Morgunblaðið - 24.04.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 37
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Lokað í dag. Við
óskum öllum gleðilegs sumars og
þökkum fyrir veturinn, starfsmenn
félagsmiðstöðvarinnar á Aflagranda
40.
Árskógar 4 | Handavinnusýning í
Félagsmiðstöðinni Árskógum 4,
dagana 25. og 26. apríl kl. 13-16.30.
Kaffisala kl. 14 alla dagana. Föstu-
daginn 26. apríl er harmonikkuball
kl. 15.30.
Bergmál líknar- og vinafélag, |
Bergmál- líknar og vinafélag er með
opið hús á sumardaginn fyrsta í
húsi sínu á Sólheimum í Grímsnesi.
Húsið er nú tilbúið undir tréverk og
verður til sýnis kl. 15- 18. Kaffi á
könnunni.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
FEBK. Bingó verður spilað í Félags-
heimilinu Gullsmára föstudaginn 25.
apríl kl. 14. Kortaverð kr. 100 og
verður varið í vinninga. Vinnings-
upphæðir fara eftir fjölda þátttak-
enda. Skvettuball verður haldið
laugardaginn 26. apríl kl. 20. Þor-
valdur Halldórsson leikur og syngur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara Kópavogi,
ferðanefnd | Ferð um Vatnsleysu-
strönd – Voga – Njarðvíkurnar –
Keflavíkurflugvöll – Keflavík – Garð-
skaga – Sandgerði – Hafnir –
Reykjanesvita og Grindavík verður
farin föstudaginn 2. maí. Brottför
frá Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára
kl. 10. Kvöldmatur í Grindavík.
Skráningarlistar í félagsmiðstöðv-
unum.
Félag kennara á eftirlaunum |
EKKÓ-kórinn æfir í KHÍ frá kl. 17.
Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Lokað
vegna sumardagsins fyrsta.
Félagsstarf eldri borgara, Garða-
bæ | Lokað í Jónshúsi og Smiðjunni
í Kirkjuhvoli. Engin leikfimi í dag.
Hraunbær 105 | Lokað í dag. Gleði-
legt sumar.
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan; út-
skurður, bútasaumur, glerlist, postu-
lín, frjáls verkefni. Ókeypis tölvu-
kennsla á miðvikud. og fimmtud.
Línudans, Bör Börsson, söngur, þeg-
ar amma var ung og afi líka, brids,
skapandi skrif, félagsvist, hlát-
urklúbbur, framsögn. Leikfimitilboð
á þriðjud. kl. 9.15. Uppl. 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun
föstudag er sundleikfimi í Graf-
arvogssundlaug kl. 9.30 og Lista-
smiðjan á Korpúlfsstöðum er opin
frá 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi-
sala á sumardaginn fyrsta kl. 14.30.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Skák kl. 19 í fé-
lagheimili Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband, glervinnsla, morgunstund,
boccia, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu og fótaaðgerðarstofan op-
inn allan daginn, upplestur kl. 12.30,
frjáls spilamennska kl. 13. Uppl. í
síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Ekkert fé-
lagsstarf í dag, á morgun verður
bingó kl. 14.15 og kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Skátamessa kl.
11. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson.
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin
kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og
21.30. Prestur á staðnum. Hægt er
að kveikja á bænarkerti og eiga
kyrrláta stund.
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin
kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og
21.30. Prestur á staðnum. Njótið
kyrrðar, kveikið á bænarkerti og
eigið kyrrláta stund í helgidómnum.
Háteigskirkja | Samvera með
Taizé-sniði kl. 20. Gengið inn í
þögnina. Ljúfir bæna- og íhug-
unarsöngvar, Guðs orð, ilmur og lif-
andi ljós. Altarisganga, fyrirbæn og
smurning.
Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrð-
ar- og fyrirbænastund kl. 22. Tekið
er við bænarefnum af prestum og
djákna. Boðið upp á kaffi í lok
stundarinnar. Biblíulestur síðasta
fimmtudag hvers mánaðaðar kl. 21,
opin öllum. Bæn er lífsleikni.
60ára afmæli. Bjarni Þór Einarsson, byggingartæknifræðingur áHvammstanga, varð 60 ára 31. mars sl. og kona hans Árndís Adda
Jónsdóttir verður 60 ára 7. maí næstkomandi. Þau hjón taka á móti gest-
um í tilefni afmælis þeirra, í Félagsheimili Hvammstanga, laugardaginn
26. apríl og hefst móttakan kl. 19.
