Morgunblaðið - 24.04.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 31
MINNINGAR
En nú varir trú, von og kær-
leikur, þetta þrennt, en þeirra
er kærleikurinn mestur
(I. korintubréf 13. kafli.)
Óðurinn um kærleikann og sann-
leikur hans eru mér efst í huga þegar
ég skrifa afmæliskveðju til yndislegr-
ar konu. Sú kona ert þú, Auðbjörg
Guðjónsdóttir. Í dag fögnum við því
að það eru 60 ár síðan þú komst í
heiminn. Heyrt hef ég að ekki hafi
farið mikið fyrir þér og það kemur
mér ekki á óvart þar sem þú hefur
ætíð verið virt og elskuð fyrir hóg-
værð þína, jákvæði og hljóðlátan
styrk. Þegar ég hugsa um liðna tíma
sé ég blíða brosið þitt, og hvernig þú
geislar af hreysti og lífsgleði við að
ala upp fjögur börn, vera nánasti
Auðbjörg Guðjónsdóttir
✝ Auðbjörg Guð-jónsdóttir fæddist
á Hofsósi í Skagafirði
24. apríl 1948. Hún
lést á Landspítalanum
við Hringbraut í
Reykjavík 24. október
2006 og var útför
hennar gerð frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík
31. október.
samferðamaður eigin-
manns þíns og vinur
vina þinna og ég er
þakklát fyrir allt sem
þú kenndir mér í líf-
inu.
Þegar þetta er ritað
finn ég að þú stendur
við vinstri öxl mína,
teygir hönd þína fram
og strýkur mér um
vangann alveg eins og
þú gerðir morguninn
eftir ógleymanlega
svefnlausa nótt þegar
ég lagðist í bólið þitt
örmagna og frávita af sorg vegna
skyndilegs fráfalls þíns. Hinn óraun-
verulegi raunveruleiki að þurfa að
læra að lifa áfram án þín hefur
hnykkt á því sem þú kenndir mér um
mikilvægi kærleikans og þeirrar
staðreyndar að lífið er sem dropi í
hafsjó alheimsins, og að okkur sem
búum saman á þessari jörð ber að
nota það vel. Í mér og öllum ástvinum
þínum lifa áfram lífsgildi þín, kær-
leikur og styrkur.
Til hamingju með daginn, elsku
mamma.
Þín
Arnhildur Gríma.
Nú er elsku litla englarósin mín
farin frá okkur. Þessi litli engill sem
gaf svo mikið af sér, þó að hún væri
mikið veik.
Það var 13. júlí 2006 þegar mamma
hennar og pabbi færðu mér þau tíð-
indi að þau ættu von á barni og var
það mikill gleðidagur í lífi mínu, nú
væri ég loksins að verða amma.
Elsku litla stelpan mín leit dagsins
ljós hinn 22. febrúar 2007 og amma
var að springa úr gleði þegar hún sá
hana í fyrsta sinn. Hún var síðan
skírð Helena og var ávallt kölluð Hel-
ena fagra því hún var svo falleg og
yndisleg. Fljótlega fór að bera á því
að Helenu minni leið ekki nógu vel,
Helena Matthíasdóttir
✝ Helena Matt-híasdóttir
fæddist í Reykja-
vík 22. febrúar
2007. Hún lést á
Barnaspítala
Hringsins þriðju-
daginn 4. mars
síðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Há-
teigskirkju 11.
mars.
hún vildi ekki
drekka og grét mjög
mikið. Ekki leist
okkur á þetta og var
amma sérstaklega
áhyggjufull yfir
þessu og var stöðugt
að biðja fyrir henni.
Svo var það 13. júlí
2007, ári eftir gleði-
tíðindin, sem við
fengum að vita að
Helena væri með
kalk í heila, og út frá
því kom í ljós að hún var haldin
ólæknandi taugahrörnunarsjúkdómi.
Var þetta mikið áfall fyrir alla fjöl-
skylduna.
