Morgunblaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 19
AUSTURLAND
Fljótsdalur | Smalahundakeppni
Austurlandsdeildar Smalahunda-
félags Íslands var nýlega haldin að
Eyrarlandi í Fljótsdal. Keppt var í
þremur flokkum, A-flokki, B-flokki
og Unghundaflokki. Keppendur
komu af Langanesi, Grundarfirði,
Hafnarfirði, Suðurlandi og Austur-
landi.
Keppt var eftir hefðbundnum
reglum þar sem hver hundur rak
fjórar rollur eftir þar til markaðri
braut, í hringi og slaufur. Gegnum
þrjú hlið, til stjórnanda hundsins
þar sem hann, með aðstoð hunds-
ins, skipti hópnum, áður en roll-
urnar voru að síðustu reknar inn í
lítið réttarhólf.
Mjög gott að ná yfir 85 stigum
Í unghundaflokki sigraði Snót
frá Grundarfirði með 46 stig og
smalinn Valgeir Magnússon. Í
B-flokki vann Lýsa frá Hafnarfirði
með 56 stig, smali var Þorvarður
Ingimarsson.
Í A-flokki, sem flestir keppendur
voru, í sigraði Mac, nýinnfluttur frá
Wales, með 94 stig. Smali var Þor-
varður Ingimarsson.
Lífland gaf verðlaun í alla flokka;
hundabúr fyrir fyrsta sæti, fóð-
urpoka fyrir annað sæti og ól og
taumur fyrir það þriðja. Dómari í
keppninni var Lárus Sigurðsson,
bóndi á Gilsá í Breiðdal.
Veðurguðirnir voru ekki beinlín-
is hliðhollir keppendum. Kepp-
endur komust ekki frá Mjóafirði
t.d. vegna þess að ekki var lendandi
á Dalatanga. Það lægði samt dálítið
þegar á leið en þetta setti óneit-
anlega mark sitt á keppnina.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Samvinna Þorvarður Ingimarsson
nýtir smalahunda í fjárbúskapnum.
Dugnaðar-
hundar í
smalakeppni
TAK, Tengslanet
austfirskra
kvenna, veitti í
gærkvöld Krist-
ínu Scheving
hvatningar-
verðlaun samtak-
anna 2008. Krist-
ín er fram-
kvæmdastjóri
Menningar-
miðstöðvar Fljótsdalshéraðs og
frumkvöðullinn á bak við al-
þjóðlegu stuttmyndahátíðina 700IS
Hreindýraland.
Kristín flutti til Egilsstaða árið
2005 og hefur frá fyrsta degi unnið
margvísleg brautryðjendastörf
með stofnun og rekstri Vegahúss-
ins og skipulagningu 700IS Hrein-
dýralands. Hún var jafnframt virk-
ur þátttakandi í stofnun og rekstri
menningarhússins Sláturhússins á
Egilsstöðum. Með frumkvæði sínu
og dugnaði hefur Kristínu og fé-
lögum hennar tekist að vekja at-
hygli á Austurlandi og Egilsstöðum
út um allan heim og um það vitna
viðtöl í innlendum og erlendum fjöl-
miðlum og gríðarleg þátttaka í
700.is en um 300 myndir frá 34
löndum hafa tekið þátt í hátíðinni.
Kristín Schev-
ing heiðruð
Kristín Scheving
Egilsstaðir | Það voru kátir krakkar
sem þustu út úr skólanum sínum á
Egilsstöðum í gærmorgun til að
hleypa þrjú hundruð vinablöðrum
upp til himins. Dagurinn var tileink-
aður átaki gegn einelti, en skólinn er
þátttakandi í Olweusar-verkefninu
um einelti.
300 krakkar á aldrinum 9 til 15 ára
unnu um morguninn allskyns verk-
efni og skreytingar í tilefni dagsins.
Undir hádegið þyrpust þau út á
knattspyrnuvöll við skólann og
slepptu samtímis heilu blöðruhafi,
sem vindurinn greip samstundis og
feykti yfir bæinn.
