Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 01.06.2008, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 49 ið, svo mikið að það gæti brugðið til beggja vona. Elsku amma, þessum degi gleymi ég aldrei, ég fór í pollý- önnuleik og hugsaði með mér: amma, nei, hún verður hress, hún er með svo sterkt hjarta. Á hvítasunnudag kom ég svo að heimsækja þig á spítalann með pabba, þú varst enn mikið lasin en lést þig hafa það að spjalla og grín- ast eins og alltaf, raulaðir lag og sagð- ist ætla að koma í grill til mín þegar þú myndir hressast og komast heim. Ekki léstu það sjást að þú værir mikið lasin þarna, þar sem þú lást og hlóst svo mikið með bleika svampinn í höndunum eins og sleikjópinna. Mikið er ég fegin að hafa komið til þín þenn- an dag. En þrátt fyrir leikinn minn þá dóstu viku seinna. Margs er að sakna, margs er að minnast eru upphafsorð í bæn sem farið var með yfir þér inni á spítala og eru þau svo lýsandi fyrir þig, minningarnar sem ég á um góða ömmu sem hafði alltaf pláss fyrir alla eru óteljandi. Frá hringferðunum okkar um landið, veiðiferðunum, allar kirkjurnar sem við skoðuðum og feng- um aldrei leið á, spáðu í það amma. Bara ef við hefðum haldið bókhald yfir kirkjurnar þá væru örugglega fáar eftir sem við áttum eftir að skoða. Tíminn í hringferðunum sem fór í að kenna mér ljóð og söngvísur er mér líka ógleymanlegur, alltaf varstu til í að taka vísnabókina með og hjálpa mér að muna. Ferðirnar sem ég fór með vestur á Flateyri á skakið, eða þegar pabbi og afi fóru á skakið og við vorum heima. Minnisstætt er mér þegar langamma Petrína hafði ekki tíma til að elda hafragrautinn góða og þú ætl- aðir að malla hann fyrir mig, og ég hélt það nú ekki, ég borðaði sko bara grautinn hennar langömmu og ætlaði bara að halda því áfram. Margar fleiri minningar leita á hugann þegar ég sit hérna og skrifa til þín fátækleg orð til að heiðra minningu þína. Í seinni tíð hefur verið ómissandi partur af lífi mínu og strákanna að koma við í Há- túni og fá okkur kakó og pönnsur eða vöfflur og spila við þig og afa, og hvað Andri og Breki höfðu gaman af stóln- um þínum, það var ótrúlegt. Laufa- brauðsbaksturinn fyrir hver jól og amma, takk fyrir að kenna Röggu systur að búa til deigið og fletja út, nú getum við haldið áfram að baka. Minningarnar eru það sem við eigum eftir, minningar um ömmu og lang- ömmu sem alltaf átti tíma fyrir ung- ana sína og vinkonu sem virtist hafa óþrjótandi kraft til að framkvæma og leiðsinna hvenær sem á þurfti að halda. Elsku amma, það svíður mest að ég skyldi ekki hafa náð í þig og sýnt þér það sem við vissum fyrir löngu. Elsku amma, leiðin þín er á enda en í brjósti mínu lifir minning þín þar til minni leið lýkur og við hittumst á ný. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Sesselja Hrönn Pétursdóttir. Amma mín er látin og mig langar að minnast góðs dags sem ég átti með henni og afa uppi í sumarbústað þegar ég var 5 eða 6 ára. Þegar ég var lítill þá fór ég stundum uppí sumarbústað með fjölskyldunni. Það var yfirleitt á sumrin, mamma, pabbi og amma böð- uðu sig í sólinni á meðan afi var yf- irleitt að dunda sér við annað, svo sem slá grasið, helluleggja lítinn körfu- boltavöll eða smíða stærri pall. Dag einn fór ég einn með ömmu og afa upp í bústað. Ég lék mér með dýraleik- föng, sem voru alltaf á staðnum, uppi í brekkunni sem mér fannst