Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Þórarinn Kópsson, löggiltur fasteignasali Skipholt 15, 105 Reykjavík thingholt@thingholt.is Sími 590 9500 www.thingholt . is Íbúðin er 3-4 herb. 111,4 fm., sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu, allt að- gengi til fyrirmyndar. Á jarðhæð er stór salur með eldhúsaðstöðu, tómstundarher- bergi og setustofur. LÝSING: Anddyri með fataskáp, Sjónvarpsherbergi og innaf því gott Svefnherbergi með stórum fataskáp. Baðherbergið er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa, innréttingu með góðu skápaplássi. Herbergi með fataskáp, Eldhús með viðarinnréttingu, innaf eldhúsi er Þvottahús / Geymsla. Borðstofa / Stofa, útgengi á stórar yfirbyggðar suður svalir, þaðan er útgengi á opnar svalir. Gólfefni á íbúð er parket nema á baðherbergi og geymslu eru flísar. Verð 50,7 mkr. VERIÐ VELKOMIN Í OPIÐ HÚS Íbúð fyrir 55 ára og eldri OPIÐ HÚS SUNNUD. 1. JÚNÍ KL.16-17 MIÐLEITI 7, REYKJAVÍK, ÍBÚÐ 202 Skrifstofu-/ verslunar-/ lagerhúsnæði við Skipholt 15. Um er að ræða 301,3 m2 verslunar- / skrifstofuhúsnæði á 1. hæð með góðum gluggum,ásamt 160 m2 lager í kjallara. Húsið var endurbyggt fyrir nokkrum árum og er því í mjög góðu ástandi. Skiptist eignar: Versluninin, 86.7 m2. með góðum gluggum og parket á gólfi, Skrifstofurými, 214,6 m2. með sér inngangi. (ekki fullinnréttað). Lager- rými í kjallara með innkeyrsluhurð, 160 m2. Frekari upplýsingar á skrifstofu Þingholts. ATVINNUHÚSNÆÐI SKRIFSTOFUR - VERSLUN - LAGER SKIPHOLT 15, REYKJAVÍK Ingvi Rúnar, sölufulltrúi 896 0421 ingvi@thingholt.is Þórarinn Kópsson, lögg. fasteinarsali Svanur Jónsson, sölufulltrúi 692 2507 svanur@thingholt.is FASTEIGNAMI‹STÖ‹IN Stofnsett 1958 jardir.is 550 3000 Magnús Leópoldsson, lögg. fasteignasali Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, Ásmundur Skeggjason, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is Glæsilegt einbýli á einni hæð á einstakri sjávarlóð í Kópavogi. Húsið er alls 216,7 fm m/innb. bíl- skúr og skiptist m.a. í 4 svefnherb. auk fataherb., rúmgott eldhús með fallegri, upprunalegri inn- réttingu, borðstofu með rennihurð út í vel gróinn suður garð og stóra og mjög bjarta stofu með glæsilegu sjávarútsýni. Innb. bílskúr með gryfju. Í kjallara er óskráð rými sem býður upp á ýmsa mögueika, auk bátaskýlis. Vel frágengin lóð, hellulögð bílastæði og verandir með hitalögn. Möguleiki á yfirtöku á hagstæðu lífeyrissj.láni. Makaskipti koma til greina. Verð 89 millj. Húsið er til sýnis í dag á milli kl. 14 og 15. Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir á Höfða í síma 824-1965. Sunnubraut 43 - Sjávarlóð Opið hús í dag frá kl. 14 - 15 Til leigu - Nýlendugata Til leigu spennandi húsnæði sem hentar undir margskonar starfsemi. Húsnæðið skiptist í um 300 fm á 1. og 2. hæð, um 160 fm á 3. hæð og um 150 á 4. hæð. Mikil lofthæð. Leigist í einu lagi eða hlutum. Langtímaleiga. Laust til afhendingar strax. ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17 Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. FASTEIGNA- MARKAÐURINN Hljóðalind 2 – Kópavogi Opið hús frá kl. 14-15 Glæsilegt 144 fm endaraðhús með 23,6 fm innb. bílskúr á þessum eftirsótta stað. Eignin er innréttuð á vandaðan og smekklegan hátt og eru allar innréttingar sérsmíðaðar úr kir- suberjaviði. Þrjú rúmgóð herbergi, útgangur á afgirta og skjólgóða verönd úr stofum og stórt flísalagt baðherbergi, bæði með baðkari og sturtuklefa. Innkeyrsla og stéttar framan við hús úr Bomanite. Stutt í skóla, sundlaug og þjónustu. Verð 50,0 millj. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-15. VERIÐ VELKOMIN. