Morgunblaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞETTA er mjög vont fyrir stéttina, skapar óróa
innanhúss og óöryggi fyrir barnshafandi konur um
okkar þjónustu sem er þeim svo mikilvæg,“ segir
Svanborg Egilsdóttir, yfirljósmóðir á Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands á Selfossi, um uppsagnir ljós-
mæðra að undanförnu.
Átta af tíu ljósmæðrum á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Selfossi hafa sagt upp störfum.
Lifa ekki á því að segja sögur
„Þetta eru daprar fréttir,“ segir Svanborg Egils-
dóttir og bætir við að engin ljósmóðir hafi sagt upp
að gamni sínu.
Svanborg segir það hafa mikið að segja fyrir kon-
ur á barnaeignaraldri að hafa aðgang að ljósmæðr-
um og því sé staðan ógnvænleg, að öllu óbreyttu.
„En við lifum ekki á því að segja hvað starfið sé ynd-
islegt. ég fer ekki í bankann með reikningana mína
og segi fallegar fæðingarsögur.“
220 kjarnafélagar eru í Ljósmæðrafélagi Íslands
í 130 stöðugildum. Þær vilja fá nám sitt metið til
jafns við aðra en það hefur ekki gengið eftir.
Tæplega 70% fæðinga eiga sér stað á Landspít-
alanum og þar hafa 57 af 108 ljósmæðrum sagt upp.
Tíu af 14 ljósmæðrum á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja hafa sagt upp, en eftir eru tveir deildar-
stjórar og ein ljósmóðir í barneigarfríi.
Á Ísafirði hafa allar þrjár ljósmæðurnar sagt upp
störfum og sambærilega sögu er að segja af öðrum
stöðum.
Í Vestmanneyjum eru þrjár ljósmæður í tveimur
störfum. Guðný Bjarnadóttir segir að þær ætli að
taka ákvörðun um framhaldið í vikunni.
Barnshafandi konur í óvissu
Margar ljósmæður víða um land hafa sagt upp og aðrar enn að hugsa sinn gang
Morgunblaðið/Kristinn
Ástand Verði uppsagnir ljósmæðra að veruleika
verður slæmt ástand á fæðingardeildum landsins.
BOÐIÐ var til sérstaks hádegis-
verðar á Þremur Frökkum í gær í
tilefni af fyrstu kartöfluuppskeru
ársins. Meðal þeirra sem snæddu
rauðsprettu og kartöflur, sem Úlfar
Eysteinsson matreiðslumaður bar
fram, var Einar K. Guðfinnsson
landbúnaðarráðherra.
Að sögn Þórhalls Bjarnasonar,
formanns Sambands garð-
yrkjubænda, smakkaðist maturinn
afskaplega vel.
Morgunblaðið/Ómar
Fyrstu kartöfluuppskeru ársins fagnað
Kartöfluhátíð matgæðinga
mbl.is | Sjónvarp
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞETTA ER komið að mörkum þess
sem er forsvaranlegt að halda úti á
þessum tímapunkti,“ segir Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborg-
arsvæðisins, um þá staðreynd að að-
eins fjórtán lögreglumenn voru á
vakt á höfuðborgarsvæðinu síðast-
liðið laugardagskvöld, þ.e sjö bílar
með tveim lögreglumönnum í bíl.
„Við erum að glíma við rekstr-
arvanda, sumarleyfi og manneklu.
Það hefur það í för með sér að við er-
um ekki að fullmanna vaktirnar,“
segir Stefán. Hann segir stefnuna
vera að hafa 20-25 manns á hverri
vakt og það hafi ekki alltaf gengið
eftir þar sem lögregluna vantar
mannskap.
Stefán segir fjölda lögreglumanna
á vakt einnig vera háðan þeim verk-
efnum sem embættið hefur með
höndum á hverjum tíma.
„Við erum að reka embættið innan
þeirra heimilda sem við fáum á fjár-
lögum og við höfum gert tillögu til
dómsmálaráðuneytisins um að fjár-
veitingar hækki á fjárlögum næsta
árs,“ segir Stefán um rekstrarvand-
ann sem steðjar að embættinu.
Stefán segir marga ófyrirséða út-
gjaldaliði eins og hækkun á bensín-
verði og á aðföngum vera stóran
hluta af rekstrarkostnaði.
Þrjú sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu hafa brugðið á það ráð að
kaupa þjónustu öryggisfyrirtækja til
þess að sinna löggæslu. Í Reykjavík
standa miðborgarþjónar næturvakt-
ina um helgar, á Seltjarnarnesi sinn-
ir Securitas hverfisgæslu og Kópa-
vogsbær samþykkti svo í síðustu
viku að bjóða út sambærilega þjón-
ustu í kjölfar fjölgunar innbrota.
Uppi hafa verið raddir að lög-
reglumönnum á vakt hafi fækkað í
syðri hluta höfuðborgarsvæðisins
eftir að lögregluembættin voru sam-
einuð.
Svipað og fyrir sameiningu
„Lágmarkið á kvöld- og nætur-
vöktum er einn bíll í Hafnarfirði og
einn í Kópavogi auk þriðja bíls sem
er bíll mannaður varðstjóra sem fer
á milli Kópavogs, Hafnarfjarðar og
Garðabæjar eftir því sem þurfa þyk-
ir,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu, spurður um
meinta fækkun lögreglumanna í
Hafnarfirði og Kópavogi. Geir Jón
segir þetta svipað og verið hafi
undanfarin ár, fyrir sameiningu.
