Morgunblaðið - 24.04.2008, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 47
ÍSLANDSVINURINN Yoko Ono, ekkja Johns Lennon, og
synir hennar Sean Ono og Julian, og útgáfufyrirtækið EMI
Blackwood Music Inc, hafa lögsótt framleiðendur heimild-
armyndarinnar Expelled: No Intelligence Allowed, fyrir
að nota lag Lennons, „Imagine“, í leyfisleysi í myndinni.
Lennon hljóðritaði lagið árið 1971 og má til gamans geta
að tímaritið Rolling Stone setti það í þriðja sæti yfir bestu
lög allra tíma, í úttekt sinni fyrir fjórum árum.
Sækjendur málsins vilja að bann verði sett á notkun
lagsins í myndinni og fara auk þess fram á skaðabætur. Í
heimildarmyndinni er fjallað um eldfimt efni, kennslu í
grunnskólum í því að Guð hafi skapað allt líf á jörðinni í
stað þess að það hafi þróast eins og kenning Charles Darw-
ins lýsir.
Framleiðendur og dreifendur myndarinnar eru fyr-
irtækin Premise Media Corporation, C&S Production, LP
og Rocky Mountain Pictures. John og Yoko Í New York árið 1980.
„Imagine“ notað
í leyfisleysi
LEIKARAHJÓNIN Tom Cruise og
Katie Holmes eru sögð hafa eytt
litlum 100.000 dollurum í tveggja
ára afmælisveislu dóttur sinnar
Suri þann 18. apríl sl. Samkvæmt
gengi íslensku krónunnar þegar
þetta var skrifað, í gærkvöldi, gerir
það um 7,4 milljónir króna.
Vinum og ættingjum var boðið til
veislunnar sem haldin var á heimili
Cruise-fjölskyldunnar í Hollywood-
hæðum og munu blómaskreyting-
arnar einar hafa kostað 17.000 doll-
ara. Þema teitinnar var „fiðrildi“
enda fiðrildi í miklu uppáhaldi hjá
þeirri stuttu. 24 gestir voru í veisl-
unni, þar af tvö ættleidd börn
Cruise úr fyrra hjónabandi, Isa-
bella sem er 15 ára og Connor sem
er 13 ára.
Um kvöldið var svo stjörnum
boðið til veislu, David og Victoriu
Beckham, Will Smith og Jödu
Pinkett Smith og Evu Longoriu
Parker. Tímaritið In Touch Weekly
hefur það eftir ónefndum heimild-
armanni að teitin hafi verið vel
heppnuð og Suri í virkilega góðu
skapi enda nóg af blöðrum til að
leika sér með.
Litla fjölskyldan Cruise, Holmes og
Suri á forsíðu Vanity Fair árið 2006.
7,4 milljóna
barnaafmæli
BRESKA söngkonan Amy Wine-
house var kosin hin fullkomna
kvenhetja í könnun vefjarins Sky-
.com og breski söngvarinn Pete Do-
herty lenti í öðru sæti í sömu könn-
un yfir hina fullkomnu hetju.
Winehouse og Doherty hafa bæði
átt við eiturlyfjafíkn að stríða lengi
vel, Winehouse hefur nokkrum
sinnum lagt hótelherbergi í rúst og
fór nýlega í meðferð við fíkninni en
Doherty situr í fangelsi fyrir að
brjóta skilorð. Þetta þykja því held-
ur óvenjulegar hetjur og óljóst í
hverju hetjuskapurinn felst.
Winehouse skaut móður Teresu,
Díönu prinsessu og Florence Nigh-
tingale ref fyrir rass í könnuninni
en í henni tóku þátt Bretar undir 25
ára aldri. Hin fullkomna hetja í
flokki karla var er knattspyrnu-
maðurinn Steven Gerrard og þá
sjálfsagt fyrir hetjudáðir á vell-
inum.
Breski sálfræðingurinn Donna
Dawson segir um þessa könnun að
það sem virðist sameina konurnar á
listanum sé ákveðið varnarleysi,
þær hafi átt við mikið mótlæti að
glíma.
Hetjur karla séu aftur á móti
sterkari, áhrifameiri og þekktar af
hæfileikum fremur en persónu-
gerð. Menn dáist sum sé að karl-
hetjum en finni til samkenndar með
kvenhetjum.
Amy Winehouse Pete Doherty
Hetjurnar
Winehouse
og Doherty