Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 8

Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 8
8 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T N‡r sjúkrafljálfari Steffan Christensen sjúkrafljálfari B.Sc. kemur aftur til starfa. Það þýðir ekkert að tuða um þetta kona, það hafa allir sinn djöful að draga. VEÐUR Ætli ríkisstjórn Íslands sé búin aðlofa Bandaríkjamönnum því, að Íslendingar verði til langrar fram- búðar í Afganistan á vegum Atlants- hafsbandalagsins?     Um þetta sagði Condoleezza Rice,utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, í heimsókn sinni hér í fyrra- dag:     Við höfum rættum Afganist- an og mikilvægt framlag Íslend- inga þar. Ég met mikils þá ákvörð- un ykkar að end- urskoða stöðugt framlag ykkar þar í landi. Atlantshafsbandalagið hefur gert átakið í Afganistan einn af helztu þáttunum í þeirri stefnu sinni að víkka út varnarsvæði sitt. Ákveðið var á fundi NATÓ í Búkarest að sinna málefnum Afganistans til langs tíma. Afgönsku þjóðinni var heitið að þar yrði byggt upp traust og gott lýð- ræðisríki. Ríki, sem aldrei framar yrði bækistöð hryðjuverkamanna.“     Auðvitað er það diplómatískt orða-gjálfur að tala um „mikilvægt framlag Íslendinga“ í Afganistan.     Og svona í framhjáhlaupi:     Afganistan hefur orðið hreiðurfíkniefnaframleiðslu eftir að Bandaríkjamenn tóku að sér að vernda landið.     Hvað ætlar Condi Rice að gera?     En. Hvaða langtímaskuldbindingarhefur ríkisstjórn tekið á sig varð- andi Afganistan?     Þjóðin á kröfu á að Ingibjörg Sól-rún upplýsi það. STAKSTEINAR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Skuldbinding til langs tíma? SIGMUND                            ! " #$    %&'  ( )               !    * (! +  ,- . / 0     + -              !    $ $  %$ %        12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  ( #  # #     $$           !   :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? %"  %" "%    &%       #%                               *$BCD  $$                  !"#  $   %&  '  (# )   *  *! $$ B *!   ' () $  $( $    !* <2  <!  <2  <!  <2  ') $+  ,$-.   C2E                     F8    87   * !          +  (   6  2  &!  !   !  *     (#    $ ,  %&  -  (#     B       (#     )      .%&  -  (#  )*  /0 $ $11  $! $2  !$+  $3 %$  $ %$#% Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Heidi Strand | 31. maí 2008 Borg sem aldrei sefur Hér sjáum við aldrei stjörnubjartan himin vegna rafljósa í skamm- deginu. Á vetrartíma munar kannski ekki um að bæta nokkrum ljósum við í form rafmagnsstjarna og þá væri það fullkomið. Þegar öll götuljós voru slökkt um ár- ið, til þess að leyfa okkur að sjá myrkrið og stjörnuhimininn, var eng- inn munur hér hjá okkur. Á öllum hús- um í kring loguðu sterk útiljós. Meira: heidistrand.blog.is Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir | 31. maí Hjálp eftir skjálfta Ég hef mikið spáð í það hvort almenningur geti gert eitthvað til að létta fólkinu sem missti nán- ast allt sitt? Ég er viss um að margir eru að hugsa það sama. Ís- lendingar eiga margir stútfulla skápa af allskyns dóti sem þeir ekki nota – gömul sjónvörp, vídeótæki, leikföng, tölvur, búsáhöld o.s.frv. Gæti efalaust komið mörgum til góða á meðan beðið er eftir því að tryggingafélögin meti tjónið. Meira: bryndisisfold.blog.is Hallur Magnússon | 30. maí 2008 Yfirgangur, hroki og tvískinnungur! Condoleezza Rice, ut- anríkisráðherra Banda- ríkjanna, var samkvæm stefnu bandarískra stjórnvalda undanfar- inna ára sem byggst hefur á yfirgangi, hroka og tvískinnungi með viðbrögðum