Morgunblaðið - 01.06.2008, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
» Fram kemur í gögnum semvið notum hjá bankanum um
afstöðu kynjanna að karlar í Sádi-
Arabíu voru að jafnaði mun
hlynntari jafnrétti en konurnar
sjálfar!
Nadereh Chamlou, íranskur hagfræðingur
og ráðgjafi hjá Alþjóðabankanum, hélt fyr-
irlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands og Landsnefndar UNI-
FEM á Íslandi.
» Ef þú reynir að útskýra listirmeð vísindum, þá verður það
bara kjánaleg æfing.
Israel Rosenfield, sem er menntaður í
stærðfræði, læknisfræði og heimspeki og
kunnur háskólakennari og fyrirlesari, að-
stoðaði við val vísindamanna, sem þátt tóku
í Tilraunamaraþoni Listahátíðar Reykja-
víkur.
» Þetta er gott nesti út í hvunn-daginn, predikunin vekur
mann til umhugsunar og maður
nýtur stundarinnar svo vel.
Sverrir Júlíusson, blaðberi Morgunblaðs-
ins, sem sækir árdegismessu í Hallgríms-
kirkju þegar hann er búinn að bera út blöð-
in.
» Íslenska ríkið þarf ekki aðbiðja neinn afsökunar vegna
þess dóms [sögunnar], en telji
einstaklingar að ríkið hafi á sér
brotið er eðlilegt að um það sé
fjallað á grundvelli laga og réttar.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkju-
málaráðherra, í svari sínu á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is, við þeirri spurn-
ingu hvort ráðherra hygðist biðjast afsök-
unar á símhlerunum á árunum 1949-1968.
» Þegar á reynir eru allir í sín-um „draumaheimi“ – enda
gætum við orðið brjáluð á að
hugsa um heiminn eins og hann
er í raun.
Fjöllistamaðurinn Viggo Mortensen, sem
opnaði sýningu á ljósmyndum sínum í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
» Ég vildi fá að sjá þrektöl-urnar hjá dómaranum. Ég
vildi fá að sjá fituprósentuna. Ég
vildi fá að sjá úthaldstölurnar. Ég
veit það nefnilega að það voru
menn sem fóru í test og þeir
standast ekki þrektölurnar.
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, í sjón-
varpsviðtali á Stöð 2 Sport, þar sem hann
lýsti yfir mikilli óánægju með dómgæsluna
í leik Keflavíkur og ÍA.
» Þetta er nú ekki svona stórtmál.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, var í pontu Alþingis að
mæla fyrir nefndaráliti félags- og trygg-
ingamálanefndar um frístundabyggð þegar
jarðskjálftinn reið yfir.
» Ég held að konur séu orðnarlangþreyttar á að hlutirnir
gerist æ ofan í æ á forsendum
karla.
Dr.Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við
lagadeild Háskólans á Bifröst og stjórn-
andi ráðstefnunnar Tengslanet IV – völd til
kvenna, sem þar var haldin.
» Hann kom bara með trukkiog dýfu og jarðskjálfta.
Ólafur Eyjólfsson um nýfæddan son sinn
sem kom í heiminn á fæðingardeild Land-
spítalans stundarfjórðungi eftir jarð-
skjálftann, sem átti upptök sín undir Ing-
ólfsfjalli vestanverðu og mældist 6,3 á
richter.
» Enda er hann strax kominnmeð gælunafnið Eyjólfur
„skjálfti“.
Berglind María Kristinsdóttir, móðir
drengsins.
» Frelsið, einkavæðingin gerðiþað að verkum að ungir menn
slettu úr klaufunum eins og feitir
kálfar að vori.
Guðni Ágústsson, formaður Framsókn-
arflokksins, í eldhúsdagsumræðum á Al-
þingi um fjármálakreppuna.
Ummæli vikunnar
Hamfarir Almannavarnir lýstu hæsta viðbúnaðarstigi á Selfossi og Hvera-
gerði þegar jarðskjálftinn reið yfir og hvöttu fólk til að halda sig útivið.
Eftir Elizabeth M. King og Bjørn Lomborg
Kaupmannahöfn | Stúlka sem kemur í
heiminn í Suður-Asíu eða Afríku
sunnan Sahara fæðist með grimmi-
lega, tvöfalda byrði. Hún mun alast
upp í heimshluta þar sem ríkir fá-
tækt, sjúkdómar, stríð eða hung-
ursneyð. Hún mun í þokkabót þurfa
að takast á við þessi vandamál með
þá umframbyrði að vera kona.