En hún Helena mín hafði mjög
sterka nærveru og ég vissi þegar ég
horfði í djúpstæð augu hennar að við
höfðum þekkst áður. Sál hennar var
litrík sem regnboginn og hún kenndi
manni svo margt eins og hvað það er
dýrmætt að lifa lífinu lifandi og þakka
fyrir að vera heilbrigður. Litla engl-
arósin mín háði hetjulega baráttu og
var amma mikið með stelpuna sína,
alltaf að syngja fyrir hana, kyssa
hana og knúsa, því hún var svo mjúk
og yndisleg og áttum við yndislegar
stundir saman. Helena mín dvaldist
síðustu tvo mánuðina á Barnaspítala
Hringsins og þá var amma alltaf að
syngja fyrir hana „Hvert örstutt
spor“, yndislega fallegt ljóð sem lýsir
okkar samverustundum.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast elsku litlu Helenu, engla-
rósinni minni eins og ég kallaði hana
ávallt, með fallegu sálina sína, og bið
góðan Guð að varðveita hana og
vernda. Einnig bið ég Guð að styrkja
mömmu hennar og pabba, Ævar
stóra bróður og aðra ættingja, því
missirinn er mikill. Að lokum vil ég
senda englarósinni minni þessa fal-
legu bæn sem er mér svo kær.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesú, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesú, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu,
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesú, vertu hjá mér.
Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson.)
Hinsta kveðja frá ömmu Biddu.
Bryndís Hákonardóttir.
Ég kynntist Lilju
fyrir rúmum aldar-
fjórðungi, í minni
fyrstu heimsókn til
tengdaforeldra minna á Siglufirði, að
Hávegi 58. Lilja og Kristján tóku vel
á móti mér og þannig var það alla tíð.
Heimsóknirnar þangað urðu margar
og minningarnar tengdar þeim stað
eru góðar. Ég kom aðeins sem gestur
til Siglufjarðar en þar leið mér alltaf
vel, staðurinn býr yfir mikilli fegurð
hvort heldur að sumri eða vetri.
Lilja var mikil húsmóðir og kom
ótrúlega mörgu í verk. Einhvern veg-
inn tókst henni að vinna öll verk
þannig að þau virtust auðveld og
fljótunnin en samt unnin af vand-
virkni. Hún byrjaði daginn snemma,
yfirleitt hafði hún verið á fótum ein-
hverja klukkutíma þegar dagur ann-
Lilja Jóelsdóttir
✝ Lilja Jóelsdóttirfæddist á Hvoli í
Fljótshverfi 27. maí
1931. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 6. febrúar síð-
astliðinn.
Útför Lilju fór
fram frá Akra-
neskirkju 22. febr-
úar sl.
arra hófst. Lilja sat
aldrei auðum höndum,
hún bakaði mikið, eld-
aði góðan mat, saum-
aði út dýrindis myndir,
prjónaði kjóla á litlar
sonar- og dótturdætur,
peysur og húfur á öll
barnabörnin, púslaði
flóknar myndir og las
mikið. Að auki hélt hún
dagbók í fleiri ár þar
sem helstu atburðir
dagsins, ásamt veður-
lýsingu, voru skráðir.
Tengdamamma var
ákveðin kona og ég bar mikla virð-
ingu fyrir henni. Hún vildi hafa reglu
á hlutunum og allt var vel skipulagt –
og lét hún aðra gjarnan vita hvernig
haga átti hlutunum.
Lilju fannst gaman að segja sögur
og þá frá einhverjum atvikum í sínu
lífi, gjarnan voru það sögur af veiði-
ferðum en hún hafði mikinn áhuga á
stangveiði. Tókst henni að vekja þann
sama áhuga hjá börnum sínum og
barnabörnum sínum. Hún tók ekki
þátt í góðu eða slæmu umtali um ann-
að fólk. Ef einhverjum varð það á að
koma með athugasemdir um ein-
hvern þá var því ekki svarað – hún
leiddi það hjá sér.
Tengdamamma var alltaf boðin og
búin að rétta fram hjálparhönd. Ef
taka átti slátur eða úrbeina naut – þá
var hún mætt. Eins ef við Kristján,
sonur hennar, þurftum sem fátækir
námsmenn á einhverri aðstoð að
halda, þá fengum við hana – oftar en
ekki í glæsilegum matarsendingum.