sín- um við löngu tímabæra þingsályktun- artilögu Alþingis þar sem ómann- úðleg meðferð á föngum í búðum Bandaríkjamanna við Guantánamo- flóa á Kúbu er fordæmd og Banda- ríkjamenn hvattir til að loka búð- unum. Þessi yfirgangs-, hroka- og tví- skinnungsstefna Bandaríkjastjórnar hefur verið ógnun við lýðræði og mannréttindi víða um heim, á sama tíma og Bandaríkjamenn hreykja sér af lýðræði og mannréttindum. Rík- isstjórn þjóðar sem með réttu ÆTTI að vera raunverulegur málsvari lýð- ræðis og mannréttinda! Það er vonandi fyrir heimsbyggð- inna að Bandaríkjamenn hristi af sér slyðruorðið og kjósi forseta og rík- isstjórn út í hafsauga. Má ég þá frek- ar sjá blökkumanninn Barak Obama eða konuna Hillary Rodham Clinton en blökkumanninn og konuna Condo- leezzu Rice við stjórnvölinn. Það er ógnvekjandi að hugsa til þess að ef John McCain nær kjöri sem forseti þá gæti Rice orðið varaforseti eða að minnsta kosti utanríkisráðherra! Meira: hallurmagg.blog.is Svavar Alfreð Jónsson | 30. maí 2008 Talað og hlustað í kross Í samskiptavísindum tala menn um „sel- eksjón“. Þá er verið að tala um það háttalag mannanna að þegar þeir heyra eitthvað, heyra þeir ekki nema sumt. Það er nú ekkert smáræði af hljóð- um sem til eyrna okkar æðir á hverj- um einasta degi. Við yrðum snaróð ef við hlustuðum á þau ósköp öll. Þess vegna veljum við úr það sem við heyrum, meðvitað en aðallega þó ómeðvitað. Við heyrum það sem við viljum heyra og helst það sem samræmist sannfæringu okkar og skoðunum. Hitt er of mikið vesen. Við forðumst að heyra það sem veldur okkur innri spennu. Tengihópar okkar, fjölskylda, starfs- félagar og vinir hafa áhrif á það sem við heyrum. Síðast en ekki síst hefur sú mynd sem við gerum okkur af viðmælanda okkar áhrif á það sem við heyrum hann segja. Næst þegar þú átt í samskiptum við einhvern er gott að minnast þess að þú heyrir ekki nema brot af því sem hann segir og misskilur sennilega stóran hluta þess sem þú þó heyrir. Og það sama á við um viðmælanda þinn. Meira: svavaralfred.blog.is BLOG.IS Bjarni Harðarson | 30. maí 2008 Súrrealísk heimkoma Áður og fyrr var brotin mjólkurkanna eða fæl- inn klár gjarnan því að kenna að fylgja ein- hvers væri svona skæð. Viðkomandi sótti svona illa að. Brást þá ekki að sá sami kom í hlað rétt síðar. Þessi hugmynd sótti svo að mér nú í kvöld þar sem ég er að tygja mig til Keflavíkurfarar að sækja Asíufarann minn sem hefur nú lagt að baki land- leiðina frá Delhí til Beirút og flaug þaðan í gær rétt áður en stórskjálft- inn reið yfir hér á Suðurlandi. Þetta skyldi þó ekki vera einhver gamall persakóngur sem fylgir stráknum … En dagurinn og reyndar gærkvöldið lika hafa farið í tiltektir og þó stutt komið! Bæði hér heima og í bókabúð- inni er allt á tjá og tundri. Flestar hill- ur losnuðu frá veggjum þrátt fyrir að vera þar vinklaðar fastar. Sumar skrúfunar þrykktust úr plötunum, aðr- ar kubbuðust í sundur. Veit ekki nema það hafi verið betra heldur en ef þær hefðu hangið á veggjunum. Það sem þar er of fast getur farið illa með eins og ég fékk að reyna á ofn- unum hér á Sólbakka sem köstuðust til en héngu þó við lagnirnar á lyginni einni en höfðu þá áður náð að brjóta sprungur í veggina. Örugglega alvar- legasta tjónið hér á bæ. Verst var ástandið eiginlega í forn- bókabúðinni þar sem bækurnar spýtt- ust út á gólfið, – já og svo í eldhúsinu þar sem glerbrotatínslan hefur verið með ólíkindum. Greinilegt að bylgjan hefur komið með harðara lagi niður á þessum tveimur húsum. Meira: bjarnihardar.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.