Þótt málum kynjanna sé nú gefinn
meiri gaumur er enginn menningar-
heimur, land eða heimsálfa án við-
varandi ójafnréttis. Ný könnun, sem
gerð var fyrir Kaupmannahafn-
arsáttarverkefnið, sýnir að fjárfest-
ing í að eyða þessu ójafnrétti skilar
miklum arði.
Stúlkum í fátækum ríkjum
neitað um menntun
Þrátt fyrir mikinn áhuga um allan
heim á menntun fyrir alla er mörg-
um stúlkum í fátækum ríkjum neitað
um grunnmenntun frá upphafi, þær
búa við misrétti. Þrjú af hverjum
fimm ólæsum börnum í heiminum
eru stúlkur. Menningarhefðir og
efnahagsþrengingar, einkum í Suð-
ur-Asíu og Afríku sunnan Sahara,
koma í veg fyrir að foreldrar sendi
dætur sínar í skóla eða leyfi þeim að
fara í skóla á meðan á skólagöngu
sona þeirra stendur. Þetta misræmi
í fjárfestingu er hvorki sanngjarnt
né skilvirkt.
Augljós lausn væri að reisa fleiri
skóla þar sem mennta þarf stúlkur
og pilta hvor í sínu lagi. Í fátækum
múslímaríkjum á borð við Pakistan,
Jemen og Marokkó er venjan að
kynin gangi ekki saman í skóla. Víða
til sveita hafa yfirvöld aðeins ráð á
einum skóla, sem venjan er að sé frá-
tekinn fyrir drengi. Menntunarbilið
mætti því brúa til hálfs á þessum
svæðum með því að reisa stúlkna-
skóla.
Annars staðar er vandinn ekki
fólginn í því að það vanti skóla. Þess í
stað þarf að finna hvata fyrir for-
eldra til að senda dætur sínar í skóla.
Í löndum þar sem kostnaður fjöl-
skyldunnar af menntun stúlkna hef-
ur verið lækkaður annaðhvort með
því að fella niður skólagjöld eða
styrk til stúlkna, sem fara í skóla,
hafa fleiri stúlkur skráð sig til náms.
Reynsla þessara fáu ríkja er okk-
ur tilefni til að leggja til kerfi þar
sem mæður fá borgað ef dætur
þeirra ganga reglulega í skóla frá
þriðja bekk til níunda bekkjar. Þetta
myndi auka hlutfall þeirra stúlkna,
sem skrá sig í skóla. Um leið fengju
konur peninga í hendurnar. Það er
mikilvægt vegna þess að rannsóknir
sýna að líklegra er að það hafi já-
kvæð áhrif á næringu og heilsu
barna þegar mæður þeirra fá pen-
inga í hendurnar en feður. Þá fá kon-
ur einnig betri samningsstöðu á
heimilinu.
Fátækar konur veikastar
fyrir á meðgöngu
Árlegur kostnaður á hvern nem-
anda yrði 32 dollarar (tæpar 2.400
krónur). Það myndi kosta sex millj-
arða dollara (444 milljarða króna) að
greiða skólagöngu allra stúlkna á
skólaaldri í Afríku sunnan Sahara og
Suður-Asíu í eitt ár. Ávöxturinn af
hærri tekjum í framtíðinni og sparn-
aði í heilsugæslu yrði þrisvar til 26
sinnum hærri.
Fátækar konur eru aldrei veikari
fyrir en á meðgöngu. 99% af þeim
529 þúsund konum, sem árlega
deyja af vandamálum tengdum með-
göngu, búa í þróunarlöndunum. Al-
varlegur næringarskortur og ekkert
mæðraeftirlit skapar bæði móður og
barni alvarlega hættu. Með því að
verja 3,9 milljörðum dollara (291
milljarði króna) í fjölskylduráðgjöf
og frumkvæði í heilbrgðismálum, til
dæmis getnaðarvarnir í Afríku sunn-
an Sahara og Suður-Asíu, mætti
koma í veg fyrir dauða 1,4 milljóna
barna og andlát 142 þúsund kvenna
vegna vandamála í kringum með-
gönguna.
Með því að aðstoða konur, sem
ekki geta greitt fyrir þjónustuna, er
hægt að koma í veg fyrir þessi
dauðsföll. En það má ekki forðast að
bjóða og veita nútímagetnaðarvarnir
til að koma í veg fyrir óviljaþung-
anir. Tæplega 20% kvenna í þróun-
arlöndunum segjast ekki myndu
vilja eignast fleiri börn, en nota
hvorki getnaðarvarnir né fjöl-
skylduráðgjöf, líkast til vegna þess
að hvorugt er á boðstólum.
