Morgunblaðið - 12.07.2008, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Ólafur Þ. Stephensen.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Útlitsritstjóri:
Árni Jörgensen.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Írönum hefurvaxið veru-lega ásmegin
eftir innrás
Bandaríkjanna í
Írak í mars árið
2003. Áhrif þeirra í Mið-
Austurlöndum eru meiri nú en
þau hafa verið um langt skeið.
Þessi uppgangur Írana hefur
verið Bandaríkjamönnum
þyrnir í augum og ekki er
hann heldur bandamönnum
þeirra í Ísrael að skapi.
Bandaríkin hafa haft í hót-
unum við Írana og hefur skap-
ast af því nokkur titringur.
Bandaríkjaþing samþykkti í
fyrra að snarauka útgjöld til
leynilegra aðgerða gegn Íran.
Markmið þeirra er samkvæmt
rökstuðningi Bandaríkja-
forseta til þingsins að grafa
undan klerkastjórninni í Íran.
Kjarnorkuáætlun Írana
hefur einnig valdið miklum
titringi. Írönsk stjórnvöld
segjast vitaskuld aðeins ætla
að nota kjarnorkuna til að
framleiða rafmagn, en margir
gruna þá um að hafa í hyggju
að smíða kjarnorkuvopn.
Ráðamenn í Teheran líti svo á
að takist þeim að smíða ger-
eyðingarvopn komist þeir í
ákjósanlega stöðu í valdatafl-
inu í Mið-Austurlöndum og
geti virt hótanir vettugi.
Í vikunni skutu Íranar tvo
daga í röð eldflaugum í til-
raunaskyni. Sagt er að flaug-
unum megi skjóta á skotmörk
í allt að tvö þúsund kílómetra
fjarlægð. Ekki er
þó allt sem sýnist í
þessum efnum og
hafa meðal annars
birst myndir af til-
raununum, sem
virðist hafa verið breytt.
Margir hafa áhyggjur af að
Bandaríkjamenn muni leita
sér að átyllu til að gera innrás
í Íran. Reynslan í Afganistan
og Írak hlýtur að vera þeim
víti til varnaðar í þeim efnum.
Ísraelum er vitaskuld mjög
órótt yfir auknum mætti Ír-
ana. Írönsk stjórnvöld hafa
ýtt undir hryðjuverk í Ísrael.
Ekki er ólíklegt að Ísraelar
sjái sér hag í að senda orr-
ustuþotur inn í Íran til að
eyðileggja skotpalla þeirra og
eldflaugabúnað. Bandaríkja-
menn kynnu að líta svo á að
slík aðgerð hentaði hags-
munum þeirra, en það væri
skynsamlegt fyrir þá að beita
áhrifum sínum til að hemja
Ísraela því að slík árás gæti
hleypt öllu í bál og brand.
Bandaríkjamenn hafa lagt
áherslu á að draga upp ógn-
vænlega mynd af Írönum, en
það er misskilningur að ætla
að í Íran ráði froðufellandi of-
stækismenn lögum og lofum.
Reynslan sýnir að þegar í
harðbakkann slær láta íransk-
ir ráðamenn raunsæið ráða.
Koma þarf í veg fyrir að Íran-
ar komi sér upp gereyðingar-
vopnum. Það verður gert með
samkomulagi, en ekki blóðs-
úthellingum.
Bandaríkin hafa hert
leynilegar aðgerðir
gegn Íran }
Uppgangur Írana
Tveir starfs-menn Veiði-
málastofnunar,
þeir Þórólfur Ant-
onsson fiskifræð-
ingur og Sigurður Guð-
jónsson forstjóri, skrifuðu
grein í Morgunblaðið í gær
og vöktu athygli á „hernaði
gegn ám landsins“.
Þar eiga þeir við malar-
tekju úr ám, sem hefur farið
vaxandi með árunum vegna
eftirspurnar eftir möl til
vegaframkvæmda. „Fremur
hefur verið sótt í árnar held-
ur en landnámur, þar sem
ummerkin sjást þar síður en
þegar efni er tekið á landi.
Slík malartekja úr ám getur
hins vegar valdið miklum
skaða á búsvæðum og lífríki
ánna ekki síður en á landi.
Áhrifin geta náð langt út fyr-
ir efnistökustað vegna efnis-
tilflutnings og óstöðugleika
botnsins,“ skrifa Þórólfur og
Sigurður.
Þeir benda á að efnistaka
geti valdið stórfelldum skaða
á lífríki árbotnsins. Algengt
sé að á hverjum hundrað fer-
metrum árbotns séu 10-50
seiði laxfiska. „Að
moka upp fugla-
varpi með þessum
þéttleika unga
yrði seint leyft,“
segja þeir.
Sigurður og Þórólfur segja
mörg sveitarfélög hafa van-
rækt hlutverk sitt við vernd-
un lífríkis ánna. Þau hafi
skotið sér á bak við að eldri
námur í eða við árnar séu
starfandi. Þeir vísa hins veg-
ar til nýs ákvæðis í náttúru-
verndarlögum, sem tók gildi í
byrjun þessa mánaðar og
kveður á um að langflestar
eldri námur þurfi fram-
kvæmdaleyfi sveitarstjórnar,
annars sé efnistaka óheimil.
