Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 6. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
193. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
ÍBÚARNIR Í MÁSHÓLUM
ERU FRUMBYGGJARNIR
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Fallegu skrímslin
frumsýnd í dag
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞETTA er komið að mörkum þess sem er forsvaranlegt,“
segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæð-
isins, um þá staðreynd að aðeins 14 lögreglumenn voru á
vakt sl. laugardagskvöld á höfuðborgarsvæðinu. Undir
venjulegum kringumstæðum ættu þeir að vera á bilinu 20-
25. Embættið glímir nú við mikinn rekstrarvanda og
manneklu auk þess sem lítil nýliðun var í hópi lögreglu-
manna á þessu ári. Vonir eru bundnar við aukna nýliðun á
næsta ári, að sögn Stefáns. Rekstrarútgjöld embættisins
hafa aukist mikið vegna ófyrirséðra hækkana á aðföngum
og eldsneyti. Stefán segir að að embættið sé rekið innan
fjárheimilda og það hafi lagt til við dómsmálaráðuneytið að
fjárveitingar hækki á fjárlögum næsta árs.
„Þetta staðfestir það sem Landssamband lögreglu-
manna hefur verið að halda fram undanfarnar vikur, mán-
uði og ár, þ.e. að fækkun hafi orðið í því sem kallað hefur
verið sýnileg löggæsla. [...] Áður hefur verið staðfest að
fækkun hafi orðið í lögreglunni á landsvísu og koma þar til,
að okkar mati, slök launakjör, vinnuskilyrði og álag,“ segir
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglu-
manna, um að lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu sem
sinntu útköllum sl. föstudagskvöld hafi verið 18% færri en
sinntu útköllum á sama tíma fyrir sameiningu embætt-
anna á höfuðborgarsvæðinu árið 2007.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að við af-
greiðslu fjárlaga næsta árs verði tekin afstaða til þess
vanda sem steðjar að lögreglunni.
14 lögreglumenn á vakt
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu glímir við mikinn rekstr-
arvanda og manneklu Hefur óskað eftir meiri fjármunum
Rétt svo forsvaranlegt | 4
Ástralski kóalabjörninn Lucky er
ekki feigur. Hann varð fyrir bíl sem
ekið var á 100 km hraða norðan við
Brisbane og festi annan hramminn
og hausinn í grillinu. Barst hann 12
km leið áður en bílstjórinn nam
staðar. Notuð voru skæri til að
klippa hann lausan og er Lucky nú
við góða heilsu eftir smá-hvíld og
máltíð. kjon@mbl.is
Lucky er líklega með
níu líf eins og kötturinn
Reuters
Heppinn Lucky á dýraspítala í gær.
Sú leið að afla
fjármagns með
útgáfu víxla hef-
ur orðið meira
áberandi nú með-
al íslenskra
banka en áður.
Víxlarnir eru
gjarnan óverð-
tryggðir og
vaxtalausir, en vegna ávöxt-
unarkröfu fjárfesta eru þeir þá al-
mennt seldir undir nafnvirði. Fjöldi
útgefinna víxla hefur þó líklega
ekki aukist, en vegna samdráttar í
útgáfu skuldabréfa ber meira á
víxlunum. » 14
Meira ber á víxlum
Kauphöll OMX
á Íslandi.
Danski rithöfundurinn Kristian
Witt segir margar konur ekki
treysta körlunum sínum fyrir að
sinna smábörnum, þær geti aldrei
stillt sig um að grípa inn í. Oft endi
þetta með því að karlinn dragi sig í
hlé og sumir yfirgefi jafnvel eig-
inkonuna. Hann hefur að sögn Jyl-
landsposten rætt þessi mál við
fjölda hjóna.
