Morgunblaðið - 01.06.2008, Síða 72
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 153. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 20° C | Kaldast 10° C
Vaxandi suðaust-
anátt, 10-15 m/s á Suð-
vestur- og Vesturlandi,
rignir undir kvöld.
Bjartara eystra. » 8
ÞETTA HELST»
Stuðlað að hjólreiðum
Stór græn skref verða stigin til
þess að fjölga hjólreiðamönnum á
höfuðborgarsvæðinu. M.a. er hug-
myndin að leggja reiðhjólastíg frá
Ægisíðu og upp í Elliðaárdal sem
kosta mun um 300 milljónir. » For-
síða
Sálræn áhrif koma síðar
Landlæknir segir að liðið geti
dagar, vikur eða mánuðir þar til sál-
ræn áhrif jarðhræringanna á Suður-
landi komi fram hjá fólki sem var í
grennd við upptök skjálftanna. Eft-
irkasta náttúruhamfara getur orðið
vart allt að tveimur árum síðar. » 2
Verðmæti úr fiskimjöli
Unnt er að þróa vörur úr fiski-
mjöli sem gætu margfaldað verð-
mæti þess, að sögn dr. Harðar Krist-
inssonar hjá Matís. Það mætti gera
með því að þróa töflur til manneldis
úr íslensku hágæðafiskimjöli. » 4
Urriðinn veiðist vel
Mjög góð urriðaveiði hefur verið í
Laxá í Þingeyjarsýslu neðan virkj-
unar og ýmsir veitt ágætlega ofar í
ánni. Ágæt urriðaveiði var einnig í
efsta hluta Elliðaánna. » 6
Nemendum fjölgar
Konum í námi eftir framhalds-
skólastig fjölgaði um 124,4% á síð-
ustu 10 árum. Körlum á sömu náms-
stigum fjölgaði um 93,7%.
Nemendum á öllum skólastigum
fjölgaði um 20,8% á sama tíma. » 2
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Stelpur! Nýr leikur!
Staksteinar: Skuldbinding til langs
tíma?
Forystugrein: Hetjur hafsins
UMRÆÐAN»
ASÍ spáir harðri lendingu
Alcoa Fjarðaál fékk viðurkenningu
Betra fyrir sprotafyrirtækin
Vöruskiptajöfnuður
MA-skáldin
Nýr arðsamur atvinnuvegur
í dreifbýli
Er ýsustofninn að hrynja líka?
ATVINNA»
TÓNLIST»
Bubbi segir áhættuna
ágerast með aldri. » 62
Gagnrýni, fréttir,
valin atriði og listar.
Kvikmyndir.is er
gríðarlega metn-
aðarfull vefsíða um
kvikmyndir. » 69
VEFSÍÐA»
Íslenskar
kvikmyndir
SAMKEPPNI»
Alexandra Helga kom, sá
og sigraði. » 65
TÓNLIST»
Ekkert að marka
merkimiðana. » 66
Halaleikhópurinn
hefur opnað augu
almennings fyrir því
að fatlaðir geta leik-
ið á sviði rétt eins og
aðrir. » 68
Leika af
hreinni gleði
LEIKLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. 197.000 manns flutt brott
2. Spilda skreið fram í Grafningi
3. Snarpir eftirskjálftar í kvöld
4. Eftirskjálftar halda áfram
TVEIR piltar virða fyrir sér hafið,
bláa hafið, sem hugann dregur, á
Vaðlavík norðan Reyðarfjarðar.
Sjómannadagurinn er í dag en
hann var fyrst haldinn í Reykjavík
og Ísafirði 1938 og breiddist út um
allt land á fáum árum. Hann er nú
ein elsta árlega hátíð á Íslandi.
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Sjómannadagurinn 70 ára
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÚTTEKT á sjúkrahúsinu á Selfossi
hefur leitt í ljós að burðarvirki sjúkra-
hússins stóðst hina miklu áraun meg-
inskjálftanna á fimmtudag mjög vel
þrátt fyrir minniháttar skemmdir á
hlöðnum veggjum og innanstokks-
munum.
