Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 29
fylgdi sigrinum eftir með eðalvestr- anum Jeremiah Johnson (’72). Blómaskeið margbreytilegra mynda Jeremiah Johnson naut mikilla vin- sælda og Pollack gat valið úr aragrúa verkefna og hitti beint í mark með The Way We Were (1973), ljúfsárri mynd með Redford og Streisand og naut hvað mestra vinsælda mynda Pollacks. Hann kúventi um stíl og stefnu í The Yakuza (’75), hrottafeng- inni glæpamynd, þar sem Robert Mitchum fer með hlutverk fyrrver- andi hermanns sem reynir að bjarga dóttur vinar síns úr höndum jap- önsku mafíunnar. Leikstjórinn finnur sig greinilega ekki í þeim harða heimi sem hann reynir að skapa. Pollack gerði þeim mun betur með næstu mynd, Three Days of the Con- dor (’75), pólitískum ofsóknartrylli sem margir telja hans besta verk. Hún fékk afburðadóma og -aðsókn. Sama var ekki upp á teningnum hvað snerti Bobby Deerfield (’76), né The Electric Horseman (’79), þar sem Willie Nelson stelur senunni af Jane Fonda og Redford, sem leikur mið- aldra kúreka í neonljósum Las Ve- gas. Þá var röðin komin að einu frjó- samasta tímabilinu á ferlinum. Það hefst með Absence of Malice (’81), lævi blandaðri ástarsögu með Sally Field og Paul Newman. Tootsie var frumsýnd 1982, meistaraleg gam- anmynd sem er í hópi þess besta sem leikstjórinn gerði á lífsleiðinni. Hlaut metaðsókn um allan heim og var til- nefnd til 10 Óskarsverðlauna. Þá var röðin komin að verðlaunamyndinni Out of Africa (’85), sem er frægasta verk leikstjórans og færði honum hinn langþráða Óskar fyrir leikstjórn og var myndin tilnefnd til alls 11 Óskarsverðlauna og vann í sjö grein- um. Í kjölfar sigra koma ósjaldan lægðir á ferli kvikmyndaleikstjóra sem annarra listamanna, Pollack er engin undantekning. Havana (’90) var slæmur skellur með Redford enn eina ferðina í aðalhlutverkinu, að þessu sinni í sporum Bogarts í Casa- blanca, og er léttvægur fundinn. Tón- listin var góð, annað er gleymt. Um þessar mundir var lögfræðingurinn John Grisham að slá heldur betur í gegn sem spennusagnahöfundur með ofur-metsölubókum á borð við The Firm, sem Pollack filmaði árið 1993, með Tom Cruise, og almennt ágæt- um árangri. Myndin hlaut mikla að- sókn, enda efnis- og leikaravalið ákveðið með uppreisn ærunnar í huga og The Firm skilaði metfé af Pollack-myndum. Afkastamikill framleiðandi og leikari Árið 1985 stofnaði Pollack kvik- myndaframleiðslufyrirtækið Mirage Enterprises, sem gengið hefur jafnt og þétt við góðan orðstír. Þegar á fyrstu árum þess stóð það fyrir vin- sælum og vönduðum myndum á borð við Bright Lights, Big City (’88), The Fabulous Baker Boys (’89), Pres- umed Innocent (’90), Searching for Bobby Fischer (’93) og Sense and Sensibility (’95), sem hlaut ósk- arsveðlaunatilnefningu sem besta mynd ársins. Mirage framleiddi Sa- brina (’95), vonda endurgerð myndar Billys Wilders, þar sem Harrison Ford og enn frekar Julie nokkur Ormond og Greg Kinnear áttu að fara í fötin þeirra Audrey Hepburn og Williams Holdens. Útkoman var arfaslök og gerði Pollack aðeins tvær leiknar myndir til viðbótar, Random Hearts (’03) og lauk leikstjórnarferl- inum með The Interpreter (’05), stíl- hreinni spennumynd og gat borið höfuðið hátt. Með árunum gaf Pollack sig æ meira að leiklistinni og var jafnan eftirsóttur skapgerðarleikari. Hann vakti óskipta athygli í sinni eigin To- otsie, og lék í tæplega 20 myndum til viðbótar síðustu 15 árin. M.a. í The Player (’93) eftir Robert Altman; Husband and Wifes, undir leikstjórn Woodys Allens, og Eyes Wide Shut (’99), sem hann gerði fyrir vin sinn Stanley Kubrick. Hann hélt áfram að framleiða með góðum árangri, stóð m.a. að hluta að myndum á borð við Iris (’01), Heaven (’02), The Quiet American (’02) og The Talented Mr. Ripley. Einn síðasti ávöxtur giftu- samlegrar samvinnu Pollacks og hins nýlátna leikstjóra Anthonys Ming- hellas var verðlaunamyndin Cold Mountain (’03). Pollack var vinnuhestur og lét sjúkdóminn hafa sem minnst áhrif á líf sitt og störf, við getum t.d. séð hann í myndinni Made of Honor (’08), sem gengur um þessar mundir í kvikmyndahúsum borgarinnar. Fyr- ir skömmu átti hann firna kraftmikla innkomu í Michael Clayton (’07), sem hann framleiddi ásamt vini sínum, George Clooney, og hlaut fyrir vikið sína síðustu óskarsverðlaunatilnefn- ingu. Sjúkdómurinn bar Pollack of- urliði hinn 26. maí sl. saebjorn@heimsnet.is Leikarinn Sidney Pollack lék sitt síðasta hlutverk á móti Patrick Dempsey í kvikmyndinni Made of Honor, sem gerð var árið 2008. Leikstjórinn Sydney Pollack leikstýrði mörgum frægustu kvikmyndaleik- urum samtímans, t.d. Harrison Ford í Random Hearts árið 1999. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 29 TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÍS L E N S K A S IA .I S A L C 4 23 18 0 5/ 08 Víkingur Heiðar vann frækinn sigur í einleikarakeppni Juilliard-tónlistarskólans í New York fyrr á þessu ári og hefur vakið mikla aðdáun í tónlistarheiminum á síðustu misserum. Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Brahms, Chopin og Ólaf Axelsson. Tónleikarnir eru til minningar um Birgi Einarsson. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miðaverð: 2.000 kr. / 1.500 kr. Forsala í Landsbankanum Fjarðabyggð og Egilsstöðum. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson heldur tónleika í Kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð, þriðjudagskvöldið 3. júní. e r s t y r k t a r a ð i l i K i r k j u - o g m e n n i n g a r m i ð s t ö ð v a r i n n a r Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík Sími: 591 9000 · www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Súpersól til Búlgaríu 9. júní frá kr. 39.995 Kr. 39.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í hótelherbergi / íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. júní. Aukavika kr. 15.000. Kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í hótelherbergi / íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. júní. Aukavika kr. 15.000. Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Aðeins örfá sæti í boði! Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Terra Nova býður nú síðustu sætin í júní á ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessa vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmögu- leika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.