Morgunblaðið - 24.04.2008, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 35
Atvinnuauglýsingar
SÖLUMAÐUR/LÖGGILTUR
FASTEIGNASALI ÓSKAST
Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4
óskar eftir að ráða til starfa sölumann/
löggiltan fasteignasala. Starfið felst í sölu
íbúða-, atvinnuhúsnæðis og fyrirtækja og
öðru því sem til fellur. Sjálfstæð vinnubrögð
og frumkvæði skilyrði svo og reynsla á sviði
fasteignasölu.
Umsóknir um menntun og fyrri störf berist
á netfang: gtj@fastmark.is
merkt „Frumkvæði“
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Starfsmaður óskast
Rótgróið gluggahreinsunarfyritæki óskar eftir
framtíðar starfskrafti. Þægilegur vinnutími.
Hreinsýn, 895 1886.
Matreiðslumaður
karl eða kona
Við viljum ráða ungan og ferskan fagmann
til starfa. Leitum að skipulögðum, öflugum
og metnaðarfullum ungum fagmanni.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Áhugasamir sendi umsóknir sínar á
www.kringlukráin.is eða í s: 863 8900. Afgreiðslumaður
Okkur vantar afgreiðslumann í verslun og
verkstæðismóttöku. Tölvukunnátta og þekking á
bílum nauðsynleg.
Bílaáttan s. 892 5200.
Raðauglýsingar 569 1100
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu
3 herbergja íbúð í Vesturbænum til leigu.
Leigist á 120 þúsund. Upplýsingar í síma
552 8694 eftir kl. 19.00.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 14:00
Birkihlíð 24, 218-3869, þingl. eig. Una Sigríður Ásmundsdóttir,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Vestmannaeyja.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
23. apríl 2008.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Ásbraut 7, 0303, ásamt bílskúr (205-8500), þingl. eig. Irpa Sjöfn
Gestsdóttir og Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., þriðjudaginn
29. apríl 2008 kl. 10:00.
Engihjalli 17, 0203 (206-0051), þingl. eig. Magnús Kristinsson,
gerðarbeiðendur Eignarhaldsfél. Hvaleyraholt ehf., Lýsing hf.,
Sparisjóður Norðlendinga, Sýslumaðurinn á Blönduósi og
Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 10:30.
Furugrund 71, 0203 (206-0907), þingl. eig. Jóhanna Lúðvígsdóttir,
gerðarbeiðandi Glitnir banki hf., þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 11:00.
Glósalir 14, 0101, ásamt bílskúr, ehl. gþ. (223-6525), þingl. eig. Sævar
Pétursson, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., þriðjudaginn 29. apríl
2008 kl. 13:00.
Hlíðarvegur 23, 0101, ehl. gþ. (206-2190), þingl. eig. Ámundi Hjálmar
Loftsson, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 14:00.
Nýbýlavegur 40, 0201 (206-4443), þingl. eig. Guðmundur Helgi
Guðmundsson, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Kaupþing banki
hf., þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 14:30.
Nýbýlavegur 42, 0203 (206-4453), þingl. eig. Jón Þórir Þórisson,
gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 15:00.
Trönuhjalli 9, 0202 (206-5644), þingl. eig. Guðjón Garðarsson,
gerðarbeiðendur Avant hf., Guðleifur Magnússon, Íbúðalánasjóður,
Sýslumaðurinn í Kópavogi og Trönuhjalli 9, húsfélag, þriðjudaginn
29. apríl 2008 kl. 15:30.
Tunguheiði 14, 0202 (206-5758), þingl. eig. Jón Kristinn Ásgeirsson,
gerðarbeiðendur Kópavogsbær og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv.,
þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 16:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
23. apríl 2008.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins að Hafnar-
braut 25, Hólmavík, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Verslunarhúsnæði á kaupfélagslóð, Borðeyri, fastanr. 212-99389,
þingl. eig. Lækjargarður ehf., gerðarbeiðendur Hagkaup, N1 hf. og
Wurth á Íslandi ehf., mánudaginn 28. apríl 2008 kl. 13:15.
Sýslumaðurinn á Hólmavík,
22. apríl 2008.
