Morgunblaðið - 16.07.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MJÖG góð laxveiði hefur verið undanfarið, nær
sama hvert litið er, að sögn Haraldar Eiríkssonar,
sölu- og markaðsfulltrúa Stangaveiðifélags Reykja-
víkur (SVFR). Eftir rigningarnar um síðustu helgi
rættist mjög úr veiði á Ölfus- og Hvítársvæðinu,
Stóru-Laxá og Soginu. Fín veiði hefur verið í Soginu
og þykir það lofa góðu, því Sogið er venjulega seinna
til og besti tíminn framundan, að sögn Haraldar.
Mikil laxveiði hefur verið í Norðurá í Borgarfirði
og veiddust þar hátt í 80 laxar í fyrradag. Á einum
sólarhring, hinn 14. júlí, fóru 611 laxar í gegnum lax-
ateljarann í Glanna í Norðurá. Á heimasíðu SVFR
segir að vart hafi séð högg á vatni því neðan teljar-
ans sé enn mikið af laxi og að laxamergðin nái alla
leið niður fyrir Munaðarnes. Seinasta holl í Gljúfurá
í Borgarfirði fékk 25 laxa á þrjár stangir eftir
tveggja daga veiði og er það eitt besta hollið í mörg
ár.
Feikigóð veiði hefur verið í Leirvogsá og Elliða-
ánum undanfarið. Hrotan í Leirvogsá hófst fyrir
réttri viku þegar 17 laxar og þrír sjóbirtingar feng-
ust á stangirnar tvær í ánni. Veiðin óx dag frá degi
og á sunnudaginn var veiddust þar 42 laxar á aðeins
tvær stangir. Nú hafa veiðst um 330 laxar í Elliða-
ánum en voru orðnir 150 á sama tíma í fyrrasumar.
Þess ber að geta að þá var kvótinn fjóri laxar á stöng
en er nú ekki nema tveir laxar á stöng. Uppistaðan
er eins árs fiskur en óvenjuvænn og vel haldinn.
Mjög líflegt hefur verið í Nesi í Aðaldal. Þar eru
frægar stórfiskaslóðir og þar til sl. sunnudag var
meðalvikt veiddra fiska um 13 pund. Þrír fiskar um
20 pund hver fengust í Árnesveiðum í síðustu viku.
Haraldur sagði að júlí hefði ekki verið besti mán-
uðurinn í Aðaldalnum en það sem af væri væri veiðin
ábyggilega sú besta í ánni undanfarinn áratug.
Krossá á Skarðsströnd, lítil laxveiðiá þar sem veitt
er á tvær stangir, hefur gefið mjög vel í sumar og
aldrei farið jafn vel af stað. Haraldur sagði að ef
fram héldi sem horfði gæti fallið þar veiðimet í sum-
ar. Nú eru komnir 50-60 laxar úr Krossá.
„Í heildina er þetta mjög gott,“ sagði Haraldur. Til
að skýra gott ástand laxins sagði hann einna helst
horft til ástandsins í hafinu. Meira hefði sést af sand-
síli en undanfarin ár og svo virtist sem ástandið í
náttúrunni væri laxinum hagstætt.
Morgunblaðið/Einar Falur
Langá Þessi grálúsugi lax var nýgenginn í Langá þegar hann veiddist. Mjög góð laxveiði er víðast hvar og fisk-
urinn er vænn og vel haldinn. Það þakka menn hagstæðari skilyrðum og meira æti í hafinu.
Mjög góð laxveiði
Laxinn er snemma á ferðinni og kemur vel haldinn úr
hafinu, því veiðast fleiri og vænni laxar nú en í fyrra
DYNUR þyrluvængja truflaði óvænt
öræfakyrrðina í Þórsmörk í síðustu
viku. Tvær þyrlur lentu þá með
skömmu millibili nálægt tjaldstæðinu
við Bása og eins renndu þar að tveir
stórir jeppar hlaðnir veisluföngum.
Var annar þeirra merktur veiðiþjón-
ustunni Lax-á.
„Við vorum þarna í okkar litla kúlu-
tjaldi og nutum kyrrðarinnar þegar
við heyrðum þyrludyn og þyrla settist
skammt frá okkur. Svo komu tveir
stórir jeppar og þá önnur þyrla sem
settist við hliðina á hinni,“ sagði
María Gunnarsdóttir. Hún var að
enda fjallaferð í Þórsmörk ásamt
manni sínum.
