákmeistari
Akureyrar. Hann og Sigurður Ei-
ríksson urðu efstir á Skákþingi Ak-
ureyrar, en Gylfi hafði betur í einvígi
þeirra sem lauk í vikunni.
Opið hús verður haldið í Háskólan-
um á Akureyri í dag kl. 13-15. Þar
gefst fólki tækifæri til að kynna sér
nám við háskólann og spjalla við
nemendur og kennara. Börn fá sum-
argjöf og ís, auk þess sem nemendur
í leikskólakennarafræði lesa valda
kafla úr uppáhaldsævintýrum sín-
um. Boðið verður upp á kaffi og
hjúkrunarfræðinemar mæla blóð-
þrýsting í þeim sem vilja.
Tveir nemendur í raunvísindanámi
við Háskólann á Akureyri fengu í
vikunni styrk frá fyrirtækinu Hug-
viti. Ástríður Ólafsdóttir, nemandi í
líftækni, og Eyrún Elva Marinós-
dóttir, nemandi í sjávarútvegsfræði,
fengu 500.000 krónur hvor.
Við úthlutun var litið til árangurs
þeirra Ástríðar og Eyrúnar Elvu í
raungreinum í framhaldsskóla sem
og árangurs á fyrsta misseri við við-
skipta- og raunvísindadeild Háskól-
ans á Akureyri.
Friðriksstofa heitir salur sem nýver-
ið var tekinn í notkun í Hamri, fé-
lagsheimili íþróttafélagsins Þórs.
Stofan er nefnd eftir fyrsta formanni
félagsins, Friðriki Einarssyni, sem
lést langt um aldur fram, tæplega 18
ára. Í Friðriksstofu verður starf-
ræktur klúbbur, þar sem er gufubað
og nuddpottur, húsgögn og stór
flatskjár og heimabíó þannig að
menn geta t.d. horft á íþróttaleiki. Á
veggjunum eru svo ýmsar myndir úr
sögu félagsins.
Fræðslusetur Þórs var einnig tekið í
notkun; þar er líka stór flatskjár og
heimabíó og þar er fulltrúum í deild
félagsins boðin aðstaða til þess að
horfa á hvers kyns fræðsluefni í eigu
félagsins.
Ragnar Sverrisson, kaupmaður í
JMJ, afhenti Þór að gjöf, sama kvöld
og Friðriksstofa og Fræðslusetrið
voru opnuð, fullkomið hjartastuð-
tæki. „Ég vona að aldrei þurfi að
nota tækið, en það er nauðsynlegt að
eiga það,“ sagði Ragnar við þetta
tækifæri.
Tveir félagar í verkalýðsfélaginu
Einingu-Iðju voru sæmdir gullmerki
félagsins á aðalfundi þess í fyrra-
kvöld. Það voru Anna Marín Leós-
dóttir, sem lengi var trúnaðarmaður
hjá Frystihúsi Dalvíkur, síðan Sam-
herja, og Egill Ragnarsson, sem líka
var lengi trúnaðarmaður á sínum
vinnustað.
Fram kom á aðalfundinum að á
síðastliðnum 12 mánuðum var hringt
20.502 sinnum á skrifstofu Einingar-
Iðju; 83 sinnum á dag að meðaltali. Á
heimasíðu félagsins kemur fram að
aðallega sé um að ræða fyrirspurnir
um kaup og kjör. Fólk sé greinilega
áhugasamara en áður um rétt sinn,
einkum yngra fólk. Björn Snæ-
björnsson formaður telur það afleið-
ingu fræðslustarfs sem félagið hefur
beitt sér fyrir í 10. bekkjum grunn-
skólanna á Eyjafjarðarsvæðinu og í
Verkmenntaskólanum á Akureyri,
en á hverju ári hitta starfsmenn fé-
lagsins um 1.000 ungmenni á þess-
um kynningum.
Komdu að leika kallast barna-
skemmtun sem verður á Minjasafn-
inu á Akureyri í dag kl. 14-16. Þar
verður fjölskyldustemning; börnin
fá að fara á hestbak og í ýmsa leiki
og boðið verður upp á kakó, kaffi og
lummur.
Styrkir Eggert Claessen, stjórnarformaður Hugvits, styrkþegarnir Ástríð-
ur Ólafsdóttir og Eyrún Elva Marinósdóttir, Þorsteinn Gunnarsson rektor
og Ingi Rúnar Eðvarðsson, deildarforseti viðskipta- og raunvísindadeildar.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Friðrik Steingrímsson er í
sumarskapi í Mývatnssveit:
Fuglar syngja af sannri list
sólin ísa bræðir;
vetur hefur völdin misst
vorið andann glæðir.
Margrét Jónsdóttir, skáldkona í
Reykjavík, orti að sumri:
Brosa fjöllin bláum kjól.
Blikar særinn fagur.
Gefðu öllum ást og sól
ungi sumardagur.
Í Skruddu segir frá því að
Eyjólfur í Króki í garði gekk upp
stiga til baðstofu, leit í kringum sig
og lýsti því sem fyrir augu bar:
Bæði góla börnin hér,
blessuð sólin vermir gler.
Í rokknum hjólið ónýtt er,
upp í stólinn Gulur fer.
Safnahús Skagfirðinga á
Sauðárkróki stendur jafnan fyrir
vísnakeppni í Sæluvikunni.
