Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Benidorm
4. eða 11. júní
frá kr. 44.990
Aðeins örfáar íbúðir í boði
Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Benidorm 4. eða 11. júní. Njóttu lífsins
á þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað. Bjóðum örfáar íbúðir á
Viña del Mar, einum af okkar vinsælustu gististöðum, með frábæra
staðsetningu í hjarta Benidorm. Skelltu þér til Benidorm og njóttu lífsins á
einum af vinsælustu gististöðum Heimsferða.
M
bl
1
00
32
93
Verð kr. 54.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Viña del
Mar í viku. Aukavika kr 15.000.
Verð kr. 44.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára í íbúð á Viña del Mar í
viku. Aukavika kr. 15.000.
Frábært sértilboð - Viña del Mar
Útsölustaðir eru í
verslunum Byko
og verslun Rangá.
ÉG verð víst að opinbera það að
þegar ég skoðaði málverk Kristins
Más Pálmasonar í Anima galleríi,
eftir að hafa lesið innihaldslýsingu í
meðfylgjandi einblöðungi, sá ég
fram á tvo kosti. Annars vegar að
viðurkenna skilningsleysi mitt í
umfjöllun eða að fara upp á Mogga
og segja starfi mínu lausu sökum
vanhæfni. Ég gat með engu móti
áttað mig á tengingu verkanna við
„kerfi tákna og ímynda sem inni-
halda vísanir í tímann, nýald-
arhyggju, kenningar C.G. Jung um
erkitýpur, trúarbrögð, pólitík, eðli
tælandi verðmæta og yfirskilvitið“,
eins og segir í einblöðungnum. Ég
sá bara leik í einhverskonar semi-
abstrakt drullumalli með óhreinum
litum og formum sem eru ýmist
hlaðin til hliðar við eða yfir hvert
annað og með tilvísanir í margt
kunnuglegt innan abstrakt-
málverksins, allt frá verkum
Adolphs Gottliebs til Olavs Chri-
stophers Jenssens.
En uppgjöf fylgir oft einhver
vakning og á útleið rann upp fyrir
mér ljós að innihaldslýsingin væri í
raun sama drullumallið, offlæði af
skipulögðu kaosi. Lifnaði sýningin
þá við í skynrænni upplifun sem
var, eins og athöfnin, í symmetr-
ískri byggingu og skopleg á köflum.
Alls eru þetta fjögur málverk og
lengst gengur listamaðurinn í of-
hleðslu á verkinu „Miðill“, sem
jafnframt er skemmtilegasta verkið
og líka það drullugasta.
Offlæði af skipulögðu kaosi
MYNDLIST
Anima gallerí
Opið fimmtudaga til laugardaga 13-17.
Sýningu lýkur 17. maí.
Aðgangur ókeypis.
Kristinn Már Pálmason
bbbnn
Morgunblaðið/
Drullumall Óhreinir litir og form hlaðin til hliðar við eða yfir hvert annað.
Jón B. K. Ransu
LEIR er efniviður sem við erum van-
ari að sjá í listiðnaði og nytjalist en í
samtímamyndlist. Þegar Greyson
Perry fékk Turnerverðlaunin hér um
árið þá skók það listheiminn að verk-
in hans voru myndskreyttir ker-
amikvasar en slíkir munir áttu að
margra dómi ekki heima í myndlist
sem væri tekin alvarlega. Reyndar
eru mörkin þarna á milli ákaflega
óljós og innan myndlistar eru margar
deildir ef svo má að orði komast.
Jóna Guðvarðardóttir hefur búið
undanfarin ár í Ungverjalandi þar
sem leirskúlptúrar eru algengt list-
form í listaháskólum og ekki óalgengt
að sjá þar áhugaverðar útfærslur í
því efni. Skúlptúrar Jónu í Hafn-
arborg eru gerðir í sérsmíðuðum við-
arbrennsluofnum sem gefa verk-
unum sérstaka lífræna áferð og
djúpan fljótandi lit. Formin minna á
ferköntuð brauð en verkin eru hol að
innan og gerð hafa verið göt í yfir-
borðið eins og til að varna því að þau
muni springa. Líkindi verkanna við
bakstur og brauðmeti gefa þeim
skemmtilegt yfirbragð og koma af
stað ljóðrænum hugrenninga-
tengslum um ýmiskonar táknmið og
táknmyndir.
Skúlptúrarnir taka sig vel út í sýn-
ingarsalnum og ganga jafnvel upp
hvort heldur sem er á vegg eða stöpli.
