Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 30
heilsa
30 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Framtíð og
markmið
heilbrigðis-
þjónustunnar
Málþing í Valhöll miðvikudaginn 4. júní kl. 17-19
Að fundinum standa:
Fulltrúaráðið Vörður og heilbrigðisnefnd
Heilbrigðisstarfsfólk
og allir áhugamenn velkomnir
Pallborðsumræður
Fundarstjóri:
Jóhann Heiðar Jóhannsson
læknir á LSH
Frummælandi:
Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra
Fundarstjóri:
Marta Guðjónsdóttir
formaður fulltrúaráðsins Varðar
Allir velkomnir!
Á að færa aukið
skipulagsvald
til ríkisins?
Hádegisverðarfundur í Valhöll
miðvikudaginn 4. júní, kl. 11.45 – 13.15
Frummælendur:
Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra og
Hanna Birna Kristjánsdóttir
formaður skipulagsráðs Reykjavíkur.
Fundarstjóri:
Sólveig Pétursdóttir
fyrrverandi forseti Alþingis
og formaður sveitarstjórnar-
og skipulagsnefndar.
Að fundinum stendur
sveitarstjórnar- og skipulagsnefnd.
www.sjofnhar.is
Sími 551 3010
mbl.is
smáauglýsingar
Morgunblaðið/Eggert
Hjartaþræðing undirbúin Á Landspítalanum eru nú tvö hjartaþræðingartæki og er annað þeirra komið til ára sinna, bæði tækin eru þó nánast fullnýtt.
H
jartaheill, lands-
samband hjartasjúkl-
inga, á 25 ára afmæli
í október í haust. Af
því tilefni meðal ann-
ars ætla samtökin að beita sér fyrir
söfnun meðal almennings til þess
að hægt verði að kaupa nýtt hjarta-
þræðingartæki á Landspítala,
hjartadeild. Guðmundur Bjarnason
er formaður stjórnar Hjartaheilla.
„Okkar þátttaka verður fyr-
irsjáanlega ekki
nema lítill hluti
af heildarkostn-
aði við kaup á
nýju hjartaþræð-
ingartæki,“ segir
Guðmundur.
„Heildarkostn-
aður við verk-
efnið með hús-
næði og öllum
búnaði er um 200
milljónir króna.
Þar af kostar tækið sjálft um helm-
ing fyrrgreindrar upphæðar.
Hjartaheill stefna að því að safna
um 50 milljónum króna af um-
ræddri upphæð. Ljóst er að sjúk-
lingasamtök sem Hjartaheill verða
fyrst og fremst samnefnari fyrir
söfnun sem þessa en hafa ekki eig-
ið fé til að leggja út svo háa fjár-
upphæð. Þess vegna hafa samtökin
leitað til ýmissa annarra samtaka,
svo sem Lions-, Kiwanis- og Odd-
fellow-hreyfinganna um aðild að
söfnunni. Auk þessa höfum við leit-
að til ýmissa stærri fyrirtækja og
styrktarsjóða sem hafa sinnt verk-
efnum af þessu tagi og loks er ætl-
unin að leita til almennings.“
Hvernig er fyrirhugað að sú
söfnun fari fram?
„Það er meðal annars gert að til-
hlutan félaga hjartasjúklinga víðs
vegar um land. Endapunkturinn á
þessari söfnun verður væntanlega
svo í formi átaks sem fer þá fram
með aðstoð fjölmiðla en ekkert er
ennþá ákveðið endanlega um fyr-
irkomulag á þessu lokaátaki. Söfn-
unin er þegar hafin meðal fé-
lagasamtaka og fyrirtækja og við
höfum fengið góð viðbrögð.
Þess má geta að Hjartaheill hafa
skuldbundið sig til að safna ekki
minna en 25 milljónum króna, eða
einni milljón fyrir hvert afmæl-
isár.“
Til allra heilla
Í haust verða Landsamtök hjartasjúklinga, sem nú heita Hjartaheill, 25 ára og standa fyrir söfnun til að kaupa nýtt hjartaþræð-
ingartæki fyrir LSH. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Guðmund Bjarnason formann samtakanna, Guðmund Þorgeirsson
hjartasérfræðing og Rúnar Guðbjartsson, sem fékk svæsið hjartaáfall fyrir mörgum árum, um söfnunina, starfsemi tækisins og
þýðingu þess fyrir sjúklinga.
Guðmundur
Bjarnason