Hönd í hönd utan um skólann
Þá mynduðu þau öll sem eitt vina-
keðju og spönnuðu skólann sinn og
gott betur en það. Þau gerðu bylgju
og húrrahróp eftir allri vinakeðjunni
svo söng í hverfinu. Svo voru allir
hlaupnir inn að borða hádegisverð og
heyra mátti stutta og langa hrópa til
félaganna „Fannst þér þetta ekki
rosalega gaman? Mér fannst þetta
frábært!“
Nemendur í 1. og 2. bekk grunn-
skólans eru í skóla á Eiðum. Þau létu
ekki sitt eftir liggja. M.a. bjuggu þau
hvert til sína brúðu sem á að tákna
þau sjálf og þær fara svo upp á vegg,
hönd í hönd allar saman. Krakkar í 2.
bekk bjuggu til vinabönd sem þau
færðu 1. bekkingum að gjöf. Síðan
var mynduð vinakeðja utan um rút-
una sem sér um að flytja börnin fram
og til baka milli Egilsstaða og Eiða.
„Við erum búin að huga að gleði, góð-
um samskiptum, að hjálpa hvert
öðru og skemmta sér,“ sagði Sigur-
laug Jónasdóttir skólastjóri á skóla-
lóðinni í gær. „Blöðrurnar voru með
skilaboðum til okkar allra og sam-
félagsins um að einelti er eitthvað
sem við líðum ekki. Krökkunum hef-
ur þótt gaman í morgun, enda brut-
um við upp skólastarfið og gerðum
eitthvað annað.“ Sigurlaug segir
Olweusar-verkefnið, sem var innleitt
á þessu skólaári, þegar farið að hafa
áhrif í skólastarfinu. „Allir eru orðn-
ir meira samtaka og meira meðvit-
aðir, reyna að gera sitt besta og eng-
inn snýr sér undan ef eitthvað er að.
Nú skipta sér allir af og reyna að
bæta úr ef á þarf að halda.“
Skólakrakkar sendu kærleiks-
blöðrur út í umhverfi sitt
Nemendur á Egilsstöðum tileinkuðu gærdaginn baráttunni gegn einelti
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kæti Það var mikil samstaða í hópi nemenda Egilsstaðaskóla í gær. Þau
slepptu hundruðum blaðra með skilaboðum um að einelti yrði ekki liðið.
Fréttir á SMS
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200
Heilsuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að
njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafnframt aðgang að
margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands.
Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir
aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu
mánaðarlegs grunngjalds.
Opið hús verður í dag, sumardaginn fyrsta að
Lækjarbrún 25 milli kl. 13-16
GLEÐILEGT
SUMAR!
Öryggishnappur
Eftirlit næturvarðar
Brunaviðvörunarkerfi
Hirðing lóðar
Aðgangur að baðhúsi HNLFÍ
Aðgangur að tækjasal HNLFÍ
Heilsuböð/leirböð og partanudd
Viðtöl við íþróttafræðinga
Viðtöl við næringarráðgjafa
Aðgangur að bókasafni HNLFÍ
Aðgangur að innra starfi og
fræðslu HNLFÍ
Kaupendur gerast aðilar að sérstökum þjónustusamningi við HNLFÍ
Innifalið í þjónustusamningnum er:
Sérkjör íbúa húsanna að:
Matsal HNLFÍ
Sjúkraþjálfun
Hóptímum í leikfimi, hugleiðslu,
fræðslu o.fl.
Önnur þjónusta í boði:
Ræsting og þvottur
Heimsending máltíða
Snyrti- og hárgreiðslustofa
Heilsuvöruverslun
Raðhúsum er skilað
fullbúnum með parketi
og flísum á gólfum.
Raðhúsin eru 2ja og 3ja
herbergja frá stærðinni
86–100 fm.
Verð frá 23,2 millj.
iav.is