skemmti- legt að ímynda mér að væri lítið fjall. Við amma fórum svo að tína ber úti í móa, mest krækiber, sem ég skildi ekkert í, því mér þóttu þau svo vond. Við tíndum líka smá bláber og um kvöldið gaf hún mér skyr með bláberj- um sem mér fannst alveg svakalega gott. Um kvöldið þegar amma var að leggja kapal spurði ég hvort ég mætti vera með og amma spurði mig hvort ég kynni eitthvert spil sem ég kunni ekki. Hún kenndi mér þá spil sem heitir Svarti Pétur, sem er eins einfalt og það gerist, og þótti mér það rosa- lega skemmtilegt, sérstaklega þegar ég vann. Hún hefur örugglega leyft mér að vinna en ég áttaði mig ekki á því þá. Mér fannst amma alltaf svo vitur þegar ég var lítill, hún hafði allt- af svar við öllum mínum spurningum og kunni ráð við öllu. Ég á eftir að sakna ömmu minnar eða ömmu Sessu eins og við kölluðum hana, hún var yndisleg manneskja. Takk fyrir allar góðu stundirnar og hvíldu í friði, amma mín. Emil Andri. Þegar Guð bankar á dyrnar er fátt hægt að gera, við leggjum líf okkar í hans hendur og hlýðum kalli hans þegar okkar tími er kominn að kveðja. Í þetta sinn kallaði hann til sín lang- ömmu og flutti hana í sína himnasali. Okkur bræðurna langar að minnast langömmu Sessu hinsta sinni. Amma, þú gafst okkur svo margt, þú varst okkur svo góð alltaf, við eig- um þér margt að þakka og góðar minningar geymum við í hjarta og huga okkar til að hugga okkur við. Við brölluðum margt og alltaf þegar við hittumst var glatt á hjalla. Í sumarbú- staðnum eru sjálfsagt elstu minning- arnar okkar um skemmtilegar stund- ir, þegar mamma tók sig til og bakaði köku til að taka með í Hvalfjörðinn og bjóða ykkur í kaffi, ættarmótin sem við eyddum saman, laufa- brauðsbaksturinn og núna síðast þeg- ar þú og afi fluttuð í Hátúnið höfum við oftar en ekki bankað upp á og allt- af áttirðu til handa okkur pönnsur og heitt kakó að bjóða okkur og einhverj- ar skemmtilegar sögur að segja. Þú fylgdist með okkur vaxa og dafna og alltaf varstu tilbúin að hlusta á þegar við höfðum frá einhverju að segja. Það er stórt skarð sem hefur myndast í hjörtum okkar, og spurn- ingar eins og hver bakar laufabrauð með okkur og hver hugsar nú um afa, sem leita á hugann. Við skiljum ekki enn af hverju þú varst flutt burtu frá okkur en það reyndirðu samt að út- skýra fyrir okkur fyrr á árinu þegar við kvöddum langömmu Ragnheiði. Við erum staðráðnir í að hitta þig aft- ur og við vitum að þú bíður okkar á betri stað þar sem engar þjáningar og veikindi eru til. Elsku amma, við söknum þín sárt, svo sárt að orð eru ekki til sem lýsa því. Vertu nú yfir og allt um kring Með eilífri blessun þinni Sitji Guðs englar saman í hring Sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Við pössum afa Hreinsa fyrir þig. Þínir langömmusynir, Sigurður Pétur og Hlífar Arnar. Elsku langamma. Við eigum eftir að sakna þín svo mikið. Við skiljum ekki mömmu þegar hún segir að þú eigir heima hjá Guði núna, við skiljum ekki að þú sért ekki heima, að þú hafir ekki tekið langafa Hreinsa með þér til himna. Takk fyrir allar pönnukökurn- ar, takk fyrir að leyfa okkur að nota stólinn þinn, takk fyrir að kenna okk- ur vísurnar, takk fyrir að gefa okkur tíma með þér, takk fyrir að þykja vænt um okkur Þínir langömmusynir, Andri Brekkan og Breki Brekkan. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ARASON forstjóri, Eskiholti 12, Garðabæ, sem lést þriðjudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju Garðabæ þriðjudaginn 3. júní kl. 15.00. Rannveig Þórðardóttir, Ari Guðmundsson, Elín Anna Brynjólfsdóttir, Anna Jóhanna Guðmundsdóttir, Kári Geirlaugsson, Guðmundur Kárason, Brynjólfur Arason, Erla Björg Káradóttir, Kjartan Vídó, Anna Rannveig Aradóttir, Kristinn Þór Ólafsson, Rannveig Káradóttir, Michaël Pankar, Elín Birta, María Björt og Anna Birna.                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Svanhild MaríaWendel var fædd 18. nóvember 1927 í Reykjavík. Hún lést á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 17. maí 2008. Foreldrar Svan- hild voru Harald Wendel hús- gagnasmíðameist- ari, f. 26.12. 1890 á Þingeyri við Dýra- fjörð, d. 11.11. 1979, og Luise Emma Rickert hjúkrunarkona, f. 12.4. 1891 í Schwerin, Mecklen- burg, d. 24.3. 1980. Systkini Svan- hild voru; Adolf f. 29.2, 1920, d. 11.1. 2004, Ragna Elísabet f. 29.1. 1923, d. 8.4. 1991 og Kristján f. 22.1. 1930. Svanhild var uppalin í vesturbæ Reykjavíkur. Hún lauk stúdentsprófi í Verslunarskóla Ís- lands og dvaldi svo um tíma á Englandi og Ítalíu við nám. Svanhild starfaði hjá Samvinnutrygg- ingum sem ritari til ársins 1976 en hóf þá störf sem einka- ritari forstjóra Járn- blendifélagsins á Grundartanga. Þar starfaði Svanhild til 1994. Sonur Svanhild er Ari Wendel f. 2. 3. 1969, maki Sigrún Elva Einarsdóttir f. 10.11. 1972. Þau eiga tvo syni: Óttar Pál f. 3.1. 2005 og Elías Andra f. 25.10. 2007. Útför Svanhild fór fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Við bræður viljum með nokkr- um orðum minnast móðursystur okkar, Svönu frænku eins og hún var ávallt kölluð, en fyrstu æviár okkar ólumst við upp við hlið hennar í Sörlaskjólinu. Svana var heimsmanneskja, eins og sagt var á síðustu öld um þá sem ferðuðust erlendis og kunnu að tileinka sér allt það góða sem hægt er að tileinka sér við slíkt. Hún hafði líka tök á fleiri tungumálum en margur, talmál, ritmál og jafnvel hrað- ritun enda vann hún sér traust og virðingu sem hægri hönd for- stjóra stórfyrirtækja hér á landi. Úr einni utanferðinni, líklega á árunum 1955–1957, kom hún með 78 snúninga hljómplötu þar sem Haukur Morthens syngur Bjössi kvennagull og ánafnaði okkur plötuna. Plötuna eigum við enn, því allt var í röð og reglu hjá Svönu og hún gætti hennar fram á síðasta ár. Höfnun Halla þegar hún reyndi að klæða hann í ný stígvél fyrir kirkjuferð var mætt með stuttri ákvörðun „Þá verður þú bara heima“. Það þurfti ekki oft slíkt tiltal því það skildist fljótt að ákvarðanir hennar stóðu og voru holl leiðbeining. Svana var háfjallatöffari á sín- um yngri árum, ferðaðist mikið, m.a. með Farfuglum, tók þátt í fyrstu ævintýraferðum á trukk- um inn á hálendið, þegar ferð upp á Hveravelli var 4–5 daga sum- arleyfisferð en ekki 4–5 klukku- stunda skreppitúr og helgarferð á skíði hófst með skíðagöngu frá Sandskeiði, eða jafnvel Lögbergi, upp að Kolviðarhóli. Eitthvað hefur þetta smitað okkur bræður því ekki var Halli fyrr búinn að fá bílpróf en brölt var á jeppa og síðar Weapon um hálendið og óbrúaðar ár Skeiðarársands. Bakterían settist meira í fætur Þórodds sem nýtur þess að ganga um fjöll og dali sumar sem vetur. Ekki er hægt að þakka fyrir árin með Svönu nema minnast helsta aðdráttarafls fjölskyldu- boða heima hjá henni en án efa hafði það áhrif á hvað börn og