Morgunblaðið - 12.07.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er laugardagur 12. júlí, 194. dag-
ur ársins 2008
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú, lang-
lyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3, 10.)
Víkverji er þeirrar skoðunar aðgott sumarveður á Íslandi, eins
og verið hefur stóran hluta sumars,
sé heimsins besta veður. Ekki of
heitt, ekki of kalt en samt hægt að
fara í sólbað. Að skella sér í sund,
taka nokkra spretti og flatmaga svo í
vaðlaug, það er himneskt. Að
skreppa í sumarbústaðinn, grilla, fá
sér einn ískaldan eða rauðvínsglas
og skreppa í pottinn eftir mat, það er
jafnvel betra.
x x x
Víkverji skrapp nýverið á eyjunaKrít í sumarfrí og var alveg að
drepast úr hita enda hitinn allt að
37°C suma daga. Sundlaugin við hót-
elið bjargaði málum og þar lék Vík-
verji sér með eins og hálfs árs göml-
um syni sínum alla daga í heila viku.
Á morgnana var snædd grísk jógúrt
með hunangi, heimsins bestu ávextir
út í og ólgandi grískt kaffi drukkið
við sundlaugarbakkann. Á kvöldin
hófust allar máltíðir með grísku sal-
ati sem Víkverji fékk aldrei nóg af.
Hvílíkur fetaostur! Hvílíkir tómatar!
Hvílík ólífuolía! Loksins fékk Vík-
verji tómata sem bragð er af og þar
að auki fagurrauðir. Ekki þetta
bleika, vatnskennda drasl sem kall-
að er tómatar í íslenskum matvöru-
verslunum. Og ekki var krítverska
hvítvínið verra, hreinlega bráðnauð-
synlegt að kæla sig niður með því öll
kvöld. Víkverji var engan veginn
saddur af ljúfa lífinu á Krít þegar
halda varð heim.
x x x
Það eina sem varpaði skugga áágætt frí voru ferðirnar til Krít-
ar og frá. Fyrst varð margra
klukkustunda töf á flugi út, svo
bættist við klukkustund út af blind-
fullum farþegum sem voru of
drukknir til að fljúga, og varð því að
finna ferðatöskurnar þeirra reglum
samkvæmt. Vel á aðra klukkustund
tók að innrita sig í flugið heim á Krít
og svo varð aftur töf þar um vel á
aðra klukkustund. Það verður þó
gleymt og grafið þegar Víkverji
hyggur næst á útlandareisu.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hollráðið,
8 happið, 9 atvinnu-
grein, 10 greinir, 11 nef-
ið, 13 kveif, 15 sæti,
18 moð, 21 tré, 22 treg,
23 hamingja, 24 hag-
kvæmt.
Lóðrétt | 2 inntaks,
3 hárug, 4 þjálfun, 5 út,
6 drungi, 7 for, 12 vond,
14 dveljast,15 rétt, 16 án
fyrirvara, 17 aur,
18 brotsjór, 19 fim,
20 svelgurinn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skáld, 4 þrúga, 7 urtan, 8 ökrum, 9 nem,
11 dúða, 13 ásar, 14 gumar,15 farg, 17 asni, 20 gró,
22 logar, 23 nauða, 24 runni, 25 tuddi.
Lóðrétt: 1 Skuld, 2 ástúð, 3 dúnn, 4 þröm, 5 útrás,
6 aumur, 10 eimur, 12 agg,13 ára, 15 fúlar, 16 ragan,
18 stund, 19 iðaði, 20 grói, 21 ónýt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
STAÐAN kom upp á Boðsmóti Tafl-
félags Reykjavíkur sem lauk fyrir
skömmu.
Danski alþjóðlegi meistarinn Espen
Lund (2420) hafði hvítt gegn landa
sínum, kollega og sigurvegara móts-
ins, Jakob Vang Glud (2456). 49.
Hxf7! Rg4 svartur hefði einnig haft
tapað tafl eftir 49…Kxf7 50. Dxe6+
Kf8 51. De7+. Í framhaldinu reynir
svartur að skapa sér mótspil en án ár-
angurs. 50. Dxe6 Dxd4+ 51. Kg2 Kh7
52. Hf4 Db2+ 53. He2 Hd2 54. Hfe4
Rf6 55. Hxd2 Dxd2+ 56. He2 Dg5 57.
c6 Rh5 58. De5 Dc1 59. c7 Dc6+ 60.
Kg1 Rf6 61. h3 Rh5 62. Kh2 Dc1 63.
Dd6 Dc3 64. Hg2 og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Upplýsandi opnun.
Norður
♠KD
♥K104
♦752
♣DG732
Vestur Austur
♠107532 ♠G4
♥5 ♥D98732
♦DG1063 ♦K9
♣K6 ♣1084
Suður
♠Á986
♥ÁG6
♦Á84
♣Á95
Suður spilar 3G.