Að sögn Ragnars Sigbjörnssonar,
prófessors við Háskóla Íslands og for-
stöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar í
jarðskjálftaverkfræði á Selfossi, ein-
kennist burðarvirki sjúkrahússins af
súlum og burðarbitum. Á milli súlna
eru síðan hlaðnir veggir til að af-
marka rými.
„Það er mjög vel gengið frá þessu,“
segir hann. „Það hefur verið notuð
stálbending og sérstök styrktarnet í
veggina og það gerði að verkum að
þetta hékk allt mjög vel saman og ein-
ungis komu minniháttar sprungur á
milli hlöðnu veggjanna og hins eig-
inlega burðarvirkis.“ Elsti hluti
sjúkrahússins er frá upphafi 8. ára-
tugarins og bendir Ragnar á að þá
hafi hönnunarforsendur miðast við að
sú lárétta áraun sem húsið ætti að
standast væri um 7% af þyngdar-
kraftinum. „En skömmu eftir að
fyrsti hluti hússins var byggður koma
fram strangari hönnunarreglur sem
kveða á um hús skuli standast allt að
20% lárétta áraun. Evrópustaðlar
gera síðan ráð fyrir að hús skuli
standast rúmlega 40% áraun. En
mælingar okkar á sjúkrahúsinu á Sel-
fossi sýndu hins vegar að byggingin
þoldi um 50% áraun. Það sýnir að
menn hafa haft borð fyrir báru þegar
byggingin var hönnuð. Nýjasti hluti
sjúkrahússins er afar traustlega
byggður og einsýnt að þar hefur verið
tekið tillit til ýtrustu krafna. Það sýn-
ir sig í því að húsið stóðst hina feiki-
legu áraun jarðskjálftanna mjög vel.“
Ragnar var sagður Sigurbjörnsson í
frétt Morgunblaðsins í gær. Er beðist
velvirðingar á mistökunum.
Skemmdir á hringveginum
Fáeinir eftirskjálftar urðu á
skjálftasvæðunum í fyrrinótt og kom
einn kl. 5:13 upp á 3,5 stig. Ellefu
manns gistu í fyrrinótt í fjöldahjálp-
arstöðinni á Selfossi í kjölfar fjögurra
snarpra eftirskjálfta seint um kvöldið.
Skemmdir á hringveginum milli
Selfoss og Hveragerðis eru enn að
koma í ljós og hefur Vegagerðin haft
vinnuflokk á staðnum að laga hann.
Allt frá því meginskjálftarnir urðu á
fimmtudag hefur vegurinn verið að
versna og kallar það á ofaníburð.
Húsið stóðst
feikilega áraun
Ellefu gistu í fjöldahjálparstöðinni
á Selfossi í kjölfar snarpra eftirskjálfta
GÓÐ stemning var í sundlaug Seltjarnarness í
gærmorgun en þar fór fram sundæfing Íþrótta-
félags fatlaðra. Kristín Rós Hákonardóttir, af-
rekskona í sundi, stjórnaði æfingunni, sem var
haldin í tilefni af því að búið er að taka í notkun
klefa sem sérhannaður er fyrir fatlaða.
Kristín Þorsteinsdóttir er móðir fatlaðrar
stúlku og segir klefann einn hinn fullkomnasta á
landinu. Hún gagnrýndi harðlega á sínum tíma að
ekki væri gert ráð fyrir aðstöðu fyrir fatlaða þeg-
ar endurbætur á lauginni voru gerðar. ,,Það vant-
aði klefa fyrir fatlaða þegar nýbyggingin var tekin
í notkun og ég var mjög ósátt við að það var ekki
gert ráð fyrir að fatlaðir kæmust í sund. Brugðið
var á það ráð að setja stól í sturturnar til bráða-
birgða. Síðar var svo byggður þessi góði klefi sem
nú er þar kominn og hann er einn fullkomnasti
klefi sem ég hef séð. Ég fékk allar mínar óskir
uppfylltar. Þetta eru góðar sættir.“
Líf og fjör á sundæfingu Íþróttafélags fatlaðra í sundlaug Seltjarnarness
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægð Margir tóku þátt í æfingunni sem Íþróttafélag fatlaðra hélt í gærmorgun..
Fékk allar
mínar óskir
uppfylltar