Félagslíf
Vakningarsamkoma með
Curtis Hinds, trúboða og
pastor frá Torontokirkjunni,
verður haldin í Safnaðarheimili
Grensáskirkju fim. 24. apríl
kl. 20.00.
Ekki missa af þessu einstaka
tækifæri. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Sumarvaka í dag kl. 20.
með happdrætti og veitingum.
Umsjón: Systurnar.
Ath. Bænaganga í dag kl. 09.
Opið hús kl. 16-17.30
þriðjudaga til laugardaga.
Nytjamarkaður á Eyjarslóð 7
og fatabúð í Garðastræti 6,
opið alla virka daga kl. 13-18.
Fimmtudagur 24. apríl
Samkoma í Háborg,
félagsmiðstöð Samhjálpar
Stangarhyl 3 kl. 20.00.
Vitnisburður og söngur.
Predikun Bob Condon.
Allir eru velkomnir.
www.samhjalp.is
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is
Fréttir
á SMS
YFIRSKRIFT tíundu listahátíðar
Seltjarnarneskirkju var „Táknmál
kristinnar trúar“. Myndlistar-
maður hátíðarinnar að þessu
sinni er Gerður Guðmundsdóttir
en textílmyndir hennar eru hlaðn-
ar trúarlegum táknum og því
mjög við hæfi að sýna þær í
kirkju. Gerður bjó um árabil á
Seltjarnarnesi en hefur nýverið
flust upp í Grafarvog ásamt
manni sínum, Þór Whitehead pró-
fessor.
Í umræddu verki vinnur Gerður
út frá textum úr Völuspá og Op-
inberunarbók Nýja testament-
isins. Í öðru aðalverki hennar á
sýningunni „Brauði lífsins“; er
unnið með táknmál kristinnar
kvöldmáltíðar, brauð, kaleik og
fiska á afar grípandi hátt.
„Sýning Gerðar mun standa
enn um hríð (a.m.k. út apríl-
mánuð) en margir hafa orðið til
að bera verðskuldað lof á sýningu
hennar. Er óhætt að segja að
myndir hennar hafi gætt Seltjarn-
arneskirkju nýju lífi þar vikur
sem sýningin hefur staðið,“ segir
í fréttatilkynningu.
Tíunda listahátíðin Trúarlegt táknmál á listahátíð í Seltjarnarneskirkju.
Trúarlegt táknmál í
Seltjarnarneskirkju
ALÞJÓÐLEGIR hestadagar í
Skagafirði, „Tekið til kostanna“,
hefjast í dag og standa yfir helgina.
Alla dagana verður boðið upp á fjöl-
breyttar hesta- og kennslusýningar í
Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðár-
króki.
Einnig verður þar opið kaffihús að
hætti Matarkistu Skagafjarðar,
handverksmarkaður og myndlistar-
sýning grunnskólanema í Skagafirði.
Það er öflugur hópur áhugamanna
sem stendur að „Tekið til kostanna“.
Framkvæmdanefnd ásamt um
hundrað sjálfboðaliðum, sem eru
sýnendur, tónlistarmenn, hesthúsa-
eigendur, handlagnir einstaklingar
og fleiri, leggja mikið á sig til að gera
viðburðinn sem glæsilegastan og öll-
um til sóma.
Tekið til kostanna
JAFNRÉTTISNEFND Háskóla Ís-
lands, jafnréttisnefnd Kennarahá-
skóla Íslands og Rannsóknastofa í
kvenna- og kynjafræðum við Háskóla
Íslands standa fyrir málþingi um
jafnrétti í breiðum grundvelli, með yf-
irskriftinni „Forskot með fjölbreyti-
leika“ í Öskju, föstudaginn 25. apríl
kl. 13.
Fjallað verður um jafnréttismál frá
ýmsum sjónarhornum, og er mark-
miðið að skapa samræðu milli fræða-
fólks í báðum skólum, nemenda,
stjórnsýslu, og annarra sem áhuga
hafa á jafnréttismálum.
Á málþinginu verður fjallað um
ýmsar þær spurningar sem máli
skipta fyrir menntastofnanir sem
vilja leggja áherslu á jafnréttismál í
sínu starfi og skapa samfélag fjöl-
breytileikans innan sinna veggja.
Þetta verður gert með umræðum í
vinnustofum, erindum og pallborðs-
umræðum.
