Morgunblaðið - 24.04.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 15
ERLENT
NÝJAR tegundir sýklalyfja og
lækningar við hvers kyns sjúkdóm-
um munu aldrei líta dagsins ljós
verði útrýmingu þúsunda plantna
og dýrategunda ekki snúið við og
hlúð að líffræðilegum fjölbreyti-
leika. Þetta var meðal þess sem
kom fram á ráðstefnu sem haldin
var í gær á vegum Umhverfisstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna (UNEP)
og Global Contact, verkefnis á veg-
um SÞ, þar sem fyrirtæki ræða
samspil náttúru og samfélags.
Achim Steiner, aðalfram-
kvæmdastjóri UNEP, sagði að yfir
16.000 þekktar tegundir væru í út-
rýmingarhættu en að fjöldi þeirra
kynni að vera mun meiri.
Fram kom á ráðstefnunni að með
tæknibyltingu síðustu alda hefði
lyfjaiðnaðurinn í meira mæli snúið
baki við lausnum náttúrunnar, sú
þróun væri nú aftur að snúast við.
„En við munum aldrei ráða fram úr
öllum þeim lausnum sem náttúran
hefur upp á að bjóða því líf-
fræðilegur fjölbreytileiki er á und-
anhaldi,“ sagði Steiner.
David Suzuki, vísindamaður og
umhverfisverndarsinni, sagði mik-
ilvægt að efnahagslegur ávinn-
ingur og framfarir réðu ekki för.
„Hagsmunasjónarmið verða að
víkja fyrir hreinu vatni, lofti og
jarðvegi til að tryggja velfarnað
komandi kynslóða,“ sagði Suzuki.
Ráðstefnuna sóttu hundruð al-
þjóðlegra kaupsýslumanna, sendi-
fulltrúa og umhverfisverndarsinna.
Líffræðilegur fjölbreytileiki
er mikilvægur til lækninga
Náttúra Hverfandi fjölbreytileiki.
STEINAR Baste-
sen, sem stofnaði
norska stjórn-
málaflokkinn
Strandflokkinn,
(Kystpartiet) fyr-
ir níu árum, hef-
ur nú verið form-
lega vikið úr
flokknum.
Helstu ástæður brottvikning-
arinnar eru sagðar vera langvar-
andi átök milli Bastesens og núver-
andi sem fyrrverandi forystu
flokksins. Auk þess er hann talinn
hafa verið flokknum ótrúr og vald-
ið honum skaða með óviðeigandi
ummælum í fjölmiðlum.
Leiðtogi flokksins, Kjell Ivar
Vestå, sagði í samtali við norsku
fréttastofuna NTB að ákvörðunin
hefði verið erfið. Nú væri flokks-
mönnum hins vegar létt og að vel
hefði verið staðið að brottvikningu
Bastesens.
Vestå segir að ef Bastesen muni
biðjast afsökunar á framferði sínu
muni flokksforystan íhuga málið og
jafnvel gæti komið til greina að
bjóða honum aðild að flokknum á
nýjan leik. Hingað til hefði hann þó
enga iðrun sýnt.
Vikið úr
flokknum SILVIO Berlusconi, væntanlegur
forsætisráðherra Ítalíu, hét í gær
að bjarga ríkisflugfélaginu Alitalia
frá yfirvofandi gjaldþroti.
Flugfélögin Air France og KLM
hafa formlega fallið frá tilboði í Ali-
talia og ítölsk stjórnvöld, sem hafa
dælt fé í það, verða að gera hlé á
því til ársins 2011. Berlusconi sagði,
að hópur fjárfesta myndi koma til
liðs við Alitalia en andstæðingar
hans segja, að hann hafi ekkert í
höndunum um það. Rússneska flug-
félagið Aeroflot á í viðræðum við
Alitalia en ekki er þó vitað hvort
Berlusconi hafði það í huga.