Stílbrögðin ná að marka ákveðna sér-
stöðu og bera ótvíræð höfund-
areinkenni. Verkin eru öll mjög keim-
lík og virka sem ein heild, eitt fyrir öll
og öll fyrir eitt. Hið ríka litaspil verk-
anna finnst mér fullyfirdrifið og vinna
að einhverju leyti gegn áhugaverðu
formi þeirra sem gaman verður að sjá
hvernig þróast í framtíðinni.
Ljóða-
bakstur
MYNDLIST
Hafnarborg
Sýningin stendur til 25. maí. Opið alla
daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
á fimmtudögum er opið til kl. 21.
Aðgangur ókeypis.
Jóna Guðvarðardóttir – leirskúlptúrar
bbbnn
Morgunblaðið/Golli
Litaspil Stílbrögðin marka sérstöðu, segir Þóra.
Þóra Þórisdóttir
BÓK Ármanns Jakobssonar, Fréttir
frá mínu landi, inniheldur úrval úr
bloggfærslum hans frá ágúst 2005 til
ágúst 2007. Þegar þær birtast á bók
er spurning hvort þær verði að ein-
hverju öðru en bloggfærslum. Skiptir
miðillinn einhverju máli um eðli text-
ans? Svarið er nei. Skýringin er sú að
Ármann skrifar bóklegt blogg. Hann
hefur ekki notað miðilinn til að brjóta
gegn hefð prentmálsins, hvorki í
formi né efni. Á bók orka textar hans
því líka á mann sem bókmenntir en
ekki blogg.
Það er hins vegar spurning hvort
það eigi að kalla textana ljóð. Ármann
gerir það ekki sjálfur. Undirtitill bók-
arinnar er Óspakmæli og örsögur. Í
kynningu fjölmiðla hefur hins vegar
verið talað um ljóðabók. Sennilega
kemst textinn sem birtur er á kápu
bókarinnar næst því að vera ljóð:
Óreiðan
Ég hlýt að búa á réttum stað
því að í martröðum mínum
bý ég alltaf annarstaðar.
Sami texti er birtur innan í bók-
inni, en þar er ekki þessi línuskipting.
Ármann er skorinorður. Textarnir
eru margir í eins konar tilgátuformi,
sumir eru leikir að orðum eða skiln-
ingi, en oftast er um að ræða eins
konar örsögur eða húmorískar at-
hugasemdir eins og þessa:
20 ár af buldri og masi
Það eru víst komin 20 ár af „útvarpsfrelsi“. Hef-
ur þessi tilraun ekki staðið alveg nógu lengi?
Eða þessa:
Tolstoj
Engir tveir ísskápar eru hávaðasamir á ná-
kvæmlega sama hátt.
Að forminu til mætti líkja bók Ár-
manns við Cool Memories eftir
franska menningarrýnandann Jean
Baudrillard. Sjónarhorn Ármanns er
hins vegar ekki jafn beitt og Baudrill-
ards. Að afloknum lestri Frétta frá
mínu landi veltir maður því fyrir sér
hvort Ármanni liggi eitthvað sérstakt
á hjarta. Birta textar hans ákveðna
sýn á þetta land hans? Mér þykir erf-
itt að koma auga á það.
Samanburðurinn við Cool Memo-
ries er ef til vill ósanngjarn vegna
þess að textabrot Baudrillards hafa
stuðning af öðrum verkum hans sem
eru einmitt greining á menningar-
ástandi og hugmyndafræði. En ég
sakna að minnsta kosti undiröldu í
bók Ármanns.
Bóklegt blogg
BÆKUR
Örsögur
Eftir Ármann Jakobsson;
Nýhil 2008, Reykjavík, 93 s.
Fréttir frá mínu landi:
Óspakmæli og örsögur
Þröstur Helgason
BLÁTT og bleikt er yfirskrift sýningar Helgu Sigurðardóttur sem opnuð
verður í dag í Saltfisksetri Íslands í Grindavík. Sýningin stendur til 26. maí.
„Heiti sýningarinnar vísar í þá liti sem heilla mig mest og eru viðfangsefnin
abstrakt, en undirliggjandi er hin magnþrungna íslenska náttúra, sem gefur
innblástur og kraft og má þar nefna vatn í öllum sínum myndum. Jöklar, foss-
ar, íshellar, jökulsprungur og sjórinn eru miklir áhrifavaldar,“ segir listakon-
an. Nýlega birtist 10 blaðsíðna umsögn um Helgu í hinu virta listatímariti Int-
ernational Artist Magazine (www.internationalartist.com).
Jöklar í Saltfisksetrinu