María sagði að í jeppunum hefðu
verið starfsmenn Lax-ár og farþeg-
arnir í þyrlunum hefðu verið rúss-
neskir veiðimenn sem höfðu verið hér
í stangaveiði. María hafði eftir starfs-
manni Lax-ár að Rússarnir hefðu
m.a. lent á toppi Heklu og skálað þar
fyrir vel heppnaðri Íslandsferð. Einn-
ig fóru þeir í útsýnisflug um Þórs-
mörk og nágrenni. Þá var slegið upp
veislu í skálanum í Básum fyrir ferða-
langana. Er hermt að þar hafi verið
góður matur og vönduð vín á borðum.
„Lax-ár menn stoppuðu svo við
tjaldið hjá okkur þegar þeir fóru til
baka og báðust afsökunar á ónæðinu
– sem var fúslega veitt,“ sagði María.
gudni@mbl.is
Ljósmynd/María Gunnarsdóttir
Óbyggðaferð Farkostir veiðimann-
anna ásamt fylgdarliði í Básum.
Glampaði
á rússa-
gullið
Lentu á Heklu og
skáluðu fyrir ferðinni
EITTHVAÐ var um afbókanir á ferð-
um norður á Hornstrandir þegar
mest umræða var um hvítabirni fyrir
nokkrum viku. BB hefur þetta eftir
Gylfa Ólafssyni hjá Vesturferðum og
segir á vef BB að eftir að tveir hvíta-
birnir voru vegnir á Norðurlandi hafi
gripið um sig hræðsla hjá mörgum
ferðamönnum sem óttuðust að hvíta-
björn gæti hafa ratað á Hornstrandir.
Þetta hafi gerst þrátt fyrir að
Landhelgisgæslan hafi farið í skoð-
unarferð um svæðið ásamt landverði
Hornstranda til að ganga úr skugga
um að engin hætta væri á ferðum fyr-
ir ferðamenn. Segir Gylfi að erlendir
ferðamenn hafi frekar átt í hlut held-
ur en íslenskir. Að öðru leyti segir
Gylfi að góð aðsókn hafi verið á Horn-
strandir.
Hættu við af
ótta við birni
ÍBÚUM í Árborg fjölgaði um 201 frá
ársbyrjun til 18. júní síðastliðins.
Þetta svarar til þess að fjölgað hafi
um rúmlega einn íbúa dag hvern á
þessu tímabili og þar af um 60 íbúa í
júní. Í bókun meirihluta bæjarráðs
segir m.a. að fjölgun íbúa beri vitni
um að Sveitarfélagið Árborg sé
framsækið sveitarfélag og eftirsókn-
arvert til búsetu.
Fjölgaði um
einn dag hvern
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kárahnjúkavirkjun Raforkuverð fylgir álverðinu. Verðmæti langtíma-
samninga eykst þannig við aukið verðmæti álframleiðslunnar.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
VERÐ Á ÁLI í framvirkum samn-
ingum hefur slegið öll met á síðustu
vikum og er nú yfir 3.300 Bandaríkja-
dalir tonnið í þriggja mánaða samn-
ingum og í tæpum 3.500 dölum í 27
mánaða samningum. Til samanburð-
ar var álverðið 1.500-1.600 dalir þegar
lagt var mat á arðsemi Kárahnjúka-
virkjunar árin 2002-2003. Hækk-
anirnar hafa áhrif á ársreikning
Landsvirkjunar og hefur eiginfjár-
staðan styrkst eftir því sem raf-
orkuverðið fylgir álverðinu.
Áhrif álverðsins á eiginfjárstöðu
Landsvirkjunar má rekja til þess að í
ársbyrjun 2007 voru innleiddir al-
þjóðlegir reikningsskilastaðlar sem
fela í sér að dulin verðmæti, öðru
nafni óefnislegar eignir, eru færð til
bókar sem eign í ársreikningi.
Þar með er virði langtímasamninga
á raforku til álfyrirtækjanna metið
sem verðmæt eign í bókhaldi. Raf-
orkuverðið fylgir sem sagt álverðinu
og eykst verðmæti langtíma raf-
orkusamninga því í takt við aukið
verðmæti álframleiðslunnar.
