Morgunblaðið - 01.06.2008, Page 68
68 SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
ÞEGAR TVEIR MENN VERÐA HRIFNIR
AF SÖMU STÚLKUNNI
VIRÐIST EINUNGIS EIN LAUSN
VERA Í SJÓNMÁLI... BERJAST.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA
SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
Forbidden Kingdom er einhver
skemmtilegasta og óvæntasta ævintýramynd sumarsins
og ætti að gleðja alla enda húmorinn skammt undan
þar sem Jackie Chan er.
Jackie Chan og Jet Li
eru loksins mættir
í sömu mynd þar sem
snilli þeirra
í bardagaatriðum
sést glöggt.
Nú er spurning
hvor er betri!?
THE FORBIDDEN KINGDOM kl.12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
INDIANA JONES 4 kl. 12:30D - 3D - 5:30D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL
INDIANA JONES 4 kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:40 LÚXUS VIP
LOVE IN THE TIME OF CHOLERA kl. 5:30 - 8 B.i. 7 ára
NEVER BACK DOWN kl. 10:40 B.i. 14 ára
NIM'S ISLAND kl. 1 - 3 - 5:30 LEYFÐ
IRON MAN kl. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
DRILLBIT TAYLOR kl. 1 - 3 B.i.10 ára
IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8:15 SÍÐUSTU SÝN. B.i.16 ára
THE HUNTING PARTY kl. 10:40 SÍÐUSTU SÝN. B.i.12 ára
SEX & THE CITY kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i. 14 ára
INDIANA JONES 4 kl. 1:30D - 4D - 6:30D - 9D - 11:30D B.i. 12 ára DIGITAL
NEVER BACK DOWN kl. 11:30 B.i. 14 ára
NIM'S ISLAND kl. 2 - 4 LEYFÐ
U2 3D kl. 12:303D (á hádegi) SÍÐUSTU SÝN. LEYFÐ 3D DIGITAL
IRON MAN kl. 6:30 - 9 B.i. 12 ára
STELPURNAR
ERU
MÆTTAR
Á HVÍTA
TJALDIÐ
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ valdi hinn 3.
maí sl. athyglisverðustu áhuga-
leiksýningu leikársins sem að þessu
sinni var upp-
færsla Hala-
leikhópsins á
Gaukshreiðrinu.
Sýningin verður
sýnd næsta mið-
vikudag, 4. júní, á
Stóra sviðinu í
Þjóðleikhúsinu
sem verður mikil
breyting fyrir
leikhópinn sem
jafnan sýnir í löngum sal í húsi
Sjálfsbjargar við Hátún fyrir marg-
falt færri gesti.
Markmið Halaleikhópsins er að
iðka leiklist fyrir alla og opna augu
fólks fyrir því en leikhópinn skipa
bæði fatlaðir og ófatlaðir. Leikhóp-
urinn hefur opnað augu almennings
fyrir því að fatlaðir geta leikið á sviði
líkt og aðrir.
Leikstjóri Gaukshreiðursins er
Guðjón Sigvaldason en sýningin er
sú þriðja sem hann leikstýrir með
hópnum en Halaleikhópurinn fagnar
15 ára afmæli sínu í ár og má því
segja að Þjóðleikhúsið færi honum
veglega afmælisgjöf.
Fílamaðurinn, Kirsuberjagarð-
urinn og Gaukshreiðrið
Í Gaukshreiðrinu er um helm-
ingur leikara fatlaður en Guðjón
segir hlutfall fatlaðra og ófatlaðra
misjafnt eftir sýningum.
„Ein af ástæðunum fyrir því að við
völdum þetta verk er sú að þarna eru
margir einstaklingar sem þekkja
stofnanir innan frá,“ segir Guðjón,
fyrir utan það að gera eitthvað ögr-
andi með leikhópnum. „Við settum
upp Fílamanninn og Kirsuberja-
garðinn eftir Tsjekhov þannig að
þetta hefur verið fjölbreytt,“ segir
Guðjón um þær sýningar sem hann
hefur leikstýrt hópnum í áður.
Guðjón segir ekki erfiðara að leik-
stýra leikhópi með fötluðum en öðr-
um leikhópum, þó svo að taka verði
tillit til þess t.d. að einhverjir séu
með skerta heyrn eða eigi erfiðara
með mál en ófatlaðir.
„Þessi hópur er í þessu, eins og all-
ir aðrir áhugamenn um leiklist, af
þeirri gleði sem hann fær út úr því að
skapa hlutverk og þess háttar. Þann-
ig lagað tekur maður í rauninni ekki
tillit til fötlunarinnar, hún er til stað-
ar og hún er eitthvað sem þú lifir
með og vinnur með en ekki það að þú
farir að breyta eða gera eitthvað
auðveldara fyrir það,“ segir Guðjón.
Hann segir það vissulega skemmti-
legt að leikhópurinn hafi orðið fyrir
valinu hjá Þjóðleikhúsinu á 15. af-
mælisárinu og leikararnir eðlilega
hæstánægðir. Rými fyrir áhorf-
endur í hjólastólum verður aukið á
Stóra sviðinu fyrir sýninguna.
Af hreinni gleði
Halaleikhópurinn sýnir Gaukshreiðrið á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu 4. júní
Sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins af Þjóðleikhúsinu
Morgunblaðið/G.Rúnar
Gaukshreiðrið Frá æfingu Halaleikhópsins á verkinu 27. maí sl. Gunnar
Gunnarsson sést lengst til vinstri í hlutverki Randall P. McMurphy ræða við
Bromden höfðingja sem Pétur Orri Gíslason leikur.
Guðjón
Sigvaldason
Miðasala og frekari upplýsingar á
leikhusid.is og halaleikhopurinn.is.
Í HNOTSKURN
» Leikgerð Gaukshreiðursinsskrifaði Dale Wasserman en
hún byggir á skáldsögu Kens Ke-
sey
»Jack Nicholson fór mikinn íhlutverki Randalls P.
McMurphy í samnefndri kvik-
mynd árið 1975. Þýðandi leik-
gerðarinnar er Sonja B. Jóns-
dóttir. Gunnar Gunnarsson
leikur McMurphy og Sóley Björk
Axelsdóttur Ratchet hjúkr-
unarkonu.
» Í Gaukshreiðrinu segir afhömlulausum ungum manni
sem er lagður inn á geðsjúkra-
hús að eigin ósk í stað þess að
fara í fangelsi. Þar kemst hann í
kast við yfirhjúkrunarkonuna
Ratchet með skelfilegum afleið-
ingum.
» Verkið fjallar um valdbeit-ingu og samtakamátt hinna
kúguðu, stöðu geðsjúklinga og
fordóma í þeirra garð.