Orð dagsins: Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. (I. Kor. 12, 7)
Frístundir og námskeið
Klúbbhús Íslenska fjallahjólaklúbbsins |
Reiðhjólaviðgerðir fyrir byrjendur – frítt
námskeið. Farið verður yfir algengustu
viðgerðir og stillingar á hjólinu. Stilla gíra
og hvernig má herða út í legur í sveif-
arhúsi og nöfum, og stýrislegu. Slit á
keðju mælt. Almenn yfirferð og útskýring
á drifbúnaði. Stutt yfirferð á stillingu
bremsa. Skráning á fbjorgvinsson-
@actavis.is
Fyrirlestrar og fundir
Sögufélag, Fischerssundi 3 | Rannsókn-
arkvöld Félags íslenskra fræða verður kl.
20. Aðalheiður Guðmundsdóttir flytur er-
indi í tilefni af nýútkominni bók um dans-
sögu Norðurlanda, Norden i Dans. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Ættfræðifélagið | Ættfræðifélagið heldur
fund fimmtudag 24. apríl kl. 20.30, í húsi
Þjóðskjalasafnins á Laugaveg 162, 2.
hæð. Sigurður Hermundarson fjallar um
Laugardalsættina, sem kom út á síðasta
ári.
Tónlist
Café Rót | Eggmoon tónleikar kl. 20, frítt
inn. Airelectric – Karl Pestka býr til tón-
list einungis með fiðlu og effectum.
http://www.karlpestka.com The Custom –
Spirit of Moonflower. Fyrstu tónleikar
hljómsveitarinnar.
Digraneskirkja | Söngvinir, kór eldri borg-
ara í Kópavogi heldur tónleika í Digra-
neskirkju laugardaginn 26. apríl nk. Fjöl-
breytt dagskrá. Aðgangur ókeypis.
Hátíðarsalur Háskóla Íslands | Kvenna-
kór við Háskóla Íslands syngur vorlög og
sumarsöngva frá ýmsum löndum kl. 16.
Stjórnandi kórsins er Margrét Bóasdóttir
og píanóleikari Sólveig Anna Jónsdóttir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Tónleikar
til að minna á umferðaröryggi í boði mót-
orhjólaklúbbsins Trúboðanna kl. 17.30.
Fram koma: Lögreglukórinn, KK, Páll Rós-
inkranz, Pétur Hrafnsson og Gospelkór
Fíladelfíu. Frítt inn. Kaffisala hjá kven-
félagi slysavarnafélagsins kl. 16.
Sundlaugin Hveragerði | Hljómsveitin
Veðurguðirnir spilar. Sundlaugin er í
Laugaskarði, útivistarperlu Hvergerðinga.
Aðgangur er ókeypis.
Myndlist
Súfistinn | Sýnendur koma úr athvarfinu
Læk og heita Guðrún Guðlaugsdóttir,
Kristinn Þ. Elíasson, Guðrún H. Ágústs-
dóttir , Elín D. Elíasdóttir , Hrafnhildur,
Hildur D. Guðmundsdóttir og Ester.
Sandra M. Sigurðardóttir, er listrænn leið-
beinandi hópsins.
Skemmtanir
Bláskógabyggð | Ungmennafélag Bisk-
upstungna fagnar 100 ára afmæli sínu og
hefjast hátíðahöldin í Íþróttamiðstöðinni í
Reykholti kl. 14. Þar mun íþróttadeild fé-
lagsins sýna ýmis tilþrif og einnig verður
sprell og leikir. Um kvöldið hefst afmæl-
ishátíð í Aratungu kl. 20.30 með söng,
leiklist og veisluhlaðborði.
Glerárkirkja | Tónleikar á Sumardaginn
fyrsta í Ýdölum, Aðaldal kl. 14 og í Gler-
árkirkju kl. 20.30. Söngfélagið Sálubót og
einsöngvarinn Jónsi, Jón Jósep Snæ-
björnsson, stjórnandi Jaan Alavere. Á
dagskránni eru fjölbreytt lög frá ýmsum
löndum og ýmsum tímum. Miðasala við
innganginn og forsala í síma 860-1959.