Eftir 1. júlí 2012 munu allar
námur þurfa framkvæmda-
leyfi.
Það er full ástæða til að
taka mark á þessum ábend-
ingum. Lífríki ánna er ekki
síður mikilvægt, þótt það sjá-
ist ekki vel undir yfirborðinu,
en t.d. fugla- og dýralíf, sem
er öllum sýnilegt. Þetta líf-
ríki á að umgangast af sömu
virðingu og varkárni og ann-
að.
Lífríki ánna er ekki
síður mikilvægt}Malarnám og lífríki ánna
O
g er ég ekki spámaður en þó get
ég að þitt nafn sé uppi meðan
veröldin er byggð,“ sagði norsk-
ur farmaður sem gaf stráklingn-
um Urðarketti af Ströndum eig-
ur sínar allar og nafnið Finnbogi um leið.
Norskir jarlar og grískir konungar endur-
ómuðu síðar þennan spádóm um drenginn.
Heimurinn kunni að meta Finnboga ramma
þótt Ísland hefði borið hann út til að deyja.
Finnbogastaðir eru nefndir eftir Finnboga
ramma og þegar þeir brunnu til kaldra kola
fyrir nokkrum vikum hvarf eitt af átta lifandi
býlum í fámennasta og afskekktasta sveita-
samfélagi þjóðarinnar. Það þarf vart að taka
fram hversu mikið áfall þetta er bóndanum
sem missti allt sitt og forfeðranna í eldinum.
Það sem er e.t.v. erfiðara að lýsa er áfallið
sem ríður yfir heilt samfélag þegar eitt bú af svo fáum
fellur í valinn.
Árneshreppur hefur um aldir lifað af margvíslegum
hlunnindum lands og sjávar. Gróskumikill landbúnaður
og sauðfjárstofn, æðarvarp, rekasæld, fiskveiðar, sel-
veiðar og jafnvel hákarlaveiðar hafa verið stundaðar í
hreppnum. Enn lifir þar og starfar fólk sem man og tók
þátt í vinnubrögðum sem lítið höfðu breyst í gegnum ald-
irnar. Menningarminjar eru við hvert fótmál: Vitum við
Íslendingar hvílík auðævi slík lifandi byggð er í heim-
inum í dag?
Í Árneshreppi hef ég smakkað ljúffengasta lambalæri
og hangikjöt um ævina, heimaalið, heimaslátrað og
heimalagað: sjálfbærni í sinni tærustu mynd. Hvers
vegna er Strandakjöt ekki sérstakt vöru-
merki? Ég hef líka teflt þar skák í eftir-
minnilegasta skáksal Síldarverksmiðjunnar í
Djúpavík, steinsnar frá sjarma hótelsins. Ég
hef notið gómsætrar Strandakleinu á Kaffi
Norðurfirði og dáðst að ljósmóðurtólum í
minjahúsinu Kört.
Í blómlegri framtíð hreppsins er enginn að
tala um að hverfa aftur til fortíðar. Þvert á
móti. Tækifærin blasa við sem byggjast á
hinu gamla til að skapa eitthvað nýtt – minj-
um, arfleifð, afurðum, menningu, landslagi,
mannlífi, samfélagi. En ef snjómokstrar
hætta um miðjan vetur, ef kennari nær ekki
í námsefni því að tölvutengingin virkar ekki
– hvað hverfur þá með fólkinu sem fer, sam-
félaginu sem eyðist?
Lifandi menningarlandslag og samfélag á
gömlum merg eru auðæfi í sjálfu sér sem boða ný tæki-
færi til framþróunar ef að þeim er hlúð. Slíkt samfélag er
eftirsóknarvert í heiminum í dag. Þetta vita Norðmenn,
sem öðrum fremur kunna að hlúa að eigin strandbyggð-
um og draga fram fjölbreytileika þeirra og ríkidæmi.
Framtíð Árneshrepps er björt ef einungis brot af hug-
takinu „jafnræði til búsetu“ fær raunverulegt inntak í ís-
lenskum samtíma. Hvenær verður það?
Þau ykkar sem enn hafið ekki heimsótt Árneshrepp á
Ströndum: Látið ekki happ úr hendi sleppa. Sumarið er
ungt og öllum tekið fagnandi!
Áhugasamir geta stutt uppbyggingu á nýju býli á
Finnbogastöðum: reikningur 1161-26-001050; kennitala:
4510892509. glg@althingi.is
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Pistill
Afskekkt auðæfi sumarsins
Framtíð REI í bið-
stöðu fram á haust
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
F
ramtíð Reykjavík
Energy Invest, útrásar-
arms Orkuveitu
Reykjavíkur, hefur ver-
ið á reiki frá ársbyrjun
og samstöðuleysi ríkt meðal borg-
arstjórnarflokkanna um næsta skref í
rekstrinum.
