Morgunblaðið - 24.04.2008, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Áralagið gefur nú ekki til kynna að draumasiglingin sé alveg á næsta leiti.
VEÐUR
Kjartan Magnússon, stjórnar-formaður Orkuveitu Reykjavík-
ur (OR) og Reykjavík Energy Invest
(REI), á í vök að verjast þessa daga
og það ekki að ósekju. Hefur hann
ekki kallað þetta yfir sig sjálfur?
Kjartan segirhér í Morg-
unblaðinu í gær
að hann telji sjálf-
sagt að halda sér-
stakan eigenda-
fund um tillögu
stjórnar OR þess
efnis að gerð
verði úttekt á
verkefnum REI
og verðmat með
það fyrir augum að hugað verði að
sölu verkefna sem ekki falla undir
ráðgjöf og þróun.
Vill Kjartan Magnússon áframvera í áhættufjárfestingum í
fjarlægum heimshlutum, þar sem
fjármunum borgarbúa, eigenda OR
og REI er hætt?
Hvers vegna svarar formaður REIekki spurningunni hversu stór
hluti verkefna REI sé einvörðungu
fjárfestingarverkefni?
Kjartan var spurður þessararspurningar hér í Morgun-
blaðinu í gær og svaraði með þeim
orðum að verið væri að fara yfir
verkefni fyrirtækisins og meta þau
sem er vitanlega ekkert svar.
Kjartan segir einnig: „Núverandimeirihluti borgarstjórnar hefur
ekki í hyggju að taka tugi milljarða
króna úr vösum Reykvíkinga … og
verja þeim til áhættufjárfestinga á
viðsjárverðum mörkuðum.“
Var einhver að tala um tugi millj-arða króna? Hversu miklu af
fjármunum Reykvíkinga er óhætt,
að mati stjórnarformanns REI, að
binda í áhættufjárfestingum úti í
heimi?
STAKSTEINAR
Kjartan
Magnússon
Óskiljanlegur hringlandaháttur
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
"
" " " "
"
" "
"
"
*$BC ####
!"
"#
$" !
& # ' ( *!
$$B *!
$%
&#'
#% #'
(
)' *)
<2
<! <2
<! <2
$('&
#+
! ,#-.)/
CD
$
*
E B
"2
)%$
*
/
%)"#
# $ +,
<7
*
%-
!"
'
0 ##)11 )'##2 ) .)#+
!
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Stefán Friðrik Stefánsson | 23. apríl
Mótmælin komin út
í algjöra vitleysu
Get ekki betur séð en
að mótmæli bílstjór-
anna séu komin út í
tóma vitleysu, stjórn-
laust rugl. Hafi snúist
upp í hálfgerð skrílslæti
nú eftir hádegið þar
sem framhaldsskólanemendur leika
lykilhlutverk við að kasta eggjum í lög-
reglumenn, koma í búningum til að
vekja á sér athygli. Svolítið sérstakt
að sjá þetta í netútsendingu rúv.is.
Held að þetta styrki ekki …
Meira: stebbifr.blog.is
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 23. apríl
Palestína og
matvælaaðstoð
Ákvörðun utanríkis-
ráðherra um að skipa
sendifulltrúa í málefnum
Palestínu er mjög góð og
ekki síst vegna þess
hræðilega ástands sem
hefur ríkt í Palestínu síð-
ustu vikur og mánuði. Hversu lítill sem
styrkur Íslands er í því að hafa áhrif á
frið milli Ísraels og Palestínu skiptir
öllu máli að við beitum honum. Við
þetta má svo bæta að – Ísland ætti að
taka matvælaaðstoð …
Meira: bryndisisfold.blog.is
Sigurður Kári Kristjánsson | 23. apríl
Fjölbreytni og val-
frelsi lykilorðin í …
Það er óhætt að segja
að það séu spennandi
tímar framundan í
menntamálum á Ís-
landi. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra lagði í
vetur fram fjögur efnismikil og merki-
leg frumvörp sem nú eru til meðferðar
hjá menntamálanefnd Alþingis.
Frumvörp menntamálaráðherra
fela í sér heildarendurskoðun á lögum
um leikskóla, grunnskóla og …
Meira: sigurdurkari.blog.is
Lára Hanna Einarsdóttir | 23. apríl
Stundum er erfitt
að halda ró sinni …
… og höggva ekki mann
og annan. Stundum
langar mig að hrista
fólk, taka á því eins og
óknyttastrákum eða
-stelpum og lesa því
pistilinn ómengaðan.
Stundum langar mig að vera einræð-
isherra á Íslandi og taka til hendinni,
henda rusli og sópa úr skúma-
skotum. En það er draumsýn og eina
leiðin sem virðist fær er að reyna að
nota mátt orðanna. En mig þekkja fáir
og enn færri hlusta á mig. Þótt ég þoli
ekki athygli vildi ég stundum óska
þess að vera fræg. Ef ég væri fræg
myndu fjölmiðlar kannski hlaupa upp
til handa og fóta þegar ég munda
lyklaborðið, taka við mig djúpviturleg
viðtöl og allir myndu hlusta í mikilli
andakt. Annað eins hefur nú gerst
þegar fræga fólkið tjáir sig. En ég er
ekki fræg og fáir hlusta. Því miður. Ég
auglýsi hér með eftir frægu fólki til að
tala máli mínu. Það er sama hvaðan
gott kemur – en hér ætla ég að láta
vaða og taka stórt upp í mig.
