Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ 4. júní 1978: „Þingkosningar, sem fram fara eftir þrjár vik- ur snúast ekki sízt um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn verði fram í stjórn eða við tek- ur ný vinstri stjórn. Þetta er sú staðreynd, sem blasir við eftir úrslit sveitarstjórn- arkosninganna fyrir viku. Úr- slit þeirra hafa þegar leitt til þess að vinstri stjórn hefur tekið við völdum í Reykjavík undir sósíalískri forystu Al- þýðubandalagsins. Fyr- irsjáanlegt er að nái Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur svipuðu fylgi í þingkosning- unum og þeir gerðu á sunnu- daginn var, munu hinir svo- nefndu vinstri flokkar stefna að myndun nýrrar vinstri stjórnar. Þetta er í raun stað- fest í ritstjórnargrein í Tím- anum í gær, þar sem fjallað er um „hugmyndir og óskir“ um nýja vinstri stjórn.“ . . . . . . . . . . 5. júní 1988: „Stærstur hluti velmegunar, eigna og lífskjara þjóðarinnar er sóttur í sjó, í lífríki sjávar. Með setningu landgrunnslag- anna 1948 var mörkuð fram- tíðarstefna um fiskvernd og hagnýtingu miðanna umhverf- is landið. Allar útfærslur fisk- veiðilandhelginnar, 1952, 1958, 1972 og loks í 200 mílur 1975, vóru reistar á þessum lögum. Sama gildir og um allar stjórnunaraðgerðir í því skyni að vernda fiskstofna og fisk- mið. Síðast en ekki sízt vóru lögin, eða þær röksemdir sem þau vóru grundvölluð á, horn- steinn baráttu þjóðarinnar á alþjóðavettvangi í hafrétt- armálum, sem speglast meðal annars í hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fiskimiðin umhverfis landið eru mikilvægustu auðlindir okkar.“ . . . . . . . . . . 31. maí 1998: „Menntun, þekking og tækni 20. ald- arinnar hafa fært mannkyninu gífurlegar framfarir, sem hafa gjörbreytt almannahag til hins betra víðast hvar á jörðunni. Þessar framfarir segja til sín í menntun og þekkingu fólks á okkar dögum, heilsugæzlu og læknisfræði, húsnæði og vinnuaðstöðu, fjarskiptum og samgöngum – og hvers konar lífskjörum öðrum. Á stöku sviðum hefur mannkynið á hinn bóginn staðið í stað eða hrakizt af leið. Tvær heims- styrjaldir á þessari öld sem senn kveður, hundruð stað- bundinna stríða, hungur og vannæring sem hrjá tugi millj- óna manna á okkar dögum, hryðjuverk víða um veröld og eiturlyf sem tröllríða flestum þjóðum heims tala sínu máli um hinar dekkri hliðar mann- lífsins á öldinni.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HETJUR HAFSINS Sjómannadagurinn er haldinnhátíðlegur í 70. sinn í dag ogverða hátíðahöldin vegleg. Sjávarútvegur hefur löngum verið einn af hornsteinum íslensks at- vinnulífs og hann er undirstaða þess velferðarsamfélags, sem byggt hefur verið upp á Íslandi. Vægi sjávarút- vegs í efnahagslífinu hefur ef til vill minnkað með árunum, en mikilvægið er ótvírætt og kemur gleggst í ljós þegar syrtir í álinn á öðrum sviðum. Sjómenn hafa frá alda öðli boðið óblíðum náttúruöflunum byrginn og sótt björg í bú við hrikalegar aðstæð- ur. Allt of margir góðir menn hafa horfið í hafið. Rúmlega fjögur þús- und manns fórust í sjóslysum og drukknuðu á 20. öldinni. Á þessu hef- ur orðið gjörbreyting. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á fimmtudag hefur orðið 21 banaslys á sjó það sem af er þessari öld og á þessu ári hefur enginn farist á sjó. Þetta er rakið til breyttra fjarskipta, tilkynningar- skyldu, öruggari skipa, breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu og á sjó- sókn, slysavarna og breytts hugar- fars meðal sjómanna. Einnig hefur skráðum slysum öðrum en banaslys- um fækkað verulega. Þetta eru mikil gleðitíðindi og ánægjulegur árang- ur. Aukið öryggi sjómanna er lífs- spursmál í orðsins fyllstu merkingu. Miklar breytingar hafa orðið í sjó- mennsku á undanförnum árum. Nú er svo komið að ekkert kaupskip er