Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Suðurnes | Stjórnendur Heilbrigð- isstofnunar Suðurnesja hafa ákveð- ið að fresta lokun síðdegisvaktar heilsugæslunnar. Í fréttatilkynn- ingu segir að þetta sé gert til að tryggja íbúum svæðisins þá grunn- þjónustu sem þeir eigi rétt á. Verð- ur á næstu tveimur mánuðum hald- ið áfram að leita leiða til að ná endum saman í rekstri stofnunar- innar. Viðræður forstjóra heil- brigðisstofnunarinnar og heilbrigð- isráðuneytisins undanfarið hafa einkennst af því að fara yfir heild- arfjárveitingar stofnunarinnar til framtíðar litið. Hætta við að loka vaktinni NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Ís- lands fagna yfirlýsingu iðn- aðarráðherra, Össurar Skarphéð- inssonar í hádegisfréttum RÚV þess efnis að friðlýsa beri Þjórs- árver í heild sinni en ekki bara hið sérstaka votlendi veranna líkt og kveður á um í stefnuyfirlýsingu rík- isstjórnarinnar. Náttúruverndarsamtök Íslands telja einboðið að iðnaðarráðherra og/eða umhverfisráðherra leggi fram á Alþingi strax á haustþingi frumvarp eða þingsályktun um friðlýsingu Þjórsárvera í heild sinni. Reynir þá á hvort Sjálfstæð- isflokkurinn er við sama heygarðs- hornið í náttúruverndarmálum. Fagna yfirlýs- ingu Össurar VEGAGERÐIN ætlar að standa fyr- ir umferðarkönnun á gatnamótum Hringvegar og Axarvegar í Beru- firði á morgun, fimmtudag og laug- ardaginn nk. Könnunin stendur yfir frá kl. 8-23 báða dagana. Tilgangurinn með könnuninni er að kanna áhrif fyrirhugaðs Ax- arvegar á umferðarvenjur vegfar- enda á Austurlandi. Framkvæmd könnunarinnar er með þeim hætti að allir bílar verða stöðvaðir og bíl- stjórar spurðir nokkurra spurn- inga. Umferðarkönnun STUTT Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is AKSTURSSAMNINGAR Strætós bs. við einka- aðila sem aka á um helmingi leiðakerfis Strætós fara í heildarútboð innan EES á næstunni, að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, borgarfulltrúa og stjórnarmanns í Strætó bs. Hann taldi líklegt að borgarráð Reykjavíkur afgreiði málið fyrir sína hönd á næsta borgarráðsfundi. Aksturinn verður boðinn út til átta ára og sagði Gísli Marteinn að í útboðinu verði settir strangari skilmálar um strætisvagnana en gilt hafa hingað til. Markmiðið er að auka gæði þjónustu Strætós til mikilla muna. „Við gerum miklar kröfur um hvernig strætis- vagnarnir eiga að vera hvað varðar gæði og útlit. Þegar akstur hefst samkvæmt nýjum aksturssamningum á vagnafloti Strætós að vera að mestu glænýr og glæsilegur,“ sagði Gísli Marteinn. Eins líklegt þykir að íslensk fyrirtæki leiti samstarfs við er- lend fyrirtæki vegna verkefnis- ins eða að erlend fyrirtæki kunni að bjóða í verkið. Hörður Gíslason, aðstoðar- framkvæmdastjóri Strætós bs., sagði að nú sé Strætó með um 95 vagna í þjónustu sinni. Hann taldi að útboðið muni ná til um helm- ings flotans og að verkið verði boðið út í sumar. Líklegt þykir að nýir aksturssamningar gangi í gildi í lok næsta árs. Margir vagnanna sem verk- takar hafa notað eru komnir til ára sinna. Hörður sagði því ljóst að endurnýjun verði á þeim vagna- kosti. Vagnar í eigu Strætós eru yngri, að jafnaði um fimm ára gamlir. Hörður sagði að mikil þróun hefði orðið í búnaði strætisvagna. Reikna megi með því að nýir vagnar verði auðveldari í umgengni, innstig og útstig betra, gólfin lægri, betri handföng og sæti, betri miðstöðvarkerfi og vagnarnir hljóðlátari. Mörg dæmi um erlend félög Hörður sagði þess mörg dæmi í nágrannalönd- um að erlend fyrirtæki annist rekstur almennings- vagna. Þau stofni þá dótturfélög í hverju landi og reki þau á heimavelli með heimamönnum. Strætó verði glæsilegri  Aksturssamningar Strætós bs. verða boðnir út á næstunni  Útboðið nær til um helmings strætisvagna  Gerðar verða strangar kröfur um gæði vagnanna Nýir vagnar taka við af gömlum. NÚ standa yfir viðgerðir og lagfæringar á Kristskirkju í Landakoti. Trausti Leósson, bygg- ingafræðingur, segir viðgerðirnar fyrst og fremst vera til að fyrirbyggja alvarlegar steypu- skemmdir. Kirkjan var vatnsþvegin og á hana borið mónósílanefni sem ver steypuna skemmdum. Þetta var síðast gert fyrir um fimm árum og þá var eins og nú aðeins þörf minniháttar steypu- viðgerða. „Við teljum þetta vera