Morgunblaðið - 24.04.2008, Page 40
… smíðakennarinn í
grunnskólanum smíð-
ar verðlaunagripinn… 42
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG kom heim í viku til þess að sinna list-
rænu taugunum aðeins,“ segir Helgi Björns-
son, tónlistarmaður, leikari og athafnamaður,
sem staddur er hér á landi um þessar mund-
ir. Helgi hefur meira og minna verið búsettur
í Berlín undanfarin tvö ár þar sem hann rek-
ur hið sögufræga leikhús Admiralspalast.
Hann kom hins vegar hingað til lands til að
sinna nokkrum verkefnum. „Ég er til dæmis
að leika fyrir Óskar Jónasson í sjónvarps-
þáttaröðinni Svörtum englum,“ segir Helgi
en tökur hófust í fyrradag. Hann segist þó
ekki vera í sérlega stóru hlutverki. „Ætli það
megi ekki segja að ég sé í lykilhlutverki,“
segir hann og hlær. „En svo var ég líka að
syngja inn á plötu fyrir Jón Ólafsson sem
hann er að gera eftir ljóðum Steins Steinars
auk þess sem ég mun syngja Fram-lagið í til-
efni af 100 ára afmæli Fram,“ segir Helgi
sem er að sjálfsögðu mikill Framari.
Þá má ekki gleyma SSSól en sveitin spilaði
á dansleik á Selfossi í gærkvöldi og segir
Helgi að þá félaga langi mikið til þess að
senda frá sér nýtt efni áður en langt um líð-
ur.
Stöðug barátta
Aðspurður segir Helgi rekstur Admiralspa-
last í Berlín ganga vel. „Við erum ennþá að
byggja húsið upp enda er það stórt og mikið,
25 þúsund fermetrar með miklum ranghölum.
En við erum til dæmis búnir að opna flottan
veitingastað í húsinu sem hefur gengið mjög
vel. Sem dæmi má nefna að það var valið af
tímaritinu Feinschmecker sem mest „trendy“
veitingahús í Þýskalandi síðasta haust,“ segir
Helgi stoltur. „Svo erum við að opna næt-
urklúbb í kjallaranum. Það verður svona 500
manna staður þar sem við ætlum meðal ann-
ars að vera með lifandi tónlist, svona „swing-
band“ þar sem menn eru í smóking og í
Copacabana-stemningu. Við stefnum að því
að opna hann í september.“
Þá eru stöðugar sýningar í leikhúsinu og
koma þær víða að. „Við skiptum mjög hratt
um sýningar og þær eru hjá okkur í svona
tvær til sex vikur. Inn á milli erum við svo
með tónleika og ýmsa aðra atburði. Þetta er
svona blanda af útleigu og eigin uppsetn-
ingum,“ útskýrir Helgi og bætir því við að að-
sókn hafi almennt verið mjög góð. Næsta
stóra verkefni í leikhúsinu er uppsetning á
My Fair Lady og næsta vetur er svo stefnt
að uppsetningu á Rocky Horror.
En er þetta ekki harður bransi? „Leik-
húsrekstur er alltaf barátta og við erum að
setja stórt verkefni í gang þannig að vissu-
lega gefur á bátinn. En við sjáum prýðilegan
rekstrargrundvöll fyrir þessu,“ segir Helgi að
lokum.
Helgi syngur Fram-lagið
Upptekinn Helgi Björnsson er með mörg
járn í eldinum um þessar mundir.
Helgi Björnsson hefur í mörg horn að líta í stuttri heimsókn til Íslands
Stuttmyndin
Smáfuglar eftir
Rúnar Eyjólf
Rúnarsson hefur
verið tilnefnd til
Gullpálmans í
flokki stuttmynda
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í
sumar. Aðeins níu myndir voru
valdar til þátttöku í keppninni úr
hópi um það bil 4.800 mynda sem
bárust víðs vegar að úr heiminum.
Smáfuglar er 15 mínútna löng og er
byggð á sögu eftir Rúnar sjálfan.
Myndin var að mestu tekin á Kefla-
víkurflugvelli í ágúst á síðasta ári.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
mynd eftir Rúnar er tilnefnd til
stórra verðlauna því Síðasti bærinn
var tilnefnd til Óskarsverðlauna
sem besta stuttmyndin árið 2006.
Rúnar fór tómhentur heim að lok-
inni þeirri afhendingu, en spurning
hvað gerist í Cannes í sumar.