Aukin arðsemi Kárahnjúka
Að sama skapi kemur það fram
sem fjármagnstap í ársreikningi þeg-
ar álverðið lækkar á mörkuðum.
Dæmi um þetta samspil er að 40
ára samningur Landsvirkjunar við
Alcoa á Reyðarfirði er gerður með
hliðsjón af heimsmarkaðsverði á áli.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar, segir að þessi
þróun hafi þau áhrif á getu Lands-
virkjunar til að takast á við stórverk-
efni að bætt eiginfjárhlutfall hljóti
alltaf að auðvelda lántöku. Verð á áli
undanfarið ár hafi verið feikilega hátt
og arðsemi Kárahnjúkavirkjunar hafi
aukist eins og staðan sé núna.
Eiginfjárhlutfallið í árslok 2007 hafi
verið um 31 af hundraði sem hafi ekki
verið fjarri því sem það var þegar ráð-
ist hafi verið í byggingu Kárahnjúka-
virkjunar. Fyrir tilstuðlan samninga
um orkusölu til Fjarðaáls sé fjár-
hagur fyrirtækisins metinn sterkari í
nýju reikningsskilastöðlunum.
Það sama gildi um sölu á raforku til
álversins í Straumsvík og Norðuráls
og um raforkusamninga við Fjarðaál
að álverðið skilar sér í eiginfjárstöð-
unni, líkt og hækkandi verð á afurð-
um Járnblendiverksmiðjunnar, El-
kem Ísland, á Grundartanga.
Má í þessu samhengi benda á að
Landsvirkjun hefur gert upp í
Bandaríkjadal frá og með síðustu
áramótum og fara viðskipti við álfyr-
irtækin þrjú nú fram í þeirri mynt.
Keypti framvirka samninga
Móðurfyrirtæki Norðuráls, Cent-
ury Aluminum, hefur fylgst vel með
hækkunum og keypt upp framvirka
samninga af alþjóðafyrirtækinu Glen-
core fyrir um 133 milljarða ísl. kr.
með hlutabréfum og reiðufé. Century
hafði gert framvirka samninga við
Clencore um álverð en í þeim var
miðað við mun lægra verð en nú er í
boði á heimsmarkaði. Því taldi Cent-
ury hagstæðara að taka yfir samn-
ingana, sem bendir til að fyrirtækið
hafi trú á að álverðið muni haldast
hátt næstu ár. Hlutabréfin komu úr
nýlegu hlutafjárútboði félagsins, sem
Glencore tók drjúgan hlut af.
Álverðið í sögulegum upphæðum
Verðið nú ríflega tvöfalt hærra en þegar lagt var mat á arðsemi Kárahnjúkavirkjunar árin 2002-2003
Raforkuverð er tengt álverði í samningum Landsvirkjunar Century Aluminum tekur yfir samninga
Af hverju eykst eiginféð?
Þegar álverð hækkar þarf að end-
urmeta verðmæti þeirrar duldu eign-
ar sem felst í langtímasamningum
Landsvirkjunar um raforkusölu, þar
sem það er tengt álverðinu.
Hvað með sveiflurnar?
Landsvirkjun tryggir sig gegn verð-
sveiflum á álverðinu með því að
beita áhættuvörnum. Felast þær í því
að reynt er að lágmarka áhrif tekju-
sveiflna og tryggja hátt raforkuverð.
S&S
ATLI Gíslason,
þingmaður VG,
segist hafa beðið
án svars við bréfi
sem hann sendi
þann 16. maí sl.
til utanríkisráðu-
neytisins og sjáv-
arútvegs- og
landbúnaðar-
ráðuneytis varð-
andi svokallað matvælafrumvarp. Í
bréfinu krafðist hann þess að allur
ferill málsins í tengslum við við-
ræður við ESB yrði lagður fyrir
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd,
enda hefði formaður nefndarinnar,
Arnbjörg Sveinsdóttir, gefið það í
skyn í fréttum að hún hefði yfir að
ráða upplýsingum um málið sem
nefndin hefði ekki fengið.
Hefur engin
svör fengið
Atli Gíslason