Morgunblaðið - 01.06.2008, Síða 50

Morgunblaðið - 01.06.2008, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík •  566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður og tengdaföður, BJÖRNS BJÖRNSSONAR prófessors, Aragötu 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild K2 á Landspítala Landakoti og Þorraseli. Svanhildur Ása Sigurðardóttir, Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, Valgeir Bjarnason, Kristín Margrét Bjarnadóttir. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður og fósturföður, ÞÓRARINS JÓNS SIGURMUNDSSONAR vélstjóra, áður Nýbýlavegi 40, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við lækni og hjúkrunarfólki á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík. Gústaf Örn Þórarinsson, Hannes (Hannu) Ólafsson, Jónína Eyjólfsdóttir, Steinar Orri Hannesson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs bróður og frænda, HAUKS GUNNARSSONAR, Austurbrún 2, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Oddný Gunnarsdóttir, Jón Gunnar Ólafsson, Erla Ólafsdóttir, Guðmundur Helgi Sævarsson, Sara Guðmundsdóttir. Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför míns elsku- lega eiginmanns, ÞÓRIS DANÍELSSONAR, Asparfelli 8, Reykjavík. Fyrir hönd ættingja og vina, María Jóhannesdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR JÓNSSONAR húsasmíðameistara frá Guðnabæ, Akranesi, Fáfnisnesi 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild og heimahjúkrun Landspítalans í Kópavogi. Ingunn Ívarsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Arnar Aðalsteinsson, Jón Guðmundsson, Ragnheiður Björk Hreinsdóttir, Ívar Guðmundsson, Anna Lára Eðvarðsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkæru dóttur okkar, systur og mágkonu, FJÓLU BJARKAR SIGURÐARDÓTTUR, Stigahlíð 71, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Sigurður Hannesson, Guðrún Böðvarsdóttir, Böðvar Sigurðsson, Helena Guðmundsdóttir, Lára Jóna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Haraldsson og fjölskyldur. Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919 Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Hannes Sig-urgeirsson fæddist í Reykjavík 11. júlí 1937. Hann lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni 20. maí síð- astliðins. Foreldrar hans voru Guðrún Lovísa Hann- esdóttir, f. 28. ágúst 1912, d. 24. október 1992, og Sigurgeir Eiríksson, d. 1979. Stjúpi Hannesar var Þorvaldur Sæ- mundsson, f. 6. desember 1915, d. 28. febrúar 1988. Hannes ólst að mestu leyti upp hjá ömmu sinni og afa, þeim Val- gerði og Hannesi, á Bakka í Ölfusi og flutti svo með þeim til Hvera- gerðis þar sem hann bjó alla tíð síðan. Hinn 10. júlí 1958 kvæntist Hannes Guðrúnu Magnúsdóttur, f. 16. maí 1939. Börn þeirra eru: 1) Magnús Haukur, f. 20. janúar 1959, kvæntur Hrönn Þorsteins, sonur þeirra er Magnús Þór. 2) Þor- valdur, f. 16. júlí 1960, kvæntur Ingv- eldi Sigurðardóttur, börn þeirra eru Emil Fannar og Móeiður. 3) Inga Lóa, f. 15. október 1964, sonur hennar og Þorkels Markússonar er Hannes. Hannes nam húsa- smíði hjá Stefáni J. Guðmundssyni og lauk sveinsprófi í þeirri iðn, frá Iðnskólanum á Sel- fossi, árið 1961 og fékk meist- araréttindi 1966. Hann starfaði við iðn sína í Trésmiðju Hveragerðis þar til hann fór til starfa hjá Ístaki. Þar starfaði hann, fyrst sem smið- ur en síðar verkstjóri, til ársins 1985. Eftir það starfaði hann sem húsasmiður, síðustu árin á Heilsu- stofnun NLFÍ en þar vann hann á meðan heilsan leyfði. Útför Hannesar fór fram 28. maí, í kyrrþey. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku Guðrún og fjölskyldan öll. Megi minningin um góðan mann verða ykkur huggun í sorginni. Skúli og Sigríður. Mikið er erfitt að trúa því að þú sért farinn frá okkur, afi minn. Ég á svo margar góðar minningar um þig. Ég veit að þú fórst að kalla mig nafna um leið og ég fæddist og ég var líka alltaf stoltur af því að heita sama nafni og þú. Við vorum svo miklir mátar og mér fannst þú langbesti af- inn. Einu sinni áttum við að skrifa ljóð um pabba okkar í skólanum en ég vildi endilega skrifa ljóð um þig. Þegar ég var lítill var ég svo oft hjá ykkur ömmu þegar mamma var að vinna og þá brölluðum við ýmislegt saman. Ég fór mjög oft með ykkur í sumarbústað, stundum einn en stundum kom Emil og svo Móeiður líka. Það var alltaf mikið fjör, farið í pottinn helst oft á dag, gönguferðir, á róló og svo bakaðar vöfflur. Þú varst búinn að vera mikið veik- ur og það var erfitt að sjá þig þannig. Á spítalanum um daginn vildir þú endilega halda í höndina á mér þó þú værir ofsalega veikur og ég sá hvað þú varst glaður að sjá mig. Ég trúi að þér líði vel þar sem þú ert núna. Ég mun alltaf sakna þín. Þinn, Hannes. Hannes Sigurgeirsson ✝ Sófus HenryHólm fæddist á Flateyri 4. mars 1932. Hann lézt á Hjúkrunarheimilinu Eir 11. maí síðast- liðinn. Hann var sonur Guðmundu Pálínu Guðmundsdóttur f. 8.7. 1908, d. 24.12. 1987 og Adolth Lau- ritz Hólm f. 15.11. 1904, d. 28.4. 1976. Systkini Sófusar eru Guðmundur og Helga Soffía. Sófus ólst upp í Vestmanneyjum fyrstu árin, en síðar fluttu þau mæðgin upp á land og áttu heima í Reykjavík lengst af. Sófus vann ýmis störf, var mikið til sjós en síðustu starfsár sín vann hann í Stáliðjunni h/f. Var hann hag- leiksmaður og vel látinn. Útför Sófusar hefur farið fram í kyrrþey. Snert hörpu mína himinborna dís, svo hlusti englar Guðs í paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. (Davíð Stefánsson.) Vinur okkar Sófus Hólm er all- ur. Margar minningar eru honum tengdar.Við kynnumst á vinnustað og þó að leiðir skilji á þeim vett- vangi höldum við ævinlega vin- áttusambandi. Sófus kíkir í heim- sókn, fær klippingu og kaffisopa spjallar um daginn og veginn, við skiptumst á fréttum af gömlum vinum úr Stáliðjunni og ræðum það sem hæst ber í þjóðlífinu, það er fátt sem okkur er óviðkomandi á þessum stundum. Eftir skemmtilegt spjall heldur vinur vor Sófus glaður og reifur út í hversdaginn. Smám saman birtast svipmyndir úr lífi Sófusar. Hann elst upp í Vestmannaeyjum sem lítill dreng- ur. Móðir hans hefur allan veg og vanda af uppeldinu, einnig á hann skjól hjá afa sínum og ömmu. Á þessum árum kynnist Arnar hon- um. Þeir eru báðir Eyjapeyjar. Þegar fer að togna aðeins úr pilti flytja þau mæðgin til Reykjavíkur. Sófus vinnur ýmis störf til sjós og lands, síðast í Stáliðjunni þar sem hann er til starfsloka. Hann er vel látinn, vandvirkur og útsjónarsam- ur, einnig mjög vel liðinn af sam- starfsfólki. Öllum þykir vænt um Sófus. Hann er fræðasjór, kann ógrynni sagna og hægt að fletta upp í honum eins og ættfræðiriti. Sófus er vinur vina sinna. Við erum að byggja. Sófus mættur að hjálpa til. Röskur til verka. Sófus og Arnar að fara á sjóinn á trillunni. Það á nú við hann. Aðfangadagskvöld. Sófus kemur í hátíðamatinn. Gleðst með okkur og stelpunum. Hringt af Borgarspítalanum. Sófus lenti í slysi. Við taka erfiðu árin. Veikur. Einn heima. Sjúkra- stofnun. Klippingin. færist til. Sóf- us á sjúkrabeði. Lítið að gera ann- að en hlynna að og vera. Vinur okkar farinn til fegri heima Veri hann Guði falinn. Úr furutré sem fann ég út við sjó ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. (Davíð Stefánsson.) Arnar og Borghildur Sófus Henry Hólm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.