Útivist og íþróttir
Hnefaleikastöðin | Hnefaleikastöðin býð-
ur upp á fría reynsluviku í öll fitness- og
ólympísk boxnámskeið frá 28. apríl til 3.
maí. Skráning er á www.box.is
Digraneskirkja
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
60ára afmæli. Í dag, 24. apríl, eru Hildur Ósk Leifsdóttir og Haf-steinn Guðmundsson, Marteinslaug 16, Reykjavík, sextug. Þau
verða að heiman á afmælisdaginn.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 24. apríl, 115. dagur ársins 2008
Tækni- og verkfræðideild Há-skólans í Reykjavík efnir tilfyrirlestrar á morgun. JónTómas Guðmundsson, pró-
fessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við
HÍ, mun þar flytja erindi um sólarhlöð.
„Ég mun fjalla um hinar ýmsu gerðir
sólarhlaða sem eru í notkun í heiminum
og einnig segja frá tilraunum sem eru í
gangi um þróun nýrra sólarhlaða,“ segir
Jón Tómas en sólarhlöð eru einnig stund-
um nefndar sólarrafhlöður eða solar cells
á ensku.
„Yfir 90% af sólarhlöðum eru gerðar
úr kísil en einnig eru til sólarhlöð gerðar
úr þunnum húðum ýmissa hálfleiðara og
úr svokölluðum III-V hálfleiðurum og
loks eru sólarhlöð úr fjölliðum enn á
rannsóknarstigi en vinna við þær gefur
væntingar um að hægt sé að framleiða
mjög ódýr sólarhlöð.“
Mikill vöxtur hefur verið í notkun sól-
arhlaða síðustu ár og á árinu 2007 einu
jókst notkun þeirra um 50% umfram
heildarnotkun sólarhlaða fyrra árs: „Í
heiminum öllum er áætlað að um 12.400
megavött hafi fengist með sólarhlöðum í
árslok 2007 en það jafnast á við 46 Búr-
fellsvirkjanir,“ segir Jón Tómas. „Aukn-
ing í notkun sólarhlaða skýrist meðal
annars af því að tæknin er að verða
ódýrari en þó eru ódýrustu sólarhlöðin
fjórum sinnum of dýr til að geta keppt
við aðra orkuframleiðslu, s.s. úr kolum,
olíu og gasi.“ Þó Ísland teljist seint með
sólríkari löndum fara hér fram spenn-
andi tilraunir með framleiðslu sól-
arhlaða og kemur Jón Tómas að því
starfi: „Halldór Svavarsson lektor við
HR stýrir verkefni sem miðar að því að
rækta sólarhlöð úr þunnum kísilhúðum.
Heimsmarkaðsverð á kísil, aðalbygging-
arefni sólarhlaða, hefur hækkað, tífald-
ast á nokkrum undanförnum árum. Í
hefðbundinni framleiðslu er ræktaður
hleifur af kísil sem síðan er skorinn nið-
ur í skífur, en með þeirri aðferð sem
Halldór beitir má mögulega leggja niður
húð af kísil sem er um 10 til 30 míkron
að þykkt eða á við mannshár og þannig
nýta hráefnið mun betur. Þessar rann-
sóknir fara fram í nýjum örtæknikjarna
á eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar
Háskólans.“
Fyrirlesturinn flytur Jón Tómas í
stofu K-5 í húsakynnum HR í gamla
Morgunblaðshúsinu frá kl. 14.30 til
15.30. Aðgangur er öllum heimill og
ókeypis.
Vísindi | Fræðslufyrirlestur í HR á föstudag um þróun sólarhlaða
Ný og spennandi sólarhlöð
Jón Tómas
Guðmundsson
fæddist á Akra-
nesi árið 1965.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR
1985, lokaprófi í
rafmagnsverk-
fræði frá HÍ
1989, meist-
araprófi í eðlisfræði frá sama skóla
1991 og doktorsprófi í kjarn-
orkuverkfræði frá Kaliforníuhá-
skóla í Berkeley 1996. Jón Tómas
var sérfræðingur við Raunvís-
indastofnun Háskólans, síðar dósent
við verkfræðideild. Hann hefur ver-
ið prófessor í rafmagns- og tölvu-
verkfræði við verkfræðideild HÍ frá
2003. Eiginkona Jóns Tómasar er
Linghao Yi tölvuverkfræðingur.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Akureyrarkirkja
FRÉTTIR
Í DAG, sumardaginn fyrsta, verður
árleg sumarhátíð frístundamið-
stöðvar Tónabæjar haldin hátíðleg í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
Laugardal. Dagskráin er fjölbreytt
og stendur yfir milli kl. 13 og 16 en
garðurinn er opinn til kl. 17.