„Tunga er höfuðs bani,“ segir í
Hávamálum og það sannast oft við
spilaborðið. Málgleðin opnar leiðir,
sem áður voru ófærar. Margir kepp-
endur á EM vöktu í austur á veikum
tveimur í hjarta eða multi-ígildi þeirrar
sagnar. Suður kom inn á 2G, sem norð-
ur lyfti í þrjú. Tíguldrottning út og yf-
irtekin með kóng. Jón Baldursson var
hópi hinna lánsömu sagnhafa þar sem
austur vakti. Jón dúkkaði tígulinn
tvisvar, tók svo spaðahjón og þrjá slagi
á hjarta með sannaðri svíningu. Vestur
mátti missa einn spaða, en þriðja hjart-
að réð hann ekki við með góðu móti –
varð að henda frítígli. Jón spilaði þá
♠Á og spaða og neyddi vestur til að
gefa laufslag. Þeir sagnhafar sem enga
hjálp fengu í sögnum treystu á ♣K í
austur: dúkkuðu tígul tvisvar og
spiluðu svo ♣Á og laufi. Ekki gott.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú kemur endalaust á óvart! Sem
betur fer kunna traustu týpurnar þínar
að meta smá-súrt grín. Þú skemmtir öðr-
um og sjálfum þér um leið.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hjá þér er það að halda andlitinu
ekki líkamlegt. Enginn tekur eftir föt-
unum þínum eða þyngdinni. Fólk tekur
eftir viljanum til að tengjast og hjálpa
öðru fólki.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þegar hugurinn er að sligast
undan ábyrgðinni, er minna pláss fyrir
ímyndunarafið til að leika lausum hala.
Þú ert skapandi þegar jafnvægi ríkir
milli frelsis og reglna.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ferð á fallegan stað þar sem
smáatriðum er veitt athygli, og þú tekur
þátt í stórri sýn einhvers annars. Sestu
og njóttu þessarar einstöku sýningar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þegar þú varst að koma þér vel fyr-
ir, leistu upp og sást eitthvað nýtt og
spennandi við sjóndeildarhring. Reyndu
að venjast tilhugsuninni um breytingu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það verður slúðrað, og flest af því
er ósatt, en líka einhver sannleikur. Það
er þitt val hvort þú vilt komast inn í þessi
mál, en vera ekki alveg úti að aka.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Óboðnir gestir mæta á svæðið.
Heiðraðu þá með athygli þinni. Þú mátt
treysta því að meira búi að baki en til-
viljun. Fólk hittist af einhverri ástæðu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Skot hér og þar eru skemmti-
leg, en þú hefur meiri áhuga á sambandi
sem endist. Ekki flýta þér, heldur ekki
með þeim sem þú hefur þekkt lengi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú getur ekki trúað sumu sem
sumir eru viðkvæmir út af. Samt vill fólk
að þú trúir því og samþykkir hegðun sem
þú skilur hvorki upp né niður í.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Vinir gera kröfur á þig og
sækja í öryggið sem þeir skynja í nálægð
þinni. Ætíð trúr stendur þú þína plikt:
fyrstur til að koma, seinastur til að fara.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert ánægður og heppnin er
með þér. Og þar sem þú ert svo yfirmáta
ánægður með það sem þú færð, færðu
jafnvel meira. Þessu gætir þú vel vanist!
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú setur eigin þarfir til hliðar til
að sinna þörfum vinar. Það er gott að
gefa. Og skyndilega hverfa þarfirnar þín-
ar – kannski voru þær ekkert svo mikil-
vægar.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
12. júlí 1997
Safn Ríkarðs Jónssonar mynd-
höggvara var opnað í Löngu-
búð á Djúpavogi, en hann ólst
upp í Hamarsfirði. Safnið var
áður í Reykjavík.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Ragnheiður
Stefanía Þor-
steinsdóttir frá
Tindum í Dala-
sýslu verður ní-
ræð á morgun,
13. júlí. Hún tek-
ur á móti gestum
á afmælisdaginn
í Blómasal Hótel
Loftleiða milli kl. 15 og 18.
90 ára
Guðmundur
Marinó Þórðar-
son, Þelamörk 1,
Hveragerði, er
áttræður í dag,
laugardaginn 12.
júlí. Hann er
staddur í Pól-
landi þessa dag-
ana ásamt eigin-
konu sinni, Halldóru Þórðardóttur,
og syninum Þresti Smára.
80 ára
Hjónin Alfreð Eyjólfsson og Guð-
jónía Bjarnadóttir eiga fimmtíu ára
brúðkaupsafmæli í dag, 12. júlí.
Þau munu dveljast í Kaupmanna-
höfn um helgina og fagna þessum
merku tímamótum.
Gullbrúðkaup
„ÞAÐ verður lítið sólarafmæli í garðinum heima
þar sem ég tek á móti vinum og vandamönnum,“
segir Sigþór Sigurjónsson, veitingamaður og af-
mælisbarn en hann er sextugur í dag.
Sigþór er eigandi Kringlukráarinnar og segir
hann starf sitt ganga fyrir enda krefjist það tíma
og yfirlegu. En auk þess stundi hann göngur, golf,
veiði af fullum krafti og er einnig áhugamaður um
hestamennsku. Sigþór og eiginkona hans, Kristín
Auður Sophusdóttir, eiga tvö börn og tvö barna-
börn.
Í sumar ætlar Sigþór að reyna að taka sér örlít-
ið frí. „Ég mun fara í útilegu og göngu með gönguhóp sem ég er hluti
af. Við munum ganga inn í Markarfljótsgljúfur, upp á Hattfell og
Tindfjallajökul og inn í Emstrur,“ segir Sigþór sem fer árlega í ein-
hvers konar gönguferðir. „Svo munum við hjónin heimsækja vinahjón
okkar í Portúgal en við erum í Hjónaklúbbnum Dagsljósunum sem
hittist reglulega.“
Sigþór segir að hann sé ekki mikið fyrir afmæli og hafi ekki haldið
upp á það síðan hann varð fertugur. „Þá hélt ég 400 manna veislu á
Hótel Íslandi og það var auðvitað töluvert skemmtilegt.“
Í dag verður fagnaðurinn hins vegar ekki jafn-viðamikill, en þeim
sem hafa hug á að gleðja Sigþór er bent á SOS-barnahjálp.
gudrunhulda@mbl.is
Sigþór Sigurjónsson er sextugur í dag
Lítil veisla í bakgarðinum
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is