Um síðustu mánaðamót sögðu fjór-
ir lykilstarfsmanna REI upp störfum
og báru því við ekki væri vinnufriður
til að sinna verkefnum vegna ósættis
um framhald starfseminnar.
Minnihlutinn í borgarstjórn hefur
þá stefnu að borgin eigi, með lág-
marksáhættu, að nýta sér þau tæki-
færi sem OR býðst með REI til hags-
bóta fyrir Reykvíkinga. Meirihlutinn
í borgarstjórn hefur hinsvegar sagst
vera á þeirri skoðun að stjórnmála-
menn eigi ekki að standa í áhættu-
rekstri með peninga skattgreiðenda í
öðrum löndum og því eigi OR ekki að
veita meira fé til útrásarverkefna
REI heldur selja þau frá sér.
Á sama tíma berast þó þær fréttir
að dótturfyrirtækið Envent hafi ný-
hlotið rannsóknar- og nytjaleyfi á
Filippseyjum þar sem til stendur að
reisa orkuver, en það mun krefjast
viðbótarfjármagns. Því er ekki furða
að margir spyrji sig hvort algjört
stefnuleysi ríki um rekstur REI.
Verkefnin verða að halda áfram
þar til annað kemur í ljós
Að sögn Kjartans Magnússonar,
stjórnarformanns REI, er nú verið að
leita annarra leiða til að halda áfram
útrásinni erlendis án þess að al-
mannafé sé veitt í verkefni sem í eðli
sínu séu áhættusöm.
„Okkar fjárhagslega skuldbinding
á Filippseyjum kom til í september
síðastliðnum og við getum ekki
hlaupist undan henni, en þetta er
ekki mjög há upphæð, um 800.000
dollarar. Sú vinna er að fara af stað
núna og ef þetta verkefni gengur vel
ættum við að hafa nægan tíma til að
skoða hvernig við getum haldið því
áfram með utanaðkomandi fjár-
magni“.
Kjartan segir að miklir möguleikar
liggi í þeim verkefnum sem þegar
hefur verið komið á fót, en þau séu
jafnframt fjárfrek. Á meðan framtíð
REI sé óráðin verði samt að halda
verkefnunum áfram til að skaða ekki
verðmæti þeirra, þrátt fyrir þá stefnu
Sjálfstæðisflokksins að losa beri OR
undan útrásarstarfseminni.
Niðurstöður stefnumótunar
liggi fyrir í haust
Í sumar stendur yfir mikil stefnu-
mótunarvinna hjá stjórn REI og er
stefnt að því að ákvörðun um fram-
hald útrásarinnar liggi fyrir í haust.
Að sögn Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins,
gengur starfið vel og segist hún von-
ast til að flokkarnir í borgarstjórn
Reykjavíkur komist að niðurstöðu
sem verði farsæl fyrir fyrirtækið og
borgarbúa. „Ég veit ekki hver end-
anleg ákvörðun verður, en hún mun
skýra með nákvæmum hætti hvað við
ætlum að gera í framhaldinu,“ segir
Hanna Birna.
„Okkar stefna er alveg skýr, við
viljum lágmarka þá áhættu sem
skattgreiðendur í Reykjavík bera af
þessu verkefni og við viljum að Orku-
veitan einbeiti sér að þeim verkefnum
sem hún á að sinna, þ.e. sinni kjarna-
starfsemi í þjónustu við borgarbúa.“
Á meðan sé þó nauðsynlegt að því
starfi sem unnið hefur verið sé haldið
við. „Á meðan við erum að skoða
þetta verða þau verkefni sem þegar
eru hafin að fá að halda áfram. Orku-
veitan er ekki að leggja nýtt áhættu-
fjármagn í þetta, það er bara verið að
halda starfseminni gangandi í þeim
farvegi sem hún var í til að tryggja að
möguleg verðmæti glatist ekki.“
„VIÐ höfum haft sömu stefnuna
alla tíð. Það þarf að afmarka áhætt-
una en þetta eru mjög spennandi
tækifæri og við eigum að nýta þau
og koma þannig þekkingu og
tengslaneti Orkuveitunnar í verð,
rétt eins og önnur orkufyrirtæki
eru að gera, til hagsbóta fyrir
Reykvíkinga,“ segir Dagur B. Egg-
ertsson, borgarfulltrúi Samfylk-
ingar. Hann segir það hafa legið
fyrir frá áramótum að REI eigi að
starfa sem útrásar- og fjárfesting-
ararmur OR og það kæmi honum
mjög á óvart ef þar yrði breyting á.
Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi
Samfylkingar í stjórn REI, segir að
útrásin eigi að geta haldið áfram
undir merkjum OR án þess að borg-
in þurfi að leggja til meira fjár-
magn. „Við þurfum þannig ekki að
koma að þessu sem fjárfestir heldur
sem þekkingarlegur bakhjarl, og
með þeim hætti eignumst við okkar
hlut í verkefnunum. Ef okkur tekst
þannig að finna þessu farveg án
þess að leggja meiri peninga undir
þá skil ég ekki alveg í hverju and-
staða Sjálfstæðisflokksins felst.“
REI FYRIR
REYKJAVÍK››