Berlusconi vill
bjarga Alitalia
IVER B. Neumann, prófessor og
liðsmaður norsku utanrík-
ismálastofnunarinnar, vill að Nor-
egur gangi úr Atlantshafs-
bandalaginu og fái aðild að
Evrópusambandinu.
Neumann segir að Norðmenn
taki nánast sjálfkrafa þátt í stríðum
sem Bandaríkjamenn efni til í von
um að þóknast þeim. En Bandaríkin
hafi ekki lengur neinn áhuga á
norðurslóðum, þeir hafi t.d. lagt
niður varnarstöðina í Keflavík.
Noregur úr
NATO?
BRASILÍSKA strandgæslan leitaði í gær að
presti, sem borist hafði á haf út neðan í 1.000
blöðrum um síðustu helgi.
Presturinn, Adelir de Carli, er eða var mik-
ill ævintýramaður, vanur kafari og fall-
hlífastökkvari, en neðan í blöðrurnar, sem
voru stærri og sterklegri en venjulegar
veislublöðrur, festi hann sig til að vekja at-
hygli á baráttu fyrir fleiri áningarstöðum fyr-
ir vöruflutninga- og langferðabílstjóra. Svo
illa vildi til, að það hvessti úr annarri átt og
de Carli barst á haf út með blöðrunum. Hafði
leit engan árangur borið í gær.
Fór á haf út með
1.000 blöðrum
De Carli í blöðrunum áður en
hann hvarf sjónum.
NÝ rannsókn bendir til að mat-
aræði kvenna geti ráðið nokkru um
hvort þær eignast dreng eða stúlku.
Neyti þær mjög kaloríuríkrar fæðu
á þeim tíma, sem getnaður á sér
stað, er líklegra en ella, að drengur
líti dagsins ljós eftir níu mánuði.
Rannsóknin, sem gerð var há-
skólana í Exeter og Oxford í Eng-
landi, beindist að 740 konum, sem
voru ófrískar að sínu fyrsta barni.
Var fylgst með mataræði þeirra og
í ljós kom, að líkur á að eignast
dreng voru 56%, væri fæðan mjög
kaloríurík. Var meðalneysla þeirra
2.413 kaloríur en hinna 2.283.
Á síðustu árum og raunar lengi
hefur fólk verið hvatt til að borða
hollan mat, ekki síst grænmeti og
ávexti, og forðast feitmetið. Svo vill
líka til, að á síðustu 40 árum hefur
hlutfall fæddra drengja stöðugt
verið að lækka í þróuðum ríkjum.
Kaloríufjöldinn
kallar á strák
Borgarinn Uppskriftin að strák?
STUTT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
LJÓST er, að einvígið á milli þeirra
Hillary Clinton og Baracks Obama í
baráttu bandarískra demókrata
mun halda áfram enn um sinn eftir
góðan sigur Clinton í Pennsylvaníu í
fyrradag. Sjálf túlkar hún sigur sinn
sem straumhvörf og segist viss um
að hljóta útnefningu flokksins sem
forsetaframbjóðandi.
„Við höfum unnið mikilvægan sig-
ur hér í Pennsylvaníu og við eigum
eftir að fá fleiri góðar fréttir af sama
tagi,“ sagði Clinton er hún fagnaði
sigrinum með stuðningsmönnum
sínum. En fréttaskýrendur segja, að
fátt muni þó geta komið í veg fyrir,
að Obama komi á þing Demókrata-
flokksins í ágúst með fleiri kjör-
menn á bak við sig. Ólíklegt sé hins
vegar, að hann nái tölunni 2.025,
sem þarf til að hljóta útnefningu án
atkvæðagreiðslu. Því komi það í hlut
svokallaðra „ofurfulltrúa“, um 800
æðstu embættis- og trúnaðarmanna
flokksins, að höggva á hnútinn.
