Morgunblaðið - 01.06.2008, Síða 62
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forvitinn „Einfaldasta leiðin til að deyja sem listamaður er að loka sig af í einhverju ákveðnu rými og stíga ekki úr því,“ segir Bubbi.
B
ubbi tekur á móti mér á
hlaðinu heima við Með-
alfellsvatn. Þrátt fyrir
tæpan hálftíma akstur
frá borginni er líkt og
maður sé kominn í annan heim, nátt-
úrufegurðin er gríðarleg og rósemd-
in eftir því. Bubbi er nýbúinn að
spúla pallinn segir hann mér, sýnir
mér svo rósabeð sem hann var að út-
búa og kveður síðan Gísla, bónda á
Meðalfelli, sem hann var að drekka
kaffi með. Kóngurinn er búinn að
koma sér haganlega fyrir í höllinni
sinni og segist varla nenna lengur í
bæinn. Ég skil hann afskaplega vel,
stemningin þarna er heimilisleg og
einhvern veginn nærandi. Börn
skottast um lóðina og stofuna og
þegar viðtali er lokið tökum við upp
óformlegt spjall í eldhúsinu – á með-
an Bubbi tekur til í kvöldmatinn,
skrælir kartöflur og kyndir undir í
pottum.
Dauði listamannsins
Platan nýja er afskaplega fjöl-
breytt. Hún opnar með suðrænni
texmex-skotinni stemmu en svo
poppa upp kántrílög, síðpönk í anda
Joy Division, þjóðlagatónlist að
hætti Woodys Guthries, plant-
ekrugospel, gróft rokkabillí og
venjuleg „Bubba“-lög. En þrátt fyrir
þetta er heildræn áferð á plötunni,
hljómurinn sem Pétur Ben hefur
knúið fram er sem leiðarstef frá
fyrsta laginu til þess síðasta.
„Þetta með Joy Division er vísvit-
andi,“ segir Bubbi rólyndislega þar
sem við sitjum úti í garði á trépalli
einum. „„Love Will Tear Us Apart“
er á prógramminu hjá mér. Ég geri
þetta oft, votta öðrum listamönnum
virðingu í gegnum svona lög. Við
báðum Kobba að spila svona Joy
Division-bassa og unnum okkur svo
saman í gegnum þetta.“
Nefndur Kobbi er Jakob Smári
Magnússon, bassaleikari í Stríði og
friði og samverkamaður Bubba til
margra ára. Aðrir sem sveitina skipa
eru þeir Guðmundur Pétursson og
Pétur Hallgrímsson gítarleikarar og
svo Arnar Geir Ómarsson trommu-
leikari.
„Svo er annað lag þar sem ég tek
ofan fyrir hljómsveit sem ég hlustaði
gríðarlega mikið á, Procol Harum.
Hún var búin að vera mér gleymd
lengi vel en svo var ég að taka til í
dótinu mínu í fyrra og rakst þá á
gamlar plötur með henni. Ég skellti
þeim á fóninn og volla! Þvílíkir mel-
ódíusmiðir.“
Bubbi segir að Pétur Ben upp-
tökustjóri hafi verið mjög ákveðinn í
öllu ferlinu.
Handan góðs og ills
Bubbi Morthens ætlar
að halda tónleika í
Borgarleikhúsinu á af-
mælisdaginn sinn,
næstkomandi föstudag.
Tilefnið er útkoma
nýrrar plötu, Fjórir
naglar, sem hann tók
upp ásamt Pétri Ben og
hljómsveit sinni, Stríði
og friði. Þrjú ár eru síð-
an plötutvennan Ást og
Í sex skrefa fjarlægð
frá paradís kom út en
aldrei í sögu Bubba
hefur liðið svo langur
tími á milli platna. „Það
er enginn meðalvegur á
þessari plötu,“ sagði
hann Arnari Eggerti
Thoroddsen sem sótti
hann heim að Með-
alfellsvatni.
Ég veit ekki hvort
hann heldur að það sé
auðveldara að sækja þetta á
mig persónulega … 64
»
reykjavíkreykjavík
Bubbi er mjög hvatvís maður,“ segir Pétur Ben,upptökustjóri plötunnar, er hann er spurðurút í samstarfið. „Hann fær greinilega hug-
myndir, kýlir strax á þær og fylgir þeim eftir alla
leið. Hann vissi víst af mér, hafði komið á nokkra
tónleika með mér og einhverju sinni fórum við að
ræða saman. Við tengdumst fljótt í trúnni, við erum
svolítið á sama stað þar. Svo var þetta bara ákveðið í
framhaldinu.“
Hann segir Bubba hafa látið sig hafa prufuupp-
tökur og hann hafi valið úr lög. „Við tókum þetta svo
upp í Sundlauginni og þetta var ekki lengi gert, við
vorum ca. þrjá daga að rúlla þessu inn.“
Pétur segir samstarfið hafa gengið afskaplega vel.
„Ég meina, hann var að falast eftir þessu og það
eitt sýnir styrk. Hann telur það ekki eftir sér að gefa
einhverjum ungum gaukum eins og mér tækifæri.
Þetta kann ég að meta við hann og þetta er virðing-
arvert. Bubbi er alltaf til í eitthvert rugl, alltaf til í
að prófa eitthvað nýtt og reyna sig þannig sem lista-
mann.“
Pétur segir að ekki hafi væst um þá hvað laga-
framboð varðaði, lögin streymi bókstaflega upp úr
Bubba og ný lög héldu áfram að hlaðast upp í miðju
upptökuferli.
„Hann er alltaf semjandi,“ segir hann að lokum.
„Maður hitti hann átta á morgnana, hamrandi á
kassagítarinn. Og þá var hann búinn að fara í rækt-
ina. Ótrúlegt alveg.“
„Á sama stað“
Morgunblaðið/Golli
Bubbi um Pétur: „Hann virkar svo „sweet“ en svo er
hann ekkert „sweet“. Hann er töffari. Hörkutöffari.“