Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 58
58 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ 48 ára farsæl sigling ÞAÐ var glöð og stolt áhöfn sem kom með varðskipið Óðin til Íslands í janúar 1960. Skipherra var Eiríkur Kristófersson og undirritaður var þá þriðji stýrimaður. Síðar gegndi ég starfi annars og fyrsta stýrimanns, auk þess margoft skipherra á Óðni. Skipið var smíðað í Álaborg í Dan- mörku og var þá best búna björg- unar- og varðskip á norðurslóðum. Aðalvélar skipsins voru tvær og ganghraði var 18 mílur. Skipið var sérstaklega styrkt til siglinga í ís. Þegar skipið kom til Íslands stóð deilan við Breta vegna útfærslunnar í 12 mílur sem hæst. Óðinn var öfl- ugt varðskip Íslendinga í þorska- stríðunum við Breta vegna útfærsl- unnar í 50 og síðar 200 mílur og átti verulegan þátt í sigrum Íslendinga. Mikil farsæld hefur fylgt Óðni alla tíð. Áhöfn hans tókst að bjarga fjöl- mörgum mannslífum úr sjávarháska og einnig að flytja sjúka og slasaða og koma þeim undir læknishendur. Þau skip sem Óðinn aðstoðaði í háska eða vandræðum voru um tvö hundruð. Óðinn aðstoðaði oft íbúa afskekktra byggðarlaga og ruddi flutningaskipum braut í hafísaárum. Meginverkefni skipsins var þó alla tíð að verja landhelgi Íslands, eins og hún var á hverjum tíma, fyrir veiðiþjófum, innlendum og erlend- um. Bretar sýndu af sér stórhættu- lega framgöngu í þorskastríðunum og var mikil mildi að þeir ollu ekki manntjóni. Löskuðu þeir meðal ann- ars Óðin með ásiglingum. Árið 1999 kom fram tillaga í Öld- ungaráðinu, sem er félag fyrrver- andi starfsmanna Landhelgisgæsl- unnar, þess efnis að Óðinn yrði varðveittur þegar hann lyki hlut- verki sínu sem varðskip og gerður að safni. Hefur Öldungaráðið unnið ötullega að framgangi málsins síðan og meðal annars átt marga fundi með ráðamönnum hjá ríki og borg um varðveislu Óðins. Landhelgis- gæslan studdi hugmyndina af alefli og það er Gæslunni til mikils sóma hve skipinu hefur verið vel við hald- ið. Velunnarar skipsins stofnuðu Hollvinasamtök Óðins í Víkinni – Sjóminjasafninu á Grandagarði haustið 2006 og þann 30. maí rennur stóra stundin upp: Dómsmálaráð- herra afhendir Hollvinasamtökum Óðins skipið til eignar. Formaður Hollvinasamtakanna færir Sjóminjasafninu skipið til varðveislu á Hátíð hafsins og verður það hluti af safninu og aðgengilegt almenningi. Faxaflóahafnir hafa bú- ið skipinu stað hjá Sjóminjasafninu og þar liggur einnig dráttarbáturinn Magni, en hann er fyrsta stálskip sem smíðað var á Íslandi. Varðskipið Óðinn á sér stór- merkilega sögu sem vert er að sýna sóma og varðveita til framtíðar. Ólafur Valur Sigurðsson, skipherra og formaður Öldungaráðsins. ÓÐINN aðstoðaði oft íbúa afskekktra byggðarlaga og ruddi flutninga- skipum braut í hafísárum. Morgunblaðið/Sverrir Sögulegt varðskip Lögga, læknir og lögfræðingur Kippan HELDUR ÞÚ AÐ ÉG EIGI EFTIR AÐ KOMAST ÚT HÉÐAN? ÉG MUNDI BIÐJA TIL SANKTI JÚDASAR SANKTI JÚDAS? DÝRLINGUR GLATAÐRA MÁLSTAÐA Ó... NÝTT ÖRYGGISKERFI TAKK FYRIR AÐ HRINGJA. EF ÞÚ VILT KAUPA EITTHVAÐ, ÝTTU Á EINN... EF ÞÚ VILT VITA STÖÐUNA Á REIKNINGNUM ÞÍNUM, ÝTTU Á TVO... ÉG ÞÚ HEFUR EKKERT AÐ GERA NÆSTU TVO KLUKKUTÍMANA, ÝTTU Á ÞRJÁ Æ, NEI... OF MIKILL SYKUR HRANNAR, ÉG ER ORÐIN LEIÐ Á ÞVÍ AÐ LEITA AÐ HÖFÐINU Á ÞÉR FYRIR ÞIG. EF ÞÚ LÆTUR EKKI FESTA ÞAÐ BETUR Á, ÞÁ FER ÉG FRÁ ÞÉR... OG ÞÁ BYRJA VANDRÆÐIN FYRIR ALVÖRU FYRIRGEFÐU, ELSKAN dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is FRÉTTIR LAGADEILD Háskólans í Reykjavík og Fjármálaeftirlitið hafa skrifað undir starfsnámssamning fyrir nem- endur lagadeildar. Þetta er 16. samningur lagadeildar við stofnanir og fyrirtæki um starfsnám fyrir nemendur sem þeir fá metið til ein- inga. Hluti af meistaranámi við laga- deild Háskólans í Reykjavík getur farið fram í viðurkenndu starfsnámi og getur nemandi fengið allt að 6 einingar metnar í meistaranámi á grundvelli starfsnámssamninga lagadeildarinnar og einstakra stofn- ana og fyrirtækja. Það skilyrði er sett í reglum um starfsnám að nem- andi vinni undir eftirliti umsjón- araðila að lögfræðilegu verkefni eða verkefnum sem séu sannarlega til þess fallin að auka þekkingu hans í lögfræði og hæfni til að vinna að úr- lausn lögfræðilegra verkefna, segir í fréttatilkynningu. Starfsnám Sigurður Tómas Magnússon, sérfræðingur í lagadeild HR, og Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, undirrita samninginn. HR og FME semja um samstarf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.