Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 19
Eftir Heleen Mees og Femke van Zeijl
Amsterdam | Á stríðstímum er oft sagt að sann-
leikurinn sé fyrsta fórnarlambið. Sannleikurinn
er hins vegar sá að konurnar eru fyrstu fórn-
arlömbin. Samkvæmt athugunum UNICEF,
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, breiðist
kynferðislegt ofbeldi út eins og faraldur á
átakasvæðum. Kvenlíkaminn verður alltof oft
hluti af vígvellinum hvort sem það eru borg-
arastyrjaldir, fjöldamorð eða annars konar
vopnuð átök. Fórnarlömb víðtækra kynferð-
islegra grimmdarverka eru allt frá því að vera
barnungar stúlkur til aldraðra kvenna.
Í Darfur rændu janjaweed vígasveitir Súd-
anstjórnar tólf ára stúlku, raðnauðguðu henni í
viku og glenntu fætur hennar svo mikið í sund-
ur að hún bæklaðist til frambúðar. Fórnarlömb
nauðgana í Darfur óttast samt mest af öllu að
eignast aldrei eiginmann. Samkvæmt sharia-
lögum eru konur, sem hefur verið nauðgað, lög-
sóttar fyrir hjúskaparbrot eða hórdóm. Á síð-
asta ári voru að minnsta kosti tvær ungar konur
í Súdan dæmdar til að verða grýttar til dauða
fyrir slíkar „sakir“. Alþjóða flóttamanna-
samtökin segja að ríkisstjórnin sé líklegri til að
snúast gegn þeim sem kæra og geta sannað
nauðgun heldur en þeim sem nauðga.
Fórnarlömbin taka á sig sökina
Í stríðinu, sem nú geisar, í Lýðveldinu
Kongó, hafa fórnarlömb nauðgana líka oftast
tekið á sig mestu sökina. Eftir að hafa verið
nauðgað eru kongóskar konur hraktar burt af
eiginmönnum sínum og samfélagið útskúfar
þeim. Oft er kynfærum þeirra misþyrmt með
byssuskoti eða konunum er kastað nöktum á
bál.
Í menningu þar sem foreldrar gefa dætur
sínar frá sér í hjónaband og skírlífi er að-
alsmerki kvenleikans eru konu, sem missir æru
sína, allar bjargir bannaðar. Smánarbletturinn
er oft þyngri byrði en sjálf árásin. Því skyldi
engan undra að flestar þessara særðu stúlkna
og kvenna þegja.
Í Balkanstríðunum á tíunda áratugnum var
konum nauðgað í þeim tilgangi að fæða börn
óvinarins. Evrópusambandið áætlar að í Bosníu
einni hafi fórnarlömb nauðgana verið tuttugu
þúsund konur. Konurnar hafa að mestu þurft
að glíma sjálfar við afleiðingar áfallsins og verið
dæmdar til fátæktar.
„Glötuð æra“
Á árinu 1945 var áætlað að tvær milljónir
kvenna væru fórnarlömb kynferðislegra
grimmdarverka Rauða hersins – ekki aðeins
þýskar konur, heldur einnig gyðingakonur, sem
fóru huldu höfði, konur sem komust lífs af úr út-
rýmingarbúðum og þær sem börðust með and-
spyrnuhreyfingunni. Að sögn þýska blaða-
mannsins, Ruth Andreas-Friedrich, snerist
meint skömm um „að glötuð æra skapaði að-
stæður til sjálfsmorðs“. Í apríl 1945 voru meira
en 5.000 sjálfsvíg í Berlín. Eiginmenn, feður og
kennarar þrýstu á konur að binda enda á líf sitt
eftir að rússneskir hermenn höfðu nauðgað
þeim – „af því að æran skipti þær mestu máli“.
Mörgum konum þótti kynlíf fyrir hjónaband
verri kostur en dauðinn. Í því ljósi er enn und-
arlegra og sársaukafyllra að þessum tiltekna
stríðsglæp hafi verið svo lítill gaumur gefinn
allan þenna tíma.
Í seinni heimsstyrjöldinni voru sett skýr al-
þjóðalög sem bönnuðu hermönnum að nauðga,
en eftir stríðið dæmdu dómstólarnir í Nürnberg
og Tókýó aðeins í örfáum slíkum málum. Rað-
nauðganir voru regla en ekki undantekning
þegar þjóðarmorð var framið í Rúanda. En þó
var aðeins fyrir slysni sem kynferðisglæpir
komu til kasta dómstóla þar síðar – og þá sem
minniháttar brot. Eftir að rúönsk kona skýrði
formálalaust frá því að henni og öðrum konum
hefði verið nauðgað áður en fjöldamorðin voru
framin, fylgdi kvendómari fordæmi hennar og
upplýsti að konur hefðu í gríðarlegum mæli ver-
ið beittar kynferðislegu ofbeldi. Dómstólarnir í
Rúanda voru þeir fyrstu í sögunni til að lýsa
nauðgun sem mögulegum þætti í þjóðarmorði.
