Morgunblaðið - 01.06.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 41
ÖRYGGISMÁL í lofti, láði og legi
eru til umfjöllunar í samgöngu-
ráðuneytinu á degi hverjum. Frá því
ég tók við embætti samgöngu-
ráðherra hef ég lagt sérstaka
áherslu á öryggismál í samgöngum,
þar með talið öryggi til sjós. Örygg-
ismál sjómanna eru
mér hugleikin, ekki
síst á hátíðisdegi sem
þessum, sjómannadeg-
inum.
Í dag starfar á veg-
um ráðuneytis míns
verkefnisstjórn um ör-
yggismál sjómanna,
sem hrindir í fram-
kvæmd, ásamt Sigl-
ingastofnun Íslands,
verkefnum sem stuðla
að auknu öryggi. Í
verkefnisstjórninni
eiga sæti fulltrúar allra
hagsmunaaðila á þessu sviði. Ég vil
þó leggja aukna áherslu á að virkja
grasrótina ennfremur og sækja hug-
myndir og áherslur til sjómannanna
sjálfra. Það skiptir verulegu máli að
öryggi sjómanna sé sem mest enda
gegnir sjómennskan og sjósókn
veigamiklu hlutverki í samfélagi okk-
ar og er undirstaða margra sveitar-
félaga. Sem betur fer hefur dauðs-
föllum á sjó fækkað til muna
undanfarin ár og áratugi.
Í dag mun Siglingastofnun Íslands
verða með bás á Miðbakka Reykja-
víkurhafnar þar sem áætlun um ör-
yggi sjófarenda verður kynnt. Þar
munu jafnframt liggja frammi útgáfa
áætlunarinnar, mynddiskar, fræðslu-
bæklingar og önnur upplýsingarit.
Vekur athygli erlendis
Margt af því sem unnið hefur verið
í krafti verkefnisstjórnar um örygg-
ismál sjómanna hefur vakið athygli
erlendis. Má þar nefna
upplýsingakerfið um
veður og sjólag sem
Siglingastofnun er að
taka í notkun um þessar
mundir. Þar er að finna
upplýsingar um að-
stæður til sjós um allt
norðanvert Atlantshaf
og alla leið austur í Bar-
entshaf. Jafnframt er
þar aðgangur að sjáv-
arföllum yfir stóran
hluta Atlantshafsins.
Það hefur sýnt sig að
ölduspáin er mjög ná-
kvæm enda hafa öldumælingar hér
við land verið notaðar til að end-
urbæta ölduspár Evrópsku veð-
urreiknimiðstöðvarinnar og eru gögn
þaðan talin þau bestu sinnar teg-
undar sem notuð eru í heiminum í
dag. Markmiðið er að þessar upplýs-
ingar geti orðið aðgengilegar sjófar-
endum um allt norðanvert Atlants-
haf allt að sjö daga fram í tímann.
Hér er því um mikilvægan þátt að
ræða í viðleitni okkar að tryggja og
treysta siglingaöryggi.
Slysin gera ekki boð á undan sér,
jafnvel þó við leggjum okkur í líma
við að koma í veg fyrir þau. Við þurf-
um að tryggja eins vel og unnt er að
leit og björgun geti hafist á sem
skemmstum tíma. Við þurfum að
tryggja að við búum yfir sem bestu
eftirlitskerfi með skipum og skipa-
umferð í því sambandi og jafnframt
eins góðan staðsetningar- og neyð-
arbúnað skipa, sem gerir okkur
kleift að miða út staðsetningu björg-
unarbáta á sem nákvæmastan hátt
þegar slys ber að höndum. Í þessu
sambandi vil ég geta þess að frá og
með 1. febrúar 2009 hefur verið
ákveðið að allir neyðarsendar í skip-
um sendi eingöngu út á tíðni 406
MHz.
Það er ávallt þörf á því að halda
gangandi umræðunni um öryggis-
mál sjómanna og halda áfram þeirri
vinnu sem unnin er í þágu öryggis-
ins.
Ég óska öllum sjómönnum og fjöl-
skyldum þeirra til hamingju með
daginn.
Öryggi sjómanna
Kristján L. Möller skrifar
um mikilvægi sjómannastétt-
arinnar
» Það skiptir verulegu
máli að öryggi sjó-
manna sé sem mest
enda gegnir sjómennsk-
an og sjósókn veiga-
miklu hlutverki í sam-
félagi.
Kristján L. Möller
Höfundur er samönguráðherra.
S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • S í m i 5 8 8 9 0 9 0
S v e r r i r K r i s t i n s s o n , l ö g g i l t u r f a s t e i g n a s a l i .
w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Að Löngulínu 14, Garðabæ, er til sölu
glæsileg endaíbúð með einstöku
sjávarútsýni.Tilbúin til afhendingar strax.