Rúnar tilnefndur til
Gullpálmans í Cannes
Aðstandendur kráarinnar Eng-
lish Pub í Austurstrætinu hafa
ákveðið að sýna stuðning sinn við
málstað vörubílstjóra í verki, og
ætla þeir því að bjóða bjór á sama
verði og bensín frá kl. 17 til 19 í
kvöld. Algengt verð á einum lítra af
bjór á öldurhúsum borgarinnar er í
kringum 1.400 krónur og því ljóst
að um nokkra búbót verður að
ræða fyrir bjórþyrsta borgarbúa.
Að sögn Arnars Þórs Gísla-
sonar, framkvæmdastjóra stað-
arins (sem sést hér á mynd ásamt
Einari Vilhjálmssyni), hafa vöru-
bílstjórar boðað komu sína. Nú er
bara spurning hvort þeir finni ein-
hver bílastæði í Austurstrætinu...
Bjór á verði bensíns
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
„SHOWROOM Reykjavík“ kallast sýning sem
Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir í Hafn-
arhúsinu á morgun og laugardag. Þar munu yf-
ir tuttugu íslenskir fatahönnuðir og framleiðslu-
fyrirtæki kynna hönnun sína en öruggt má telja
að íslensk fatahönnun hafi aldrei staðið með
jafn miklum blóma og um þessar mundir. Það er
Gunnar Hilmarsson, formaður Fatahönn-
unarfélags Íslands, í það minnsta sannfærður
um:
„Á síðustu fimm árum hefur íslensk fatahönn-
un vaxið mjög hratt og þar kemur tvennt til. Í
fyrsta lagi hefur íslenskum fyrirtækjum tekist
að koma hönnun sinni út fyrir landsteinana og
þar hafa þau aflað sér mikillar þekkingar á fag-
inu. Í öðru lagi hefur fatahönnunarbraut
Listaháskóla Íslands virkað sem vítamínsprauta
inn í íslenska hönnun og nú útskrifast á hverju
ári fatahönnuðir sem hafa bæði hugrekki og
áræði til að ná langt í faginu. Almenningur veit
hins vegar mjög lítið um allt það sem er í gangi
í íslenskri fatahönnun og þessi sýning ætti að
bæta úr því.“
Fjögurra til fimm milljarða velta
Hvað er einkennandi fyrir íslenska hönnuði?
„Það er kannski einmitt þetta hugrekki. Mér
finnst íslenskir hönnuðir hugrakkari en koll-
egar þeirra í útlöndum. Þeir eru ekki eins
mengaðir af fjárhagshlið tískuheimsins og ein-
staklingshyggjan er mjög áberandi. Það má eig-
inlega segja að við séum á þeim stað sem ná-
grannaþjóðir okkar voru á fyrir 10-15 árum. Í
Svíþjóð og Danmörku er fatahönnun orðin að
mikilvægum iðnaði. Og það er mín trú að eftir
10-15 ár verði íslensk fatahönnun orðin að mik-
ilvægri útflutningvöru,“ segir Gunnar og skýtur
á ársvelta íslenskrar fatahönnunar sé um fjórir
til fimm milljarðar.
Þverskurður íslenskrar hönnunar
Sést það á hönnuninni?
„Ég vil meina það. Hún er mjög óbeisluð.
Hins vegar þarf að taka það fram að á sýning-
unni á morgun verður alls kyns hönnun að
finna. Allt frá framsækinni hönnun til vandaðs
útivistarfatnaðar. Það má eiginlega segja að
þarna verði þverskurðurinn í íslenskri fata-
hönnun.“
Er eitthvað sem okkur vantar sárlega hér á
landi?
„Það sem okkur vantar er hefðin. Sköp-
unargleðin er fyrir hendi og krafturinn en
reynsla íslenskra fatahönnuða er ennþá til-
tölulega lítil – en hún kemur,“ segir Gunnar að
lokum, augljóslega bjartsýnn á framtíð íslenskr-
ar fatahönnunar.
Eins og áður sagði verður sýningin opnuð á
morgun í Hafnarhúsinu kl. 17 og stendur til 19.
Á laugardaginn verður hún opin frá kl. 10 til 17.
Sköpunargleði og kraftur
Þverskurður íslenskrar fatahönnunar sýndur í Hafnarhúsinu um helgina
Morgunblaðið/RAX
Vantar hefð Gunnar Hilmarsson, formaður Fatahönnunarfélags Íslands, segir íslenska fatahönnuði
búa yfir nægri sköpunargleði og krafti en hefðina vanti þó í fagið hér á landi.