Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.2008, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 www.damask.is Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16. MÁNUDAG TIL LAUGARDAGS Sumartilboð 20% afsláttur af öllum vörum Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is Úrslit réðust aðfaranótt laug- ardags í viðureign Boston Celtics og Detroit Pistons í bandaríska körfuboltanum. Boston hafði betur og mætir nú Los Angeles Lakers í úrslitaviðureign, sem hefst á fimmtudag. Í hugum margra er þetta draumaviðureign, sem kallar fram minningar um fyrri tíð, ekki síst viðureignir Larrys Birds og Magics Johnsons. Ekkert lið hefur verið jafn sig- ursælt í bandaríska körfuboltanum og Boston Celtics. Liðið hefur unn- ið 16 meistaratitla, þar af átta í röð á árunum 1959 til 1966 þegar það var undir stjórn hins óviðjafn- anlega þjálfara Reds Auerbachs, sem lést í fyrra. Hins vegar er liðið 21 ár síðan liðið komst síðast í úr- slit, þá gegn Los Angeles, og 22 ár síðan það varð síðast meistari. Þá var þríeykið Larry Bird, Kevin McHale og Robert Parish upp á sitt besta. Nú er nýtt þríeyki kom- ið til skjalanna hjá Boston, Kevin Garnett, Paul Pierce og Ray Allen. Aldrei í sögu NBA hefur annar eins viðsnúningur orðið hjá liði milli ára og hjá Boston Celtics milli síðasta keppnistímabils og þess sem nú stendur yfir. Liðið sigraði í 66 leikjum og tapaði 14 á venjulega leiktímabilinu í vetur, en í fyrra vann liðið 24 leiki og tapaði 58. Liðið var með besta vinningshlut- fallið í allri deildinni núna, sem tryggir því heimaleikjaréttinn, í fyrra var það ömurlegt. Garnett og Allen bætast við Segja má að vendipunkturinn í uppbyggingu liðsins hafi verið óheppni í nýliðavalinu. Liðið komst svo seint að þegar dregið var um það hverjir skyldu velja fyrstir að bestu bitarnir voru farnir. Ef það átti að ná liðinu á strik þurfti því að grípa til aðgerða. Tveir lyk- ilmenn bættust í leikmannahópinn og skiptu kaupin á Kevin Garnett þar mestu. Garnett hafði um árabil verið einn af bestu leikmönnum deildarinnar og hvað eftir annað verið valinn til að leika í hinum ár- lega stjörnuleik, en lið hans, Minnesota Timberwolves, hafði litlum árangri náð. Garnett vildi fara frá Timberwolves, samningur hans hefði brátt runnið út og því var tímabært fyrir liðið að grípa til aðgerða ætlaði það að fá eitthvað fyrir hann. Margir settu þó spurn- ingarmerki við söluna á Garnett, ekki síst vegna þess að Kevin McHale, sem spilaði fyrir Boston í 13 ár, er við stjórnvölinn hjá Minnesota og framkvæmdastjóri Boston er Danny Ainge, liðsfélagi hans frá gullaldarárum Celtics. Celtics létu af hendi fimm leik- menn fyrir Garnett. Garnett er gríðarlega öflugur leikmaður og var valinn varnar- maður ársins þetta leiktímabil. Hann er ekki einn af þeim leik- mönnum, sem virðast svífa um völlinn fyrirhafnarlaust. Á andliti hans er nánast þjáningarsvipur þegar hann er inni á leikvellinum. Áður en leikurinn hefst gengur hann að körfunni og stangar svampklædda stoðina, sem ber hana uppi, og á meðan á leik stendur tautar hann stöðugt fyrir munni sér. Skömmu áður en Garnett var keyptur höfðu Celtics náð sér í Ray Allen frá Seattle Supersonics. Allen er menningarvitinn í liðinu, safnar listaverkum og leikur af mikilli yfirvegun. Allen er ein besta skytta deildarinnar og því ekki amaleg viðbót. Fyrir var í lið- inu Paul Pierce, sem hafði verið burðarás liðsins í þrautagöngu þess undanfarin misseri. Pierce er gríðarlega öflugur í sókninni. Það