Morgunblaðið - 12.07.2008, Blaðsíða 21
beitt. Hvernig verða þessar setn-
ingar til?
„Hver maður verður fyrir áhrif-
um af öðru fólki, umhverfi og bíó-
myndum. Ég hef alltaf verið hrifinn
af gömlu bíómyndunum, þar sem
ein setning er sögð sem skýrir allt
þannig að ekki þarf að segja alla
söguna. Svokallaðir „einlínungar“
eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér.
Ég hef dálæti á góðum tilsvörum.
Mín tilsvör eru mörg stolin, stílfærð
og alla vega og sum algjörlega
heimasmíðuð. Svo þegar aðstæður
skapast eða eitthvað kemur upp á
þá lætur maður vaða. Maður reynir
að setja aðstæður í eina setningu og
málið er dautt. Flott!“
Þú hlýtur að hafa séð eftir ein-
hverju sem þú hefur sagt?
„Já, auðvitað en með þessum til-
svörum geri ég allt eins grín að
sjálfum mér og öðrum. Þessi tilsvör
eru kaldhæðni og grín, sögð til að
brjóta upp tilbreytingarleysið.
Hugsanlega móðgast fólk stundum
og heldur að ég sé hrokafullur,
sjálfhverfur og frekur. Ég er
reyndar nokkuð ákveðinn að eðl-
isfari en ég reyni að vera sann-
gjarn. Það er mikilvægt að húm-
orinn sé í lagi. Annars er ég er
algjör kettlingur inn við beinið“
Ertu lífsglaður maður að eðlis-
fari, verðurðu aldrei dapur eða leið-
ur?
„Ég myndi segja að ég sé nokkuð
lífsglaður þótt ég sé ekki stöðugt
eins og hlæjandi potthlemmur. Ég
fæ mín litlu kvíðaköst og finn fyrir
svartsýni endrum og sinnum. En ég
reyni að hrista það af mér og taka
lífið ekki of alvarlega. Ég er skap-
maður, get verið fljótur upp og enn
fljótari niður. Ég get æst mig yfir
smáræðum og það hefur reyndar
aukist aðeins með aldrinum, sem er
dálítið skrýtið því það ætti að vera
á hinn veginn. Skapferli mitt er
eins og hjá Suður-Evrópubúa. Ég á
til að tala hátt, vera ákafur og nota
handahreyfingar og virðist þá vera
mikið niðri fyrir en er þá um leið
býsna rólegur innra með mér.“
Finnst ég alltaf vera að byrja
Þú hefur verið í hjónabandi í ára-
tugi. Hver er lykillinn að góðu
hjónabandi?
„Gott hjónaband er list. Hjón
sem eru búin að vera lengi saman
og sjá börnin sín vaxa úr grasi eru í
þroskandi sambandi sem ekkert
fær haggað. Lykillinn að góðu
hjónabandi er gagnkvæm ást, tillit-
semi og virðing.“
Ertu rómantískur?
„Já, í mínu lífi svífur rómantíkin
mjög oft yfir vötnum. Tónlistin inni-
heldur mikla rómantík sem og
mikla dramatík. Ég er rómantískur
og þori að viðurkenna það. Það eru
ekki allir sem þora að viðurkenna
það því sumum þykir það veikleiki
að vera rómantískur, sem er algjör
misskilningur.“
Ertu pólitískur?
„Lífið er pólítík sagði einhver og
það eru orð að sönnu. Það er ekki
flóknara en það.
Ég er pólitískur. Ég kaupi Mogg-
ann. En þótt ég kaupi Moggann þá
þarf ég ekki alltaf að vera sammála
hægri mönnum. Íslendingar eru
sjálfstætt fólk og hafa verið frá
upphafi. Margir gleyma því að
Sjálfstæðisflokkurinn er sósíal-
demókratískur flokkur og Samfylk-
ingin líka. Fólk kýs menn og mál-
efni frekar en flokka og stefnur.
Lífið má ekki vera flokkspólitík.“
Er mikill rígur í tónlistarbrans-
anum milli þeirra sem keppa um að
vera bestir?
„Við erum allir þannig kolleg-
arnir. Það er samkeppni og það er
gott. Það vilja allir að allt takist
sem best hjá sér. Ég skammast mín
ekkert fyrir að segja að ég vil að
sem flestir kaupi plöturnar mínar
og sem flestir njóti þeirra. Vilja rit-
höfundar til dæmis ekki að sem
flestir kaupi bækurnar þeirra og
lesi þær og njóti? Eða vilja þeir
vera berfættir og svangir uppi á há-
lofti og pára á pappír með fjöð-
urstafnum?
Í listabransanum ber stundum á
því viðhorfi hjá einstaka listamönn-
um að það sé ekki nægilega fínt að
njóta vinsælda meðal almennings
en um leið þrá þessir sömu lista-
menn ekkert meir en viðurkenn-
ingu. Ég þoli ekki þetta viðhorf og
tvískinnung!“
Finnst þér þú hafa náð öllum
þeim áföngum sem þú stefndir að
þegar þú byrjaðir í tónlistarbrans-
anum?
„Nei. Mér finnst ég alltaf vera að
byrja og ég er enn að læra og
reyna. Ég á eftir að koma frá mér
fleiri lögum og búa til fleiri plötur.
Næsta verkefni er nýja sólóplatan
hans Ladda. Ég er í svaka stuði,
eins og segir í laginu hans Ladda.
Ég hef verið svo lánsamur að
mörg laga minna hafa orðið vinsæl
og ég er ánægður með það.
Kannski ætti ég að gera meira af
því að koma mínum eigin lögum á
framfæri. Síðastliðin ár hef ég verið
að semja þó nokkuð og er að und-
irbúa sólóplötu þar sem verða
nokkur lög eftir mig.
Sumir semja lög bara til að geta
sagt að þeir hafi samið lag. Ég á
það til að bera mín lög saman við
önnur lög. Í hvert sinn sem ég er
búinn að semja lag er ég mjög með-
vitaður um að það eru til fjölmörg
lög sem eru miklu betri en mín.
Sennilega er þetta óþarfa kröfu-
harka. En ég held áfram.
Ég verð alltaf að hafa eitthvað
fyrir stafni og er svo heppinn að
geta unnið við það sem ég hef gam-
an af. Ég mun halda áfram að
syngja eins lengi röddin er í lagi og
fólk vill hlusta á mig.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
við beinið
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 21
» Í listabransanum ber stundumá því viðhorfi hjá einstaka lista-mönnum að það sé ekki nægi-
lega fínt að njóta vinsælda meðal al-
mennings en um leið þrá þessir sömu
listamenn ekkert meir en viðurkenn-
ingu. Ég þoli ekki þetta viðhorf og tví-
skinnung!“