Stutt í skóla.
Stærð: 130 fm
Fjöldi herbergja: 3
Stæði í bílageymslu.
Áhvílandi: 23,5 milljónir
– hagstætt lán.
EINSTAKT SJÁVARÚTSÝNI Verð: 39,8 m.kr.
Opið hús á sunnudag:
Íbúðin er til sýnis 1. júní
milli kl. 17 og 18.
ATHUGIð: Nýr WV Golf fylgir með – innifalið í kaupverðinu!
Kæru brúðhjón!
Til hamingju með að
hafa veitt hvort annað.
Þið hafið sannarlega
fangað sjálfa fegurðina.
Já, hjartanlega til ham-
ingju með þá mik-
ilvægu ákvörðun að
ætla að innsigla ást
ykkar með því að ganga
í heilagt hjónaband.
Játast þannig hvort
öðru í votta viðurvist,
bæði frammi fyrir Guði
og mönnum, að þið vilj-
ið leitast við að ganga lífsveginn sam-
an hönd í hönd og taka því saman
sem tilveran og dagarnir kunna að
bjóða ykkur upp á. Fátt er einlægara
og fallegra en að innsigla ást sína
með þessum hætti og því er sönn
ástæða til þess að óska ykkur til ham-
ingju og gleðjast og fagna með ykk-
ur. Guð blessi þessa ákvörðun ykkar
og leiði ykkur allar stundir. Munið að
hafa hann meðvitað með í öllu ykkar
verki, öllu sem þið takið ykkur fyrir
hendur. Þá mun ykkur farnast vel og
hjónabandið blessast.
Ég bið þess að brúð-
kaupsdagurinn verði
ykkur ævinlega minn-
isstæður, verði sjóður
dýrmætra minninga
sem þið getið sótt í til að
viðhalda ástinni. En það
að viðhalda ástinni get-
ur kostað fórnir. Alla-
vega kostar það einbeit-
ingu og þjálfun, úthald,
þolinmæði og aga.
Glóð ástarinnar
Svo glóð ástarinnar
slokkni ekki þarf stöðugt að blása í
glæðurnar því ástin er ekki sjálfgefin
og því síður sjálftekin. Maki þinn hef-
ur gefið þér ást sína og þú honum.
Hún er ykkar sameiginlega val. Sýnið
því hvort öðru þá sjálfsögðu tillits-
semi og virðingu að veita ykkur rými
til að rækta ástina. Þú þarft nefnilega
stöðugt og ævinlega að spyrja sjálfan
þig: Hvað get ég gert til þess að við-
halda glóð ástarinnar svo fegurðin fái
blómstrað og notið sín? Hvað get ég
gert til að maka mínum líði ávallt sem
best, finni til sín, finni til öryggis og
friðar? Hvað get ég gert svo maki
minn fái blómstrað og notið sín?
Hvað get ég lagt af mörkum svo við
fáum áframhaldandi dansað lífsdans-
inn saman í takt?
Vertu þar sem hjarta þitt slær
Ef þú vilt að hjarta þitt slái í fjöl-
skyldu þinni, þ.e. hjá maka þínum og
börnum, þá þarftu einfaldlega að
verja tíma þínum með þeim. Þið þurf-
ið að tala saman. Þú þarft að vera
virkur hlustandi, þið þurfið að vinna
saman, gráta saman, biðja saman,
gleðjast saman og njóta uppsker-
unnar saman.
Vertu ávallt þar sem hjarta þitt
slær, hvert sem þú ferð og hvar sem
þú ert, vertu ekki þar sem heimurinn
lokkar og hugurinn kann að girnast
hverju sinni um stundarsakir.
Truflaðu aldrei líf þitt með óþarfa
flækjum sem hægt hefði verið að
komast hjá. Kveiktu ekki elda sem
ekki verða svo auðveldlega slökktir.
Því þeir munu skilja eftir sviðna jörð,
kramin hjörtu og flakandi sár. Eða í
besta falli djúp, illgræðanleg og var-
anleg ör. Í það minnsta á sálinni.
Varanleg hamingja
Ef svo ólíklega vildi til að einn dag-
inn myndi sá tími yfir þig renna að
heimurinn tæki í þig að toga, hug-
urinn að flögra um, girnast og gæla
við grasið í næsta garði, þá muntu
jafnframt upplifa að hjartað þráir fé-
laga. Því það þráir jafnvægi og traust,
frið og ást. Hafðu ávallt hugfast að
heima hjá þér bíður fólk sem treystir
þér, reiknar með þér, stólar á þig,
þráir þig og elskar þig. Hlauptu ekki
eftir því sem hugurinn girnist hverju
sinni því það leiðir þig aðeins í veg-
leysu og ógöngur.