unglingar sátu prúð og stillt. Auðvitað var gaman að hitta alla í fjölskyldunni og terturnar voru frábærar, en það verður að við- urkennast að heita ostabrauðið, á plötu eftir plötu, var ómótstæði- legt. Á seinni árum kunnum við svo kannski betur að meta smekk hennar á húsgögn, en þau voru sum einhvern veginn öðruvísi en almennt gerðist og heimilið flott. Svana fyllti svo líf sitt nýjum anda og krafti þegar Ari fæddist og það var eins og hún vildi segja: „Munið að hver og einn getur það sem hann ætlar sér.“ Með þeim orðum kveðjum við Svönu og þökkum samveruna. Kæri Ari, Sigrún, Óttar Páll og Elías Andri, við vottum ykkur samúð okkar á þessum erfiðu tímamótum og góður Guð styrki ykkur. Harald og Þóroddur. Sem ég sit miðsvæðis í Krists- kirkju í Landakoti undir háreistri hvelfingu þess húss, rifjast upp hversu viðeigandi er ljóðstafur- inn sem skáldið orti „hér gnæfir hin gotneska kirkja“. Svo flytur þessi mikla hvelfing til mín eins og úr öllum áttum orgeltónlist, trompetleik og vandaðan karla- kórssöng. Allt er þetta tignarleg umgjörð um fyrstu kaþólsku sálumessu, sem ég tek þátt í. Dagurinn er 23. maí og erindi mitt hingað er að kveðja vinkonu mína til röskra 30 ára, sem jafn- framt var mín nánasta samstarfs- kona hátt á 17. ár frá því ég kom fyrst til starfa sem framkvæmda- stjóri Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Svanhild var þar fyrir þegar ég kom og má segja, að ég hafi erft hana eftir tvo fyr- irrennara mína í því starfi, sem báðir dóu á ungum aldri hvor fram af öðrum. Hinn fyrri þeirra hafði ekki löngu fyrr ráðið Svan- hildi úr hópi samstarfskvenna sinna hjá Samvinnutryggingum, þar sem hún hafði átt sinn starfs- feril allan fram að þessu. Þessi arfur reyndist mér vel, því að Svanhild var óaðfinnanleg- ur ritari fyrir mig. Hún var skipuleg og vönduð í hverju verki, sem hún tók að sér og kurteis og notaleg í hvívetna. Okkar umgengni fyrstu árin mín þarna varð meiri en ella fyrir þá sök, að þá vorum við bæði far- andverkamenn, sem fórum til vinnu sunnudagskvöld eða eld- snemma mánudagsmorgna og heim aftur á föstudagssíðdegi. Þá var það oftar en ekki að Svanhild flaut með mér fyrir fjörðinn og þá gáfust tækifæri til að spjalla um heima og geima og kynnast sjónarmiðum á víxl. Þetta gaf mér enn betri innsýn í heilbrigð- ar lífsskoðanir sannkaþólskrar konu, sem greinilega rækti sína trú. Samstarfi okkar lauk á árinu 1994 þegar glákan var farin að glepja henni sýn þannig að henni fannst hún ekki geta sinnt sínu starfi eins og hún vildi. Þegar ég kom á Grundartanga var Svan- hild þar fyrir með son sinn ná- lægt 10 ára aldri og hef ég því fengið að fylgjast með því hve mikil gæfa hann var fyrir Svan- hildi, enda ljúfur unglingur og dugnaðarmaður bæði í skóla og starfi. Ekki efa ég, að vist hans með öldruðum systkinunum á Klafastöðum hefur reynst honum gott veganesti á þeirri leið. Tilgangur þessara minningar- orða er í raun og veru sá einn að tjá þakklæti mitt og minna af kynnunum við Svanhildi Wendel. Og ég tek mér það bessaleyfi að þakka henni samstarfsárin á Grundartanga fyrir hönd allra hinna sem með henni störfuðu þar á þessum árum. Að lokum færi ég Ara syni hennar og fjöl- skyldu hans, sem og öðrum að- standendum Svanhildar innilegar samúðarkveðjur á þessum tíma- mótum. Jón Sigurðsson. Svanhild María Wendel
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.