Dagskráin er fjölbreytt og kemur
frá öllum sviðum frístundamiðstöðv-
arinnar, börnum og unglingum.
Hefð er fyrir því að Frístundamið-
stöðin Tónabær bjóði öllum börnum
á grunnskólaaldri í hverfinu, ásamt
fjölskyldum þeirra á sumarhátíðina.
Í ár var einnig ákveðið að dreifa
boðsmiðum til leikskólabarna hverf-
isins. Garðurinn er þar að auki opinn
almenningi svo að fleiri en íbúar
hverfisins geta látið sjá sig. Nánari
upplýsingar um dagskrána má finna
á vefsíðunni www.tonabaer.is.
Nafnasamkeppni
Nafn frístundamiðstöðvarinnar
hefur valdið talsverðum misskilningi
þar sem á vegum frístundarmið-
stöðvarinnar starfar félagsmiðstöð
með sama nafni. Til að aðgreina
starf frístundamiðstöðvarinnar og
félagsmiðstöðvarinnar höfum við
ákveðið að breyta nafni frí-
stundamiðstöðvarinnar. Hægt er að
senda tillögur á netfangið nyttn-
afn@tonbaer.is eða mæta í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn sum-
ardaginn fyrsta og skila tillögum í
þar til gerða kassa. Vegleg verðlaun
verða í boði fyrir sigurvegarann.
Sumarhátíð frístunda-
miðstöðvar Tónabæjar
BYKO opnar nýja verslun á Granda í
dag, fimmtudaginn 24. apríl, kl. 10.
Verslunin, sem er 4.600 m2 að stærð,
mun marka tímamót í þjónustu á
byggingavörumarkaði við íbúa í
Vesturbæ og á Seltjarnanesi, segir í
fréttatilkynningu.
„Í BYKO Granda verða margar
spennandi nýjungar eins og t.d.
þægileg Hlaðbraut í timburdeildinni
þar sem allt timbur er inni, aðgengi
að plötusögun og stóraukið úrval af
gólfefnum og hreinlætistækjum. Í
BYKO Granda er hægt að fá heild-
arlausnir fyrir heimilið í einni og
sömu ferðinni. Aukið úrval verður af
ýmsum vörum fyrir heimilið og segja
má að þar sé í raun hægt að fá allt
sem þarf til þess að gera húsnæði
íbúðarhæft nema steypuna. Aðgengi
og skipulag í BYKO Granda er sér-
staklega gott og viðskiptavinurinn
getur gengið beint að þeirri vöru
sem hann vantar og verið snöggur að
versla,“ segir ennfremur.
Opnunartilboð verða í BYKO
Granda alla helgina og dagskrá fyrir
alla fjölskylduna á sumardaginn
fyrsta þar sem grillaðar verða pyls-
ur, hoppukastali fyrir börnin og opn-
unarleikur þar sem möguleiki er á að
vinna gasgrill að verðmæti 79.900 kr.
BYKO opnar nýja verslun
SUMARDAGINN fyrsta verður mik-
ið um að vera hjá Landbúnaðarhá-
skóla Íslands. Opið hús verður í
starfsstöð skólans á Reykjum í Ölfusi,
sem er rétt hjá sundlauginni í Hvera-
gerði og Skeifudagur hestamanna-
félagsins Grana verður á Mið-Foss-
um. Skólahúsin á Reykjum verða
opnuð almenningi kl. 10 en hátíðar-
dagskrá í garðskálanum hefst kl. 14.
Þar verða veitt Garðyrkjuverðlaunin
2008 og forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, afhendir umhverfis-
verðlaun Hveragerðisbæjar.
Kaffiveitingar í matsal skólans og
leiktæki á útisvæði. Nám við LbhÍ
verður kynnt og þarna fer fram Ís-
landsmeistarakeppni í blómaskreyt-
ingum.
Skeifudagurinn fer fram í glæsi-
legri aðstöðu LbhÍ á Mið-Fossum
sem er skammt frá Hvanneyri. Þarna
verður keppt um Gunnarsbikarinn,
en auk þess verður Morgunblaðs-
skeifan afhent þeim nemanda LbhÍ
sem stendur sig best í reiðmennsku-
og frumtamninganámi vetrarins. Þá
munu nemendur sýna færni sína á
hestbaki. Dagskráin á Mið-Fossum
hefst kl. 12.30.
Skeifukeppni og
blómaskreytingar