Hlustaðu heldur eftir því hvað
hjarta þitt þráir en hvað hugurinn
girnist. Láttu hugann aldrei bera
hjartað ofurliði.
Mundu að skemmtunin er aðeins
skammvint hugarástand sem veitir
stundargleði. Hún er yfirborðskennd
og skilir lítið eftir annað en áhyggjur
og sektarkennd. Hin hjartanlega
hamingja veitir hinsvegar sanna
gleði því hún er varanleg vegna þess
að hún byggir á djúpri alvöru.
Ræktið því garðinn ykkar saman.
Hlúið að ástinni, gefið henni rými og
skjól svo hún fái blómstrað. Og mun-
ið að það er mikilvægt að reyta arf-
ann.
Já, við sem unnum ástinni og erum
þeirrar náðar aðnjótandi að fá að
njóta hennar, gleymum ekki að pússa
og fægja þann dýrmæta demant sem
ástin er svo hún rykfalli ekki heldur
haldist við og vari um ókomna daga
jafnt sem nætur.
Með hamingjuóskum til brúðhjóna sumarsins
Ræktið því garðinn ykkar sam-
an og hlúið að ástinni segir Sig-
urbjörn Þorkelsson
» Gleymum ekki að
pússa og fægja þann
dýrmæta demant sem
ástin er svo hún rykfalli
ekki heldur haldist við
og vari um ókomna daga
jafnt sem nætur.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.
landsins. Þessir fáu
sérfræðingar hafa lítið
verið notaðir í um-
ræðunni um þróun-
armál, og ráðamenn
þjóðarinnar hafa lítið
sem ekkert hlustað á
þær tillögur sem þeir
hafa sett fram. Þekk-
ing á þróunarmálum
er alltaf að aukast í
Háskólanum á Ak-
ureyri sem og Háskóla
Íslands. Því hvetur
undirritaður utanríkis-
ráðherra til að gera
samstarfssamning við
HA og HÍ um að skól-
arnir fái að gera út-
tektir á þróunarsam-
vinnu Íslendinga.
Háskólarnir eru vel til
þess fallnir að gera
þessar úttektir, því
t.a.m. reglur ríkisend-
urskoðanda um vörslu
og meðferð fjármuna
eiga ekki við í þróun-
armálum, heldur þurf-
um við sérfræðinga til
að meta þær efnahags-
legu breytingar sem
verða á samstarfs-
löndum okkar. Með því að gera
samstarfssamning við HA og HÍ
væri utanríkisráðherra að efla
fræðilegan grunn skólanna, sem og
viðhalda hinni takmörkuðu þekk-
ingu á þróunarmálum hér á landi.
Ýta stjórnmálum til hliðar
Það jákvæðasta í hinu nýja frum-
varpi er að Ísland ætlar loksins að
sækjast eftir því að vera aðili að
þróunarsamvinnunefnd OECD
(DAC). Aðild að þróun-
arsamvinnunefnd
OECD myndi hafa
virkilega góð áhrif á
þróunarsamvinnu Ís-
lendinga. Hins vegar
þurfa Íslendingar að
taka aðra umræðu um
þróunarmál, en við
verðum að fara að
mynda okkur almenni-
lega stefnu um hvernig
við ætlum að sinna
þróunarsamvinnu okk-
ar. Eigum við að beita
okkur betur innan Al-
þjóðabankans? Eða
sækja um aðild að þró-
unarbanka Afríku og
einbeita okkur alfarið
að Afríku? Og af
hverju hafa Íslend-
ingar aldrei notað
fjárlagastuðning eins
og nágrannaþjóðir
okkar hafa verið að
gera?
Það eina sem ég bið
ráðherra og þingmenn
um er að ræða um þró-
unarmál á skynsömum
nótum og alls ekki
blanda pólitík eða
flokkslínum inn í umræðuna. Það
sem allir hljóta að vilja er að gera
þróunarsamvinnu Íslands skilvirk-
ari. Eins og staðan er í dag og með-
an ÞSSÍ er ennþá sjálfstæð stofnun
erum við því miður ekki að ná því
markmiði.
» Það eina sem
ég bið ráð-
herra og þing-
menn um er að
ræða um þróun-
armál á skyn-
sömum nótum
og alls ekki
blanda pólitík
eða flokkslínum
inn í umræðuna
Sölmundur Karl
Pálsson
Höfundur er nemandi í samfélags-
og hagþróunarfræði við Háskólann
á Akureyri og situr í framkvæmda-
stjórn Ungra jafnaðarmanna.