varnaraðgerðir til þess að við getum dregið sem allra lengst að fara út í meiriháttar múrviðgerðir,“ segir Trausti. Hann segir að eftir jarðskjálftana á Suður- landi í lok maí hafi menn haft áhyggjur af kirkj- unni þar sem hún sé lítið járnbent. Engar sprungur var þó að finna í steypunni. Kirkjan er embættiskirkja biskups Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Hún var byggð árið 1926 og vígð þremur árum seinna. skulias@mbl.is Morgunblaðið/G.Rúnar Hlúð að kirkju Krists konungs Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „ÞAÐ ER aldrei neitt að bandarísku samfélagi,“ segir Sigrún Ólafsdóttir um viðhorfin vestra til róta geðrænna vandamála. Or- sökina sé fremur að finna hjá ein- staklingnum. Sig- rún sem nýverið var heiðruð fyrir doktorsritgerð sína, telur um- ræðu á Íslandi um geðheilbrigðismál að mörgu leyti vandaðri en í Bandaríkjunum. Í ritgerð sinni fjallar Sigrún um hvernig og hvers vegna geðræn vandamál hafa verið sjúkdómsvædd í þróuðum iðnríkjum. Ritgerðin var valin besta doktorsritgerð Háskólans í Indiana 2007-2008, en einnig útnefnd besta doktorsritgerð Bandaríkjanna á sviði geðheilsufélagsfræði í ár. Sigrún beinir í ritgerðinni sjónum að áhrifum alþjóðavæðingar, velferð- arkerfisins og læknastéttarinnar á það hvernig geðræn vandamál eru skilgreind og meðhöndluð í ólíkum samfélögum. Sigrún rannsakaði orð- ræðu um geðræn vandamál í fjöl- miðlum í Bandaríkjunum, Þýskalandi og á Íslandi. Þannig leitaðist hún við að varpa ljósi á áhrif menningar og stjórnmála á skilning og viðhorf til geðraskana. Ísland alþjóðavæddast Sigrún segir Ísland vera al- þjóðavæddast í umræðunni um geð- ræn vandamál. Hún kýs að tala um „orðræðu samstöðu“ hér á landi. Í því felst að litið er á geðræn vandamál sem viðfangsefni samfélagsins alls og að ekki er farið í manngreinarálit. Þjóðverjar virðast fara ákveðinn milliveg milli orðræðu ótta og sam- stöðu. Litið er svo á að geðræn vandamál séu einstaklingsvandamál sem samfélagið eigi að taka á. Þetta kallar Sigrún „orðræðu yfirbótar“. Mikil áhersla er lögð á mannúðlega meðferð og að passa að mistök fortíð- arinnar verði ekki endurtekin. Telur Sigrún þetta vera gamlan draug seinna stríðs í þýsku þjóðarsálinni. Kannaði áhrif alþjóðavæðingar Sigrún tók viðtöl við 50 íslenska stjórnmálamenn, lækna, hjúkr- unarfræðinga, iðjuþjálfa, notendur og stefnumótendur á sviðinu. Í þeim voru meðal annars könnuð viðhorf til sjúkdómsvæðingar og áhrifa al- þjóðavæðingar í því samhengi. Viðmælendur litu sjúkdómsvæð- ingu almennt neikvæðum augum en aðeins um 15% viðmælenda minntust á jákvæða þætti í henni. Læknar skáru sig þó úr og töldu rúm 60% þeirra til jákvæða þætti sjúkdóms- væðingar. Breið samstaða var meðal að- spurðra um að alþjóðavæðing og ut- anaðkomandi hugmyndir væru mik- ilvægar og útbreiddar á sviðinu hér á landi. Heiðruð fyrir doktorsritgerð Ritgerð Sigrúnar Ólafsdóttur útnefnd besta doktorsritgerð Bandaríkjanna í geðheilsufélagsfræði, en hún rannsakaði orðræðu um geðræn vandamál í fjölmiðlum í Bandaríkjunum, Þýskalandi og á Íslandi Sigrún Ólafsdóttir „Grundvallarskilgreiningin á sjúkdómsvæðingu er bara að eitthvert ástand er fært undir lögsögu læknavísind- anna,“ segir Sigrún Ólafsdóttir. Í sögulegu samhengi segir hún sjúkdómsvæðingu félagslegrar hegðunar fjalla um tilfærslu hennar frá trúarkerfinu til lagakerf- isins og að lokum til læknisfræðinnar. „Frá synd yfir í glæp yfir í sjúkdóm.“ Neikvæðar afleiðingar sjúkdómsvæðingar geta falist í að hegðun er ofgreind. Sigrún tekur dæmi um að fólk sem hætti til að verða dapurt sé talið þunglynt og óþægt barn sagt þjást af athyglisbresti. Klassískar kenningar um sjúkdómsvæðingu ganga margar út frá því að læknastéttin sé að sölsa undir sig fleiri svið og meiri völd án þess að eiga í raun nokkurt erindi þang- að. Á hinn bóginn hefur verið bent á að með því að færa félagslega hegðun og geðræn vandamál undir læknavísindin sé þeim sem raunverulega þurfa á að- stoð að halda veitt hjálp og fordómar minnki. Sigrún segir mikilvægt að feta milliveginn í þessum efnum. Ekki megi ganga of langt en þó sé afar mikilvægt að rétta þeim sem þurfa hjálparhönd. „Frá synd yfir í glæp yfir í sjúkdóm“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.