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505 • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17 Netfang: fastmark@fastmark.is • Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali • Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. SENNILEGA er Menntaskólinn á Akureyri sá skóli sem nýtur mestr- ar tryggðar fyrrverandi nemenda sinna. Ekki bara vegna þess að hann var helsti skólinn utan Reykjavík- ur á árunum 1940-1980 og jafnvel lengur, held- ur vegna þess að hann hefur síðan verið allra skóla duglegastur við að rækta stúdentaarf- inn, í formi Æviskráa MA-stúdenta og ann- arra bókaraða er tengj- ast kennurum og sögu skólans; og með árlegu samkomuhaldi fyrir gamla stúdenta. Því þykir mér vel við hæfi ef hann gerir sérstaklega í því að slá skjald- borg um skáldin sem hafa komið af þeim bæ. Ætti það að vera því brýnna verk og ljúfara vegna þess hvað þau virðast í raun vera fá. Af ljóðskáldum kann ég einkum að nefna Einar Braga, Þóru Jóns- dóttur, undirritaðan, og Jónas Þor- bjarnarson. Einnig Jón frá Ljár- skógum, Hjört Pálsson og Hrafn A. Harðarson. Af öðrum skáldritahöfundum veit ég um Helga Hálfdanarson, Valgarð Egilsson, Steinunni Jóhannesdóttur, Kristján Jóhann Jónsson, Önnu Dóru Antonsdóttur og Kristján R. Ólafsson. Nefna má einnig marga greina- höfunda, fræðiritahöfunda; og raun- vísindamenn og stjórnmálamenn er hafa skrifað mikið; og einnig fleiri skáld; en um það vísa ég lesendum beint til hinna frábærlega vönduðu Æviskráa MA-stúdenta. En hvernig er ann- ars að vera MA- stúdent? Ég get svar- að þessu persónulega með því að rekja að hvaða leyti ég virðist nú sjálfur dæmigerð- ur; eftir á að hyggja; er nýjasta bindi Ævi- skránna er skoðað; en þar er að finna minn útskriftarárgang, 1974. Ég fór þangað af því faðir minn, Baldur Líndal, efnaverkfræðingur, hafði verið þar (stúd. 1938), enda var hann frá Norðurlandi. Ég kom hins- vegar frá höfuðborgarsvæðinu. Að auki skar ég mig úr fyrir að hafa báða foreldra háskólamenntaða; sem var enn óalgengara þá en það er nú; og þar að auki fyrir móður sem var frá útlöndum. Einnig höfðu fáir jafn frægt ættarnafn; þótt ættarnöfn séu mörg meðal MA-stúdenta. Ég gerðist brátt virkur greinahöf- undur í skólablöðunum; enda móðir mín, Amalía Líndal, blaðamaður. Þegar ég útskrifaðist var stúd- entspróf fjórum sinnum óalgengara en nú er, eða um tíu prósent af fæð- ingarárgangi. Maður var því dálítið upp með sér af áfanganum. Að loknu stúdentsprófi fór ég til útlanda í há- skólanám. Það var ekki óalgengt, en þó óalgengara að menn næmu þar óhagnýt fræði á borð við mannfræði. Að loknu sex ára námi í því fagi, sem þá taldist lengra nám að loknu stúd- entsprófi en í meðallagi, kom ég heim og fór að kenna. Brátt tók ég þó að velja mér störf eftir því sem hentaði lífsstíl einhleyps rithöf- undar, og hef ég framfleytt mér lengst af síðan með slíkum fé- lagslegum störfum í skólum og sjúkrastofnunum. Einnig bætti ég við mig uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda, frá Háskóla Ís- lands, til að auka jarðsamband mitt við innlenda háskólastigið og við at- vinnulífið. Fyrir þetta sker ég mig mjög úr í Æviskrám MA-stúdenta; ég hef einkum verið í því sem kallað er dæmigerð kvennastörf. Eftir að eiga að baki tíu ljóðabæk- ur og á þriðja hundrað ritsmíða í dag- blöðum, virðist ég einnig vera einn af fáum MA-stúdentum míns tíma sem eru þekktir út fyrir kunningjahópinn. Að auki hef ég verið leiðandi í ýmiss konar menningarstarfsemi. Ég virð- ist vera sérlega hreinræktað dæmi um menningarmann. Líkt og flestir kunningjar mínir úr menningarlífinu sem ég þekki frá MA, bý ég og starfa í Reykjavík. Ég telst og til þess stóra minnihluta sem er „ógiftur og barnlaus“. Ég hrökk við þegar ég sá af ljós- myndunum hversu margir af gömlu skólafélögum mínum voru orðnir gráhærðir og hrukkóttir. Og gamlar vinkonur virtust helst vera komnar af öllum órómantískum aldurs- skeiðum. Nú erum við enda öll kom- in á sextugsaldurinn, og sjötugsald- urinn blasir oss við. Okkar kynslóð virðist vera nánast hætt að koma á óvart, og kynslóð barna okkar gerist líkleg til að stela senunni frá okkur. Þó er nokkur huggun í því, þegar Æviskrár M.A.-stúdenta 1927–1980 eru skoðaðar, að það virðist sem frægu einstaklingunum fækki eftir því sem nær dregur. Það gefur vonir um að okkar eldri kynslóðir, með sína þroskaðri einstaklingshyggju, reynist minnisstæðari en þær hvers- dagslegri kynslóðir sem nú eru að koma fram. MA-skáldin Tryggvi V. Líndal skrifar um sjálfan sig og útskriftarhóp sinn frá MA Tryggvi V. Líndal »Eftir að eiga að baki tíu ljóðabækur og á þriðja hundrað ritsmíða í dagblöðum, virðist ég einnig vera einn af fáum MA-stúdentum míns tíma sem eru þekktir út fyrir kunningjahópinn. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur og skáld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.