skráð á Íslandi og hafa menn áhyggj- ur af því að íslensk farmannastétt muni hverfa. Flutningar á skipum í kringum landið eru liðin tíð og áhafnir kaupskipa í siglingum til landsins og frá eru að stórum hluta erlendar. Einnig velta menn fyrir sér hvort sama þróun muni eiga sér stað á fiskiskipum. Í sjálfu sér er ekkert við þeirri þróun að segja, en hún hefur hins vegar í för með sér að mikilvæg þekking hverfur úr landi og gæti valdið vandamálum síðar meir. Stærð fiskistofnanna við landið er undirstaða sjávarútvegsins. Það var mikið áfall þegar skera þurfti niður þorskkvótann á þessu ári. Það hefði hins vegar eingöngu þjónað skamm- tímahagsmunum að hlusta ekki á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um aflamark. Sjómenn hafa iðulega deilt við vísindamennina um fiskinn í sjón- um. En raunin er sú að þar til nú hafði aldrei verið farið eftir ráðgjöf Hafró. Vísindin eru ef til vill ófull- komin, en á öðru er ekki að byggja eigi sjávarútvegur áfram að vera undirstöðuatvinnugrein. Í gær var Víkin – sjóminjasafnið í Reykjavík opnað á ný eftir gagnger- ar breytingar. Það er við hæfi að safnið er í fyrrverandi fiskverkunar- húsi Bæjarútgerðar Reykjavíkur í vesturhöfn Reykjavíkur. Sigrún Magnúsdóttir er forstöðumaður Vík- urinnar og hefur stjórnað safninu af röggsemi: „Hér getur fólk skoðað sýningarmunina í því umhverfi sem þeir komu úr og andað að sér sjáv- arloftinu,“ sagði hún í viðtali við Morgunblaðið á fimmtudag. „Við er- um hér á mörkum tveggja heima. á aðra hönd er fiskihöfnin, ein stærsta fiskihöfn landsins, og svo horfir mað- ur beint inn í miðborgina héðan.“ Safnið hefur nú tekið til varðveislu tvö skip, varðskipið Óðin þar sem stendur til að setja upp sýningu um þorskastríðin og dráttarbátinn Magna. Einnig hefur verið bætt við sýningum. Ein sýningin á safninu nefnist Frá örbirgð til allsnægta og er þar rakin verkunarsaga sjávar- fangs. Tengsl almennings við sjó- mennskuna eru ekki jafn sterk og þau voru fyrr á árum. Sjóminjasafnið er góð leið til að gefa nýjum kyn- slóðum tækifæri til að átta sig á því hvernig Ísland varð bjargálna og sá grunnur var lagður sem íslenskt samfélag hvílir á. Sjómannadeginum verður fagnað um allt land í dag. Sjómenn, til ham- ingju með daginn. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ B ergur G. Gíslason, sem jarðsettur var frá Dómkirkjunni sl. fimmtu- dag, 100 ára að aldri, var einn þeirra manna, sem áttu þátt í að byggja Morgunblaðið upp á 20. öldinni. Fjölskylda Bergs hafði komið við sögu Árvakurs hf., útgáfufélags Morg- unblaðsins, frá stofnun þess árið 1919 og var faðir Bergs, Garðar Gíslason stórkaupmaður, einn af forystumönnum félagsins frá upphafi og stjórn- arformaður þess á árunum 1927 til 1938. Sam- kvæmt því, sem fram kom í minningargrein Har- aldar Sveinssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Morgunblaðsins og stjórnar- formanns Árvakurs hf. um langt skeið, hér í blaðinu á útfarardaginn sat Bergur sinn fyrsta fund í Árvakri á árinu 1942 og kom þar við sögu fram á tíunda áratuginn. Bergur G. Gíslason sýndi ritstjórn Morgun- blaðsins mikinn áhuga. Hann kom í reglulegar heimsóknir til ritstjóra blaðsins, veitti þeim gagn- rýnið aðhald og kom með uppbyggilegar hug- myndir um efni þess. Þegar horft er til baka má kannski segja, að Bergur hafi verið býsna fram- sýnn í skoðunum sínum á efni Morgunblaðsins. Honum þótti blaðið löngum of þungt og taldi að hinn almenni lesandi vildi léttara efni í bland við þyngri texta. Markaðsmenn Morgunblaðsins hafa á seinni árum lýst svipuðum sjónarmiðum og Bergur gerði á seinni hluta síðustu aldar. Flestir eigendur Morgunblaðsins á 20. öldinni lögðu mikla áherzlu á að tengslin á milli blaðsins og Sjálfstæðisflokksins yrðu rofin. Bergur G. Gíslason var í þeim