var kannski ekki að furða að strax var farið að líkja þeim við Bird, McHale og Parish, þótt sú samlík- ing sé ótímabær, í það minnsta þangað til í ljós kemur hvort þeir geta unnið titil. Þrífast þrjár stjörnur saman í liði? Sú spurning vaknaði hvort hægt yrði að hemja egó þriggja leik- manna, sem voru vanir að bera leik liða sinna. Sérstaklega óttuðust menn að Pierce, sem hafði þraukað eyðimerkurgöngu liðsins, yrði út- undan. Doc Rivers, þjálfari Celtics, hefur hins vegar sagt að hann hafi áttað sig á því á fyrstu æfingunni, sem þeir léku saman, að það yrði ekki vandamál. Þar skiptir örugg- lega máli að allir þrír vilja þeir vinna titil og eru reiðubúnir að deila sviðsljósinu til að ná því markmiði. Vélin hikstar Yfirburðir Celtics á venjulega leiktímabilinu voru augljósir og voru flestir þeirrar hyggju að fyrstu umferðirnar í úrslitakeppn- inni yrðu auðveldar. Það var öðru nær. Til þess að komast áfram þurfa lið að vinna fjóra leiki og getur því hver viðureign orðið sjö leikir. Í fyrstu umferðinni lentu Celtics á móti Atlanta Hawks, sem átti að verða auðveld bráð. Það var öðru nær. Boston þurfti sjö leiki til að afgreiða Atlanta og sigraði reyndar í sjöunda leiknum með miklum yfirburðum. Næsta hindrun var Cleveland Cavaliers með ofurmennið LeBron James innan borðs. Aftur þurfti sjö leiki. Allt í einu virtist Boston, sem hafði verið sterkasta lið deild- arinnar á útivelli, fyrirmunað að vinna útileik. Bjarghringur liðsins var heimarétturinn. Í úrslitum austurdeildar mætti Boston Detroit Pistons. Detroit hefur verið fastagestur í úrslitum austurdeildarinnar undanfarin ár og er skipað mjög hæfileikaríkum leikmönnum. Fyrstu tveir leikirnir voru leiknir í Boston. Celtics unnu þann fyrri, en töpuðu þeim síðari. Þeir höfðu sýnt veikleika á útivelli og nú voru þeir ekki lengur ósigr- andi á heimavelli. Liðið sýndi hins vegar hvað í því bjó, vann næsta leik í Detroit, tapaði reyndar fjórða leiknum, en sigraði svo í Boston þannig að staðan var 3-2. Þegar liðin mættust í fyrrinótt var Detroit því komið í þá stöðu að verða slegið út ef það tapaði. Leik- urinn var æsispennandi og Boston leiddi lengst af, en í þriðja leik- hluta tókst Detroit að ná forust- unni og byggja upp tíu stiga for- skot. Fjórði leikhlutinn var sennilega sá besti, sem Boston hefur leikið á leiktímabilinu. Liðið skoraði 29 stig, en fékk aðeins á sig 13, og sló út hið leikreynda lið Detroit á heimavelli þess. Í fyrsta skipti í úrslitakeppninni þurfti liðið ekki á oddaleik að halda til að komast áfram og nú er að sjá hvernig það spjarar sig á móti Los Angeles, sem komst í úr- slitin með mun minni fyrirhöfn. Körfuboltaaðdáendur geta spennt beltin. Það er æsileg reið fram- undan. Þríeykið bindur enda á langa þrautagöngu Boston Celtics  Boston Celtics og Los Angeles Lakers mætast í úrslitum NBA  Viðureign sem lengi hefur verið beðið eftir Reuters Á sigurbraut Kevin Garnett, leikmaður Boston Celtics, kreppir hnefana í seinni hálfleik sigurleiksins í fyrri nótt. Boston sló út Detroit Pistons og mætir nú Los Angeles Lakers í úrslitum NBA. Í HNOTSKURN »Boston Celtics hafa orðiðmeistarar 16 sinnum og 11 sinnum mætt Los Angeles í úr- slitum. »Red Auerbach vann níu titlaá meðan hann þjálfaði Boston Celtics. »Bill Russel lék þrettán leik-tímabil með Boston og vann 11 titla. Hann var fyrsti svarti þjálfarinn í deildinni og vann tvo titla þar sem hann bæði lék og þjálfaði liðið. KÖRFUBOLTI»
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.