Árið 2001 dæmdi Alþjóða glæpadómstóll
Júgóslavíu fyrrverandi í Haag kerfisbundna
nauðgun kvenna sem glæp gegn mannkyninu. Í
Foca prófmálinu voru þrír Bosníu-Serbar
dæmdir fyrir að nauðga, misþyrma og hneppa
múslímakonur í þrældóm árið 1992. Stúlkum,
allt niður í 12 ára, var raðnauðgað vikum sam-
an. Samt eru illvirkjar, sem taka þátt í fjölda-
nauðgun og öðru kynferðislegu ofbeldi, yfirleitt
ekki lögsóttir.
Minnisvarði um óþekktu konuna
Nýlega varð kongóski skæruliðaforinginn
Thomas Lubanga fyrsti fanginn, sem Al-
þjóðaglæpadómstóllinn í Haag réttaði yfir fyrir
að skipa her sinn börnum. Kongósku mannrétt-
indasamtökin segja það „gríðarlegt áfall fyrir
fórnarlömin“ hversu oft sé látið undir höfuð
leggjast að nefna ofbeldi gegn konum í
ákærum. Samtökin fóru fram á að Al-
þjóðaglæpadómstóllinn í Haag rannsakaði
fjöldanauðganir, sem allir aðilar átakanna áttu
aðild að.
Það sem einkennir þessa svívirðilegu glæpi
er að ekki er refsað fyrir þá. Því verður að linna.
Ríkisstjórnir, þingmenn, herstjórar og áhrifa-
valdar um skoðanir fólks ættu að ræða op-
inskátt um nauðgun og annað kynferðislegt of-
beldi gegn konum. Lögsókn verður að vera
reglan. Alþjóðadómstóllinn og aðrir dómstólar
þurfa að gefa misindismönnunum skýr skila-
boð.
Fórnarlömb nauðgana fá hvorki fébætur,
minnisvarða né minningarathafnir. Því verður
líka að breyta. Reisa ætti minnismerki um
óþekktu konuna sem var nauðgað þar sem Al-
þjóðaglæpadómstóllinn er til húsa í Haag. Ef til
vill myndu dómararnir þá veita kynferðislegu
ofbeldi gagnvart konum meiri athygli.
Reuters
Beðið eftir aðstoð Konurnar eru meðal
níutíu þúsund Súdana, sem í liðnum mánuði
hröktust frá heimilum sínum vegna blóð-
ugra stríðsátaka.
MANNRÉTTINDI»
Stríð gegn konum
Víða eru konur, sem hefur verið nauðgað, ákærð-
ar fyrir hórdóm og þeim útskúfað úr samfélaginu
» Smánarbletturinn er
fórnarlömum nauðgana
oft þyngri byrði en sjálf árásin
og því þegja konurnar.
Heleen Mees er hollenskur hagfræðingur og lög-
fræðingur. Í nýjustu bók sinni, Burt með hluta-
starfsfemínista, rannsakar hún þriðju kynslóð
femínista. Hún hefur ennfremur skrifað bók um
lög Evrópubandalagsins og er stofnandi aðgerða-
nefndarinnar Women on Top, eða Konur ofaná.
Nýjasta bók Femke van Zeijl’s er um líf kvenna í
Mósambík, Súdan, Rúanda, Burundi, Úganda og
Lýðveldinu Kongó.
© Project Syndicate, 2008.
www.project-syndicate.org
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
HÁSKÓLA ÍSLANDS
• Sérsniðið að þörfum þeirra sem vilja stunda háskólanám
samhliða starfi
• BS námið tekur að jafnaði 5 ár og diplóma námið 2 og ½ ár
• Þeir sem ljúka diplóma námi geta haldið áfram og lokið BS gráðu
í viðskiptafræði
• Kennsla fer fram utan hefðbundins vinnutíma
• Kennt er tvisvar í viku, eitt námskeið kennt í einu
• Námsefni og námskröfur byggja á áratugalangri reynslu af
rannsóknum og kennslu í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna
á vidskipti.hi.is
Umsóknarfrestur í námið er til 5. júní.
BS og diplóma nám
í viðskipta fræði
samhliða starfi
www.vidskipti.hi.is
H
2
h
ö
n
n
u
n