Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Síð-degis á fimmtu-dag varð
Suður-lands-skjálfti skammt
frá Ingólfs-fjalli sem mældist
á bilinu 6,1 til 6,2 stig.
Skjálftinn var ívið minni en
skjálftarnir sem urðu árið
2000. Hann tilheyri þó sömu
skjálfta-hrinu og upp-tökin
voru á sama svæði, en
vestar. Nokkrir vægari
eftir-skjálftar urðu.
Tals-vert tjón varð á
Selfossi, á Eyrarbakka, í
Hveragerði, í Þorlákshöfn og í
sumar-bústöðum. All-margir
hlutu smá-skrámur og mar
þegar innan-stokks-munir og
hlutir féllu á gólfið í
skjálftanum, en engin
stór-slys urðu.
Fólk hélt sig lengi
utan-dyra, og voru
hjálpar-stöðvar opnaðar víða,
en um átta leytið fékk fólk að
halda heim og dvelja þar um
nóttina.
Yfir 300
björgunar-sveitarmenn
Slysavarna-félagsins
Lands-bjargar komu til starfa
á jarð-skjálfta-svæðinu. Flutt
hafa verið tjöld og
greininga-stöðvar á svæðið.
Öflugur skjálfti í Árnes-sýslu
Morgunblaðið/Kristinn
Kona í Hveragerði virðir fyrir sér skemmdirnar á heimili sínu.
Síðustu 12
mánuði hefur
vísi-tala
neyslu-verðs
hækkað um
12,3%.
Verð-bólga
mæld á 12
mánaða
tíma-bili hefur
ekki verið jafn
mikil frá því í ágúst 1990,
eða í tæp 18 ár, er hún
mældist 14,2%.
Gengis-sig krónunnar og
er-lendar verð-hækkanir
halda áfram að skila sér út í
verð-lagið.
Skuldir fólks hafa hækkað
mikið, og er fjöl-margt ungt
fólk veru-lega illa statt
fjárhags-lega.
Ásta S. Helgadóttir,
forstöðu-maður hjá
Ráðgjafar-stofu um fjár-mál
heimilanna, segir að staða
margra hafi versnað eftir að
bankarnir stöðvuðu út-lán í
vetur.
Verð-bólgan
ekki hærri
í 18 ár
Frönsk mynd fékk
Gull-pálmann
Franska kvik-myndin Entre
les murs, eða
Skóla-bekkurinn, fékk
gull-pálmann á
kvikmynda-hátíðinni í
Cannes, sem lauk um
síðustu helgi. Þetta er í
fyrsta skipti í 21 ár sem
aðal-verðlaun há-tíðarinnar
fara til Frakk-lands. Laurent
Cantet leik-stýrði myndinni
sem fjallar um líf í skóla og
byggist á skáld-sögu
Francois Begaudeau um
reynslu sína af
kennslu-starfi. Í myndinni
leikur Begaudeau sjálfan
sig, aðrir leik-endur eru
raunveru-legir nem-endur í
mennta-skóla. Fylgst er með
drama-tískum at-burðum á
einu skóla-ári. „Þetta er
ótrú-leg, ótrú-leg kvik-mynd,“
sagði Sean Penn, for-maður
dóm-nefndarinnar. Sagði
Penn að dóm-nefndin hefði
verið sam-mála um valið.
Viggo heldur
ljósmynda-sýningu
Dansk-banda-ríski
lista-maðurinn Viggo
Mortensen opnaði sýn-ingu í
Ljósmynda-safni Reykjavíkur
í gær. Viggo er þekktastur
fyrir kvikmynda-leik, en hann
lék Aragorn, kon-ung manna,
í Hringa-dróttins-sögu, og var
til-nefndur til
Óskars-verðlauna fyrir
Eastern Promises.
Menning
Á mánu-daginn kom fram
laga-frumvarp á Alþingi sem
heim-ilar Árna M. Mathiesen
fjármála-ráðherra, fyrir hönd
ríkis-stjórnarinnar,
að taka allt að 500
millj-arða króna að láni og
endur-lána Seðla-bankanum
til þess að styrkja
gjaldeyris-forðann. Heim-ildin
gildir út þetta ár. Fram kemur
að þessi lántöku-heimild
kemur til við-bótar þeim
lántöku-heimildum sem fyrir
eru í fjár-lögum ársins í ár.
Sam-staða er um
frum-varpið en
stjórnar-andstöðu-flokkarnir
átöldu stjórn-völd þó fyrir
hag-stjórnar-mistök og
seina-gang í við-brögðum við
efnahags-vandanum.
Heimila 500
milljarða lán
Mikil flóða-hætta er nú á skjálfta-svæðunum í
Sichuan-héraði í Kína. Á sunnudaginn reið yfir
öflugasti eftir-skjálfti sem mælst hefur eftir
stóra skjálftann fyrir 2 vikum. Skjálftinn
mældist 5,8 á Richter-kvarða.
Borgin Guangyuan, sem er norður af
borginni Chengdu, varð verst úti í
eftir-skjálftanum. Þar hrundu um 71.300 hús
og talið er að um 200.000 geti hrunið til
við-bótar. Minnst 2 menn létust.
Yfir-völd segja að alla vega 69 stíflur geti
gefið sig, og jafnvel hundrað stíflur í við-bót.
Til að draga úr hættunni sem stafar af þeim,
hefur vatns-magn í fjölda lóna verið minnkað.
Aur-skriður úr fyrri skjálftum hafa stíflað
árfar-vegi víða, þannig að 35 ný vötn hafa
myndast og sett 700.000 manns í hættu
vegna hugsan-legra flóða. Í Tangjiashan-vatni
í Beichuan-héraði, er verið að sprengja far-veg
og stjórna þannig flæði úr vatninu, en þar er
hættan einna mest.
Flóða-hætta
eykst í Kína
Reuters
Maður situr á dýnu í rústum hússins síns.
Bob Dylan, ein-hver
áhrifa-mesti lista-maður 20.
aldarinnar, hélt tón-leika í
Laugardals-höll á
mánu-daginn. Hann flutti
mest lög af síðustu plötu
sinni, Modern Times.
Með honum var fín sveit,
en sjálfur lék hann á
hljóm-borð, og blés einnig
stöku sinnum í
munn-hörpuna sína.
Bob Dylan á Íslandi
Á miðviku-daginn sigraði
íslenska kvenna-landsliðið
Serbíu 4:0 í undan-keppni
Evrópu-móts lands-liða. Fór
leikurinn fram í 37 stiga hita í
borginni Kraqujevac.
Margrét Lára Viðarsdóttir
skoraði 2 mörk, Sara Björk
Gunnarsdóttir skoraði eitt og
Katrín Ómarsdóttir skoraði
sitt fyrsta landsliðs-mark 3
mínútum eftir að hún kom inn
á sem vara-maður.
Ísland er í 2. sæti riðilsins
með 12 stig eftir 5 leiki.
Frakkar eru efstir með 18
stig eftir 7 leiki.
Ísland á 3 leiki eftir og með
sigri í næstu 2 heima-leikjum
í júní er liðið komið í þá stöðu
að leika úrslita-leik um sæti á
EM í Finnlandi á næsta ári.
Sá leikur verður gegn
Frökkum á úti-velli.
Ísland
sigraði
Serbíu
Sara Björk
Netfang: auefni@mbl.is