Keppnin er tvíþætt. Hagyrðingar
eru beðnir um að botna fyrriparta,
einn eða fleiri. Einnig gefst þeim
kostur á að yrkja vísu, sem að þessu
sinni á að vera um „raunir
fjármagnseigenda“. Fyrripartarnir
eru svohljóðandi:
Blessuð sólin bærir æ
bros í sálu minni
Annar:
Kristján Möller grefur göng
gjarnan verkahraður
Þriðji:
Fellur gengi, falla bréf
Fallast drengjum hendur.
Vísurnar þurfa að berast til
Safnahússins í síðasta lagi á
morgun, föstudaginn 25. apríl. Þær
þurfa að vera merktar dulnefni og
rétt nafn ásamt símanúmeri að
fylgja í lokuðu umslagi. Úrslit
verða kynnt við setningu sæluviku í
Safnahúsinu 27. apríl kl. 14.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af sumri og vísnakeppni
LÍKUR sækir líkan heim segir mál-
tækið og á sér greinilega einhverja
stoð í veruleikanum. Nýleg rann-
sókn sem danska vefritið Ugebrev-
et A4 lét gera sýnir að Danir í
ástarhugleiðingum vilja í síauknum
mæli maka sem er með svipaða
menntun og þeir sjálfir. Þannig
dregst hárgreiðslukonan að raf-
virkjanum en líkurnar á að sá sem
er með meistarapróf frá háskóla
felli hug til rafvirkjans eru hverf-
andi. Að sama skapi er það líklegt
að ófaglærðir eigi ófaglærðan
maka.
Konur „vandlátari“
1.504 Danir í ástarsambandi tóku
þátt í rannsókninni og þar kom m.a.
í ljós að 2⁄3 framhaldsmenntaðra ein-
staklinga áttu maka með svipaða
menntun en einungis 1⁄7 hluti þeirra
átti maka með minni menntun. Kon-
ur eru „vandlátari“ en karlar, 40%
háskólamenntaðra kvenna eiga erf-
itt með að sjá sig með mönnum sem
eru með styttri skólagöngu heldur
en þær sjálfar en 30% háskóla-
menntaðra karla og 11% allra karl-
manna eru þeirrar skoðunar.
Þessi þróun í átt til einsleitra fjöl-
skyldna er sögð hafa slæmar afleið-
ingar í för með sér. Mikil gjá mynd-
ist á milli barna sem alast upp hjá
ólíkum þjóðfélagsstéttum og þróun-
in leiði til meiri ójöfnuðar.
Danskur cand. mag.
elskar ekki rafvirkja
Reuters
Gamalt leikarapar Líkur sækir lík-
an heim, það er alkunna. Færri vita
að þessi tilhneiging mannanna ýtir
undir stéttaskiptingu.
látið sem vind um eyru
þjóta öll þessi vitleys-
islegu ummæli í ykkar
garð sem furðuoft eru
látin falla í opinberri
umræðu.
Ef Víkverji væri fé-
lagsmálaráðherra
myndi verða hans
fyrsta verk að setja lög
um fegurðarsam-
keppnir þar sem skipu-
leggjendum væri skylt
að kaupa tvo fyrirlestra
af sérfræðingum í
kynjafræðum og fem-
ínistum þar sem fjallað
yrði á gagnrýninn hátt
um alla þessa hluti.
Víkverja finnst það bara óþolandi
subbuskapur að teyma bikiníbörn í
brúnkukremi upp á svið til að aug-
lýsa einhver fyrirtæki og draslið sem
þau selja – og láta krakkana halda að
þetta snúist allt um keppni í fegurð.
En það snýst ekki um neina keppni.
Bara auglýsingar og fé.
x x x
Sumardagurinn fyrsti er í dag.Víkverji vill af því tilefni óska
landsmönnum gleðilegs sumars.
Reyndar kom fyrsti sumardagur fyr-
ir viku en hver kvartar svosem yfir
því? Og nú er ekki fyrr komið sumar
en spáð er kuldakasti á mánudaginn.
Jæja. Það haustar snemma í ár.
Víkverji sá mynd-brot á mbl.is sjón-
varpi um daginn þar
sem fjallað var um
Ungfrú Norðurland og
æfingar þar að lútandi.
Þarna voru keppendur
að hlýða þjálfurum sín-
um, nokkuð sem er al-
veg dæmigert fyrir
svona keppni; að hlýða.
Standa og sitja að fyr-
irmælum yfirboðara.
Og þær tóku líka við
skipunum um að koma
fram ein og ein og gera
hvað? Nú auðvitað að-
skilja fætur sína á
áberandi hátt, vænt-
anlega til að svara síharðnandi kröf-
um um hlutgervingu kvenna í feðra-
veldinu sem öllu virðist tröllríða um
þessar mundir. Hver er eiginlega
alltaf að biðja um að konur og stúlk-
ur líti á það sem eðlilegan hlut að
eyða tíma í svona vitleysu? Ein-
hverjir biðja um það. Eru það ung-
karlar sem lepja gagnrýnislaust upp
útpældar markaðsherferðir stórfyr-
irtækja sem snúast um að hlutgera
konur? Eru það eldri menn? Eru það
konur?
x x x
Við femínista vill Víkverji segjaþetta: haldið áfram að berjast
gegn feðraveldi og klámvæðingu og
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Rýmingarsala!
Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús)
Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is
Gleðilegt sumar
OPIÐ Í DAG FRÁ KL 12.00
Rýmingarsalan enn í fullum gangi.
25-40% afsláttur af öllum vörum.
Verslunin flytur í nýtt og glæsilegra
húsnæði innan skamms.