Þannig var hún allt þar til Kristján
tendapabbi dó, í apríl 1999. Þá gerðist
eitthvað og sú kona sem ég þekkti –
hún hvarf smám saman inn í rökkur
alvarlegra veikinda. Haustið eftir
andlát Kristjáns settist hún að á
Akranesi. Hún keypti íbúð við
Stekkjarholt en sökum veikinda
hennar var dvölin þar stutt.
Síðustu árin dvaldi Lilja á Sjúkra-
húsi Akraness. Þar naut hún góðrar
umönnunar og leit hún á sjúkrahúsið
sem sitt heimili. Starfsfólk sjúkra-
hússins á þakkir skildar fyrir störf
sín og fyrir að gera Lilju lífið bæri-
legt.
Mér þótti miður að hafa ekki verið
við athöfnina í Akraneskirkju en ég
náði að vera með Lilju síðustu dag-
ana fyrir andlátið. Ég vil þakka henni
fyrir samfylgdina og strákarnir okk-
ar Kristjáns, Páll Óskar, Kristján Jó-
el og Þorvaldur, þakka þann tíma er
þeir áttu með ömmu sinni.
Afkomendum Lilju votta ég samúð
mína.
Hvíl í friði tengdamamma.
Þín tengdadóttir
Margrét Þorvaldsdóttir (Gréta).
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Undirskrift | Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Minningargreinar
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ARNBJÖRG HERMANNSDÓTTIR,
Ólafsbraut 30,
Ólafsvík,
andaðist á dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík,
miðvikudaginn 16. apríl.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
26. apríl kl. 14.00.
Gylfi K. Magnússon, Guðrún Blöndal,
Elísabet Magnúsdóttir
Björg Magnúsdóttir, Einar Kristjánsson,
Hermann Magnússon, Svanhildur Pálsdóttir,
Trausti Magnússon, Jóhanna K. Gunnarsdóttir,
Steinþór Magnússon, Sigrún Harðardóttir,
Ágústa Magnúsdóttir, Jón Guðmundsson,
Svanur Magnússon, María S. Pétursdóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Jón Axelsson,
ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn.
✝
Systir okkar,
SIGRÍÐUR BERGSTEINSDÓTTIR,
(DIDDA),
Hjallatúni,
Vík,
áður Skúlagötu 66,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 2. apríl.
Jarðarförin fór fram miðvikudaginn 16. apríl í
kyrrþey.
Magnús Berg Bergsteinsson,
Þuríður Pfeiffer Bergsteinsdóttir,
Sigurður Berg Bergsteinsson,
Ólafur Bergsteinsson.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN AUÐUNSSON
skipstjóri,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis að Mávahlíð 42,
lést mánudaginn 21. apríl.
Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 29. apríl kl. 13.00.
Vilhelmína Þorsteinsdóttir,
Ellen Þórarinsdóttir,
Halldór Pétur Þorsteinsson, Guðrún Jónína Ragnarsdóttir,
Þorsteinn Þorsteinsson, Unnur Egilsdóttir,
Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Hreinn Jónsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Okkar ástkæri
VALDIMAR ÓSKAR JÓNSSON
loftskeytamaður,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn
29. apríl kl. 11.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vildu minnast hans er bent á reikning
0315-13-304040 kt: 041167-3279 til styrktar
Grensásdeild LSH.
Jóna Margrét Guðmundsdóttir,
Guðmundur St. Valdimarsson, Hjördís Kvaran Einarsdóttir,
Ragnheiður Valdimarsdóttir, Gunnar Skúli Guðjónsson,
Davíð Þór Valdimarsson, Erla Dögg Ragnarsdóttir,
Margrét Valdimarsdóttir, Ormar Gylfason Líndal
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
ÓTTAR ÞORGILSSON,
andaðist á líknardeild Landakotsspítala
þriðjudaginn 22. apríl.
Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju
mánudaginn 28. apríl kl. 13.00.
Jarðsett verður í Reykholti í Borgarfirði
þriðjudaginn 29. apríl.
Erla Hannesdóttir,
Jón Ari Þorgilsson,
Jóhannes Jóhannesson,
Lárus Stefán Jóhannesson
og aðrir aðstandendur.