Fyrir sameiningu embættanna á
höfuðborgarsvæðinu voru tveir bílar
í Hafnarfirði og einn bíll í Kópavogi
og stöðvarnar á báðum stöðum opn-
ar allar sólarhringinn. Núna eru
stöðvarnar í Kópavogi og Hafn-
arfirði opnar skemur. Varðstjórar
eru bæði í Kópavogi og í Hafnarfirði
en þeir vinna úti með lögreglumann
með sér í bíl.
Sumarfrí lögreglumanna standa
sem hæst og því er lágmarksrekstur
á útkallsbílum í öllum umdæmum.
Rétt svo forsvaranlegt
Lögreglan glímir við manneklu og rekstrarvanda Bara fjórtán á vakt á laug-
ardagskvöldi Sveitarfélög bregðast við með einkarekinni öryggisgæslu
Fyrir sameiningu lögregluembætt-
anna á höfuðborgarsvæðinu árið
2006 voru 87 lögreglumenn á vakt
frá kl. 7 að morgni föstudagsins
14. júlí til kl. 7 að morgni laug-
ardags. Í þeirri tölu eru 65 lög-
reglumenn sem sinntu útköllum í
Reykjavík, Seltjarnarnesi og Mos-
fellsbæ, 8 í Kópavogi og 14 í Hafn-
arfirði, Garðabæ og Álftanesi. Til
samanburðar voru 72 lögreglu-
menn á vakt föstudaginn 11. júlí til
laugardagsins 12. júlí á þessu ári, á
höfuðborgarsvæðinu öllu.
Þetta sýnir að lögreglumönnum
hefur fækkað nokkuð á vakt sem
sinnir útköllum á föstudegi í júlí-
mánuði, fyrir og eftir sameiningu,
eða um 18%. „Þessar tölur stað-
festa það sem Landssamband lög-
reglumanna (LL) hefur haldið fram
undanfarnar vikur, mánuði og ár,
þ.e. að fækkun hafi orðið í því sem
kallað hefur verið sýnileg lög-
gæsla,“ segir Snorri Magnússon,
formaður LL.
Lögreglumönnum í borginni fækkar um 18%
KARLMAÐUR á fertugsaldri
brenndist í andliti skömmu fyrir kl.
16 í gær í gassprengingu sem varð
fyrir utan lögreglustöðina á Ak-
ureyri. Verið er að vinna að mal-
bikun fyrir framan lögreglustöðina
og varð sprengingin þegar reynt
var að kveikja á gashitara sem
þjónar því hlutverki að hita tjöru.
Mikill hvellur varð við spreng-
inguna og steig eldsúla hátt upp í
loft. Vindurinn bar eldinn til suð-
vesturs þar sem maðurinn stóð. Sá
var að vinna við framkvæmdina.
Nokkur vitni urðu að atburðinum,
þ. á m. lögregluþjónn í kaffihléi en
atvikið átti sér stað fyrir utan kaffi-
stofu stöðvarinnar. Lögregluþjónar
þustu umsvifalaust út og hlúðu að
manninum meðan beðið var eftir
sjúkrabíl. Ekki er talið að um alvar-
lega brunaáverka sé að ræða.
ylfa@mbl.is
Brenndist
í andliti
Gassprenging fyrir
framan lögreglustöð
INNSETNING í
embætti forseta
Íslands mun
venju samkvæmt
fara fram 1.
ágúst. Um er að
ræða fjórða tíma-
bil Ólafs Ragnars
Grímssonar í
embætti en að
því loknu hefur
hann sinnt for-
setastörfum í 16 ár. Aðeins tveir
aðrir forsetar hafa gegnt embætti
svo lengi, annars vegar Ásgeir Ás-
geirsson (1952-1968) og Vigdís
Finnbogadóttir (1980-1996).
Athöfnin fer fram í Alþingishús-
inu og munu helstu embættismenn
þjóðarinnar mæta. Til hennar bjóða
sameiginlega Alþingi, ríkisstjórnin
og Hæstiréttur Íslands.
Settur í emb-
ætti 1. ágúst
Ólafur Ragnar
Grímsson
ALLT þyrluflug hefur verið bannað
í þjóðgarðinum á Þingvöllum í sum-
ar. Ástæðan er miklar kvartanir frá
nágrönnum og gestum þjóðgarðs-
ins en framkvæmdir að undanförnu
hafa verið umfangsmiklar og há-
vaðamengun mikil frá þyrlum sem
hafa flutt steypusíló og verkfæri að
byggingalóðum við Valhallarstíg.
Björn Bjarnason, formaður Þing-
vallanefndar, tók þá ákvörðun fyrir
helgi að banna flugið til 1. október
en eigendum nýbygginganna var
kynnt niðurstaðan í gær.
Sigurður Oddsson þjóðgarðs-
vörður segir að eigendur hafi tekið
þessari ákvörðun vel.
Þyrluflug
bannað
GUÐMUNDUR VE-29 er á leið til
Þórshafnar af miðunum austur af
landinu og er aflaverðmæti hans
um 100 milljónir. Sturla Einarsson,
skipstjóri á Guðmundi segir að
þetta sé mettúr hjá skipinu og sá
langverðmætasti hingað til.
Aflinn er síld og makríll og er
mestur hluti frystur um borð, um
750 tonn en lítill hluti fer í bræðslu.
Skipið var um 10 daga á veiðum í
ágætu veðri en heimferðin gengur
hægar vegna leiðindabrælu og
væntanleg koma til Þórshafnar er
seinnipartinn á morgun, að sögn
skipstjórans.
Pláss fyrir frystar afurðir er
feikinóg á Þórshöfn með tilkomu
nýrrar frystigeymslu sem Ísfélag
Vestmannaeyja byggði.
Metverðmæti
til Þórshafnar