hópi eigenda. Hann ýtti ára- tugum saman á aðgerðir í þeim efnum en alltaf af mikilli kurteisi og skilningi á erfiðri stöðu á köfl- um. Eftir því sem árin liðu og fundum með Bergi fjölgaði varð ritstjórum Morgunblaðsins ljóst, að hér var óvenjulegur maður á ferð, sem jafnframt var afar farsæll í lífi sínu. Af samtölum við hann mátti margt læra og virðing fyrir honum jókst eft- ir því, sem kynnin urðu meiri. Það var gaman að heimsækja Berg G. Gíslason á eitt hundrað ára afmæli hans. Eftir að hann var kominn yfir nírætt var það nokkuð algengt um- ræðuefni á milli hans og ritstjóra Morgunblaðsins, að sennilega mundi hann ná hundrað ára aldri, og líklega hefur hann verið staðráðinn í að það skyldi takast. Í hundrað ára afmælinu var Bergur ótrúlega ungur að sjá, umkringdur Ingibjörgu eiginkonu sinni, dætrum og stórri fjölskyldu. „Okkur hefur alltaf komið vel saman,“ sagði hann við ritstjóra Morgunblaðsins við lok þessa síðasta fundar þeirra. Bergur G. Gíslason var einn af þeim merku Ís- lendingum, sem byggðu íslenzkt þjóðfélag upp á 20. öldinni. Að leiðarlokum eru honum þökkuð mikilvæg störf í þágu Morgunblaðsins um sex ára- tuga skeið og einstök persónuleg kynni. Uppgjör? Þ egar Berlínarmúrinn féll og kalda stríðinu lauk vildu ungir og kapps- fullir starfsmenn á ritstjórn Morg- unblaðsins láta kné fylgja kviði og efna til uppgjörs við sósíalista vegna þess, sem hér hafði gerzt á árum kalda stríðsins. Þá vakti fyrir þeim að efna til víðtækrar leitar í erlendum skjalasöfnum að gögnum, sem sönnuðu tengsl stjórnmálahreyfing- ar sósíalista á Íslandi við kommúnistaflokkana í Austur-Evrópu, fjárstreymi hingað frá þeim og áform þeirra um að koma á sósíalísku þjóðfélagi á Íslandi með stuðningi hinna erlendu aðila. Þessi áform um uppgjör runnu út í sandinn vegna þess, að Matthías Johannessen, þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sem hafði síðasta orðið í málefnum ritstjórnar, sagði nei. Hann taldi nóg komið af sundrungu þjóðarinnar í kalda stríðinu og ekkert vit væri í því að halda lengra á þeirri braut. Á árunum á undan hafði Matthías lagt sig fram um að draga úr því sundurlyndi, sem orðið hafði í röðum rithöfunda og annarra listamanna í kalda stríðinu. Eins og þeir sem eldri eru muna var menningunni beitt mjög fyrir kaldastríðs- vagninn. Grein Kjartans Ólafssonar, fyrrverandi alþing- ismanns og ritstjóra Þjóðviljans, hér í Morgun- blaðinu sl. þriðjudag um símahleranir á tímum kalda stríðsins hefur vakið athygli og umræður. Í grein þessari sagði Kjartan Ólafsson m.a.: „Með hinum víðtæku pólitísku símahlerunum var ráðizt að heiðvirðu og vammlausu fólki með aðferðum, sem almennt þykir aðeins við hæfi að beita gegn stórhættulegum glæpamönnum, svo sem eiturlyfjasölum, meintum morðingjum eða landráðamönnum. Þessar pólitísku símahleranir á árunum 1949-1968 eru svartur blettur í sögu ís- lenzka lýðveldisins. Þær eru víti til varnaðar fyrir alla þá, sem fara með æðstu völd, nú og á komandi árum. Vel færi á því, að núverandi dómsmálaráð- herra, fyrir hönd íslenzka ríkisins, bæði allt það fólk, sem brotið var á með þessum hætti afsökunar á ósómanum – þá sem enn lifa og hina, sem látnir eru. Niðjar þeirra eiga líka rétt á slíkri afsök- unarbeiðni.“ Þessum sjónarmiðum Kjartans Ólafssonar svaraði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í ræðu á Alþingi sl. miðvikudag, sem birt var í heild hér í Morgunblaðinu sl. fimmtudag. Dómsmála- ráðherra sagði: „Hér á landi tíðkast, að telji einstaklingar rík- isvaldið gera á sinn hlut sækja þeir rétt sinn í sam- ræmi við lög. Það á við í þessu máli eins og öðrum. Að dómsyfirvöld biðjist afsökunar vegna niður- stöðu dómara er með öllu óþekkt – mál eru til lykta leidd fyrir dómstólum. Að deila við dóm- arann eftir á skiptir engu máli.