Kristín Ingólfsdóttir rektor setur
málþingið og síðan flytja erindi þau
Jón Atli Benediktsson, prófessor í
verkfræði og þróunarstjóri HÍ, Ólaf-
ur Páll Jónsson, lektor í heimspeki og
formaður jafnréttisnefndar KHÍ, og
Rannveig Traustadóttir, prófessor og
forstöðumaður rannsóknaseturs í
fötlunarfræðum. Fundarstjóri verður
Brynhildur Flóvenz, lektor í lögfræði
og formaður jafnréttisnefndar HÍ.
Fjórar vinnustofur, þar sem jafn-
réttismál verða rædd frá ýmsum hlið-
um, verða í boði og er allt áhugafólk
um jafnréttismál hvatt til að taka þar
þátt. Málþinginu lýkur með pall-
borðsumræðum en í pallborði verða
fulltrúar úr röðum fræðafólks, stjórn-
sýslu HÍ, nemenda og Jafnréttisstofu.
Ítarlega dagskrá má finna á vefsíð-
unni www.rikk.hi.is.
Forskot með fjölbreytileika
SLEGIÐ verður á létta strengi í
Garðinum sumardaginn fyrsta.
Söngkvöld og hljóðfærasláttur verð-
ur í samkomusal Gerðaskóla kl. 20.
Þar mun leika tríó Ara Braga,
gítar og trompet ásamt söngkon-
unni Bryndísi Jakobsdóttur en tríó-
ið leikur alhliða tónlist, dægurflug-
ur og djass. Þá kemur til leiks
Ástvaldur Traustason píanóleikari
og harmonikkuleikari, en hann mun
fara liprum fingrum um hinn nýja
flygil Garðbúa. Þá mun Árni John-
sen stjórna fjöldasöng með gítarinn
að vopni.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. en ung-
lingaráð Víðis stendur fyrir sum-
ardagsgleðinni.
Sumardagsgleði í Garði
UNGMENNAFÉLAG Biskups-
tungna fagnar 100 ára afmæli sínu
á sumardaginn fyrsta. Það var
stofnað þennan dag árið 1908 og
hefur sumardagurinn fyrsti ávallt
verið hátíðisdagur hjá félaginu.
Hátíðahöldin hefjast í Íþrótta-
miðstöðinni í Reykholti kl. 14. Þar
mun íþróttadeild Ungmennafélags-
ins sýna hvað verið er að fást við og
félagar sýna ýmis tilþrif. Þess utan
verður hátíðin byggð upp á sprelli
og leikjum. Um kvöldið verður af-
mælishátíð í Aratungu sem hefst kl.
20.30 með söng, leiklist og veislu-
hlaðborði. Meðal annars verða
veittar viðurkenningar og heima-
síða félagsins verður formlega opn-
uð.
Leikdeildin hefur þegar fagnað
þessum tímamótum með uppsetn-
ingu á leikritinu Leynimelur 13,
sem sýnt var í Aratungu í febrúar
og mars við góðar undirtektir.
Í júní er svo ætlunin að fara í
þrjár kvöldgöngur, þar sem sögu-
slóðum félagsins verða gerð skil
með staðkunnugum leiðsögumönn-
um og síðla sumars verður skellt á
sveitaballi upp á gamla mátann.
UMFB fagnar 100 árum
FRÆÐSLUFUNDUR á vegum
læknaráðs Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss verður haldinn föstudag-
inn 25. apríl í fundarsal (Hringssal)
Barnaspítala Hringsins. Fundarefni
er frásögn af upphafi slagæðar-
skurðlækninga á Íslandi fyrir tæp-
um 60 árum.
Páll Gíslason fyrrum yfirlæknir á
Landspítala og Sjúkrahúsi Akraness
segir frá og sýnir kvikmynd sem tek-
in var af slagæðaaðgerð árið 1967.
Þar var bláæð notuð til að leiða blóð-
rás frá nára niður í fótlegg. Slíkar
aðgerðir var farið að framkvæma er-
lendis en ekki hér á landi á þeim
tíma.
Fundurinn hefst kl. 12 og er geng-
ið inn um aðaldyr Barnaspítala
Hringsins.
Allir eru velkomnir.
Upphaf slag-
æðarskurð-
lækninga á
Íslandi