Pennsylvanía sendir 158 fulltrúa á
flokksþingið en þeir skiptast hlut-
fallslega á milli þeirra Clinton og
Obama. Hlaut hún 55% atkvæða en
Obama 45%. Bætti Clinton kjör-
mannastöðu sína aðeins lítillega,
hefur nú 1.586 kjörmenn en Obama
1.713.
Stuðningur við þau Clinton og
Obama í Pennsylvaníu fór eftir
sama mynstrinu og í öðrum forkosn-
ingum hingað til. Obama studdi
meira en 90% blökkumanna, sem
voru 14% þeirra, sem kusu í fyrra-
dag, en 60% hvítra manna, sem voru
80% kjósenda, studdu Clinton, 40%
Obama. Hann hafði hins vegar vinn-
inginn meðal ungs fólk af báðum
kynjum og öllum litarhætti.
Hikandi kjósendur
völdu margir Clinton
Þetta mynstur hefur vakið spurn-
ingar um hvort forkosningabarátta
demókrata endurspegli átök á milli
kynslóða, kynja og kynþátta. Vekur
athygli, að stuðningurinn við Clint-
on er langmestur meðal hvítra sem
komnir eru yfir miðjan aldur, eink-
um kvenna. Þetta er hins vegar fólk-
ið, sem er langduglegast við að
mæta á kjörstað.
Fram kom í könnunum í Penn-
sylvaníu, að Clinton hafði vinninginn
meðal þeirra, sem voru óráðnir allt
fram á síðasta dag, og þykir það og
annað benda til, að henni sé betur
treyst en Obama til að ráða fram úr
efnahagsvandanum, sem mun vega
þungt í forsetakosningunum í haust.
Eftir heimildum í herbúðum Clinton
er síðan haft, að meðal ofurfulltrú-
anna fari efasemdir um Obama
mjög vaxandi og að sama skapi auk-
ist stuðningur þeirra við Clinton.
Þetta er þó óstaðfest.
Obama bar sig vel er úrslitin í
Pennsylvaníu lágu fyrir og hann
minnti á, að fyrir skömmu hefði for-
skot Clinton í ríkinu verið 20%. Nú
er aðeins eftir að kjósa í níu ríkjum
og næst 6. maí í Indíana og Norður-
Karólínu.
„Við höfum unnið
mikilvægan sigur“
Reuters
Ánægð Öldungadeildarþingmaðurinn Hillary Clinton faðmar aldraðan
stuðningsmann við kjörstað í Philadelphiu, stærstu borg Pennsylvaníu.
FRÉTTIR
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
Frá kr.
24.990 – báðar leiðir
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Takmarkaður sætafjöldi. Verð getur breyst án fyrirvara.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
3
3
0
8
Verðdæm
i – lægstu
verð*
9. maí
frá kr. 24.
990
21. maí
frá kr. 24.
990
28. maí
frá kr. 29.
990
4. og 11.
júní fr
á kr. 39.9
90
18. júní
frá kr. 34.
990
25. júní
frá kr. 29.
990
2. og 9. jú
lí frá
kr. 29.99
0
16. júlí
frá kr. 34.
990
* Lægstu
verð sem
í boði eru
á
viðkoman
di brottfö
r. Verð er
netverð
á mann. T
akmarkað
sætafram
boð
á þessu v
erði. Verð
getur bre
yst án
fyrirvara. N
ánar á ww
w.heimsfe
rdir.is.
Alicante
Bókaðu strax á www.heimsferdir.is
og tryggðu þér lægsta verðið!
Heimsferðir bjóða þér beint flug til Alicante í vor, sumar
og haust eins og undanfarin 16 ár. Við bjóðum frábær
kjör og þjónustu á íslensku alla leið – fyrir þig!
Enn er tækifæri til að tryggja sér flugsæti til Alicante
með Heimsferðum á frábærum kjörum.
Nánar á www.heimsferdir.is.
á frábærum kjörum