Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 148. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
HJÓLASTÍGUR verður lagður frá Ægisíðu í El-
liðaárdalinn og hjólaumferð skilin frá göngustígn-
um, en það er sennilega stærsta einstaka aðgerð í
hjólreiðamálum í Reykjavík frá upphafi, að sögn
Gísla Marteins Baldurssonar borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Stígurinn kostar 300 milljónir og
tengist meðal annars inn á Suðurgötu, þar sem
gerðar verða akreinar í báðar áttir fyrir hjólreiða-
fólk.
segir að það eigi að leggja jafnmikinn metnað í að
greiða götu þeirra sem ganga og hjóla og þeirra
sem eru á bíl. „Með Ósabraut værum við að tengja
stíginn við Sæbrautina við Grafarvog, Úlfarsfell og
ytri byggðir,“ segir hann. „Ég held að hraðbraut yf-
ir þessa fallegu ósa sé barn síns tíma, enda léttum
við á umferð í Ártúnsbrekku með Sundagöngum.
Við höfum hinsvegar tækifæri þarna til að bæta lífs-
gæði íbúanna og sendum skilaboð um það hvernig
við viljum þróa samgöngur í borginni.“
Ósabraut ekki fyrir bíla?
300 milljónir lagðar í hjólastíg frá Ægisíðu í Elliðaárdalinn Næsta „risaskref“ að breyta
Reykjavík í hjólaborg Ósabraut lögð samhliða Sundagöngum fyrir gangandi og hjólandi?
Hljóðlát bylting | 10
Lagt er upp með að næsta „risaskref“ í grænu
skrefunum verði að breyta Reykjavík í hjólaborg og
fjölga hjólreiðamönnum. Til þess segir Gísli Mar-
teinn að fjölga þurfi hjólastígum og sérmerktum ak-
reinum á götum fyrir hjólreiðafólk. Og hann vill að
hugsað verði fyrir þörfum hjólreiðafólks þegar
gerðar séu nýjar götur, ný hverfi og opinberar
byggingar. Þannig vill hann að samhliða Sunda-
göngum verði ráðist í Ósabraut, en hún verði hugs-
uð fyrir gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk.
Ósabraut er í aðalskipulagi, en þar er gert ráð
fyrir bílaumferð. Gísli Marteinn vill breyta því og
Stúlka sem fæðist í heimshluta þar
sem fátækt, sjúkdómar, stríð, hung-
ursneyð og aðrar hörmungar eru
viðvarandi hefur tvöfalda, grimmi-
lega byrði að bera – af því að hún er
kona.
Viðvarandi ójafn-
rétti heimsins
Sums staðar eru konur, sem hefur
verið nauðgað, kærðar fyrir hór-
dóm og þeim útskúfað úr samfélag-
inu. Meintur smánarbletturinn er
þeim oft þyngri byrði en sjálft voða-
verkið.
Fórnarlömb
fáviskunnar
Miðherjinn Bafé Gomis verður í
hópnum, sem ver heiður Frakka á
Evrópumótinu, en hann sló ræki-
lega í gegn í sínum fyrsta landsleik
fyrir Frakkland gegn Ekvador.
Bafé Gomis
er rétt að byrja
CHARLOTTE Böving hefur látið að
sér kveða á íslenzku leiksviði sem
leikari, leikstjóri og höfundur, nú
síðast með sýningunni Mamm-
amamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu,
sem leikhópurinn Opið út vann í
sameiningu með Charlotte sem „ljós-
móður“.
Í samtali við Morgunblaðið segir
hún að Mammamamma eigi að vekja
fólk til umhugsunar um mæðra-
sambandið, en sjálfri hafi henni skil-
izt hvað hún stendur í stórri þakk-
arskuld við móður sína. Þær
mæðgur hafi átt erfitt með að tjá til-
finningar sínar hvor við aðra. „En nú
er komið að mér að klappa fyrir
mömmu.“
Charlotte Böving hafði aflað sér
viðurkenningar sem leikkona í Dan-
mörku, og verðlauna, þegar hún
kynntist Benedikt Erlingssyni og
flutti með honum til Íslands. Hún
skrifaði barnaleikrit upp úr ævin-
týrinu um Rauðhettu og leikritið Hin
smyrjandi jómfrú um hlutskipti
nýbúans á Íslandi. Fyrir þessi verk
var hún tilnefnd til Grímuverðlauna,
sem hún svo vann fyrir leik sinn í
Ófögru veröld.
Í Kaupmannahöfn breytti Char-
lotte smurbrauðsjómfrúnni til þess
að fjalla um sambúð Dana og músl-
imskra nýbúa. Þar stundaði hún nám
og skrifaði mastersritgerð um leik-
stjórn og lýðræðislegar aðferðir í
leikhúsinu sem var höfð að leiðarljósi
við uppsetningu Mömmumömmu.
Charlotte Böving mátti sig hvergi hræra án þess að fá Grímutilnefningu
Með lýðræði
í leikhúsið
Bíður þess með óþreyju að fá að
leika „innfæddan“ Íslending
Morgunblaðið/Frikki
Fjölhæf Charlotte Böving hefur komið víða við í íslensku leikhúsi; leikið,
leikstýrt og skrifað og er hvergi hrædd við að brydda upp á nýjungum.
Ferðalagið er áskorunin | 24
VIKUSPEGILL
Komdu í leikhús
Höll ævintýranna >> 59
Leikhúsin í landinu
26
79
/
IG
13
Stanga
sett
tilbúin í veiðiferðina
Þú færð IG-veiðivörur
í næstu sportvöruverslun
SUNNUDAGUR
POLLACK
KVADDUR
LITRÍKUR LISTA-
MAÐUR ER ALLUR
KVIKMYNDIR >> 28
150 LÖND
HEIMSÓTT
MEÐ BRENNANDI
FERÐAÁST́RÍÐU
DAGLEGT LÍF >> 32