“ Í grein hér í Morgunblaðinu í dag, laugardag, segir Kjartan Ólafsson m.a.: „Nú er það svo, að símahleranir á vegum stjórn- valda geta verið réttlætanlegar ef við stórhættu- lega menn er að fást, en sá sem hlerað er hjá hlýt- ur þó alltaf að eiga líka einhvern rétt í siðaðra manna samfélagi. Sá réttur er þessi: Hafi hlerunin leitt eitthvað saknæmt í ljós á við- komandi rétt á að fá mál sitt dæmt fyrir almenn- um dómstólum þar sem hann á kost á að verja sig og á dómurum hvílir sú skylda að rökstyðja nið- urstöður sínar. Hafi hlerunin hins vegar ekki leitt neitt sak- næmt í ljós á sá, sem fyrir henni varð, rétt á að vera látinn vita að hann hafi mátt búa við leynileg hlustunartæki á heimili sínu, en grunurinn, sem því olli, hafi ekki reynzt á rökum reistur. Með þeim hætti fær sá, sem órétti var beittur, mannorð sitt hreinsað. Hið einfalda siðalögmál, sem allir heiðvirðir menn hljóta að vera sammála um, er ekki flóknara en þetta. Opinbera yfirlýsingu stjórnvalda um að ekkert saknæmt hafi komið í ljós, þegar hlerað var, mætti skoða sem ígildi af- sökunarbeiðni.“ Á tímum kalda stríðsins var það útbreidd skoð- un meðal margra einstaklinga og þá ekki sízt vinstri manna, að símar þeirra væru hleraðir. Þeir töldu sig heyra klikk í símanum, þegar talað var, sem væri til marks um það. Þeir Ólafur Thors, þá formaður Sjálfstæðis- flokksins og þingmaður Gullbringu- og Kjósar- sýslu og síðar Reykjaneskjördæmis, og Finnbogi Rútur Valdemarsson, þá þingmaður sama kjör- dæmis fyrir Sósíalistaflokk og síðar Alþýðubanda- lag, töluðu töluvert saman í síma. Þegar klikkin heyrðust sagði Ólafur gjarnan: Nú eru „þeir“ byrjaðir að hlera og þá hófu þeir tveir gjarnan að tala saman dulmál. Á því dulmáli voru handritin í Danmörku gjarnan kölluð „húðirnar“. Í þessu tali þeirra hefur sjálfsagt bæði verið gaman og alvara. En á árum kalda stríðsins var það líka útbreidd skoðun hér, að sendiráð Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna stæðu fyrir víðtækum símahlerunum hér á landi. Staðreynd er að um miðjan áttunda áratuginn fór fram samtal á milli Geir Hallgríms- sonar, þá forsætisráðherra, sem staddur var í Noregi, og ritstjóra Morgunblaðsins. Geir bað rit- stjórann þá að tala ekki um viðkvæm mál, sem á döfinni voru, þar sem hætta væri á að símtalið væri hlerað. Á þeim tíma var um það rætt, að sov- ézka sendiráðið hefði tækjabúnað til þess að kom- ast inn í millilandasamtöl þegar þau færu í loftið á milli Landsímahússins við Austurvöll og Gufu- ness. Er Kjartan Ólafsson með kröfu sinni um op- inbera afsökunarbeiðni að efna til uppgjörs um kaldastríðsátökin hér? Það má draga þá ályktun af fyrri grein hans en hann virðist milda þá kröfu í seinni grein sinni hér í blaðinu í dag, laugardag, þegar hann segir: „Obinbera yfirlýsingu stjórnvalda um að ekkert saknæmt hafi komið í ljós, þegar hlerað var, mætti skoða sem ígildi afsökunarbeiðni.“ Nú getur það verið álitamál, hvort hægt væri að túlka slíka opinbera yfirlýsingu á þennan veg en líka má spyrja: Hafa opinber yfirvöld nú nokkra möguleika á að staðhæfa slíkt? Þjóðskjalasafn sendi fyrir nokkrum mánuðum út upplýsingar til afkomenda þeirra, sem urðu fyr- ir símahlerunum á þessum árum, um að sími við- komandi hefði verið hleraður. Þegar spurt var, hvort efnislegar upplýsingar væru til um hin hleruðu símtöl, kom í ljós að svo var ekki. Hið eina, sem vitað var skv. upplýsingum Þjóðskjalasafns, var að þessi tiltekni sími hefði verið hleraður. Úr því að svo er má spyrja hvort opinber yf- irvöld á árinu 2008 hafi nokkra möguleika á að gefa út slíka yfirlýsingu. Þau hafa ekkert í hönd- unum. Þá má spyrja, hvort það leiði ekki af sjálfu sér að ekkert saknæmt hafi komið fram vegna Laugardagur 31. maí Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.