Ég fór á íbúafund í Hveragerði á
mánudagskvöldið, þar var verið að
fjalla um málefni sem ég hef mikinn
áhuga á, fyrirhugaða Bitruvirkjun við
Ölkelduháls og möguleg áhrif hennar
á lífsgæði og heilsu Hvergerðinga.
Reyndar á alla íbúa suðvesturhorns-
ins, en Hvergerðingar eru næstir
svæðinu. Salurinn var fullur út úr dyr-
um, um 100 manns mættu og það
var spenna í loftinu. Augljóst að málið
hvílir þungt á Hvergerðingum – skilj-
anlega. Það á nefnilega að eitra fyrir
þá og þeir geta enga björg sér veitt.
Lesið pistil bæjarstjóra Hvergerðinga
um fundinn hér.
Það væri allt of langt mál að tíunda
allt sem gerðist á fundinum, en þarna
voru þrír frummælendur – frá Orku-
veitunni, Hveragerði og Landvernd.
Fulltrúi Orkuveitunnar virtist hálf-
þreyttur, áhugalítill og var lítt sann-
færandi, bæði í pistli sínum og þegar
hann svaraði hinum fjölmörgu fyr-
irspurnum sem beint var til hans frá
fundargestum. Mín tilfinning var sú
að honum fyndist þetta óþarfa bögg
og afskiptasemi. Okkur kæmi þetta
ekkert við.
Um daginn var ég byrjuð að skrifa
pistil um brennisteinsvetni, búin að
afla mér heimilda um víðan völl og
lesa mér til, en forgangsröðin …
Meira: larahanna.blog.is
BLOG.IS
ÞÓRÐUR Þorkelsson
bókari andaðist mánu-
daginn 21. apríl síðast-
liðinn, 83 ára að aldri.
Þórður fæddist í
Reykjavík 20. febrúar
1925. Hann var sonur
hjónanna Þorkels Þórð-
arsonar og Guðrúnar
Kristjánsdóttur. Að
loknu námi í Verslunar-
skólanum rak Þórður
eigið hjólbarðaverk-
stæði um tíma en fljót-
lega fór hann að vinna
hjá Sigurði Stefánssyni
endurskoðanda. Í kjöl-
farið stofnaði hann eigin stofu og
starfaði við bókhald og endurskoðun-
arstörf eftir það – lauk við síðasta
skattframtal sitt og skýrslu fyrirtæk-
is í liðinni viku – auk þess sem hann
sinnti ýmsum skrifstofu- og upp-
gjörsverkefnum hjá prentsmiðjunni
Odda um áratugaskeið.
Félagsmál voru Þórði mjög hug-
leikin. Hann var fyrst og fremst Vals-
maður frá átta ára aldri, æfði fyrst
knattspyrnu og síðan handbolta, en
hann var í meistaraflokksliði Vals í
handbolta árin 1945 til 1954 og varð
þrisvar sinnum Íslandsmeistari.
Hann var í aðalstjórn Vals meira og
minna í rúmlega aldarfjórðung frá
1948 og var meðal annars formaður
félagsins 1970 til 1975. Hann var for-
maður handknattleiksdeildar Vals
1960 og fulltrúi Vals í handknatt-
leiksráði Reykjavíkur.
Hann var líka lengi
gjaldkeri Íþróttasam-
bands Íslands og einn
af helstu frumkvöðlum
þess að Íslensk getspá
var stofnuð en hann var
fyrsti stjórnarformað-
ur fyrirtækisins. Þá
átti hann líka stóran
þátt í að koma
Íþróttahátíð ÍSÍ á lagg-
irnar.
Fyrir félagsstörfin
var Þórður heiðraður á
margan hátt. Hann var
til dæmis heiðursfélagi
í Val og Íþróttasambandi Íslands og
hin ýmsu sérsambönd ÍSÍ heiðruðu
hann fyrir margvísleg störf.
Þórður hafði mikinn áhuga á lax-
veiði og veiddi árlega í Elliðaánum
frá 12 ára aldri en pabbi hans var
með þær á leigu á uppvaxtarárum
Þórðar.
Stjórnmálin voru einnig ofarlega í
huga Þórðar og hann starfaði mikið
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, einkum í
ýmsum hverfanefndum auk þess sem
hann sat mörg landsþing.
Árið 1950 kvæntist Þórður Svan-
hildi Guðnadóttur sem lifir mann
sinn. Þau eignuðust eina dóttur, Guð-
rúnu Þóreyju, sem er gift Þorvaldi K.
Þorsteinssyni og eiga þau tvær dæt-
ur og þrjú barnabörn. Þórður lætur
einnig eftir sig systur en hann átti
auk þess hálfbróður.
Andlát
Þórður Þorkelsson