„Konan heldur fast við að börnin
séu á hennar umráðasvæði og vill
halda völdum yfir heimilinu. Ef
karlinn vill hafa þar einhver völd
verður hann að berjast fyrir þeim,“
segir Witt. Ráðleggur hann kon-
unum að halda aftur af sér og láta
karlana læra af reynslunni. Konan
geti t.d. yfirgefið herbergið þegar
hann skiptir á barninu. kjon@mbl.is
Konan láti karlinn sinn
læra af reynslunni
Lögreglumenn á vakt á
höfuðborgarsvæðinu
sl. laugardagskvöld
14
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu
1. des 2007
195.970
Íbúar á hvern lögreglumann
á vakt sl. laugardagskvöld
13.998
GÖNGUFERÐIR um óbyggðir Íslands njóta vax-
andi vinsælda og nýtur Laugavegurinn, milli
Landmannalauga og Þórsmerkur, mestra vin-
sælda.
Aukin aðsókn er í ferðir Ferðafélags Íslands,
að sögn Páls Guðmundssonar framkvæmda-
stjóra. Margar ferðir eru fullbókaðar og gisti-
pláss í skálum á Laugaveginum nánast allt frá-
tekið í júlí. Verið er að byggja nýjan skála við
Álftavatn og skáli þaðan verður fluttur í Emstr-
ur til að auka gistirými við Laugaveg sem er
langvinsælasta gönguleiðin hjá FÍ. Fimmvörðu-
háls nýtur einnig vinsælda, líkt og gönguleiðir á
Sprengisandi og Kili. Útlendingar fara mikið á
þessar slóðir. Hornstrandaferðir eru einnig vin-
sælar en í þær fara einkum Íslendingar.
Hjá Útivist hefur aðsóknin ekki minnkað á
milli ára og er töluvert mikið bókað í sumar, að
sögn Skúla H. Skúlasonar, framkvæmdastjóra.
Hann sagði Íslendinga í miklum meirihluta með-
al þátttakenda í ferðum félagsins. Skúli sagði að
mikil aðsókn væri í ferðir um Strútsstíg og eins
um Sveinstind–Skælinga. Þá stæði Laugaveg-
urinn alltaf fyrir sínu. gudni@mbl.is
Margir vilja kynnast dulúð óbyggðanna af eigin raun
Morgunblaðið/Guðni Einarsson
Laugavegurinn vinsælastur gönguleiða
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
KANNA þarf ástæður brottflutn-
ings ungs fólks og kvenna úr dreif-
býli og skoða mögulegar aðgerðir til
að bregðast við. Aldursdreifing er
víða skekkt og aldurshóparnir 0-4
ára og 25-39 ára eru fámennir. Þetta
kemur fram í skýrslu Byggðastofn-
unar um byggðarlög þar sem fólks-
fækkun er viðvarandi.
Þar eru tekin fyrir 22 sveitarfélög
sem eiga það sameiginlegt, að íbúum
hefur fækkað á undanförnum árum.
Af þeim ástæðum sem helst eru tald-
ar má nefna að ekki er nóg af at-
vinnutækifærum. Sífellt fækkar í
frumvinnslugreinum og ekkert nýtt
kemur í staðinn. Á sumum svæðun-
um eru helstu sóknarfæri tengd
stóriðju, annars í ferðaþjónustu.
Skýrsluhöfundar nefndu einnig að
eðlilegt væri að skoða hvort ekki
væri hægt að efla héraðskjarna
þannig að fleiri gætu sótt þangað
vinnu. Forsenda þess er efling sam-
göngukerfisins. | 8
Hvers vegna flýja konur og
ungt fólk úr dreifbýlinu?
Í HNOTSKURN
»Viðvarandi fólksfækkunvar skoðuð á 10 ára tíma-
bili, 1996-2006, og miðað við
15% fækkun íbúa eða meira.
»Fækkun íbúa í þeim 22sveitarfélögum sem voru
til skoðunar, á 15 ára tímabili,
var 20,9%. Mest í Árneshreppi
eða 55,8%