Þegar stúlkur á unglingsaldri gift-
ast eða verða óléttar er venjan að
það bindi enda á skólagönguna. Með
því að slá hjónabandinu og barneign-
unum á frest gætu þær náð sér í
meiri menntun og átt meiri tekju-
möguleika auk þess að búa börnum
sínum betri heilsu, menntun og at-
vinnumöguleika. Ávinningurinn er
tífaldur á við kostnaðinn af því að
veita þessa hjálp.
Til eru önnur tæki en menntun til
að hjálpa konum að bæta getu sína
til að afla tekna.
Örlán færa sexfaldan ávinning
Örlánastofnanir á borð við Gra-
meen-bankann í Bangladesh leika
lykilhlutverk í að hjálpa konum að
ná árangri í eigin rekstri. Lítil lán
veita konum styrk vegna þess að
þær fá meiri stjórn á eignum heim-
ilisins, meiri sjálfstjórn og meira
sjálfstæði til að taka ákvarðanir og
beinna aðgengi til að taka þátt í sam-
félaginu.
Konur eru líklegri en karlar til að
standa í skilum á reglulegum afborg-
unum og verja tekjum sínum í heilsu
barna sinna og menntun þeirra.
Ráðamenn ættu að halda áfram að
styðja örlánafrumkvæði. Kannanir
sína að hver dollari, sem örlána-
stofnun lánar, eykur útgjöld heim-
ilisins um næstum því 10% fyrsta ár-
ið og að ávinningurinn heldur áfram
að skila sér næstu 30 árin. Talið er
að ávinningurinn verði á endanum
um sexfalt hærri en kostnaðurinn.
Þótt konur eigi rétt á að kjósa í
nánast öllum löndum er misrétti
kynjanna meðal kjörinna stjórn-
málamanna enn verulegt. Rík-
isstjórnir ættu að velta fyrir sér
kynjakvótum á sveitarstjórnarstig-
inu. Fjölgun kvenna í stjórnmálum
þarf ekki endilega að leiða til auk-
innar áherslu á forgang „kvenna-
mála“, en á Indlandi hafa þorp með
kynjakvóta bætt öryggi drykkjar-
vatns, tryggt bólusetningar, bætt
vegi og dregið úr mútum. Það gæti
eitthvað tapast við að kjósa konur
vegna þess að þær hafi minni
reynslu í pólitík en karlar, en reynsl-
an frá Indlandi bendir til þess að hafi
það tekið 20 ár að tryggja 30% hlut-
fall kvenna í sveitarstjórnum í öðr-
um löndum hefur ávinningurinn að
minnsta kosti verið helmingi meiri
en kostnaðurinn af að ná þessu hlut-
falli fram.
Að vera kona þarf ekki og á ekki
að vera eitt erfiðasta verkefni lífsins.
Konur og þróun
Reuters
Misrétti Konur í Port au Prince á Haiti bera körfur með grænmeti á höfði sér. Víða í heiminum mætti hafa marg-
faldan ávinning af því að efla konur. Lykilatriði eru aukin menntun og seinkun barneigna.
Í HNOTSKURN
»Staða kvenna í heiminum erhvergi verri en í Afríku sunn-
an Sahara og Suður-Asíu.
»Aukin menntun kvenna áþessum slóðum og seinkun
barneigna myndi færa marg-
faldan ávinning og efla stöðu
kvenna.
»Sýnt hefur verið fram á aðkynjakvótar á sveitarstjórn-
arstigi færi öllum aukin lífsgæði.
ÓJAFNRÉTTI»
Skortur á menntun og fjölskylduráðgjöf rót ójafnaðar í heiminum Konur í Afríku sunnan Sahara
og Suður-Asíu eru verst settar Þar alast konur upp við fátækt, sjúkdóma, stríð eða hungursneyð
Ójafnrétti | Hvergi í heiminum búa konur við meira ójafnrétti en í Suður-Asíu og Afríku sunnan Sahara.
Mannréttindi | Glæpir gegn konum eru oft hluti af skipulögðum hernaði. Knattspyrna | Bafé Gomis skaut
sig inn í franska landsliðið. Körfubolti | Boston Celtics og Los Angeles Lakers mætast í úrslitum bandaríska körfuboltans.
VIKUSPEGILL»
Elizabeth M. King er rannsókn-
arstjóri almannaþjónustu þróun-
arrannsóknadeildar Alþjóðabankans
og Björn Lomborg er forsprakki
Kaupmannahafnarsamkomulagsins
og höfundur bókanna Cool It og The
Skeptical Environmentalist.
©Project Syndicate, 2008.